Hermes - 01.12.1960, Page 15

Hermes - 01.12.1960, Page 15
RITST J ÓRN ARGREIN Framhald af 2. síðu. því bréf, og segðu kost og löst á efni þess, eftir því hvað hverjum og einum finndist. — Ef — sem við vonum — að framhald verði á út- komu þess, er gott að fá slíkar leið- beiningar og ráðleggingar til að styðjast við í framtíðinni. Þá mun verða reynt að gefa ritið út þrisvar til fjórum sinnum á ári, eftir efnum og ástæðum. Að þessu sinni munum við ekki fjölyrða frekar um Hermes, en felum hann ykkur á vald. ENGINN ENGILL Framhald af 7. síðu. mönnum m.a. að binda um sár og gera lífgunartilraunir. Vildu menn ólmir kynna sér hina nýju „munn við munn“ aðferð, og nota til þess veikara kynið, en leyfi fékkst þó ekki til þess. Eins og sjá má af greinarkorni þessu, hefur félagslif staðið með miklum blóma í Bifröst það sem af er skólaárinu. Er það von mín, að það muni halda áfram að dafna og þroskast í náinni framtíð. Árni Reynisson. HRÓAR Framhald af 3. síðu. við, að Hróar súrnaði á svip og sagði eitthvað stuttaralegt. Þetta er varla hægt að lá honum, því hver er sú sál, sem ekki þreytist á því að vera á stöðugum þönum milli Himnaríkis, Hreinsunarelds og Hel- vítis, til þess ýmist að opna eða loka ? Hins ber að gæta, að Hróar gat verið stakasta ljúfmenni viðskiptis, og sýndi þá hlið eigi síður en hina. Gekk hann oft fram fyrir skjöldu, þegar eitthvað þurfti að gerast í félagslífinu og lítill tími til stefnu, veitti leyfi úr útivistum og heimild- ir til þess að æfa eða gera annað sem nauðsyn krafði eftir lokunar- tíma, og gekk erinda nemenda á vit skólastjóra. Þótt allir kennarar Bifrastar séu sómamenn, er enginn þeirra svo vel að guði ger, að öllum líki alls kostar við þá. Hins vegar hafa þeir svo margt gott til brunns að bera, að arftakar þeirra mega hafa sig alla við, ef þeir eiga að valda því merki, sem nú hefur verið reist. Hróar hélt sínu merki hátt á lofti, og þótt stundum dyndu svalviðrin svo á því, að það hvarf í kófið, hvikaði hann því ekki um þumlung, og ekki ósjaldan bar svo við, að merkið væri hreinna er veðrinu slot- aði. HERMES flytur Hróari beztu kveðjur allra Bifröstunga og kærar þakkir fyrir liðnar samverustund- ir. Megi honum vegna vel í nýja starfinu. AKADEMÍAN Framhald af 16. síðu. hátt og hefðu að öllum líkindum drekkt honum í baðkeri, ef félagar hans hefðu ekki komið honum til bjargar. Slapp hann þannig með naumindum við að hljóta áþekk örlög og Giordano Bruno og aðrir andlegir frumkvöðlar fyrri tíma, sem afturhaldið lét drepa eða lim- lesta En mannsandinn verður ekki bug- aður, hvorki með báli rannsóknar- réttar eða vatnsgangi fávísra kvenna. í samráði við Jens Páls- son, mannfræðing, sem hlotið hef- ur ríkisstyrk til mannfræðirann- sókna á íslandi, hefur nú verið ákveðið, að slíkar rannsóknir skuli að nýju hafnar að Bifröst. Verður þá væntanlega tekinn til notkunar fullkomnari tæki en Akademían hafði á að skipa, en hún hafði því miður aðeins fremur frumstæð áhöld til rannsókna sinna. Meira næst. HERMES 15

x

Hermes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hermes
https://timarit.is/publication/1070

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.