Morgunblaðið - 08.11.2011, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.11.2011, Blaðsíða 2
2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 2011 FÓTBOLTI Kristján Jónsson kris@mbl.is Grindavík verður næsti áfanga- staður knattspyrnuþjálfarans sig- ursæla frá Akranesi, Guðjóns Þórð- arsonar. Grindvíkingar björguðu sér naumlega frá falli með því að sækja þrjú stig út í Vestmannaeyjar í loka- umferð Pepsi-deildarinnar í haust. Heimamaðurinn Ólafur Örn Bjarna- son ákvað að láta af störfum sem þjálfari að leiktíðinni lokinni og Grindvíkingar hafa ákveðið að leita til Guðjóns og gerði hann þriggja ára samning við félagið á sunnu- dagskvöldið. „Ég sá ekki mikið til liðsins í sum- ar. Ég sá þá reyndar á undirbún- ingstímabilinu eða þar til ég fór vestur um miðjan maí. Ég sá aðeins til þeirra í sumar en ekki þannig að ég geti lagt dóm á einstaka leik- menn eða frammistöðu þeirra. Það er hins vegar alveg klárt að í liðinu eru ákveðnir þættir sem hægt er að byggja á,“ sagði Guðjón þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gær en dró ekki dul á þá skoðun sína að taka þurfi til hendinni ef Grindavík á að fara úr fallbaráttunni upp í topp- baráttuna. „Þar þurfa ýmsir þættir að fara saman. Það er eitt að líka hugmyndin að verða góður og annað að gera það sem til þarf. Ég einn og sér mun ekki gera liðið að toppliði, það þurfa að vera aðstæður og um- hverfi til þess. Það er hellingur sem þarf að huga að ef þú ætlar að búa til topplið. Það er bara þannig. Það er ekki verið að halla á neinn í þeim efnum. Ef þú ætlar þér að búa til lið sem á að fara alla leið þá þurfa margir hlutir að fara saman.“ „Þar eru margir stórhuga“ Guðjón var á árum áður orðaður við þjálfarastöðuna hjá Grindavík og hann segist þekkja ágætlega til ein- staklinga sem starfa í kringum bolt- ann á þeim bænum. „Það er ný stjórn í félaginu sem er nýtekin við. Ég þekki náttúrlega Jónas (Þór- hallsson formann) og hef þekkt marga af þessum mönnum í mörg ár. Ég veit að þar eru margir stór- huga og hafa mikla löngun. Það er margt mjög gott í Grindavík en það þarf aðeins að hrista upp í þessu. Það er ákveðið hugarfar sem þarf að breytast. „Þetta reddast“-hugarfar dugar ekki. Nálgunin þarf að vera markvissari og ákveðnari,“ sagði Guðjón og hann ræddi leikmanna- mál við stjórnarmenn. Ræddi við Ólaf Örn Guðjón hefur mikinn áhuga á því að halda forvera sínum, Ólafi Erni Bjarnasyni, hjá félaginu sem leik- manni. „Það var farið aðeins yfir leikmannamálin og þau eru í skoðun. Það er meðal annars verið að skoða mál Tékkans Michal Pospisil og hvernig þau verða leyst. Annaðhvort verður hann kallaður hingað til æf- inga eða gengið frá starfslokum. Bú- ið er að ganga frá málum Jamie McCunnie. Ég er búinn að tala við Ólaf Örn Bjarnason og falast eftir því að halda honum sem leikmanni. Ég hef mikinn áhuga á því að halda Óla og ég vona að það gangi eftir. Svo verður að koma í ljós hvernig þessir strákar bregðast við þegar maður fer að vinna með þeim og hvernig er hægt að nota þá og nýta. Það er alveg klárt að það þarf ein- hverja styrkingu en ég held að aft- asta línan geti verið nokkuð vel skip- uð ef við höldum Óla. Það er ekki komið að neinni ákvörðunartöku í þessum efnum.