Hermes - 01.10.1968, Side 2
hermes
útgefandi:
NSS |
1968 — 9. órg. — 2. tbl. |
ritstjóri: jj
REYNIR INGIBJARTSSON f
aðrir í ritstjórn: "
DAGUR ÞORLEIFSSON
GUÐMUNDUR PÁLL ÁSGEIRSSON |
INGÓLFUR SVERRISSON \
prentun: -
PRENTSMIÐJA JÓNS HELGASONAR |
myndamót: -
RAFGRAF HF. \
Hvað vitum við um Suður-Ameríku? Við sem súpum
hveljur af hneykslun þegar ferðamenn frá Hondúras
eða Nicaragua sem við hittum í erlendum borgum
spyrja: og hvaðan komið þér? og við segjum Islandi
og þá segja þeir: Irlandi já, Irlandi já. Og þarf ekki
fólk þaðan til. Fyrst þegar ég kom til Italíu þá brást
ekki að menn svöruðu: aaaírlanda. En ég reyndi að
segja: Islanda, Islanda og þá sögðu þeir: si si, Irlanda,
jájá við þekkjum Irland, við vitum hvar það er. Og
þannig gekk þangað til manni hugkvæmdist að segja:
Gudmundsson; því þá var knattspyrnukappinn Albert
á tindi sinnar frægðar og nafn hans hafði þau töfra-
hrif sem nafn Kjarvals átti því miður ekki enda hafa
aldrei verið notuð tækifæri til að koma því á fram-
færi á alþjóðasviði hver Kjarval sé. Heldur ekki nafn-
ið Snorri Sturluson, ekki einu sinni nafn Laxness þar
í landi enda var hann þá ekki búinn að fá Nóbels-
launin. En Norðmenn hafa verið duglegir að kynna
Snorra Sturluson sem sinn helzta höfund og klappað
á kollinn á okkur fyrir okkar litla þátt í honum og
fyrir að vera einskonar útkjálki af Noregi, með svip-
uðum rétti og Englendingar eignuðu sér amerísku
skáldin Walt Whitmann eða Edgar Allan Poe eða