Okurkarlar - 01.04.1964, Síða 4

Okurkarlar - 01.04.1964, Síða 4
4 Okurkarlar HINN BREIÐI VEGUR Einhverjum kann ef til vill að finnast fróðlegt að vita hverjum fótum í jörð auður sá stendur, sem fallið hefur í skaut erfingjanna og annara, sem njóta góðs af. Engan sögumann hefi ég um það gleggri, en Sigurð sjálfan. Er hann. á unga aldri, varð fyrir þvi óláni að vera dæmd- ur úr leik í lífsbaráttunni bæði vegna lömunar, því að fyrir- sjáanlegt var að hann myndi aldrei geta unnið fyrir sér á þann hátt, sem þá var algeng- astur, en það var líkamleg vinna og svo hins að hann hafði eng- in tök á að afla sér þeirrar menntunar, sem til þurfti til að vinna andleg störf eða verzl- unarstörf, en til þess stóð hug- ur hans helzt, mátti segja að fiestar dyr væru lokaðar hin- um unga manni. Fyrir tilvilj- un eina komst hann til Bol- ungarvíkur og réðst þar að verzlun. sem ég man ekki hvað hann nefndi. Sigurður var að eðlisfari mjög sparsamur og er hann hafði eignast nægilegt fé, lagði hann út í sín fyrstu við- skipti. Hann komst í samband við einhvern aðila í Reykjavík, sem útvegaði honum smyglað áfengi og fékk það sent vestur. Áfengið ætlaði hann að selja á Isafirði, en að sjálfsögðu að annast þá verzlun sjálfur. En svo illa tókst til að áfengið fór beint vestur á Isafjörð og í fangið á sýslumanninum þar. Tapaði ungi maðurinn þar sín- um fyrsta leik, Tapaði hann þar aleigunni en ekki kjarkin- um. Vafalaust hafa næstu til- raunir tekist betur því að nú fannst honum afhafnasviðið of þröngt þama fyrir vestan. Flutt- ist nú Sigurður til Reykjavíkur og hófst nú hörð og oft þym- um stráð lífsbarátta hans, sem nú er á enda. Sigurður brallaði margt þessi árin, en um veru- lega auðsöfnun var ekki að ræða fyrstu árin. Brennivínssalan var hættuleg, þefarar voru allsstað- ar og hættan beið við hvert hom. Hann haslaði sér völl öfugu megin við lögin og er varla hægt að lá honum það, því að hann hefði tæplega haft heilsu til að stunda skósmíði hvað þá annað, sem var oft neyðarúrræði fatlaðra manna. Enda komst hann nokkrum sinnum í kast við þau. Gaman hafði hann af því að segja frá, þegar hann var í tugthúsinu upp á vatn og brauð, að eigin ósk, því að það stytti veru hans þar mjög mikið, en þar sat hann fyrir sprúttsölu. Af mannúð- arástæðum fékk hann að fara heim til sín um helgar, tvo daga, frá föstudagskvöldi til sunnudagskvölds. Sagði hann þessa daga hafa verið arðbæra, því hann hefði selt mikið þessa tvo daga. Sig- urður lagði mikið að sér og heimili sínum á þessum árum og oft talaði hann um það að sárast hefði sig tekið að böm hans myndu hafa þjáðst og goldið þess að hann var ekki frjáls maður. Verulegur skriður tókst þó ekki að komast á út- lánastarfsemi Sigurðar fyrr enn á stríðsárunum, að hann fékk rekstrarfé með nokkuð óvenju- legum hætti. Sigurður var á sín- um tíma spilafíkinn maður en gætinn og vann oft nokkuð fé í spilum. Ekki voru það þó verulegar upphæðir, þrátt fyrir að vín var oft haft ósleitilega um hönd, og spilafélagar hans oft nokk- uð mikið undir áhrifum. Sigurður var hófsmaður á vín. Hann sagði að