Barnablaðið - 06.11.2011, Síða 5
BARNABLAÐIÐ 5
að tíminn væri búinn um leið og hann
byrjaði.“
Hvað er búið að vera eftirminnilegast
við leikhúsævintýrin þín?
„Það var örugglega Óliver Tvist. Það var
mjög eftirminnilegt. Það var fyrsta hlut-
verkið mitt og þá var maður að kynnast
þessu öllu en núna þekkir maður þetta
allt. Eftir Óliver Tvist fór ég svo að leika í
Allir synir mínir.“
En nú er það fullorðinssýning.
„Já, það er alveg rosa fullorðins. Það
er samt ekkert mikill munur á að leika
í barnasýningu eða fullorðinssýningu
nema maður getur ekki boðið vinum
sínum að koma að horfa á sig þegar
maður er að leika fyrir fullorðna.“
Var samt alveg gaman að leika í
þeirri sýningu?
„Já, þegar ég kom fram þá voru
skemmtilegustu senurnar.“
Leiddist þér ekkert baksviðs þegar þú
varst að leika í þeirri sýningu?
„Nei, nei. Ég spjallaði bara við
fullorðnu leikarana. Eftir senurnar mínar
fór ég oft bara heim af því að ég nennti
ekkert að vera að hneigja mig. Ekki
nema það væri frí daginn eftir eða á
frumsýningunni.“
Er þá ekkert erfitt eða leiðinlegt í
leikhúsunum?
„Nei, ég held bara ekki. Skiptingarnar
eru stundum miserfiðar. En nei, ég held
ekki. Það er allt bara mjög skemmtilegt
þegar maður er byrjaður að leika. Það
var samt svolítið erfitt þegar ég var að
leika í Allir synir mínir að þurfa að vaka
svona lengi. Það var sýnt svo seint og
maður var svo þreyttur en þurfti að fara í
skólann daginn eftir.“
Finnurðu á krökkunum í kringum þig
að þú ert orðinn svolítið frægur?
„Fyrir Óliver var mikil spenna í gangi.
Að Grettir bekkjarfélagi þeirra væri að
fara að leika í alvöru leikriti. Það var
samt bara rétt fyrst og nú eru allir orðnir
vanir því. Krakkar úr öðrum bekkjum
spyrja mig aðeins meira en bekkjarfélag-
ar mínir.“
Áttu þér uppáhaldsleikara eða
-leikkonu?
„Ekkert eitthvað sem ég fíla í botn,
ekkert svona eins og stelpurnar fíla
Justin Bieber. En ég hef mjög gaman
af honum Góa. Mér finnst hann mjög
skemmtilegur karl. Hann er mikill
barnakarl.“
Áttu einhvern uppáhaldsmeðleikara?
„Já, í Allir synir mínir lék ég mikið með
honum Jóa (Jóhann Sigurðarson) en
hann er líka í Galdrakarlinum í Oz. Mér
finnst hann mjög skemmtilegur og það
er mjög gott að leika með honum. Ég hef
fengið nokkrar ábendingar frá honum en
auðvitað fæ ég þær samt aðallega frá
leikstjórunum.“
Ertu búinn að vera heppinn með
leikstjóra?
„Já, ég hef verið mjög heppinn með
leikstjóra. Selma (Björnsdóttir) leikstýrði
Óliver Tvist og ég kannaðist við hana.
Ég þekkti líka Berg (Þór Ingólfsson)
sem leikstýrir Galdrakarlinum í Oz en
ég þekkti ekkert Stefán (Baldursson)
sem leikstýrði Allir synir mínir. Síðan
komst ég að því að hann er fyrrverandi
Þjóðleikhússtjóri og hann var mjög
almennilegur við mig.“
Hvaða eiginleikum þarf maður að vera
búinn til að vera góður barnaleikari?
„Hugrekki skiptir kannski svolítið miklu
máli. Maður verður að vera tilbúinn að
halda áfram ef maður ruglast. Maður
þarf að vera góður í að redda sér og
má ekki bara segja æi og gefast upp.
Svo þarf maður líka að hafa söng- og
leikhæfileika. Svo skiptir agi líka miklu
máli.“
Ef þú verður ekki leikari eða söngvari
hvað heldurðu að þú myndir þá leggja
fyrir þig.
„Ef ég verð ekki leikari eða söngvari
held ég samt að ég verði eitthvað að
vinna í kringum það eins og til dæmis
leikmyndahönnuður. Ég á örugglega eftir
að vera eitthvað í listum eftir þetta allt.“
eina
amálið
arlinum
r, Tinna
Ívar.
Grettir reyndi einu sinni fyrir sér í karate en missti
fljótt áhugann og segir leiklistina eina komast að.
Skannaðu
kóðann til að sjá
Gretti syngja lag
úr söngleiknum!