Hermes - 01.12.1960, Blaðsíða 9

Hermes - 01.12.1960, Blaðsíða 9
Bergvatnsmenn ræddu um það sín á milli, hvort óhætt myndi að ýta úr vör með bilaðan bát, eins og veður- útlitið var. Var þó ákveðið að reyna og tókst að komast fram við miklar svaðilfarir. Þá sýndi einn hásetanna á Bergvatni þann hetjuskap að stinga sér til sunds í þeim tilgangi að synda eftir þeim hluta skrúfunnar, sem vantaði. Tókst Tryggvatrogsmönnum við illan leik að ná hásetanum um borð að aftan. Var hann þá með óráði, gekk Síðan fletti hann sig klæðum. berserksgang og barði frá sér, svo menn áttu fullt f fangi með að verjast. Roðnuðu þá allir um borð, utan for- maðurinn, sem sat í skut, hann föln- aði og gleraugun hringsnerust á höfði hans. Skipstjóri hins bátsins hafði einnig lagzt til sunds, í því skyni að aðstoða háseta sinn, en sneri fljótt við og fór aftur um borð í bát sinn á hlið. Um leið lægði veðrið aðeins, og tókst Tryggvatrogi að kom- ast að Bergvatni og setja skrúfuhlutann um borð. Var síðan haldið heimleiðis, og höfðu bátarnir samflot.

x

Hermes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hermes
https://timarit.is/publication/1070

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.