stundum hefði verið spilað upp í þrjátíu og sex tíma. Þar kom að Sig-urð- ur eignaðist swilafélaga, sem var nokkuð djarfur í spilum en ekki að sama skapi hepp- inn. Maður þessi var umsvifa- mikill lögfræðingur og fjár- Ibúðarhús yfirborgarfiigetaus er rúmgott, sem betur fer. Söluve rð áætlað 3—4 miljónir króna. Er yfirborgarfógetinn . . . Framhald af 3. síðu. uppboðs auglýsingu, sem birtist í Lögbirtingarblaðinu. (En þeir, sem eru svo lánsamir að komast þar á prent, fá birtar þrjár aug- lýsingar), og verða auðvitað að greiða þær augl. extra). Það má segja að þetta sé ekki mikið pr. kjaft. en þetta malað- ist nú samt upp í 634 augl árið 1962 sem gera kr. 237.000.00. Við höfum þá vitneskju um saman- lagðar tekjur fógetans árið 1962 kr. 357.000.00 auk þess sem hann hefur fengið, sem skiptaráðandi og uppboðshaldari ef það hefur þá nokkuð verið! (samanl. tekj- ur fógetans munu vera yfir 600.000.00 sl. ár). Samkvæmt skattstiganum hefði fógetinn átt að hafa útsvar og skatta af þeim tekjum, sem tölufærðar eru kr. 176.000.00 mismunur kr. 67.000.00. Ég þykist gera fógetanum mik- inn greiða með því að vekja at- hygli hans á þessum hrapallegu mistökum niðurjöfnunamefndar sem hann hefur auðvitað i önn- um sínum ekki tekið eftir, því auðvitað er það móðgun við mann, sem hefur jafnmikið fyrir að innheimta skatta og útsvör fyrir það opinbera, ef að hægt er að benda á að hann greiði ekki til iafns við aðra, af tekj- um sínum. Mér þykir leitt að verða að segja það um vin okk- ar beggja, Sigurð Bemdsen, að í þessu hafi hann farið með rangt mál. (Þ.e. að fógetinn sé skattsvikari) Eitt gleður. okkur samborgara hins ástkæra yfir- borgarfógeta, og það er að hann skuli ekki vera í húsnæðisvand- ræðum. Hér birtist mynd af í- búðarhúsi hans að Reynimel 57. Hitt er aftur á móti sorglegt hvað honum hefur gengið illa að eignast til fulls þak yfir höf- uðið og vera þó kominn á þenn- an aldur. Skattskráin segir okkur að fó- getinn greiði 1414 krónur í líf- eyris og eignaskatt og rúmar 2400 krónur í eignaútsvar. Við óskum þess fastlega að ekki komi til að birta þurfi nauðung- aruppboðs auglýsingu á Greni- mel 57 á næstunni. Og svo geta illgjamar tungur verið að tala um að söluverð þessa húss myndi vera um þrjár til fjórar milljónir. Bara einbýl- ishús handa fullorðnum hjónum. Við skulum vona að dánarbú Sigurðar Berndsen hressi eitt- hvað upp á fjárhag yðar herra yfirborgarfógeti. svo að niður- jöfnunamefnd þurfi ekki að sjá aumur á yður og þér getið geng- ið jafn hnarreistur um götumar og þér eruð, þegar þér emð að fullnægja öllu réttlæti í nafni hins opinbera. Það var mikið lán fyrir borgarbúa að lögmenn bæjarins, á þeim tíma, er Björn Þórðarson, lögmaður, lét af emb- ætti og lögmannsembættinu var skipt í tvennt, borgardómara og borgarfógeta. skyldu gangast í því við þáverandi dómsmálaráð- herra. Einar Amórsson, að gera Kr. Kr. að fógeta, en ráðherra mun hafa verið tregur til vegna þess að honum mun hafa þótt þjónusta fulltrúa lögmanns, við Bakkus full einlæg. Kr. Krist- jánssyni mun hafa þótt embættið þess virði að snúa baki við