Hermes - 01.10.1968, Qupperneq 7
menntirnar með því að vinna úr áhrifum og efni sem
hann fann heima fyrir í afskekktum byggðum Irlands
meðal fátæks og einangraðs fólks.
Ekki fór þó Asturias strax heim. Hann drakk í sig
áhrif og innblástur í París á þessu menningarlega
blómaskeiði þar sem allt ólgaði af nýjum hugmyndum
og uppáfyndingum í listum og skáldskap: Dada, kúb-
isminn og súrrealismi. Og Asturias kynntist mörgum
hinna merkustu rithöfunda svo sem André Gide sem
á þessum árum var að semja sín fremsm verk svo sem
Myntjalsarann og Corydon og stóð að tímaritinu
NRF, Nouvelle Revue Francaise ásamt mönnum eins-
og Claudel, Valéry, Duhamel og Proust, þetta tíma-
rit hafði æðsta vald í bókmenntapólitík Parísar;
Anatole France var þá farinn að eldast, honunt kynnt-
ist Asturias, og einnig spánska skáldinu Unamuno og
Itölunum Benedetto Croce sem hleypti af stað þeirri
heimspekikenningu sem nefndist Storismo og leikhús-
stórveldinu Pirandello sem þá stóð á hátindi og var
kynntur á Islandi á þessum árum með leikritinu Sex
persóm/r leita höfundar sem þá var alveg nýtt af nál-
inni og ultra avant-garde einsog annað verk sem þá
var leikið i Iðnó og aldrei síðan: Straumrof eftir
Laxness. Mikilvægust urðu þó tengsl Asturiasar við
súrrealistana sem þá voru ungir menn og mörgum
sýndist þeim brenna eldur úr nösum, núna kallar
Arthur Lundkvist þá hina hvíthærðu byltingamenn:
André Breton, Eluard og Aragon sem urðu vinir
Asmriasar. Nú lifir Aragon einn þeirra, hann er í
innsta hring franska kommúnistaflokksins og hefur
verið fimur að snúa sér eftir atvikum stjórnmálabreyt-
inganna, ákaflega fjölhæfur ljóðasmiður sem gemr
ort í hvaða stíl sem er og hefur nú skrifað skáldsögu
í anda nýju frönsku skáldsögunnar sem svo er nefnd.
A þessum árum var vald André Bretons mikið og
súrrealistarnir stóðu saman enda skotið á þá úr ýms-
um átmm en síðar skildu leiðir og skáld súrrealismans
fundu sinn eigin stíl hin helztu þeirra: Eluard, Aragon
og Tristran Tsara og Robert Desnos. En André Breton
hélt fast við kenningar súrrealismans og var kreddu-
fastur páfi sem safnaði að sér nýjum lærisveinum æ
ofan í æ og studdi þá fyrsm sporin meðan þeir hlýddu
boði hans og banni en brást illa við þegar þeir brumst
undan valdi hans og vísaði þeim í yztu myrkur og
litaðist um eftir nýjum í skarðið og þannig leið ævi
hans í súrrealistískum rétttrúnaði, snillingur sem varð
merkari af áhrifum sínum á aðra menn en því sem
hann sjálfur skrifaði, með persónu sinni og æsilegum
hugmyndum kveikti hann í mörgum og nú hefur
hann látinn verið endurvakinn af æskunni í uppreisn
sem átrúnaðargoð ásamt Trotsky, Marcuse, Che og
Maó. Breton var afdráttarlaus og sagði:
Heldur þetta hjarta með bremsuhandfangi
en þetta fen af mldri
og þetta hvíta klæðisplagg sem syngur bæði í
loftinu og í moldinni
heldur en þessa hjónabandsblessun sem sameinar
enni mitt hinum fullkomna hégóma
Heldur lífið.
Hinn súrrealistisku áhrif á bókmenntir Asturiasar
urðu varanleg og koma Ijóslega fram í öllum meiri-
háttar verkum hans, og samþætmst hinum suður-
ameríska arfi í spánsk-indíánsku blóði. Hið mikla
aldamótaskáld Suður-Ameríku Ruben Dario sagði:
No hay escuelas, hay poetas, það eru ekki stefnurnar
sem skipta máli heldur skáldin. Súrrealisminn
hafði sín áhrif og mikilvægi vegna þess hvernig rætt-
ust sum skáld þeirrar stefnu og blómstruðu í verkum
sínum eftir að þau höfðu sagt skilið við súrrealistana.
Það gildir ekki sízt um Asmrias. Hér má geta þess
líka að á Parísarárunum kynntist Asmrias öðrum suð-