Morgunblaðið - 26.04.2012, Page 2
Á AKUREYRI
Andri Yrkill Valsson
sport@mbl.is
Það voru niðurdregnir leikmenn Ak-
ureyrar sem gengu af velli og áleiðis í
sumarfrí eftir að hafa tapað fjórða
leiknum í viðureigninni við FH, og ein-
víginu samtals 3:1. Þrátt fyrir baráttu
heimamanna var sigur Hafnfirðinga
aldrei í hættu, þeir voru yfir í hálfleik
12:14 og höfðu að lokum þriggja marka
sigur, 25:28. Þeir eru því komnir í úr-
slitaeinvígið og mæta þar HK, sem
sópaði hinu Hafnarfjarðarliðinu,
Haukum, svo eftirminnilega úr leik í
einvígi þeirra á dögunum.
Akureyringar byrjuðu þó vel og
mættu greinilega ákveðnir til leiks.
Menn börðu hvern annan áfram í vörn-
inni en sóknarleikurinn var oft á tíðum
stirður. Jafnræði var með liðunum
framan af en um miðbik hálfleiksins
kom slæmur kafli hjá Akureyringum
sem var vendipunktur leiksins. Þeir
fengu tvær brottvísanir í röð, FH-
ingar voru fljótir að ganga á lagið og
náðu fimm marka forskoti. Á þeim
kafla skoruðu heimamenn ekki mark í
átta mínútur og augljós pirringur fór
að gera vart við sig. Þeir máttu því
prísa sig sæla að vera ekki meira en
tveimur mörkum undir í hálfleik.
Ragnar og Ólafur sterkir
FH-ingar höfðu áfram yfirhöndina í
síðari hálfleik. Þeir voru ekkert að
stressa sig á hlutunum heldur spiluðu
af mikilli yfirvegun. Skytturnar Ragn-
ar Jóhannsson og Ólafur Gústafsson
fóru fyrir sínu liði í sókninni og erf-
iðlega gekk fyrir vörn Akureyringa að
stoppa þá. Heimamenn reyndu þó
hvetja hver annan áfram til dáða en
voru pirraðir hversu hægt gekk. Róm
var ekki byggð á einum degi og það
vita reynsluboltar eins og Heimir Örn
og Bjarni Fritzson. Þeir komu strák-
unum niður á jörðina og reyndu að
spila af yfirvegun. Í kjölfarið kom
stemningin á ný og með dyggum
stuðningi áhorfenda komust þeir aftur
inn í leikinn. En þá virtist allur vindur
úr liðinu og FH-ingar sigldu sigrinum
örugglega í höfn með þeirri yfirvegun
sem fylgdi þeim allan leikinn. Lokatöl-
ur eins og áður sagði, 25:28.
Leikur FH var stöðugri
Leikur FH-inga var stöðugur bróð-
urpart leiksins og það skilaði sínu.
Daníel Andrésson er ávallt traustur í
markinu og það er mikið öryggi fyrir
annars ágæta vörn liðsins að vita af
honum fyrir aftan sig. Með sleggjur
eins og Ólaf og Ragnar í sókninni í
bland við lipra menn eins og Örn Inga
Bjarkason og Ara Magnús Þorgeirs-
son eru ávallt margir möguleikar í
Ósvik
verðsk
Stöðugleika vanta
FÓTBOLTI
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Bayern München er á leiðinni í sinn ní-
unda úrslitaleik um Evrópumeist-
aratitilinn í knattspyrnu eftir drama-
tískan sigur á Real Madrid í
vítaspyrnukeppni á Santiago Berna-
béu í Madríd í gærkvöld. Sigur Real,
2:1, þýddi að liðin voru jöfn samanlagt,
3:3. Það er gömul þjóðsaga að Þjóð-
verjar tapi ekki vítaspyrnukeppni og
hvað sem er til í því þá voru þeir sterk-
ari á taugunum á örlagastundu og
unnu vítakeppnina 3:1.
