Morgunblaðið - 11.05.2012, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.05.2012, Blaðsíða 2
2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2012 Í GARÐABÆ Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Það gekk enginn sáttur af nývígðum gervigrasvelli Stjörnunnar í gær- kvöldi eftir ævintýralegar lokamín- útur. Enginn nema þá kannski dóm- ararnir þrír – ekki veit ég hvernig þeir hugsa – en þeir hefðu þó sann- arlega getað skilað betra verki. Það var nefnilega því miður ekki svo að einhver knattspyrnusnillingurinn stæli senunni með frábærum töktum í þessum fjögurra marka jafn- teflisleik. Samt var Laudrup inná. Nei, það var Garðar Örn Hinriksson dómari sem var í aðahlutverki. Það er hins vegar ekki áfellisdómur yfir honum heldur leikmönnum liðanna sem sýndu takmörkuð tilþrif lung- ann úr leiknum. Það var eiginlega komin þrúgandi þögn í stúkuna í Garðabænum þegar lætin hófust loks tíu mínútum fyrir leikslok. Jóhann Þórhallsson afrek- aði þá að gjörbreyta leiknum á fimm mínútum með því að fiska víta- spyrnu og rautt spjald á fyrirliða Stjörnunnar, Daníel Laxdal, og skora svo sjálfur annað mark og koma Fylki í 2:1. Stjörnumenn voru hundóánægðir með dómgæsluna, sér í lagi mark- varðaþjálfarinn Henryk Bödker sem var rekinn upp í stúku, þó fúlastir ættu þeir að vera út í sjálfa sig fyrir að hafa ekki átt skot á mark í seinni hálfleiknum, en sýndu sömu þraut- seigju og þeir gerðu í fyrstu umferð gegn KR. Aftur var Atli Jóhannsson lykillinn að því að jafna en hann fisk- aði vítaspyrnu sem Halldór Orri Björnsson skoraði úr. Rétt fyrir leikslok varð svo varamaðurinn Bjarki Páll Eysteinsson þriðji Stjörnumaðurinn til að fá reisupass- ann fyrir of litlar sakir að mati þess sem þetta skrifar. Eins og áður segir gátu bæði lið gengið svekkt af velli. Heimamenn vegna frammistöðu sem sæmir ekki liði sem ætlar í toppbaráttu, og gest- irnir fyrir að hafa ekki nýtt sér full- komið tækifæri til sigurs. Þeir geta hins vegar verið öllu sáttari við sinn leik og spjara sig vel þrátt fyrir meiðslakrísu í upphafi móts. Stjarnan tefldi eins og áður segir fram Dananum Mads Laudrup, syni Michael Laudrup, í fyrsta sinn og sá kann að fara með knöttinn. Hins vegar skyggði hann nokkuð á Hall- dór Orra Björnsson sem var nokkuð frá sínu besta en hann er þó reyndar nýbúinn að jafna sig af meiðslum. Rangur maður settur í aðalhlutverkið  Þrír fengu reisupassann  Lítil gæði á nýja gervigrasinu Skallaeinvígi Fylkismaðurinn Davíð Þór Ásbjörnsson og Stjörnumaðurinn Darri Steinn Konráðsson eigast hér við. FÆRI 33. Olsen sendi lag-lega stungusend- ingu inn fyrir á Ian Jeffs, sem var hægra megin í vítateignum. Sigmar varði hins vegar skot Jeffs í horn. FÆRI 90. Elfar Árni fékkfrábært færi til að skora sigurmarkið úr miðjum víta- teig en á elleftu stundu náðu varn- armenn ÍBV að komast fyrir skot- ið. I Gul spjöld:Elfar Árni (Breiðabliki), 28. (brot), Haukur (Breiðabliki), 33. (brot), Sverrir (Breiðabliki) 41. (tafir), Baldock (ÍBV), 64. (brot), Eyþór (ÍBV), 78. (brot), Þórður (Breiðabliki), 79. (brot). I Rauð spjöld: Engin. MMM Enginn. MM Enginn. M Brynjar Gauti Guðjónsson (ÍBV) Matt Garner (ÍBV) Guðmundur Þórarinsson (ÍBV) George Baldock (ÍBV) Elfar Árni Aðalsteinsson (Breiðab.) Jökull I. Elísabetarson (Breiðab.) Tómas Óli Garðarsson (Breiðabliki)  Fyrir leikinn var Steingríms Jó- hannessonar, fyrrv. leikmanns ÍBV, minnst með lófaklappi og áhorfendur risu úr sætum en Stein- grímur lést langt um aldur fram á þessu ári.  Vallarásýnd Hásteinsvallar er að breytast því um 500 manna stúka er nú í byggingu við suðurhlið vall- arins. Stúkan er þó langt í frá tilbú- in.  Fyrir vikið er aðstaða við völlinn ekki eins og best verður á kosið. Blaðamaður Morgunblaðsins varð að gera sér það að góðu að sitja í bíl við enda vallarins og vinna þaðan. Þetta gerðist á Hásteinsvelli Hásteinsvöllur, Pepsi-deild karla, 2. umferð, fimmtudag 10. maí 2012. Skilyrði: Ágætlega hlýtt, þurrt og hægur vindur beint á annað markið. Völlurinn mjög góður. Skot: ÍBV 15 (7) – Breiðablik 10 (5). Horn: ÍBV 5 – Breiðablik 5. Lið ÍBV: (4-5-1) Mark: Abel Dhaira. Vörn: Arnór E. Ólafsson, Brynjar Gauti Guðjónsson, Rasmus Christi- ansen, Matt Garner. Miðja: Tonny Mawejje, Guðmundur Þórarinsson, George Baldock (Eyþór Helgi Birg- isson 75.), Ian Jeffs (Aaron Spear 69.), Þórarinn Ingi Valdimarsson. Sókn: Christian Olsen (Víðir Þor- varðarson 84.). Lið Breiðabliks: (4-4-2) Mark: Sig- mar Ingi Sigurðarson. Vörn: Tómas Óli Garðarsson, Renee Troost, Sverr- ir Ingi Ingason, Kristinn Jónsson. Miðja: Jökull I. Elísabetarson, Finnur Orri Margeirsson, Andri Rafn Yeom- an (Árni Vilhjálmsson 46.), Haukur Baldvinsson (Arnar Már Björg- vinsson 85.) Sókn: Elfar Árni Að- alsteinsson, Petar Rnkovic (Þórður Steinar Hreiðarsson 60.). Dómari: Kristinn Jakobsson – 9. Áhorfendur: 768. ÍBV – Breiðablik 0:0 Í EYJUM Júlíus G. Ingason sport@mbl.is ÍBV og Breiðablik skildu jöfn í markalausum leik í gærkvöldi á Há- steinsvelli. Aðstæður buðu upp á góðan leik, ágætis veður og völl- urinn sléttur og flottur. Tilþrifin voru oft og tíðum ágæt en mörkin vantaði sárlega. Blikum hefur ekki tekist að skora mark í fyrstu tveim- ur leikjum sínum og Eyjamenn hafa aðeins skorað eitt, úr vítaspyrnu gegn Selfossi. Það sést því hvar skórinn kreppir hjá liðunum tveim- ur. Allt annað að sjá til ÍBV Allt annað var að sjá til Eyjaliðs- ins frá því í fyrsta leiknum gegn Selfossi. Leikmenn liðsins virtust líflegri og Eyjamenn spiluðu oft og tíðum ágætlega sín á milli. Það sem Eyjamenn gerðu vel, hófst yfirleitt á þeim Guðmundi Þórarinssyni og enska miðjumanninum George Bal- dock. Baldock þessi átti skínandi góðan leik, sem og Guðmundur, en báðir sækja þeir mikið í að fá boltann og stjórna leik liðsins. Það gera þeir báðir