Morgunblaðið - 03.03.2012, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 03.03.2012, Blaðsíða 3
g stígur niður úr efstu deild í sumar fur samið við Eisenach, sem er í 10. iðum í B-deildinni og er undir stjórn gsins Aðalsteins Eyjólfssonar. áður upplifað skemmtilega baráttu ast upp úr 2. deildinni hér í Þýska- Burgdorf, og sé í hillingum samskon- ka með Eisenach. Félagið ætlar sér á næstu árum, það var áður í efstu nú að rísa aftur upp úr lægð,“ sagði telur þetta jafnframt góðan tíma- ð skipta um félag. til að breyta“ a ára verkefni með Eisenach Flott þróun en mikil mistök að reka Aron „Ég upplifði það með Burgdorf að spila fyrir 4-500 manns í 2. deild, fara síðan upp og leika þar fyrir framan 3-4.000 áhorfendur. Þetta hefur verið flott þróun hjá félaginu en satt best að segja finnst mér aðeins vera að fjara undan því á ný. Í raun hefur hallað undan fæti síðan Aroni Kristjánssyni var sagt upp sem þjálfara. Það voru stjarnfræðileg mistök og ráðningin á eftirmanni hans enn stærri. Nú er því rétti tíminn til að breyta til, ég fer héðan ásamt fjöl- skyldu minni með góðar minningar og hlakka til að takast á við ný verkefni,“ sagði Hannes, sem hefur verið fyrirliði Burgdorf undanfarin tvö ár og spilað með liðinu í tæp fjögur ár. Það er í 14. sæti af 18 lið- um í 1. deild, efstu deildinni í Þýskalandi. Hann á að baki 44 landsleiki fyrir Íslands hönd og lék síðast með landsliðinu árið 2010. Hannes lék áður í Danmörku og Noregi, og þar á undan með Val og ÍR. Hann kvaðst ekki þekkja neitt að ráði til Aðalsteins, þjálfara Eise- nach. „Nei, ég hef bara kynnst honum í gegnum samtöl okkar í kringum þennan samning. Mér heyrist hann vera enn einn íslenski þjálfarinn sem veit nákvæmlega hvað hann vill og hvað hann ætlar sér, og ég hlakka til að vinna með honum,“ sagði Hannes Jón Jónsson. Hannes Jón Jónsson ALGARVE Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Möguleikar Íslands á að spila um verðlaun í Algarve-bikarnum annað árið í röð eru úr sögunni eftir ósigur, 1:4, gegn Svíum í Ferreiras í gær. Nú mun viðureign Íslands og Kína á mánudaginn ráða úrslitum um hvort liðið spilar um 5. sætið á mótinu eða fer í leik um 7. eða 9. sætið á lokadegi þess næsta miðvikudag. Úrslitin voru í raun ráðin eftir 40 mínútna leik en þá voru öll fimm mörkin komin. Alveg eins og í sig- urleik Íslands í viðureign liðanna fyrir ári, 2:1, komust Svíar yfir á 2. mínútu en í þetta sinn var handritið öðruvísi. Lotta Schelin og Antonia Göransson skoruðu eftir góðar sóknir sænska liðsins á fyrstu 12 mínútunum. Dóra María Lárusdóttir minnkaði muninn úr vítaspyrnu á 21. mínútu eftir að brotið var á Hólmfríði Magnúsdóttur. Tólf mínútum síðar svaraði Jessica Landström fyrir Svía, með skalla eftir aukaspyrnu, og Göransson skoraði sitt annað mark með þrumufleyg utan af velli, 1:4. Í seinni hálfleik gerðist fátt lengi vel, íslenska liðið þétti sinn leik og Hólmfríður var nærri því að minnka muninn þegar hún skaut í stöng. Und- ir lokin áttu Svíar hins vegar skot í stöng og skalla í þverslá. Basl á öftustu varnarlínunni „Við gáfum þeim ódýr mörk, það var basl á öftustu varnarlínunni okkar og Svíarnir gengu á lagið. Þetta