guði sínum. a.m.k. um langan tim'a og mun hafa snúið átrúnaði sínum á annan guð, sem margir dýrka og mörgum er tryggur og engan svíkur, sem blótar hann af heil- um hug, svo sagði Sigurður Bemdsen a.m.k. Borgarfógetinn hefur stundað embætti sitt af miklum dugnaði og samvizku- semi og má búast við að margir verði harmþrungnir er hann. sökum aldurs lætur af embætti. Væntanlega heldur hann út svo lengi að hann geti lokið skipt- um í búi Sigurðar Berndsen, svo að skiptalaunin lendi ekki í höndunum á einhverjum, sem ekkert hefur með þau að gera. Trúlegt er að eljumaður eins og Kr. Kr„ sem er enn em og hraustur og vafalaust með fulla starfskrafta, þurfi að hafa eitt- hvað fyrir stafni er hann sezt í helgann stein og þó hann burfi vafalaust ekki á neinum ráðlegg- ingum að halda í þeim sökum, geri ég ráð fyrir að það yrði vel þegið að hann tæki að sér að leiðbeina mönnum um skatta- framtöl eða a.m.k. framtalsnefnd meðan hún starfar. Ef til vill eru upplýsingar þessar rangar og vonandi að svo sé, því að það myndi gefa fógetanum kærkomið tækifæri til að leiðrétta rangan söguburð, sem gengur jafnt með- al lögfræðistéttarinnar og ann- arra. Þrátt fyrir að þessar línur um yfirborgarfógetann eru ritaðar bæði í gamni og alvöru, skal þetta þó tekið fram: Vfirborgar- fógetinn er einn af æðstu emb- ættismönnum Iandsins og laun hans ákveðin samkvæmt því. Það er vitað að aukatekjur embættis- ins eru mjög miklar. Það hafa gengið háværar sögur um það milli manna, í mörg ár. að þær væru ekki allar gefuar upp til skatts. Það er alvarleg ásökun á mann í dómarasæti að hann sé skattsvikari. Borgarbúar krefjast þess að vfirborgardómarinn hreinsi sig af þessum söguburði, ef hann er rangur. Borgarfógeta- embættið er ekki einka ..biss- ness“, tekjur þess eru greiddar af almannafé og aukatekjur emb- ættisins eru að meginhluta greiddar af fólki, sem er sjálft í greiðsluvandræðum með skatta sína. Það ætti að vera auðvelt fyrir herra yfirborgarfógetann að lciða allan sannleikann í Ijós, eða segja af sér ella. málamaður, stjórnmálamaður, harður í hom að taka en ekki óvinsæll. Hann varð nú fyrir barðinu á Sigurði og fór svo einn veturinn að Sigurður vann af honum, i spilum milli tvö og þrjú hundruð þúsund krón- ur „og það var mikill pen- ingur í þá daga“ eins og Sig- urður var vanur að segja og sennilega mun láta nærri að það muni nema tveim til þrem milljónum með núverandi verð- gildi, eða meira. ,.Það var eig- inlega startkapitalið, en það hefur heldur ekki farið illa í höndunum á gamla manninum" sagði Sigurður og hló dátt. En rraður sá er tapaði svo ofsa- lega fé sínu í spilum við Sig- urð var Garðar heitinn Þor- steinsson alþingismaður. Þann- ig var nú vegurinn varðaður, sem þið gangið á. „Bemd- sensfólk". Hann er breiður og vonandi verður ykkar strit við að tína upp gullpeningana á honum ekki eins mikið og arf- gjafa ykkar, svo að maður tali nú ekki um þeirra, sem hafa unnið fyrir þeim. Þjóðfélagslegur glæpur Áður en ég lík þessum lín- um vildi ég mega benda á eitt atriði, sem hefur mikla þýð- ingu fyrir þjóðina alla. Þeir