Hús & Búnaður - 01.03.1967, Page 6
Þeir félagarnir Jón Ólafsson og Pétur B. Lúthersson, sem
lokið hafa námi í húsgagnaarkitektúr í Danmörku, hafa
nú opnað teiknistofu í Ármúla 5.
Þótt enn hafi ekki mikið heyrzt af þeim hér heima eru
þeir orðnir nokkuð kunnir erlendis, einkanlega fyrir barna-
húsgögn sín, sem nefnd hafa verið Baby-teen. Hugmynd
þeirra var að teikna barnahúsgögn, sem hœgt vceri að
nýta áfram þótt barnið eltist og yxi úr vöggu. Slíkt átti
að spara fjölskyIdufólki kaup á nýjum og nýjum húsgögn-
um þegar þarfir barnsins breyttust. Jafnframt voru þessi
nýju húsgögn þannig úr garði gerð hvað efni og frágang
snerti, að þau hentuðu vel umgengni barna. Grindurnar
eru gerðar úr beykitré, sem er mjög harður og góður viður
og laus við skaðlegar sýrur, sem gcetu verið hœttulegar
börnum. Plöturnar eru sprautaðar með sérstöku slagheldu
lakki og eru þessi efni mjög auðveld í hreinsun
Sýnishorn af því hvernig hœgt er a3 fá einstaka
hluta í húsgögnin.
Uppbygging húsgagnanna er sú að fyrst er vaggan
keypt en síðan er hœgt að skrúfa hana í sundur á auð-
veldan hátt og breyta í önnur húsgögn eftir því sem þurfa
þykir. Að vísu verður að kaupa einstaka hluta sem á vant-
ar til viðbótar. Þannig er t. d. hœgt að setja saman úr
þeim auk vöggunnar skáp, sófa, skrifborð, rúm, leikfanga-
geymslu og fleira. Hvert einstakt stykki er framleitt og
selt sér. Danska fyrirtœkið Domus Danica hefur hafið
framleiðslu á þessum húsgögnum en enn sem komið er
er okkur ekki kunnugt um að þau fáist hér.
Við Islendingar höfum ávallt verið hrifnir af afrekum
landans meðal annarra þjóða. En við skulum þó eigi
síður fagna að þessir ungu og áhugasömu menn skuli
nú hafa snúið heim aftur og hafið störf sín hérlendis. Hér
bíða þeirra mikil og óleyst verkefni, sem vanda vilja störf
sín og skapa með okkur fegurð og hagkvœmni hins hvers-
dagslega lífs. En hugir okkar verða þá líka að opnast
fyrir mikilvœgi þess gagnvart okkur sjálfum. Því er ástœða
til að hvetja fólk til að leita aðstoðar þessara ungu manna
við skipulagningu og útbúnað híbýla sinna. Það er starfs-
gleðin sem framar öðru rœður ríkjum á teiknistofunni í
Ármúla 5.
HUSBYGGJ-
ENDUR
Hjá okkur geíið þér fengið nœstum allt efni í bygginguna á einum stað. Góð
bílastœði og auðvelt að komast að. Góðfúslega kynnið yður verð og vöruval hjá
okkur. — Það sparar yður tíma og fyrirhöfn að verzla þar sem vöruvalið er mest.
Kársnesbrauí 2 — Kópavogi.
Timbur, járn o. fl. þungavörur sími 41010
Verzlunin — 41849
Skrifstofan — 40729
Byggingavöruverzlun
Kópavogs