Hermes - 01.12.1960, Síða 13
Ingibjörg
Bjarnadóttir
mun að vísu vera
komin heim er
HERMES kem-
ur út, en hún
dvaldi í Kaup-
mannahöfn í
sumar, og hér á
eftir eru glefsur
úr bréfum, sem
hún sendi Kára
Jónassyni.
Krotað í
Kaupinhafn
........Ef þú vissir, hvað ég var
fegin að fá bréf að heiman, ég hefði
getað kysst kerlinguna hana Tro-
elsínu af fögnuði, þótt hún sé ófé-
leg. Þakka þér annars kærlega fyr-
ir það, þú ert heppinn að vera ekki
hér, annars hefði ég kysst þig
líka!!!
........Við höfum haft það voða
skemmtilegt. Um síðustu helgi fór
ég í ferðalag. Leigði bil með þrem
öðrum krökkum. Fórum til Hróars-
keldu og skoðuðum dómkirkjuna
þar og allar kisturnar, síðan yfir
Litlabeltisbrúna til Fjóns og til
Odense, með ferju frá Fjóni yfir
til Jótlands. Þvert yfir Jótland til
Esbjerg. Daginn eftir fór ég niður
að höfn þar og rak þá augun í
Hallveigu Fróðadóttur og eins og
eldibrandur þangað en þekkti eng-
an, svo ég þáði ekki kaffið sem
mér var boðið, enda voru krakk-
arnir allir danskir og nenntu ekki
niður í dallinn. Síðan ókum við
suður allt Jótland og til baka. Stór-
kostlegur túr. Annars höfum við
verið voðalega stilltar eins og allt-
af. Fórum samt á ball um siöustu
helgi á einn fínasta staðinn í bæn-
um, og var það svo dýrt, að við
urðum gjaldþrota. I gærkvöldi var
ég nærri lent í Nýhöfninni en varð
okki úr, cn ég er búin að hoita
tvonnu áður en ég kem heim . . . .
I gærkvöldi fórum við í rokna
reisu. Fórum úr einni búllunni í
aðra allt frá negrabúllum til barna-
dansleiks en þá gáfumst við upp.
Margrét biður að heilsa, hún er að
fá sér fegurðarblund því hún er að
fara í Granada í dag kl. 4, en þar
er ball milli 4 og 7 á sunnudögum.
Og þú ættir að sjá hana, þú
mundir drepast úr hlátri, hún er í
síðbuxum og 2 peysum og leistum
með sæng og tvö teppi!
Þá veit ég ekki hvað ég á að
segja þér fleira. Bið kærlega að
heilsa öllum sem ég þekki, Degi og
Rósu o.s.frv.
Farvel og hav det godt.
Ingibjörg Bj.
Við biðjum Álf-
heiði velvirðing-
ar á því, að
henni s k y 1 d i
vera stíað frá
unnusta sínum
á myndinni á
bls. 10 — en
okkur vantaði
hana til þess að
benda á fyrir-
sögnina. Og —
allt er gott, ef endirinn er góður
— hér er hún búin að ná honum
aftur.
HERMES
13