Hermes - 01.10.1968, Blaðsíða 3
THOR VELHJÁLMSSON
asturlas
þá Melville sem samdi dýrlegu bókina um hvítá hval-
inn Moby Dick, en það hafa Englendingar ekki reynt
að gera enda eru þessi skáld afsprengi fjögur hundruð
ára menningarþróunar í sínum hluta heimsins, alveg
einsog skáldið Asmrias er suður-amerískt skáld en
ekki spánskt þó hann skrifi á spönsku.
Við vitum harla lítið um Suður-Ameríku. Þegar á
þann hluta heimsins er minnzt þá hugsar margur sér
hóp grenjandi manna á hlaupum með rós á bak við
eyrað og gítara á bakinu að draga tappann úr hand-
sprengju með tönnunum og gera byltingu fyrir ein-
hvern hershöfðingja með tvídigran vindil milli gull-
tannanna og kaktusvínið tequila í fleyg í rassvasan-
um, og málaliðar á trylltum hestum og nokkrir á ösn-
um þeysa eftir aðalgömnni og þyrla upp moldskýj-
um á leiðinni í forsetahöllina þar sem forsetinn dettur
á rassinn af hræðslu og lífvörður hans kyrkir hann
með axlaböndunum til þess að koma sér í mjúkinn
hjá þeim sem hreppa völdin, en inni í frumskóginum
eru allsberir Indíánar með eitraðar örvar að bíða eftir
bandarískum trúboðum á þyrlu til þess að hafa þá í
chorizo sem er pylsa.
Þegar ég segi Suður-Ameríka þá tel ég Mið-
Ameríku með og ætti reyndar að segja Rómanska
Ameríka og á þá við þau lönd þar sem mannlífið og
menningin hafa litast af spönskum og portúgölskum
áhrifum og þar ríkir spönsk mnga og portúgölsk. I
þessum löndum víðast ríkir tími sem Evrópa skildi
við á nítjándu öldinni, lénsskipulagið með þess ægi-
legu eymd og hungri og ranglæti og ofbeldi. Himin-
hrópandi arðránið sem Bandaríkjamenn hafa kunnað
að virkja og viðhalda. Þá mætti kannski geta þess að
tveir af hundraði eiga áttatíu hundraðshluta af rækt-
anlegri jörð í Brazilíu og þar kváðu deyja 85 börn
hverja klukkustund. A hverju ári deyja sex milljónir
brazilskra barna innan sextán ára, hundrað þúsund
deyja þar árlega úr berklum, þar eru 64 þúsund holds-
veikir og 600 þúsund manns teljast þjáðir af sárasótt.
Eða eigum við að nefna Perú. Þar herma skýrslur að
56% íbúanna búi við ómennsk kjör, níu milljónir
manna búa ekki í mannabústöðum, 800 þúsund barna
fari aldrei í skóla. Eða Venezuela. Þar eiga 3% íbú-
anna 90% landsins. Þannig má fara í hvert landið
eftir annað og víðast verður sama fyrir. Þessar tölur
sem ég nefndi em gefnar upp af bandarískum sér-
fræðingum: Leo Huberman og Paul M. Sweezy í