ágætlega og því klóruðu margir sér í hausnum þegar Magn- ús Gylfason, þjálfari ÍBV, ákvað að taka Baldock af leikvelli þegar stundarfjórðungur var eftir. Það var eins og við manninn mælt, miðjuspil Eyjamanna datt nokkuð niður eftir það og Blikar færðu sig upp á skaft- ið. Blikaliðið lék skynsamlega lengst af í leiknum. Þeir héldu sig aft- arlega, vörðust vel og beittu svo skyndisóknum með sína eldfljótu leikmenn. Elfar Árni Aðalsteinsson fékk nokkur afbragðsgóð færi til að skora en nýtti þau ekki. Hann þarf hins vegar ekkert að hengja haus, enda þarf hæfileika til að komast í færi, mörkin koma fyrr eða síðar. Fjörugur leikur þrátt fyrir allt Þrátt fyrir markaleysið verða leikmenn liðanna tveggja ekki sak- aðir um að reyna ekki. Eyjamenn voru mun meira með boltann, sér- staklega í fyrri hálfleik þegar þeir sóttu nánast látlaust en Blikar stóðu vaktina ágætlega. Christian Olsen, sóknarmaður Eyjamanna, fékk í þrígang stungusendingu inn fyrir vörn Blika en náði ekki að nýta sér það. Olsen þessi er eldfljótur en Eyjamenn verða að finna leið til að nýta hraða hans betur en þeir hafa gert í þessum fyrstu tveimur leikj- um. Leikmenn svekktir Leikmenn beggja liða gengu svekktir af velli en hið jákvæða er að bæði lið fengu sín fyrstu stig. Bæði lið verða hins vegar að bæta sóknarleikinn ef stigin eiga að verða fleiri. Eitt stig úr fyrstu tveimur leikjunum er án efa minna en bæði Magnús Gylfason, þjálfari ÍBV, og Ólafur Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks, ætluðu sér.  Myndbandsviðtöl við bæði Magnús og Ólaf er að finna á mbl.is/ sport. Góður leikur en án marka  Fyrstu stigin hjá ÍBV og Breiðabliki  Blikar án marka í tveimur leikjum Ljósmynd/Sigfús Gunnar Í loftinu Kristinn Jónsson og Þórður Steinar Hreiðarsson úr Breiðabliki og Christian Olsen og Aaron Spear úr ÍBV með augun á boltanum. Stjörnuvöllur, Pepsi-deild karla, 2. umferð, fimmtudag 10. maí 2012. Skilyrði: Sól og nánast logn. Glæ- nýtt og gott gervigras. Skot: Stjarnan 6 (2) – Fylkir 8 (6). Horn: Stjarnan 2 – Fylkir 4. Lið Stjörnunnar: (4-3-3) Mark: Ingvar Jónsson. Vörn: Baldvin Sturluson, Alexander Scholz, Daníel Laxdal, Jóhann Laxdal. Miðja: Atli Jóhannsson, Halldór Orri Björnsson, Mads Laudrup. Sókn: Gunnar Örn Jónsson (Bjarki Páll Eysteinsson 69.), Garðar Jóhannsson (Tryggvi S. Bjarnason 81.), Kennie Chopart (Darri Steinn Konráðsson 36.). Lið Fylkis: (4-4-2) Mark: Bjarni Þórður Halldórsson. Vörn: Andri Þór Jónsson, David Elebert, Ásgeir Eyþórsson, Kjartan Ágúst Breiðdal. Miðja: Ingimundur Níels Óskarsson, Ásgeir Börkur Ásgeirsson (Árni Freyr Guðnason 90.), Davíð Þór Ás- björnsson, Tómas Þorsteinsson (Rúrik Andri Þorfinnsson 73.). Sókn: Magnús Þórir Matthíasson (Finnur Ólafsson 64.), Jóhann Þór- hallsson. Dómari: Garðar Örn Hinriksson – 6. Áhorfendur: 987. Stjarnan – Fylkir 2:2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.