Morgunblaðið - 28.01.2012, Side 1

Morgunblaðið - 28.01.2012, Side 1
LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 2012 Íþróttir mbl.is Morgunblaðið/Golli Meiðsli Heimir Örn Árnason leikstjórnandi Akureyrarliðsins í handknatt- leik er hér í baráttu við FH-inginn Ólaf Gústafsson. HANDBOLTI Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Óvissa ríkir um þátttöku Heimis Arn- ar Árnasonar með liði Akureyrar í handboltanum en meiðsli í hálsi hafa verið að plaga leikstjórnandann snjalla. „Þetta lítur svo sem ekkert allt of vel út hjá mér. Það hefur komið í ljós myndun að brjóklosi í hálsliðunum og þar að auki er ég tognaður í hælnum. Það er bunga út úr hálsliðunum og ef ég hefði fengið slæmt högg á hálsinn í þeim leikjum sem ég spilaði svona þá væri ég búinn eða á leið í aðgerð. Ég spilaði þrjá leiki en ég var bara stál- heppinn að fá ekkert högg á hálsinn. Góðu fréttirnar eru þær að þetta er eitthvað að ganga til baka og mér líð- ur betur en ég hef fundið fyrir mikl- um doða og kraftleysi á vinstri hlið líkamans,“ sagði Heimir Örn við Morgunblaðið í gær. Heimir segir óvíst hvenær hann spili á nýjan leik. Verð að fara varlega „Ef þessi bunga springur, sem hún alveg við að gera, þá verð ég frá keppni í alla vega hálft ár. Ég verð því að fara mjög varlega og fara aftur í myndatöku áður en ég fer af stað í handboltanum til að vita hvort þetta sé gengið til baka. Það má segja að það sé óvissuástand hjá mér en ég þarf auðvitað að fara varlega. Sjúkra- þjálfarinn og læknarnir sögðu mér að ég yrði líka að hugsa um lífið eftir boltann, þannig að ég það í huga,“ sagði Heimir. Andri Snær snýr til baka og Ásgeir á góðum batavegi Jákvæðu fréttirnar úr herbúðum Akureyringa eru þær að hornamað- urinn knái, Andri Snær Stefánsson, er á heimleið frá Danmörku og mun leika með Akureyringum frá næstu mánaðamótum. Andri hefur dvalið í Danaveldi í eitt og hálft ár og spilaði þar með liði Odder Håndbold. Þá er línumaðurinn Ásgeir Jónsson allur að hressast og gæti spilað með liðinu í næstu viku. Ásgeir gekk í rað- ir Akureyrarliðsins frá Aftureldingu síðastliðið sumar en hefur ekkert get- að spilað með liðinu í N1-deildinni í vetur en brjósklos í baki hefur verið að angra hann frá því í ágúst. Keppni í N1-deildinni hefst á nýjan leik eftir frí sem gert var vegna Evr- ópumótins í Serbíu á fimmtudaginn í næstu viku en þá tekur Akureyri á móti HK Óvissa hjá Heimi  Heimir Örn Árnason, fyrirliði Akureyrar, glímir við brjósk- los í hálsi  Doði og kraftleysi í vinstri hlið líkamansKarlalandsliðið íknattspyrnu held- ur áfram að fá verkefni. Í fyrra- dag bárust þær fregnir að liðið mæti Frökkum í vináttuleik ytra þann 27. maí og í gær náðist sam- komulagi við Svía um leik sem fram fer þremur dög- um síðar á Råsunda vellinum í Stokkhólmi. Lars Lägerback lands- liðsþjálfari fær því gott tækifæri til að skoða leikmenn áður að alvör- unni kemur í haust en þá hefst und- ankeppni Evrópumótsins. Fyrstu leikir landsliðsins undir stjórn Sví- ans verða í næsta mánuði en þá mæta Íslendingar liði Japana og síðan Svartfellinga. gummih@mbl.is Fleiri verkefni hjá karla- landsliðinu Lars Lagerbäck Makedóníumenn hrepptu 5. sætið á Evrópumótinu í handknattleik í Serbíu í gær með því að leggja Sló- vena, 28:27, og þeir tryggðu sér þar með sæti í forkeppni Ólymp- íuleikanna. Stórskyttan Kiril Lazarov var eins og oft áður markahæstur í liði Makedóníu. Hann skoraði 8 mörk og bætti þar með tíu ára gamalt markamet Ólafs Stefánssonar. Lazarov skoraði 61 mark í keppninni en Ólafur skoraði 58 mörk á EM í Svíþjóð 2002 þegar Íslendingar enduðu í fjórða sæti. gummih@mbl.is Lazarov hirti markametið af Ólafi Kiril Lazarov Meistararnir í sænska körfu- boltanum, Sunds- vall, töpuðu sín- um fjórða leik í röð í gær þegar liðið heimsótti Norrköping. Lokatölur voru 97:96 en Jakob Örn Sigurðarson átti stórleik fyrir Sundsvall sem dugði þó ekki til. Hann var með 28 stig og hitti úr 6 af 9 skotum sínum fyrir utan þriggja stiga línuna. Hlynur Bæringsson skoraði tíu stigum minna eða 18 og átti einnig fínan leik. Sundsvall hefur ekki unnið síðan Pavel Ermolinskij meiddist og mun- ar þar greinilega um minna. Tap- hrinan hefur sent liðið niður í 5. sæti deildarinnar. omt@mbl.is Gengur ekkert án Pavels Jakob Örn Sigurðarson Ásgeir Sigurgeirsson úr Skotfélagi Reykjavíkur náði frábærum árangri í loftskammbyssukeppni á sterku al- þjóðlegu móti í Þýskalandi í gær þegar hann vann til silfurverðlauna. Ásgeir hlaut 583 stig í undankeppn- inni og svo 101,7 stig í úrslitum, eða samtals 684,7 stig, og hjó afar nærri Íslandsmeti sínu. Sigurvegari varð Úkraínumaðurinn Oleg Omelchuk sem hlaut samtals 687,2 stig. Ásgeir hlaut 0,4 stigum meira en Andrija Zlatic frá Serbíu sem varð í 3. sæti. Árangurinn ætti að gefa Ásgeiri byr undir báða vængi fyrir Evr- ópumeistaramótið í Finnlandi í næsta mánuði þar sem hann hyggst tryggja sér sæti á Ólympíuleikunum í ágúst. sindris@mbl.is Ásgeir fékk silfur í Þýskalandi íþróttir LÍNUR SKÝRAST Grótta - ÍBV Seltjarnarnes | Kl. 13.00 Lau. 28 jan. | N1-deild kvenna Valur - Stjarnan Vodafonehöllin | Kl. 14.00 Lau. 28 jan. | N1-deild kvenna HK - Fram Digranes | Kl. 19.30 Þri. 31 jan. | N1-deild kvenna Haukar - FH Schenkerhöllin | Kl. 16.00 Lau. 28 jan. | N1-deild kvenna M ed ia G ro up eh f |H SÍ |1 10 1 20 12 Handbolti Dagný Skúladóttir landsliðskona og leikmaður Íslandsmeistara Vals var valin besti leikmaðurinn í N1-deild kvenna í handknattleik í umferðum 1 til 9 2

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.