Þessi áfangi er Bayern enn dýrmæt-
ari vegna þeirrar staðreyndar að úr-
slitaleikurinn í ár fer fram á þeirra
heimavelli í München og þar taka þeir
á móti Chelsea laugardaginn 19. maí.
Bayern varð síðast Evrópumeistari
árið 2001, í fjórða sinn, en tapaði átt-
unda úrslitaleik sínum fyrir tveimur
árum – gegn José Mourinho og Inter
Mílanó. Fjórir sigrar og fjögur töp eru
árangur þýska stórliðsins í úrslita-
leikjum keppninnar til þessa.
Draumur Mourinhos um að vinna
Evrópubikarinn með sínu þriðja liði
rann út í sandinn á Santiago Berna-
béu, og um leið tækifærið til að mæta
sínum gömlu félögum í Chelsea í úr-
slitaleiknum.
Óskabyrjun Spánverjanna en
þeir dýrustu brugðust
Real Madrid fékk sannkallaða óska-
byrjun því Cristiano Ronaldo skoraði
úr vítaspyrnu strax á 6. mínútu og
kom Spánverjunum í 2:0 á 14. mínútu.
Arjen Robben svaraði fyrir Bayern úr
vítaspyrnu á 27. mínútu, 2:1, og þar við
sat í markaskorun.
Ekkert var skorað í framlengingu
og því réð vítaspyrnukeppni úrslitum.
Manuel Neuer í marki Bayern varði
tvær fyrstu spyrnur Real, frá Cris-
tiano Ronaldo og Kaká, dýrustu knatt-
spyrnumönnum heims. Bayern skor-
aði úr fyrstu tveimur en síðan varði
Iker Casillas tvær spyrnur Þjóðverj-
anna, frá Toni Kroos og Philip Lahm,
og gaf sínum mönnum tækifæri á að
jafna metin.
Það tókst þeim ekki því Sergio Ra-
mos skaut himinhátt yfir mark Bayern
úr fjórðu spyrnu Real Madrid. Bastian
Schweinsteiger skoraði hinsvegar úr
fimmtu spyrnu Þjóðverjanna og þar
með var Bayern komið í úrslitaleikinn.
Þrír hjá Bayern í banni
En rétt eins og Chelsea verður Bay-
ern án lykilmanna í München 19. maí.
Þeir David Alaba, Luiz Gustavo og
Holger Badstuber eru allir komnir í
leikbann vegna gulra spjalda og því
þurfa sjö leikmenn liðanna samtals að
sitja í stúkunni, í leikbanni, og horfa á
félaga sína spila þennan draumaleik.
Þeir bestu bregðast líka, það höfum
við séð tvö kvöld í röð. Lionel Messi og
Cristano Ronaldo brenndu af víta-
spyrnum með 24 stunda millibili og
sitja báðir heima þegar stærsti leikur
tímabilsins fer fram í München.
Reuters
Sigurvegarar Leikmenn Bayern München fagna sigrinum í vítaspyrnukeppninni. Sergio Ramos, sem skaut yfir úr fjórðu
spyrnu Real Madrid, er að vonum vonsvikinn lengst til vinstri. Spænska liðið skoraði aðeins úr einni spyrnu af fjórum.
Þýska þjóðsagan stóð
fyrir sínu í Madríd
Bayern vann Real í vítakeppni Mætir Chelsea á heimavelli
Úrslitaleikurinn
» Bayern München og Chelsea
leika til úrslita um Evr-
ópumeistaratitilinn á Allianz
leikvanginum í München laug-
ardaginn 19. maí.
» Bayern leikur þar til úrslita í
níunda skipti en félagið hefur
fjórum sinnum unnið keppnina,
1974, 1975, 1976 og 2001, og
fjórum sinnum tapað úrslita-
leik, 1982, 1987, 1999 og 2010.
