Morgunblaðið - 03.03.2012, Síða 4
Í GRAFARVOGI
Ólafur Már Þórisson
omt@mbl.is
Frábær byrjun Fjölnis í fyrsta leik-
hlutanum skilaði liðinu engu þegar
upp var staðið gegn Þór Þ. í Iceland
Express-deild karla í körfuknattleik
í gær. Það var sem Þórsarar hefðu
gleymt varnarleiknum heima ef
hægt er að segja sem svo og Fjöln-
ismenn gengu á lagið. Þeir léku
mjög vel í þessar tíu mínútur og
engu líkara en þeir væru mættir til
að vinna. Adam var þó ekki lengi í
Paradís því gestirnir sneru taflinu
sér í vil strax í öðrum leikhluta. Eftir
það var í raun aldrei spurning hvort
liðið færi með sigur af hólmi en loka-
tölur voru 105:86.
„Ég var hæfilega bjartsýnn eftir
fyrsta leikhlutann því það var vitað
mál að Þórsararnir myndu gera
áhlaup sem þeir og gerðu. Við
sprungum einfaldlega og mjög gott
lið Þórsara sýndi úr hverju það er
gert. Ég er viss um að þeir eiga eftir
að koma á óvart í úrslitakeppninni
enda með mjög góðan sjö leikmanna
kjarna,“ sagði Örvar Þór Krist-
jánsson, þjálfari Fjölnis.
Lét Fjölnismenn líta út
eins og peyja
Helsti munurinn á liðunum var
Matthew Hairston sem skoraði 28
stig og tók 14 fráköst en það sem
vakti helsta athygli; varði átta skot.
Hairston er með langa handleggi
sem hann kann svo sannarlega að
nota og það gerði hann í gær. Hann
átti flest tilþrif leiksins, þegar hann
varði skot Fjölnismanna, sem litu þá
út eins og ungir peyjar, þannig voru
yfirburðirnir og svo þegar hann, á
hinum enda vallarins, tróð boltanum
af miklum krafti í körfuna í tvígang.
Örvar var sammála því. „Hann er
eins og tröll þarna í teignum og mjög
erfitt að ráða við hann. Hann reynd-
ist okkur mjög erfiður.“
„Þurfa að spila vel
lengur en í 10 mínútur“
Fjölnir gerði sér engan greiða í
baráttunni um sæti í úrslitakeppn-
inni með þessum úrslitum en þegar
aðeins fjórir leikir eru eftir er liðið
tveimur stigum á eftir Njarðvík sem
er í áttunda sæti. Það sæti munu
þessi tvö lið ásamt ÍR berjast um allt
til enda en verkefnið verður ekki
auðvelt þar sem deildarmeistarar
Grindvíkinga bíða.
„Við eigum möguleika en þurfum
að sama skapi að spila vel í fjörutíu
mínútur en ekki bara tíu eins og í
kvöld [gærkvöld], sagði Örvar um
möguleika liðsins.
Benedikt Guðmundsson, þjálfari
Þórs, óttaðist nákvæmlega það sem
gerðist í upphafi leiks. „Ég var bú-
inn að hafa slæma tilfinningu fyrir
þessu alla vikuna. Eftir góð úrslit að
undanförnu var ég hræddur um að
við værum farnir að ofmetnast,“
sagði Benedikt sem var ekki ánægð-
ur með varnarleik sinna manna í
fyrsta leikhluta. Nánar er rætt við
hann á mbl.is. Þar er einnig að finna
viðtöl við Björgvin Hafþór Ríkarðs-
son, leikmann Fjölnis, og Baldur Þór
Ragnarsson, leikmann Þórs.
Gerðu sér engan greiða
Fjölnir nýtti sér ekki gott forskot Benedikt óttaðist ofmat sem kom á dag-
inn Matthew Hairston kom löngum handleggjum sínum í nyt Varði 8 skot
Í GRINDAVÍK
Skúli B. Sigurðsson
sport@mbl.is
Grindvíkingar halda áfram á sigurbraut og í gær
unnu þeir sinn 10. sigur í röð þegar vesturbæj-
ardrengir úr KR mættu í Röstina í 18. umferð Ice-
land Express-deildarinnar. Leikurinn var bráð-
skemmtilegur á alla kanta og ef mætti kvarta yfir
einhverju þá hefðu leikmenn alveg mátt splæsa í
framlengingu, en 87:85-sigur heimamanna kom á
lokasekúndum leiksins af vítalínunni.
Undirritaður ætlar að gerast svo grófur að segja
að þarna hafi tvö sterkustu lið landsins verið að
spila, í það minnsta miðað við það sem sést hefur.
