Hermes - 01.10.1968, Blaðsíða 16
Thor Vilhjálmsson er fœddur í Edinborg, Skot-
landi, 12. ágúst 1925, lauk stúdentsprófi úr MR
1944, hóf nám í norrœnudeild Háskóla íslands
en dvaldi erlendis uppúr 1946 vi5 nám og rit-
störf, í Bretlandi og París. Var bókavörður við
Landsbókasafnið 1953—55 og ritstjóri leikskrár
Þjóðleikhússins 1958—61. Oftsinnis leiðsögu-
maður og fararstjóri íslenzkra ferðamannahópa
erlendis. Formaður Rithöfundafélags íslands
1959—60 og síðan 1965. Einn stofnenda tíma-
ritsins Birtings 1954 og meðritstjóri þess síðan. Á
sœti i Þjóðfulltrúaráði Sambands evrópskra rit-
höfunda. Frá Thor hafa komið þessar bœkur:
Maðurinn er alltaf einn (1950), Dagar mannsins
(1954), Andlit í spegli dropans (1957, í sœnskri
þýðingu 1961 og síðar í enskri þýðingu), Undir
gervitungli (1959), Regn á rykið (1960), Svipir
dagsins, og nótt (1961), Kjarval (1964), Fljótt
fljótt, sagði fuglinn (1968). Auk þess sögur og
Ijóð í ýmsum erlendum tímaritum og safnritum.
Þá hefur Thor meðal annarra ritverka þýtt Horfðu
reiður um öxl eftir John Osborne, Á yztu nöf eftir
Thornton Wilder og Dáið þér Brahms eftir Fran-
coise Sagan. Kvœntur er Thor Margréti Indriða-
dóttur, fréttastjóra hjá Ríkisútvarpinu.