var fyllilega verðskuldað, en þótt staðan væri 1:4 í hálfleik var ég alls ekki ósáttur við allt. Spilið og sóknarleik- urinn gengu vel oft á tíðum en varn- arleikurinn var ekki í lagi,“ sagði Sig- urður Ragnar Eyjólfsson landsliðs- þjálfari við Morgunblaðið. „Eins og alltaf förum við vel yfir leikinn og reynum að læra af mistök- unum sem voru gerð. Margar eru orðnar þreyttar, þær eru flestar enn á undirbúningstímabili og eiga mikið inni. Nú fáum við kærkomna hvíld yfir helgina þar sem hægt er að hlaða batteríin fyrir leikinn gegn Kína á mánudaginn,“ sagði Sigurður Ragnar. Óreynt miðvarðapar í lokin Anna María Baldursdóttir, 17 ára stúlka úr Stjörnunni, kom inná undir lokin og lék sinn fyrsta A-landsleik. Hún og Elísa Viðarsdóttir, sem lék sinn annan landsleik, mynduðu mið- varðapar Íslands á lokakaflanum. Margrét Lára Viðarsdóttir, Katrín Ómarsdóttir, Þórunn Helga Jóns- dóttir og Katrín Ásbjörnsdóttir voru ekki með vegna meiðsla og hópurinn því þunnskipaðri en í fyrsta leiknum. Sem kunnugt er vantar auk þessa nokkra sterka leikmenn í hópinn að þessu sinni, m.a. Eddu Garðarsdóttur, Sif Atladóttur og Ólínu G. Viðars- dóttur sem hafa verið í stórum hlut- verkum í liðinu. Sjáum til með Margréti „Við förum varlega með Margréti Láru, það er mikið álag framundan hjá hennar félagsliði og mikilvægur landsleikur við Belga. Staðan verður bara skoðuð fyrir hina tvo leikina hvort hún verði með. Katrín Ásbjörns verður ekkert með á mótinu og það er ólíklegt að Katrín Ómars spili eitt- hvað. Þórunn Helga gæti hins vegar náð þriðja eða fjórða leiknum. En við skoðum aðra leikmenn í staðinn, sem fá dýrmæta reynslu gegn sterkum mótherjum,“ sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson. „Varnarleikur ekki í lagi en lærum af mistökum“ Ljósmynd/Algarvephotopress Algarve Dóra María Lárusdóttir skoraði mark Íslands í gær og fylgist hér með Söru Björk Gunnarsdóttur skalla bolt- ann. Dóra skoraði þarna sitt 14. mark í 73 landsleikjum en hún er fimmta leikjahæst og 4.-5. markahæst frá upphafi.  Möguleikar á verðlaunasæti í Algarve-bikarnum úr sögunni eftir 1:4-tap gegn Svíum  Öll mörkin á fyrstu 38 mínútunum  Fjórar ekki með vegna meiðsla MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2012 Heiðar Helgu-son hefur ekki jafnað sig af meiðslum og spil- ar ekki með QPR gegn Everton í ensku úrvals- deildinni í knatt- spyrnu í dag. Heiðar meiddist í nára í lok janúar og hefur ekki leikið með Lundúnaliðinu undanfarnar vikur. Það er í erfiðri fallbaráttu og vantar fleiri framherja því DJ Campbell er líka meiddur og Djibril Cissé er í leikbanni.    Enska knatt-spyrnu- sambandið ætlar ekki að ráða nýj- an landsliðsþjálf- ara fyrr en að loknu keppn- istímabilinu í vor, eða eftir 13. maí. Listi yfir vænt- anlega kandídata liggur þó fyrir. Alex Horne, framkvæmdastjóri sambandsins, skýrði fréttamönnum frá því í gær að listi yfir áhugaverða þjálfara hefði verið settur saman fljótlega eftir að Fabio Capello sagði starfinu lausu í síðasta mánuði. Hins vegar yrði engin ákvörðun tek- in strax þar sem sambandið vildi ekki trufla starf félaganna á mik- ilvægum tíma. „Margir þeirra knattspyrnustjóra sem eru á okkar lista eru í fullu starfi og við viljum ekki skemma tímabilið fyrir neinum. Við flýtum okkur ekki og reiknum með því að ákvörðun liggi fyrir að tímabilinu loknu,“ sagði Horne.    