Grindavíkurliðið hefur marga strengi í sinni hörpu
og þegar litið er yfir hópinn finnst manni einfald-
lega að liðið eigi ekki að geta tapað. Þar af leiðandi
býst maður kannski við því að þeir eigi að vinna alla
leiki sannfærandi. KR-ingar renndu í hlað tilbúnir
til orrustu og ætluðu ekki að vera með neina útsölu
á þeim stigum sem í boði voru. Drifnir áfram af
Josh Brown voru þeir í bullandi góðu tækifæri að
hirða sigurinn og halda áfram atlögu að öðru sæt-
inu. Já að öðru sætinu því Grindvíkingar tryggðu
sér deildarmeistaratitilinn með sigrinum og þar
með heimaleikjarétt út úrslitakeppnina. J’Nathan
Bullock er snöfurmenni og það kom í hans hlut að
klára þennan leik á vítalínunni að þessu sinni. KR-
ingar sýndu heimamönnum litla miskunn og aug-
ljóst að liðið ætlaði sér sigur. Einnig má nefna að
ungur leikmaður í herbúðum KR, Martin Her-
mannson (Haukssonar), sýndi yfirvegun og spilaði
vel á þeim mínútum sem honum voru úthlutaðar,
vissulega framtíðarleikmaður þar á ferð.
En það var Giordan Watson sem var maður
þessa leiks, spilaði feikilega vel og skoraði mik-
ilvægar körfur á ögurstundu. „KR er með frábært
lið og við sem toppliðið, þá koma lið tilbúin til leiks.
Þeir spiluðu sterka vörn og spiluðu vel en við náð-
um að verja heimavöllinn okkar, sem er sterkt fyrir
okkur. Við þurfum að herða vörnina fyrir komandi
leiki. Lítil mistök sem við erum að gera angra okk-
ur og góð lið munu refsa okkur ef við höldum þeim
áfram,“ sagði Watson eftir leik.
Hrafn Kristjánsson var gríðarlega ósáttur við
ósigur þetta kvöldið. „Við komum í kvöld vitandi
það að við gætum alveg dekkað þá maður á mann
og mér fannst við gera það svona allt í lagi. Þetta
snerist bara um svona lítil atriði og lítil mistök und-
ir lokin hjá okkur. Við erum svolítið búnir að strika
okkur út um annað sætið í deildinni sem mér finnst
nokkuð mikilvægt í svo sterku móti. En við ætlum
að vinna þá leiki sem eftir eru og gefa okkur þá
bestu möguleika sem hægt er í það,“ sagði Hrafn,
þjálfari KR.
Titill í Röstina
Ljósmynd/Skúli Sigurðsson
Flug KR-ingurinn Josh Brown á flugi í átt að körfunni en Páll Axel Vilbergsson er til varnar.
Grindvíkingar fá
heimaleikjaréttinn í úr-
slitakeppninni
Tvö bestu körfubolta-
lið landsins mættust
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2012
Fjölnir – Þór Þ. 86:105
Dalhús:
Gangur leiksins: 7:4, 18:6, 30:16, 36:23,
40:32, 45:41, 50:48, 53:57, 55:62, 58:70,
66:74, 71:79, 74:84, 75:87, 78:91, 86:105.
Fjölnir: Calvin O’Neal 26/4 fráköst/5 stoð-
sendingar, Nathan Walkup 19, Arnþór
Freyr Guðmundsson 13/9 fráköst, Jón
Sverrisson 13/10 fráköst, Björgvin Hafþór
Ríkharðsson 11/4 fráköst, Hjalti Vilhjálms-
son 3, Trausti Eiríksson 1.
Fráköst: 24 í vörn, 9 í sókn.
Þór Þorlákshöfn: Matthew James Hair-
ston 28/14 fráköst/8 varin skot, Darrin Gov-
ens 25/5 fráköst/6 stoðsendingar, Guð-
mundur Jónsson 21, Darri Hilmarsson 13/7
fráköst, Baldur Þór Ragnarsson 9, Blagoj
Janev 9.
Fráköst: 28 í vörn, 5 í sókn.
Dómarar: Björgvin Rúnarsson, Einar Þór
Skarphéðinsson.
Grindavík – KR 87:85
Grindavík:
Gangur leiksins: 5:2, 7:7, 16:12, 22:19,
28:27, 30:31, 34:33, 40:37, 44:43, 55:50,
58:58, 63:67, 70:71, 74:75, 81:80, 87:85.
Grindavík: Giordan Watson 25/4 fráköst,
J’Nathan Bullock 23/9 fráköst, Þorleifur
Ólafsson 9, Ryan Pettinella 9/4 fráköst,
Sigurður Gunnar Þorsteinsson 8/6 fráköst,
Jóhann Árni Ólafsson 5/4 fráköst, Björn
Steinar Brynjólfsson 3, Ólafur Ólafsson 3,
Páll Axel Vilbergsson 2/7 fráköst.
Fráköst: 24 í vörn, 13 í sókn.
KR: Joshua Brown 21/4 fráköst/5 stoðsend-
ingar/5 stolnir, Hreggviður Magnússon
14/7 fráköst, Finnur Atli Magnusson 11/6
fráköst, Dejan Sencanski 9, Martin Her-
mannsson 8, Skarphéðinn Freyr Ingason 8,
Robert Lavon Ferguson 7/6 fráköst, Jón
Orri Kristjánsson 4/4 fráköst, Emil Þór Jó-
hannsson 3.
Fráköst: 24 í vörn, 13 í sókn.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson,
Kristinn Óskarsson.