“ „Nálgunin þarf að vera markvissari“ Morgunblaðið/Eggert Grindavík Guðjón Þórðarson bætir nýjum ákvörðunarstað á landakortið hjá sér en hann tekur nú við sínu sjötta liði hér á landi, á 25 árum.  Guðjón Þórðarson kveðst ekki búa til topplið í Grindavík einn og sér Guðjón Þórðarson » Þjálfaði 1. deildar lið BÍ/ Bolungarvíkur á síðustu leiktíð með góðum árangri. Guðjón og BÍ/Bolungarvík gengu frá starfslokum hans í síðasta mánuði. » Guðjón er uppalinn á Akra- nesi en Grindavík verður fimmta landsbyggðarfélagið sem hann þjálfar hérlendis. Kristján Jónsson kris@mbl.is Guðjón Þórðarson hóf þjálfaraferilinn hjá upp- eldisfélaginu ÍA þegar hann tók við meist- araflokki félagsins haustið 1986 aðeins 31 árs gamall. Hann hefur þjálfað nærri sleitulaust síð- an og á því 25 ára starfsafmæli um þessar mund- ir. ÍA hafnaði í 3. sæti sumarið 1987 en áður hafði Guðjón leikið 212 leiki fyrir félagið í efstu deild.Var það leikjamet hjá ÍA í deildinni þar til Pálmi Haraldsson bætti það um einn leik í loka- leik liðsins árið 2008. Guðjón þjálfaði KA á árunum 1988-90 og Ís- landsmeistaratitillinn árið 1989 kom mörgum sparkspekingnum á óvart. Í kjölfarið tók Guðjón við ÍA í næstefstu deild og fram til 1994 vann hann deildina tvívegis með ÍA og bikarinn einu sinni. Guðjón fór til KR og stýrði liðinu 1994 og 95. Liðið vann bikarkeppnina bæði árin og titillinn 94 var sá fyrsti hjá KR í 26 ár. Þá fór Guðjón aft- ur upp á Skaga og vann tvöfalt árið eftir og varð því bikarmeistari fjögur ár í röð. Landsliðið Guðjóni var sagt upp hjá ÍA í nóvember 1996 og tók við íslenska landsliðinu sumarið 1997 í miðri undankeppni HM. Í næstu keppni, und- ankeppni EM, fékk Ísland 15 stig og var í riðli með Frakklandi, Úkraínu, Rússlandi, Armeníu og Andorra. Ísland var með í baráttunni um að komast í umspilið fram á síðustu mínútu. Stoke Þá tók við nýr kafli hjá Guðjóni þegar hann tók við Stoke City í C-deildinni í Englandi. Stoke vann á þessum tíma bikarkeppni neðri- deildarliðanna og á síðasta tímabili Guðjóns vann liðið sig upp í næst efstu deild. Í júlí 2002 tók Guðjón við liði Start sem þá var langneðst í efstu deildinni í Noregi og féll um haustið. Guðjón tók við liði Barnsley í ensku C- deildinni árið eftir en var sagt upp í mars 2004 þegar liðið hafði misst af toppbaráttunni. Guð- jón var um vorið ráðinn til Hibernian í Skot- landi en hætti við þegar í ljós kom að honum var ekki ætlað að stýra liðinu nema í þremur leikjum. Guðjón var næst ráðinn til Keflavíkur um miðjan desember 2004 og hafnaði þá tilboði frá