Davíð Georgsson skoraði níumörk fyrir ÍR-inga þegar þeir lögðu Stjörnuna, 30:28, í 1. deild karla í handknattleik í íþróttahúsinu við Austurberg í gærkvöld. ÍR held- ur þar með tveggja stiga forskoti á toppi deildarinnar, hefur 23 stig, tveimur fleiri en Víkingur. Víkingar unnu Selfoss með eins marks mun á Selfossi í gær, 23:22. Þar með tókst Selfossi ekki að kom- ast upp að hlið ÍBV sem mætir Fjölni í dag en leikur liðanna átti að fara fram í gær. Honum var frestað um sólarhring vegna veðurs. Fólk folk@mbl.is Parque Desportiva da Nora, Ferrei- ras, Portúgal, Algarve-bikarinn, A- riðill, föstudag 2. mars 2012. Lið Íslands: (4-5-1) Mark: Guðbjörg Gunnarsdóttir.Vörn: Rakel Hönnu- dóttir, Mist Edvardsdóttir (Anna María Baldursdóttir 86.), Katrín Jónsdóttir fyrirliði (Elísa Viðarsdóttir 80.), Thelma Björk Einarsdóttir. Miðja: Fanndís Friðriksdóttir (Harpa Þorsteinsdóttir 67.), Dóra María Lár- usdóttir, Guðný B. Óðinsdóttir, Sara Björk Gunnarsdóttir (Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir 65.), Hallbera Guðný Gísladóttir (Greta Mjöll Sam- úelsdóttir 60.) Sókn: Hólmfríður Magnúsdóttir. Lið Svíþjóðar: (4-5-1) Mark: Kristin Hammarström. Vörn: Annica Svens- son, Stina Segerström, Emma Bergl- und, Sara Thunebro (Marie Hamm- arström 67.) Miðja: Jessica Landström (Sofia Jakobsson 71.), Lisa Dahlkvist (Caroline Seger 67.), Johanna Almgren, Nilla Fischer fyr- irliði, Antonia Göransson (Therese Sjögran 46.) Sókn. Lotta Schelin (Madelaine Edlund 46.) Dómari: Morag Pirie, Skotlandi. Áhorfendur: Um 300. Ísland – Svíþjóð 1:4 HANDBOLTI N1-deild kvenna FH – ÍBV................................................19:20 Mörk FH: Steinunn Snorradóttir 7, Ingi- björg Pálmadóttir 4, Kristrún Steinþórs- dóttir 3, Birna Íris Helgadóttir 2, Sigrún Jóhannsdóttir 1, Salka Þórðardóttir 1, Berglind Ósk Björgvinsdóttir 1. Mörk ÍBV: Ester Óskarsdóttir 8, Drífa Þorvaldsdóttir 3, Grigore Ggorgata 3, Marian Tbojovic 2, Þórsteina Sigurbjörns- dóttir 1, Hildur Dögg Jónsdóttir 1, Ivana Mladenovic 1, Aníta Elíasdóttir 1. Staðan: Fram 12 11 0 1 360:260 22 Valur 12 11 0 1 383:269 22 ÍBV 12 8 0 4 328:291 16 HK 12 7 0 5 341:313 14 Stjarnan 11 6 0 5 317:293 12 Haukar 12 3 0 9 297:378 6 KA/Þór 11 3 0 8 253:305 6 Grótta 11 2 1 8 256:314 5 FH 13 1 1 11 265:377 3 1. deild karla ÍR – Stjarnan.........................................30:28 ÍBV – Fjölnir ..................................... frestað  Leikið klukkan 14 í dag. Selfoss – Víkingur .................................22:23 Staðan: ÍR 15 10 3 2 446:399 23 Víkingur R. 15 10 1 4 395:350 21 Stjarnan 15 8 2 5 439:406 18 ÍBV 14 7 0 7 387:376 14 Selfoss 15 4 4 7 396:390 12 Fjölnir 14 0 0 14 280:422 0 Svíþjóð H43 – Drott ...........................................29:33  Gunnar Steinn Jónsson skoraði þrjú mörk fyrir Drott. Danmörk Skjern – Nordsjælland.........................34:24  Ólafur Guðmundsson skoraði ekki fyrir Nordsjælland. ÍÞRÓTTIR 3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.