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2012
Undankeppni EM kvenna
3. riðill:
Norður-Írland – Ungverjaland.............. 0:1
Fanný Vágó 90.(víti)
Staðan:
Belgía 7 4 2 1 11:4 14
Ísland 6 4 1 1 12:2 13
Noregur 6 4 0 2 17:6 12
Norður-Írland 6 2 2 2 8:8 8
Ungverjaland 7 2 1 4 8:16 7
Búlgaría 6 0 0 6 0:20 0
Lengjubikar kvenna
B-DEILD:
Selfoss – FH.............................................. 1:5
FH 7 stig, Afturelding 7, KR 6, Selfoss 3,
Þróttur R. 0.
Lengjubikar karla
C-DEILD, 2. riðill:
Stál-úlfur – Skínandi ................................ 2:3
Lokastaðan: Skínandi 12, Kári 9, Stál-
úlfur 6, Grundarfjörður 3, Björninn 0.
Meistaradeild Evrópu
Undanúrslit, síðari leikur:
Real Madrid – Bayern München............ 2:1
Cristiano Ronaldo 6.(víti), 14. – Arjen Rob-
ben 27.(víti)
Jafnt samanlagt, 3:3. Bayern sigraði 3:1 í
vítaspyrnukeppni og mætir Chelsea í úr-
slitaleik 19. maí.
Ítalía
AC Milan – Genoa .....................................1:0
Cesena – Juventus ....................................0:1
Lecce – Napoli ...........................................0:2
Palermo – Parma.......................................1:2
Roma – Fiorentina ....................................1:2
Siena – Bologna .........................................1:1
Udinese – Inter Mílanó.............................1:3
Novara – Lazio ..........................................2:1
Staðan:
Juventus 34 20 14 0 58:18 74
AC Milan 34 21 8 5 64:27 71
Lazio 34 16 7 11 50:43 55
Napoli 34 14 12 8 60:41 54
Udinese 34 14 10 10 45:35 52
Inter Mílanó 34 15 7 12 50:46 52
Roma 34 15 5 14 53:48 50
Catania 34 11 13 10 44:46 46
Parma 34 11 11 12 46:51 44
Siena 34 11 10 13 42:36 43
Atalanta 34 12 13 9 38:36 43
Chievo 34 11 10 13 30:41 43
Bologna 34 10 12 12 35:40 42
Fiorentina 34 10 11 13 34:39 41
Palermo 34 11 8 15 47:53 41
Cagliari 34 10 11 13 36:42 41
Genoa 34 9 9 16 44:63 36
Lecce 34 8 11 15 38:51 35
Novara 34 6 10 18 29:57 28
Cesena 34 4 10 20 21:51 22
Danmörk
Bikarinn, undanúrslit, síðari leikur:
SönderjyskE – FC Köbenhavn............... 4:3
Eyjólfur Héðinsson og Hallgrímur Jón-
asson léku allan leikinn með SönderjyskE
og Eyjólfur skoraði fyrsta mark liðsins.
Arnar Darri Pétursson var ekki í hópnum.
Sölvi Geir Ottesen var ekki með FCK
vegna meiðsla og Ragnar Sigurðsson var
varamaður og kom ekki við sögu.
FCK áfram á útimörkum, 4:4 samanlagt,
og mætir Horsens eða Köge í úrslitaleik.
Íþróttasíður spænsku blaðanna í gær voru að von-
um uppfullar af falli Evrópu- og Spánarmeistara
Barcelona út úr Meistaradeildinni en Börsungar
fóru illa að ráði sínu gegn 10 leikmönnum Chelsea á
Nývangi í fyrrakvöld.
„Martröð á Camp Nou - Barcelona er úr leik í
deildinni og í Meistaradeildinni eftir þrjá svörtustu
dagana í tíð Guardiola,“ var umfjöllun í Marca en
Barcelona beið lægri hlut á heimavelli fyrir Real
Madrid á laugardagskvöldið og þar með er Madrid-
arliðið komið með níu fingur á Spánarbikarinn.
