Morgunblaðið - 11.05.2012, Page 1
FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2012
íþróttir
Fótbolti Íslandsmót kvenna hefst á sunnudaginn með heilli umferð. Stjarnan á titil að
verja en Breiðabliki er spáð toppsætinu. Margrét Ákadóttir fer yfir möguleika liðanna 6-7
Íþróttir
mbl.is
Ljósmynd/Sakis Savvides
Reyndur Hermann Hreiðarsson hefur verið atvinnumaður í Englandi frá
1997 og stefnir að því að framlengja ferilinn um a.m.k. eitt ár enn.
FÓTBOLTI
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
„Ég ætla að reyna að koma mér í
gott stand í sumar og ef mér líður
vel þá ætla ég að reyna að taka eitt
ár til viðbótar hérna úti,“ sagði
knattspyrnumaðurinn Hermann
Hreiðarsson við Morgunblaðið í
gær.
Hermann er samningslaus en
hann hefur verið í atvinnumennsku
óslitið frá árinu 1997 þegar hann fór
frá ÍBV og samdi við enska liðið
Crystal Palace.
Hermann hefur verið á mála hjá
Portsmouth frá árinu 2007 en í jan-
úar gekk hann til liðs við Coventry
og samdi við liðið út leiktíðina. Eyja-
maðurinn öflugi hafði ekki heppnina
með sér. Hann meiddist illa á öxl í
febrúar og spilaði ekkert meira eftir
það og hann náði aðeins að spila tvo
leiki með Coventry-liðinu áður en
hann meiddist. Ljóst er að hann
verður ekki áfram með Coventry né
Portsmouth en bæði lið féllu í C-
deildina.
Öxlin að verða góð
„Ég er bara að verða góður af
þessum meiðslum í öxlinni og er að
verða tilbúinn að spila golf. Það er
góð byrjun. Ég hef ekki rætt við
nein félög hérna úti og vil ekki gera
það fyrr en ég verð kominn í gott
form,“ sagði Hermann en síðustu tvö
tímabilin hefur hann verið mikið frá
vegna meiðsla. Hann sleit hásin og
var frá í marga mánuði og síðan tóku
axlarmeiðslin við.
„Fram að þessu var ég heppinn en
það hlaut kom að því að eitthvað léti
undan.“
Einhver lið höfðu samband
Hermann útilokar að spila á Ís-
landi í sumar en neitar því ekki hafa
fengið fyrirspurnir frá liðum á Ís-
landi.
„Ég spila ekki heima á Íslandi í ár.
Það er öruggt en það voru einhver
lið sem höfðu samband. Ég kem
heim í júní og mun æfa vel í sumar
og láta svo á það reyna hvort ég fæ
samning úti eða ekki,“ sagði Her-
mann, sem verður 38 ára gamall í
júlí.
Ætla að reyna að taka
eitt ár til viðbótar úti
Hermann samningslaus Ætlar að koma sér í gott form í sumar og freista
þess að fá samning Spilar ekki á Íslandi í sumar þrátt fyrir fyrirspurnir
Íslenska drengja-
landsliðið í knatt-
spyrnu var að-
eins sex mínútum
frá því að komast
í undanúrslitin á
Evrópumótinu í
Slóveníu en þeir
eru úr leik eftir
ósigur gegn
Georgíu í gær-
kvöld, 0:1, í loka-
umferð riðlakeppninnar.
Georgíumenn skoruðu sigur-
mark sitt sex mínútum fyrir leiks-
lok og tryggðu sér með því annað
sætið í riðlinum og sæti í undan-
úrslitum. Á meðan töpuðu Frakkar
0:3 fyrir Þjóðverjum þannig að ís-
lenska liðinu hefði dugað jafntefli
til að vera fyrir ofan bæði Georgíu
og Frakkland á markatölu.
Lokaniðurstaðan er 7.-8. sæti,
eða sami árangur og þegar Ísland
komst fyrst í þessa lokakeppni árið
2007. Íslensku strákarnir gerðu
jafntefli, 2:2, við Frakka og töpuðu
síðan 0:1 fyrir Þjóðverjum í öðrum
leik sínum á mótinu í Slóveníu.
Þjóðverjar unnu riðilinn með fullu
húsi stiga.
Þessi hópur hefur þar með lokið
keppni sem U17 ára lið en árang-
urinn undir stjórn Gunnars Guð-
mundssonar er glæsilegur. Sæti í 8-
liða úrslitum EM og Norður-
landameistaratitill. Liðið vann 7
leiki, gerði 3 jafntefli og tapaði 3
leikjum á tæpu ári.
vs@mbl.is
Sex mínútum
frá undan-
úrslitum EM
Gunnar
Guðmundsson
Valur og ÍA tróna í toppsætum Pepsi-deildar karla eftir
sjöttu umferðina sem fór öll fram í gærkvöld. Nýliðar
Skagamanna skelltu Íslands- og bikarmeisturum KR á
Akranesi, 3:2, og tuttugu hornspyrnur KR-inga dugðu
þeim ekki til að innbyrða stig.
Valsmenn sigruðu Selfyssinga 3:1 á Hlíðarenda og eru
með 6 stig eins og ÍA.
Það eru hinsvegar Framarar sem sitja eftir á botn-
inum, án stiga og án marka, eftir að FH lagði þá að velli,
1:0, í Kaplakrika.
Breiðablik hefur heldur ekki skorað mark en fékk sitt
fyrsta stig í markalausu jafntefli í Eyjum.
Fyrstu rauðu spjöldin fóru á loft í Garðabæ þar sem
Garðar Örn Hinriksson rak tvo leikmenn Stjörnunnar af
velli, fyrirliðann Daníel Laxdal og varamanninn Bjarka
Pál Eysteinsson. Garðar sendi jafnframt markvarða-
þjálfara Garðbæinga, Henryk Bödker, upp í stúku. Þar
með eru þessir þrír Stjörnumenn komnir í leikbann fyrir
næsta leik sem er gegn Keflvíkingum suður með sjó á
mánudaginn.
Keflvíkingar gerðu sér lítið fyrir og skelltu Grindvík-
ingum 4:0 í Suðurnesjaslagnum, á útivelli, þar sem
Frans Elvarsson skoraði tvö markanna.
Allt um leikina á bls. 2-5 og 8. vs@mbl.is
Valur og ÍA í
toppsætunum
Þrír Stjörnumenn í bann
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Bræðurnir Þeir Bjarni og Jóhannes Karl Guðjónssynir mættust sem fyrirliðar KR og ÍA á Akranesvelli í gærkvöldi og það fór vel á með
þeim þegar þeir heilsuðust fyrir leikinn. Jóhannes Karl skoraði glæsilegt mark og fagnaði sigri í leikslok, 3:2.