Morgunblaðið - 11.05.2012, Síða 5
Morgunblaðið/Kristinn
stur Björn Daníel Sverrisson lék mjög vel með FH og skallar hér boltann af krafti. Almarr Ormarsson er í baráttu við hann og Atli Viðar Björnsson fylgist með.
ÍÞRÓTTIR 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2012
FÆRI 23. Halldór Her-mann Jónsson
komst í ágætis færi á fjærstöng FH
eftir langt innkast en þrumaði bolt-
anum langt framhjá.
FÆRI 58. Guðjón ÁrniAntoníusson í
dauðafæri fyrir miðju marki eftir
aukaspyrnu Ólafs Páls Snorrasonar
en skallaði rétt framhjá.
FÆRI 63. Björn Daníelmeð frábær tilþrif.
Sólaði hvern Framarann á fætur
öðrum og gaf boltann fyrir á Atla
Guðnason sem skallaði rétt
framhjá.
FÆRI 78. Viktor Örn Guð-mundsson átti
hörkuskot sem Ögmundur varði í
marki Fram.
1:0 82. Guðjón Árni Anton-íusson gaf boltann fyrir
mark Fram og þar var Atli Guðna-
son fyrstur að átta sig og hamraði
boltann í netið með fyrstu snert-
ingu.
I Gul spjöld:Jón Gunnar (Fram) 42.
(brot), Emil (FH) 89. (brot).
I Rauð spjöld: Engin.
MMM
Enginn.
MM
Björn Daníel Sverrisson (FH).
M
Freyr Bjarnason (FH)
Guðjón Árni Antoníusson (FH)
Atli Guðnason (FH)
Alan Lowing (Fram)
Samuel Hewson (Fram)
Fyrir leikinn heiðruðu FH-ingar
fjóra fyrrverandi leikmenn sína
sem eru farnir annað eða hættir.
Þeir voru Daði Lárusson, Gunnar
Sigurðsson, Guðmundur Sæv-
arsson og Ásgeir Gunnar Ásgeirs-
son.
Ásgeir
Gunnar Ás-
geirsson kom
inn á sem
varamaður
hjá Fram og
mætti þar
með sínum
gömlu fé-
lögum í FH.
Hann er 9.
leikjahæsti
leikmaður í
sögu FH.
Á mbl.is eru myndbandsviðtöl við
Þorvald Örlygsson þjálfara Fram
og Björn Daníel Sverrisson leik-
mann FH.
Þetta gerðist
í Kaplakrika
Ásgeir Gunnar
Ásgeirsson
Stúlknalandslið Íslands í fim-
leikum hafnaði í 17. sæti á Evr-
ópumeistaramótinu í Brussel í
Belgíu en undankeppni í yngri
aldursflokki fór fram í fyrradag. Í
tilkynningu frá Fimleikasambandi
Íslands er haft eftir Þorbjörgu
Gísladóttur fararstjóra að mikil
ánægja hafi verið með frammi-
stöðu stúlknanna, sérstaklega þar
sem þetta sé þeirra fyrsta Evr-
ópumeistaramót en þær eru 14-15
ára gamlar.
Alls taka 36 þjóðir þátt í mótinu
og 250 keppendur samtals, en
keppendur í yngri hlutanum voru
110 talsins. Af íslensku keppend-
unum stóð Freyja Húnfjörð Jós-
epsdóttir sig best og endaði í 51.
sæti í heildarkeppninni. Bestu ein-
kunn á einstökum áhöldum fékk
Sigríður Hrönn Bergþórsdóttir en
hún fékk 12.466 stig í stökki.
vs@mbl.is
Stúlkurnar
í 17. sæti
í Brussel
Á HLÍÐARENDA
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Valsmenn geta verið ánægðir með
byrjun sína í Pepsi-deildinni þetta
árið. Liðið hefur unnið tvo fyrstu
leiki sína, raunar eins og í fyrra. Val-
ur vann nýliða Selfoss 3:1 á heima-
velli sínum á Hlíðarenda í gærkvöldi.
Valsmenn geta að vissu leyti
þakkað varamönnum sínum: Andra
Fannari, Matthíasi, og Kolbeini sig-
urinn. Þeir hresstu verulega upp á
liðið í stöðunni 1:1 og Valsmenn náðu
að kreista fram tvö mörk á lokakafla
leiksins. Vitaskuld eiga þjálfararnir
Kristján Guðmundsson og Freyr Al-
exanderson hrós skilið fyrir skipt-
ingarnar og að bíða ekki of lengi með
að gera breytingar.
