Hermes - 01.12.1960, Side 10
Ball í
Kópavogi
Rétt áður en Bifröstungar fóru
upp eftir í haust, hélt NSS dans-
leik í Félagsheimili Kópavogs. NSS
hefur áður haldið þar dansleik, og
gaf hann svo góða raun, að ráðizt
var í að festa það hús öðru sinni
til sömu afnota.
Þessi góða skemmtun átti að
hefjast klukkan 9, og klukkutíma
síðar mátti segja að húsið væri
fullt. Hinn sanni Samvinnuskóla-
andi sveif yfir vötnunum og allir
léku á alls oddi. Það var rétt eins
og maður væri kominn upp eftir á
ný, og á dansæfingu niðri í skóla-
stofum í borðlampaskini einhverra
skólafélaga. Dansinn var stiginn af
feikna fjöri og lífsgleðin skein út
úr hverju andliti. Inn á milli mátti
greina setningar eins og: — En
hvað það er langt síðan þú hefur
dansað við mig! eða: — En hvað
það er langt síðan ég hef dansað
við þig! o.s.frv. Sums staðar heyrð-
ist: — Hvað er þetta, maður, kanntu
ekki Cha cha cha ? Sko, þú gerir
bara svona úbb - dúbb - úbb dúbb
úbb, nei, þú ert klaufi, teldu einn,
tveir, cha cha cha!
Fyrir dansi lék hljómsveit húss-
ins. Rondó, tríó, kvartett, kvintett,
sextett, sjöstett, eða hvað það nú
var, en þó sú hljómsveit væri ágæt,
náði skemmtun kvöldsins fast að
því hámarki, er skólahljómsveitin
gamla og góða, sem gersigraði Norð-
urland s.l. sumar undir nafninu
Kóral kvintett (og Kári skemmta)
tróð upp á pallinn og hóf leik sinn.
Að vísu vantaði einn meðliminn,