,,Banvæn sprengja á Camp Nou. Er þetta end-
irinn á sigurhringnum?“ segir í El Mundo.
Óréttlátt, miskunnarlaust, hræðilegt
„Fótboltinn refsaði Barcelona – óréttlátt, mis-
kunnarlaust, hræðilegt. Ekkert lýsingarorð er
nægilegt til að lýsa ótrúlegu falli
Barcelona,“ er skrifað í blaðið
Sport sem er gefið út í Barce-
lona. „Staðreyndin er sú að
Chelsea skoraði þrjú mörk úr
þremur tækifærum á 180 mín-
útum.“
„Bless, Barcelona. Ofurvörn
Chelsea sá til þess að Barcelona
fór ekki úrslitaleikinn í Münch-
en,“ segir í AS.
„Sögulegt lið Barcelona féll í
undanúrslitunum gegn Chelsea í leik sem var fullur
af óheppni,“ skrifar El Mundo Deportivo.
„Mesti harmleikur Barcelona. Barca lenti á
Chelsea-veggnum á afdrifaríku kvöldi fyrir Messi,“
er skrifað í El Pais. gummih@mbl.is
Þrír svörtustu dagarnir í tíð Guardiola
Pep
Guardiola
Konráð Olavsson, fyrrverandi landsliðsmaður
í handknattleik, hefur tímabundið tekið við
þjálfun meistaraflokks karla í handknattleik
hjá Stjörnunni af Roland Val Eradze. Konráð
stýrði Stjörnuliðinu í þegar það lagði Víkinga
á dögunum og þar sem liðið öðlaðist keppn-
isrétt til að leika við Aftureldingu um sæti í
úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Fyrsta við-
ureign Aftureldingar og Stjörnunnar verður í
Mosfellsbæ annað kvöld. Leikirnir geta
mögulega orðið þrír.
Roland hætti þjálfun Stjörnunnar á dög-
unum af persónulegum ástæðum en móðir
hans er alvarlega veik og fór Roland að vitja
hennar í Georgíu, þaðan sem hann er. Varð
þá að samkomulagi að Roland hætti og vildi
þá svo heppilega til að Konráð, sem er bú-
ar
lei
va
úr
@m
Konráð stýrir Stjörnu
Ko
Ola
Danmörk
Umspil karla:
Mors-Thy – Ringsted ...........................36:22
Einar Ingi Hrafnsson skoraði 1 mark og
Jón Þ. Jóhannsson 4 fyrir Mors-Thy.
Þýskaland
8 liða úrslit kvenna, seinni leikur:
Thüringer – Blomberg-Lippe.............27:25
Karen Knútsdóttir skoraði ekki fyrir
Blomberg en Hildur Þorgeirsdóttir setti
tvö mörk.
Thüringer komst áfram, 56:51.
Noregur
ÖIF Arendal – Fyllingen .....................28:30
Elías Már Halldórsson náði ekki að skora
fyrir Arendal.
Nötteröy – Haslum...............................27:35
Hreiðar Levý Guðmundsson stóð í marki
Nötteröy og varði 3 skot.
HANDBOLTI
NBA-deildin
Atlanta – LA Clippers...................... 109:102
Boston – Miami..................................... 78:66
Oklahoma – Sacramento.................. 118:110
Utah – Phoenix ................................... 100:88
Golden State – New Orleans ............... 81:83
Utah tryggði sér áttunda og síðasta sæt-
ið í úrslitum Vesturdeildar.
Chicago, Miami, Indiana, Boston, Atl-
anta, Orlando, New York og Philadelphia
eru komin í úrslit í Austurdeild.
San Antonio, Oklahoma, LA Lakers, LA
Clippers, Memphis, Denver, Dallas og Ut-
ah eru komin í úrslit í Vesturdeild.
KÖRFUBOLTI
KNATTSPYRNA