menn, sem rætt hefur verið um hér að framan, vinna flestir fyrir opnum tjöldum, þau eru aðeins dregin fyrir meðan ver- ið er að framkvæma verknað- inn. Áhorfandinn má ekki telja peningana, sem viðskiptamaður- inn fær, en hann má gjarnan sjá víxilinn á eftir. Hér fer sem sagt allt löglega fram. Það eina, sem ekki sést er ránið sjálft, innbrotið í vasa ,,kúnn- ans“. Að tilskyldum tíma liðn- um kemur „kúnninn" aftur og nú þarf ekki að draga tjaldið fyrir. VÍSffliinn ér greiádur í reiðu fé, þeirri upphæð sem hann hljóðar upp á. Áhorfandinn sér engar misfellur, en hann veit að upphæðin er allt önnur en sú sem kúnninn fékk hjá lögfræð- ingnum eða fjármálamanmnum og hann veit líka að mismunur- inn er miklu meiri en sem nem- ur löglegum bankavöxtum. Hann hefur orðið vitni að vel skipu- lögðu ráni á oft illa stöddum meðborgara sínum. En hann getur ekki að gert. Þetta var svo snilldarlega undirbúið og faglega gert að enginn getur hreyft legg eða lið. Þarna inni situr ræninginn og telur pening- ana, sem hann aflaði á svo auð- veldan hátt og þarf ekki að greiða neina skatta af. Og hver er svo þessi áhorf- andi? Hann er úr öllum stéttum, á öllum aldri og þar komum við að aðalatriðinu í þessum leik. Unglingurinn, ungi maðurinn, sem ef til vill hefur leiðst út í óreglu eða hefur ekki tök að „fylgjast með“ vegna fjárskorts, og á þetta horfir, veit hvað skeð hefir, en enginn gerir neitt. Vaknar þá ekki í huga hans þessi spurning: Þvi hefir þessi maður leyfi til að féfletta með- bróður sinn á þennan svívirði- lega hátt svo að segja fyrir opn- um tjöldum? En yrði mér á að hnupla nokkrum krónum, senni- lega án þess að vera með sjálf- um mér, yrði mér stungið aust- ur á Litla-Hraun eða í tukthús- ið. Af hverju má þessi maður ásælast annarra fé og ná því í sínar hendur og njóta þess ó- áreittur? Það þarf ekki snjalla hugs- un, borgari góður, til að skilja hvað af getur hlotizt. Eina leið- in til þess að forðast hinar hryllilegustu afleiðingar fyrir fjölda einstaklinga og þjóðina alla er sú, að þú og þitt fólk og allt hitt fólkið í landinu for- dæmið þessa menn og allt þeirra hyski, þá mun ekki á löngu líða að yfirvöldin verða knúð til að grípa til róttækra ráð- stafana og ef þau ekki gera það. þá verði almenningsálitið það sterkt gegn þessum mönn- um að þeim verði ekki fært að halda áfram iðju sinni leng- ur, en gerist nýtir borgarar, sem hafi annað i hug en að lifa á annarra fé og vinnu. Ástæða fyrir ritun þessarar greinar og útgáfu þessa blaðs er sá að sá, er þessar línur rit- ar hefir haft all náin kynni og ömurleg af starfsemi þeirri, sem hér um ræðir. Ekki er þetta þó ritað sem afsökun fyrir eigin breytni, en fyrst og fremst sem aðvörun fyrir aðra. Það er auð- velt að vera vitur eftir á og sá sem hefir einu sinni lent alvarlega í höndum okurkarla mun tæplega minnast ömurlegri reynzlu og munu ekki ófá dæmi um að til alvarlegra tíðinda hafi borið, er menn hafa verið rúnir inn að skyrtunni og enga björg sér getað veitt. Þau eru ekki ófá mannslíf- in, sem okurkarlar um heim all- an hafa á samvizkúnni. Hér eru því engin