Áhorfendur: 454
ÍR – Valur 102:95
Seljaskóli:
Gangur leiksins: 7:6, 14:6, 21:9, 29:14,
31:18, 33:24, 38:34, 45:38, 51:44, 64:50,
74:59, 79:64, 89:70, 92:79, 97:84, 105:95.
ÍR: Robert Jarvis 29/7 fráköst, Rodney Al-
exander 24/8 fráköst, Nemanja Sovic 13,
Þorvaldur Hauksson 10, Kristinn Jónasson
7, Níels Dungal 6, Hjalti Friðriksson 6/4
fráköst, Eiríkur Önundarson 5/4 fráköst,
Ellert Arnarson 2.
Fráköst: 26 í vörn, 6 í sókn.
Valur: Birgir Björn Pétursson 27/6 fráköst,
Marvin Andrew Jackson 21/7 fráköst,
Ragnar Gylfason 19/6 fráköst, Snorri Þor-
valdsson 8/5 fráköst, Hamid Dicko 6, Alex-
ander Dungal 6, Ágúst Hilmar Dearborn 4,
Benedikt Blöndal 2/4 fráköst, Kristinn
Ólafsson 2.
Fráköst: 27 í vörn, 6 í sókn.
Dómarar: Halldór Geir Jensson, Jón Þór
Eyþórsson.
Staðan:
Grindavík 18 17 1 1641:1419 34
Stjarnan 18 12 6 1569:1472 24
Þór Þorl. 18 12 6 1545:1447 24
Keflavík 18 12 6 1623:1508 24
KR 18 11 7 1594:1541 22
Snæfell 18 9 9 1688:1605 18
Tindastóll 18 9 9 1512:1568 18
Njarðvík 18 8 10 1513:1529 16
ÍR 18 7 11 1581:1666 14
Fjölnir 18 7 11 1534:1638 14
Haukar 18 4 14 1386:1493 8
Valur 18 0 18 1371:1671 0
1. deild karla
ÍA – Breiðablik ....................................109:81
FSu – Ármann .......................................97:76
Hamar – Þór Ak. ...................................98:79
Skallagrímur – ÍG ...............................121:81
Staðan:
KFÍ 17 16 1 1604:1276 32
Skallagrímur 17 12 5 1525:1413 24
Höttur 17 11 6 1452:1372 22
Hamar 17 11 6 1508:1374 22
ÍA 17 8 9 1465:1416 16
Breiðablik 17 8 9 1452:1476 16
Þór A. 17 7 10 1386:1449 14
FSu 17 6 11 1412:1474 12
ÍG 17 4 13 1324:1636 8
Ármann 17 2 15 1286:1528 4
KFÍ er komið upp í úrvalsdeildina. Hött-
ur, Skallagrímur, og Hamar fara í umspil
um eitt sæti í úrvalsdeild ásamt ÍA eða
Breiðabliki.
Svíþjóð
Sundsvall – Uppsala...........................102:95
Jakob Örn Sigurðarson skoraði 17 stig,
Hlynur Bæringsson 11 en Pavel Ermolins-
kij ekkert fyrir Sundsvall.
Jämtland – Borås .................................76:80
Brynjar Þór Björnsson skoraði 10 stig
fyrir Jämtland.
08 Stockholm – Solna...........................89:77
Helgi Már Magnússon skoraði 16 stig
fyrir 08 Stockholm.
Ekki lá fyrir í gærkvöldi hvernig Loga
Gunnarssyni gekk í leiknum með Solna.
NBA-deildin
Orlando – Oklahoma City ................ 102:105
Phoenix – Minnesota.......................... 104:95
Sacramento – LA Clippers .............. 100:108
Portland – Miami................................ 93:107
KÖRFUBOLTI
Hún var stutt dvölin hjá Hlíðarendapiltum í Ice-
land Express-deildinni í körfuknattleik en liðið
er fallið úr deild þeirra bestu eftir árs veru. Lið-
ið tapaði í gær fyrir ÍR 102:95. Nú er aðeins
spurning hvort Valur nær að vinna eitthvert lið í
deildinni en í 18 leikjum hefur liðið aldrei notið
þess að fagna í leikslok. Þegar aðeins fjórir leik-
ir eru eftir er vonin ekki mikil en ÍR-ingar ætl-
uðu ekki að gefa þeim kost á því í gær og gerðu
alltaf nóg til að halda Val í hæfilegri fjarlægð.
Valur leikur gegn Haukum sem eru sæti fyrir
ofan með átta stig og það gæti verið tækifæri
Valsmanna.
ÍR-ingar komu sér hins vegar með sigrinum í
betri stöðu í baráttunni um sæti í úrslitakeppn-
inni en allt þarf að ganga upp hjá liðinu ætli það
sér þangað. Robert Jarvis var atkvæðamestur
ÍR-inga með 29 stig og sjö fráköst en Rodney Al-
exander kom næstur með 24. Birgir Björn Bét-
ursson var með 27 stig fyrir Val. omt@mbl.is
Stutt dvöl meðal þeirra bestu