Morgunblaðið - 08.11.2011, Síða 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 2011
Fjölnismenn héldu um síðustu helgi
sitt árlega Sambíómót í körfubolta
fyrir stráka tíu ára og yngri og
stúlkur ellefu ára og yngri. Þar var
spilaður körfubolti frá því snemma á
laugardagsmorgni og fram yfir há-
degi á sunnudegi, með tilheyrandi
hléum. Mótinu lauk síðan með pitsu-
veislu og verðlaunaafhendingu. Allir
þátttakendur fengu verðlaun, enda
stigin ekki talin í leikjunum og úrslit
þeirra því hvergi á blaði. Keppendur
voru þó eflaust sjálfir með það á
hreinu hvernig fór í hvert skipti.
Leikið var á sex völlum í Dal-
húsum og Rimaskóla en auk körfu-
boltans var margt gert sér til gam-
ans, m.a. farið í bíó og haldin
kvöldvaka með alls konar skemmti-
atriðum.
Liðin voru á sjötta tuginn, frá tólf
félögum, Fjölni, Val, ÍR, Keflavík,
Þór Þorlákshöfn, Skallagrími,
Breiðabliki, Ármanni, Sindra, Kor-
máki, FSu og KR, og þátttakendur
um fjögur hundruð talsins.
Ómar Óskarsson, ljósmyndari
Morgunblaðsins, kom við í Dal-
húsum um helgina og smellti af
þessum myndum. Fleiri myndir frá
mótinu er síðan að finna í mynda-
syrpu á mbl.is. vs@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Körfuboltahelgi
í Grafarvoginum