Hermes - 01.10.1968, Blaðsíða 10
hefna í fyllingu tímans: mikið er hans megin, mátt-
ugur er hann í dansinum, kváðu þeir. Blómin voru
afl hans, skýin hans dans.
Hver maður á sér dýr sem er hans verndarvættur,
hann ber lykt af því dýri og Indíánarnir nota ilmefni
til þess að leyna þeirri lykt svo það sé ekki hægt að
vinna þeim tjón.
Guli hérinn var verndartákn Gaspars Ilom; gulu
hérarnir með maíseyrun heyra og skynja allt, og þeir
vara hann við þegar hætta er áferðum; og Gaspar
talar fyrir alla og ladinarnir óttast hann mest, hinir
spönskumælandi Indíánar sem tóku upp siði og lífs-
hætti hinna hvítu og sviku arfinn og landið og blóð
sitt, og hinn helga maís, þeir þora ekki að hreyfa sig,
þeir sjá hestana fara framhjá einsog svört fiðrildi, og
grunar bara riddarana með andlit einsog brenndar
kökur; það er hætt að rigna.
Og í djúpblárri nótt Iloms stökkva litlir glitrandi
hérar frá stjörnu til stjörnu og boða hættu, og úr
fjöllunum berst lykt af gulum páfagauk. Þannig er
saga Asmriasar einsog ofvaxið prósaljóð eða endalaus
vefnaður þar sem eitt söguljóðið tekur við af öðru
með ilmandi litum og mátmgum myndum. Heimur
fullur af galdri og fordæðuskap, draugar og vættir,
galdramaður í hjartarlíki, póstur sem getur breytzt
í koyot, steppuúlfinn sem rennur snarlega yfir fjöllin.
Stundum temja indíánarnir hann.
Þú mátt ekki skjóta þennan koyot, veiztu nema
þarna fari sjálfur pósturinn ásthryggi sem þú varst
sendur að leita uppi.
Einvaldinn Ubico hafði loksins hundskazt úr há-
sætinu 1944, og frjálslynd stjórn Arbenz gerði
Asmrias að menningarfulltrúa við sendiráðið í Mexíkó,
síðar varð hann sendisveitarritari í Argentínu og loks
sendiherra í San Salvador.
Eftir hina miklu Indíánastúdíu hans, skoðun hans
á hinni þreyjandi alþýðu, þá tók hann næst fyrir þau
öfl sem standa á bak við einvaldana sem pína fólkið.
A þessum diplómataárum fór að koma út hinn mikli
bananaþríleikur hans sem er innblásinn af hinum ó-
fagra leik United Fruit Co. Fyrsta bindi: Fárviðrið,
Viento fuerte, segir frá tilraun bandaríska hugsjóna-
mannsins Mr. Mead til þess að rétta hlut smælingjanna
í Miðameríku og endar á ofsabyl sem kostar hann
og konu hans lífið en erfðaskrá þeirra tryggir sjálf-
stæði bananaræktenda. Næsta bindið: El Papa Verde,
Græni Páfinn, er ein frægusm bóka Asmriasar og
segir frá atburðum sem eru byggðir á því sem gerðist
1927 þegar United Fruit fékk keppinaut í félagi sem
var stofnað í Honduras en bandaríska stjórnin beitti
sínum áhrifum til að berja það niður og hjálpa United
Fruit til að gleypa keppinautana, 1929 komst meiri-
hluti hlutabréfanna í eigu United Fruit og síðan hefur
ekkert fjármálastórveldi verið til í Mið-Ameríku nema
United Fruit, og því stjórnar hinn græni páfi sem
reisir og fellir ríkisstjórnir eftir því sem hentar hags-
munum hans með hjálp Bandaríkjastjórnar undir fána
frelsisins sem við elskum öll svo heitt. A þessum stað-
reyndum mannkynssögunnar byggir Asmrias skáld-
verk sitt. I þessu bindi er sögð sagan af því hvernig
ævintýramaðurinn Geo Maker Thompson hefst til
valda og dreymir um að verða nútímaútgáfa hinna
miklu sjóræningja fyrri tíma í Karabíska hafinu sem
söfnuðu ótrúlegum auði með því að svífast einskis og
Geo Maker Thompson ætlar að komast lengra en þeir
og gernýta möguleika nútímans og verða grceni páf-
inn, nútímasjóræningi sem hefur áttað sig á auði þessa
lands og læmr ekkert standa í vegi fyrir sér að hrifsa
hann undir sig, græni páfinn sem siglir léttan byr í
mannasvita, blekkir hina arðrændu með því að bjóða
þeim framfarir meðan hann er að hirða af þeim allt
sem þeir eiga, flækja í net sitt og sá spillingunni, hann
viðurkennir bara rétt hins sterka, og ágirndin stýrir
öllu æði hans þessa ljóshærða risa frá því hann geng-