Stockport og Grindvíkingar höfðu einnig áhuga á Guðjóni á þeim tíma. Guðjón sagði upp hjá Keflavík í maí og var ráðinn knattspyrnustjóri Notts County þremur dögum síðar. Tímabilið 2005-2006 var hann því með elsta knattspyrnu- félag í heimi í ensku D-deildinni. Guðjón sagði upp að tímabilinu loknu og var aftur ráðinn til ÍA í lok september 2006. Skaginn og Crewe Skagamenn komu nokkuð á óvart sumarið 2007 og höfnuðu í 3. sæti í efstu deild. Ekki gekk eins vel sumarið eftir og Guðjóni var sagt upp í júlí. Guðjón tók tilboði Crewe í lok árs 2008 en liðið var þá í neðsta sæti ensku C-deildarinnar. Guðjón rétti það verulega við um tíma og var kjörinn knattspyrnustjóri febrúarmánaðar í deildinni. Ekki dugði það þó til að bjarga liðinu frá falli. Guðjóni var sagt upp störfum í byrjun október eftir fjóra tapleiki í röð í D-deildinni. Ári síðar, í október 2010, tók Guðjón að sér þjálfarastarfið hjá BÍ/Bolungarvík sem voru ný- liðar í næstefstu deild. Liðið var í efri hluta deildarinnar mestallt sumarið, hafnaði í 6. sæti og fór í undanúrslit bikarkeppninnar. Liðið sló þáverandi Íslandsmeistara Breiðabliks út úr keppninni en tapaði í hörkuleik fyrir Íslands- og bikarmeisturum KR í undanúrslitum. Guðjón og BÍ/Bolungarvík sömdu um starfslok hans hjá fé- laginu í síðasta mánuði. Knattspyrnuþjálfari í aldarfjórðung Danmörk SönderjyskE – AGF..................................1:1  Eyjólfur Héðinsson og Hallgrímur Jón- asson léku allan leikinn fyrir SönderjyskE, Arnar Darri Pétursson var varamarkvörð- ur liðsins.  Aron Jóhannsson skoraði mark AGF á 16. mín., en var skipt út af á 77. mín. Staðan: København 15 11 2 2 28:13 35 Nordsjælland 15 9 1 5 21:12 28 Midtjylland 15 8 2 5 23:21 26 AGF 15 6 7 2 22:14 25 Horsens 15 6 5 4 27:20 23 AaB 15 6 5 4 22:18 23 Silkeborg 15 5 5 5 21:21 20 OB 15 5 4 6 25:27 19 SønderjyskE 15 4 6 5 18:21 18 Brøndby 15 3 5 7 17:20 14 Lyngby 15 3 2 10 13:26 11 Køge 15 1 2 12 12:36 5 Skotland St. Johnstone – Aberdeen ............... frestað  Kári Árnason og félagar í Aberdeen urðu frá að hverfa vegna mikillar þoku á heimavelli St. Johnstone í Perth. Staðan: Rangers 14 12 2 0 30:6 38 Celtic 13 8 2 3 25:13 26 Motherwell 14 8 2 4 18:17 26 St. Johnstone 13 5 4 4 15:11 19 Hearts 14 5 4 5 13:9 19 St. Mirren 14 4 5 5 12:13 17 Kilmarnock 14 3 6 5 19:24 15 Dundee Utd 14 3 5 6 20:26 14 Hibernian 14 3 4 7 14:22 13 Dunfermline 13 3 4 6 14:27 13 Aberdeen 13 3 3 7 13:16 12 Inverness 14 3 3 8 19:28 12  Í Skotlandi fellur aðeins neðsta liðið. Leikin er þreföld umferð, 33 leikir á lið, og síðan leika sex efstu og sex neðstu innbyrð- is, einfalda umferð, þannig að heildarleikir á tímabilinu eru 38. Ítalía B-deild: Bari – Verona............................................0:1  Emil Hallfreðsson lék allan leikinn með Verona. KNATTSPYRNA Lengjubikar karla A-RIÐILL: Skallagrímur – Þór Þ. .........................68:97 