Þriðja markið mikilvægt
Ein af gömlu klisjunum í fótbolt-
anum er að þriðja markið í leikjum
ráði oftar en ekki úrslitum. Það má
til sanns vegar færa í þessu tilfelli. Í
síðari hálfleik voru Selfyssingar
mun líklegri til að skora í stöðunni
1:1 og sóttu talsvert meira. Það tókst
þó ekki og Matthías skoraði tólf mín-
útum fyrir leikslok og Kolbeinn lagði
upp mark þegar fjórar mínútur voru
eftir.
Hrósa verður Valsmönnum fyrir
mikla seiglu í fyrstu leikjunum. Báð-
ir leikirnir þróuðust frekar þeim í
óhag en þeir hafa varist vel og nýtt
sín tækifæri vel. Það er erfitt að
halda haus þegar andstæðingarnir
ráða ferðinni á vellinum en Vals-
menn hafa sýnt andlegan styrk og
landað sex stigum. Eins er það ótví-
rætt styrkleikamerki fyrir þá að
hafa unnið án Hauks Páls Sigurð-
arsonar sem ætla má að verði alger
lykilmaður í liðinu í sumar. Hans
naut hins vegar ekki við í gærkvöldi
og spilaði lítið í fyrsta leiknum.
Þurfa að verjast betur
Selfyssingar sýndu í gærkvöldi að
þeir eiga að geta staðist öllum liðum
deildarinnar snúning. Þeir þurfa þó
auðvitað að verjast betur en þeir
gerðu að þessu sinni. Það var of mik-
ið að fá á sig þrjú mörk í þessum leik
ef mið er tekið af því hversu fá góð
færi Valur skapaði sér.
Selfoss var betri aðilinn í leiknum
á löngum kafla og hrósa má liðinu
fyrir að ná þeirri stöðu á vellinum
þrátt fyrir skelfilega byrjun því þeir
lentu undir eftir aðeins tveggja mín-
útna leik. Selfyssingar eiga talsvert
af leikmönnum sem geta skapað usla
í sókninni. Vörnin virðist vera meira
spurningarmerki. Jón Daði, Ndiaye
og Royrane voru allir nokkuð
sprækir en stundum vantaði herslu-
muninn að ljúka sóknunum með
meira afgerandi hætti.
Hörður og Matti komnir á blað
Valsmenn hafa á hinn bóginn sýnt
að þeir geta varist. Það er geysilega
jákvætt fyrir þá að Hörður og Matt-
hías séu báðir komnir á blað í
markaskorun í upphafi móts. Atli
Heimisson og Guðjón Pétur virka
hins vegar frekar þungir og þeir
eiga væntanlega meira inni. Rúnar
var góður á miðjunni og kannski
springur hann út í sumar.
Morgunblaðið/Kristinn
arkið fyrir Rúnar Má Sigurjónsson undir
yssinga.
Endurtekið efni hjá
Valsmönnum
Hafa unnið fyrstu tvo leikina eins og á síðasta tímabili
Vodafonevöllurinn að Hlíðarenda,
Pepsi-deild karla, 2. umferð, fimmtu-
dag 10. maí 2012.
Skilyrði: Sól og hægur vindur. Völl-
urinn mjög góður miðað við árstíma.
Skot: Valur 11 (6) – Selfoss 10 (4).
Horn: Valur 7 – Selfoss 5.
Lið Vals: (4-3-3) Mark: Sindri Snær
Jensson Vörn: Brynjar Kristmunds-
son, Atli Sveinn Þórarinsson, Halldór
Kristinn Halldórsson, Matarr Jobe.
Miðja: Guðjón Pétur Lýðsson (Andri
Fannar Stefánsson 61.), Rúnar Már
Sigurjónsson, Hafsteinn Briem.
Sókn: Ásgeir Þór Ingólfsson, Atli
Heimisson (Kolbeinn Kárason 74.),
Hörður Sveinsson (Matthías Guð-
mundsson 59.).
Lið Selfoss: (4-4-2) Mark: Ismet Dura-
cak. Vörn: Ivar Skjerve, Stefán Ragnar
Guðlaugsson, Endre Ove Brenne, Ro-
bert Sandnes. Miðja: Ólafur Karl Fin-
sen (Tómas Leifsson 76.), Ingólfur Þór-
arinsson, Babacar Sarr, Jón Daði
Böðvarsson. Sókn: Jon André Röyrane
(Sigurður Guðlaugsson 88.), Abdoula-
ye Ndiaye(Viðar Örn Kjartansson 69.).
Dómari: Guðmundur Ársæll Guð-
mundsson – 7.
Áhorfendur: 1.527.
Valur – Selfoss 3:1