gamanmál á ferð. Þessir menn hafa engann áhuga á hugarástandi því, sem fómar- lömb þeirra kunna að komast í þegar öll sund virðast lokuð. Það muni áreiðanlega renna mikið vatn til sjávar og margar okurskuld- ir innheimtar með harðri hendi, áður en tekst að ganga milli bols og höfuðs á starfsemi þess- ari. Ástæðan fyrir greinarkorni þessu er fyrst og fremst sú, að vekja athygli á þeirri spillingu sem starfsemi þessi getur vald- ið. Heil fjölskylda er svo spillt í sambúðinni við þessa starf- semi, að hún virðist ekkert sjá annað en peninga, og hana skipt- ir engu máli hvernig þeir pen- ingar eru fengnir. Sigurður Berndsen var á sinn hátt heiðarlegur maður. Hann hefði sennilega aldrei lagt út á þessa braut ef að örlögin hefðu ekki hrundið honum út á hana, það sagði hann oft sjálfur. Það var ávallt óhætt að greiða honum peninga þótt ekki væri kvittun til staðar þá stund- ina. Það var óhætt að fá hon- um pappíra án kvittunar, um þetta geta margir borið vitni. Nú ber svo við, að afkomend- ur hans og erfingjar ætla að nota sér af því trausti^ ( sena Sigurður naut, þegar "hans nýt- ur ekki lengur við. Ýmsir papp- írar hafa fundizt í fórum Sig- urðar sem ekki var gengið frá og enginn stafur var fyrir nema persónuleg viðskipti Sigurðar og viðkomandi. Menn hafa gefið sig fram við dánarbúið og sagt rétt og satt um málið. Lögfræðingar dánarbúsins vita að rétt er frá skýrt, en fá ekki að gert, því að erfingjarnir heimta peninga með illu og góðu, jafnvel þótt þeir viti mætavel að viðkomandi skuldar alls ekki s'kuldina. Þetta myndi Sigurður Bernd- sen aldrei hafa gert og telja mjög óheiðarlegt. Orðhvatur maður myndi kalla þetta þjófn- að. Hér hefir verið farið fljótt yfir sögu. Sigurður Berndsen sagði mér ótal sögur um menn og málefni í óteljandi samtöl- um og hann var ekki myrkur i máli um skylda og óskylda. Ýmsar þessara frásagna voru á þann veg, að þótt þær væru vafalaust sannar er öllum fyrir beztu að þaer fari með Sigurði í gröfina. Aftur á móti er ég reiðubú- inn til þess að gefa upp þau nöfn á okrurum, sem Sigurður nefndi mér, við rétta aðila. Ég vil skora á þá sem vilja hefja baráttu gegn okurstarfseminni að senda gögn og upplýsingar í pósthóf 319 merkt leyndarmál. Þeir, sem óska að gefa upp- lýsingar, án þess að vera sjálfir við málið riðnir, geta það, og senda þá nafn og heimilisfang. Margir óttast hina peninga- vopnuðu glæpamenn og þora ekki að hafast að. Okraramir mega þakka Berndsensfjölskyldunni fyrir að þessi mál verða ekki lengur þög- uð í hel. Ef áframhald verður á þessum umræðum, sem hér eru hafnar, vil ég láta hina háttvirtu „fjármálamenn“ vita, að þeim þýðir ekki að skjóta sér á bak við úrelta meiðyrða- löggjöf. Ég skal taka við eins mörgum meiðyrðamálum og yð- ur þóknast herrar mínir, ég get ekki tapað meiru en ég hefi tapað á okrurum. Allt sem hér hefur verið sagt er satt, og væntanlega á ýmislegt eftir að koma í Ijós. ♦ « 4

x

Okurkarlar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Okurkarlar
https://timarit.is/publication/1073

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.