Skallagrímur: Lloyd Harrison 20/5 fráköst, Birgir Þór Sverrisson 12/5 stoðsendingar/5 stolnir, Dominique Holmes 12/12 fráköst. Þór Þ.: Michael Ringgold 17/9 fráköst, Darri Hilmarsson 14, Guðmundur Jónsson 14/4 fráköst, Darrin Govens 14, Emil Karel Einarsson 11/10 fráköst. ÍR – KR ................................................98:110 ÍR: Nemanja Sovic 22/7 fráköst, Ellert Arnarson 19, Hjalti Friðriksson 17/5 frá- köst, James Bartolotta 12/4 fráköst, Krist- inn Jónasson 11/6 fráköst. KR: Edward Lee Horton Jr. 23/6 fráköst/6 stoðsendingar, David Tairu 20/6 fráköst/5 stoðsendingar, Emil Þór Jóhannsson 12/6 fráköst, Hreggviður Magnússon 10, Martin Hermannsson 10.  Staðan: KR 6, Þór Þ. 6, ÍR 2, Skallagr. 0. B-RIÐILL: KFÍ – Fjölnir ..................................... frestað  Staðan: Grindavík 6, KFÍ 2, Haukar 2, Fjölnir 0. C-RIÐILL: Stjarnan – Snæfell................................94:95 Stjarnan: Justin Shouse 20/4 fráköst/9 stoðsendingar, Fannar Freyr Helgason 20/7 fráköst, Keith Cothran 17/6 fráköst, Sigurjón Örn Lárusson 16/7 fráköst, Mar- vin Valdimarsson 15/5 fráköst/3 varin skot, Guðjón Lárusson 6/5 stoðsendingar. Snæfell: Marquis Sheldon Hall 20/8 stoð- sendingar, Quincy Hankins-Cole 16/11 frá- köst, Jón Ólafur Jónsson 13, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 12, Egill Egilsson 12/4 frá- köst, Ólafur Torfason 12/8 fráköst, Hafþór Ingi Gunnarsson 7, Sveinn Arnar Davíðs- son 3/4 fráköst.  Staðan: Snæfell 4, Stjarnan 2, Tindast. 0. D-RIÐILL: Njarðvík – Keflavík..............................90:77 Njarðvík: Travis Holmes 23/16 fráköst/5 stoðsendingar/3 varin skot, Cameron Ec- hols 22/12 fráköst, Ólafur Helgi Jónsson 9, Hjörtur Hrafn Einarsson 9/4 fráköst, Elv- ar Már Friðriksson 9, Maciej Stanislav Baginski 6, Rúnar Ingi Erlingsson 6/4 frá- köst, Styrmir Gauti Fjeldsted 4. Keflavík: Steven Gerard Dagustino 19/7 fráköst, Magnús Þór Gunnarsson 17/7 frá- köst, Charles Michael Parker 16/10 frá- köst, Jarryd Cole 11/4 fráköst, Valur Orri Valsson 8, Almar Stefán Guðbrandsson 4/4 fráköst, Ragnar Gerald Albertsson 2.  Staðan: Njarðvík 6, Keflavík 4, Hamar 2, Valur 0. KÖRFUBOLTI ÍSHOKKÍ Íslandsmót karla: Laugardalur: Björninn – SR ............... 19.30 KÖRFUKNATTLEIKUR Deildabikar karla, Lengjubikarinn: Ísafjörður: KFÍ – Fjölnir..................... 19.15 Í KVÖLD! Guðjón Þórðarson og þjálfaraferillinn 1987 ÍA 1988-1990 KA 1991-1993 ÍA 1994-1995 KR 1996 ÍA 1997-1999 Landslið Íslands 1999-2002 Stoke City 2002 Start 2003-2004 Barnsley 2005 Keflavík 2005-2006 Notts County 2007-2008 ÍA 2008-2009 Crewe 2011 BÍ/Bolungarvík 2012- Grindavík Íslandsmeistarimeð KA 1989, ÍA 1992, 1993 og 1996. Bikarmeistarimeð ÍA 1993 og 1996. Bikarmeistarimeð KR 1994 og 1995. B-deildarmeistarimeð ÍA 1991. Bikar neðri deildameð Stoke 2000. Vann sæti í B-deildmeð Stoke 2002.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.