Morgunblaðið - 11.05.2012, Side 6

Morgunblaðið - 11.05.2012, Side 6
FÓTBOLTI Kristján Jónsson kris@mbl.is Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu hefst á sunnudaginn og verður þá spiluð heil umferð. Íslandsmeistarar Stjörnunnar fara norður til Akureyr- ar og heimsækja Þór/KA en Stjarnan varð meistari meistaranna á dögun- um. Deildabikarmeistarar Breiða- bliks taka á móti Fylki í Kópavog- inum. Í Vestmannaeyjum verður áhugaverður slagur á milli ÍBV og Vals en þessi lið verða væntanlega bæði í toppbaráttunni. Nýliðar Sel- foss taka á móti KR og hinir nýlið- arnir í FH fara í Mosfellsbæ og mæta Aftureldingu. Fyrirfram má búast við því að fjögur lið geti blandað sér í baráttuna um titilinn: Stjarnan, Breiðablik, Val- ur og ÍBV. Þór/KA og Fylkir hafa verið sterk undanfarin ár en vantar líklega meiri mannskap til að blanda sér í baráttuna í þetta skiptið. Nýlið- ar FH gætu orðið sterkir en gera má ráð fyrir því að Afturelding, KR og Selfoss verði í fallbaráttu. Sandra aftur í markið Stjarnan braut ísinn í fyrra og vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil síðasta haust. Engin ástæða er til að gera ráð fyrir öðru en að Stjarnan muni gera tilkall til þess að verja tit- ilinn. Liðið er sterkara á þessu keppnistímabili ef eitthvað er. Tveir bandarískir leikmenn eru farnir en önnur þeirra varði markið og Stjarnan hefur endurheimt Söndru Sigurðardóttur í þá stöðu. Liðið hefur auk þess fengið Daniellu Turner frá Englandi. Þá getur Harpa Þorsteinsdóttir beitt sér af fullum krafti en hún kom inn í liðið í síðustu níu leikjunum í fyrra. Marka- drottning deildarinnar í fyrra, As- hley Bares, er aftur mætt í Garða- bæinn og munar um minna. Annars er styrkur Garðabæjarliðsins kannski sá að liðið er nokkuð jafnt og þarf ekki að treysta á að einn eða tveir stjörnuleikmenn nái sér á strik. Hversu öflug er nýja kynslóðin? Valur varð að gera sér annað sætið að góðu í fyrra. Á undanförnum árum hefur Valsliðið misst landsliðsmenn í atvinnumennsku í stórum stíl og brottfallið fór yfir þolmörk í fyrra. Ekki batnaði ástandið í vetur þegar liðið missti sjö reynslumikla leik- menn en Hólmfríður var reyndar að- eins með liðinu seinni hluta tímabils- ins. Á móti kemur að liðið hefur endur- heimt Dóru Maríu Lárusdóttur sem valin var leikmaður ársins 2008 og 2010. Fyrir vikið er nokkur pressa á henni að skila stóru framlagi en hún ætti að geta látið strax að sér kveða þar sem hún hefur æft og spilað á grasi síðan í janúar. Rakel Logadóttir og Pála Marie Einarsdóttir eru mjög reynslumiklar og mikilvægt fyrir liðið að enn sé púður í þeim. Ný kynslóð Valskvenna mun fá tækifæri til að láta ljós sitt skína og erfitt að setja fingurinn á hversu öflug hún er nú. Mikill markaskorari til Eyja ÍBV kom með látum upp í deildina í fyrra og náði 3. sætinu. Liðið er sterkt heima og er með nokkra mjög sterka leikmenn. Í þann hóp bættist Shaneka Gordon rétt fyrir mótið en hún raðaði inn mörkunum í Grinda- vík. Ef hún gat skorað 12 mörk í fyrra fyrir lið sem féll þá ætti hún að gera skorað mörk fyrir sterkt lið eins og ÍBV. Auk þess gerði hún 6 mörk í 7 leikjum árið 2010. Markvarslan er kannski helsta spurningarmerkið en Birna Berg Haraldsdóttir varð fyrir meiðslum í handboltanum og verður ekki með. Breiðablik til alls líklegt Líklega er óhætt að fullyrða að ekkert lið hefur fengið jafn mikinn Meistararnir með sterkara  Pepsi-deild kvenna fer af stað á sunnudag  Gæti orðið þrískipt deild  Breiðablik fékk mestan liðsstyrk  Valur missti sjö reynslumiklar Liðsstyrkur Landsliðskonan Rakel Hönnudóttir er farin frá Þór/KA og gengin til liðs við Breiðablik. Morgunblaðið/Ómar Sterkar ÍBV var nýliði í deildinni í fyrra og hafnaði í þriðja sæti. Morgunblaðið/Árni Sæberg Meistarar Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lyftir Íslandsbikarnum 2011. 6 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2012 STJARNAN Þjálfari: Þorlákur Árnason. KOMNAR: Dagmar Mýrdal frá KR Danielle Turner frá Everton Edda Mjöll Karlsdóttir frá Breiðabliki Elva Friðjónsdóttir frá Þór/KA (spilaði ekkert 2011) Glódís Perla Viggósdóttir frá HK/Víkingi FARNAR: Ashley Thompson til Noregs Hugrún Elvarsdóttir í FH Karen Sturludóttir í HK/Víking Kristen Edmonds til Bandaríkjanna VALUR Þjálfari: Gunnar Rafn Borgþórsson. KOMNAR: Brett Maron frá Þýskalandi Laufey Björnsdóttir frá Fylki Telma Þrastardóttir frá Stabæk FARNAR: Björk Gunnarsdóttir í Breiðablik Embla Grétarsdóttir, hætt Hallbera G. Gísladóttir í Piteå Erica Henderson frá Bandaríkjunum Eva Hafdís Ásgrímsdóttir frá Þór/KA (lán) Karitas H. Elvarsdóttir frá ÍA Kristin Russell frá Bandaríkjunum Vendula Strnadova frá Bandaríkjunum FARNAR: Ahkeelea Mollon í Stjörnuna (úr láni) Anna Garðarsdóttir í KR Hekla Pálmadóttir í Breiðablik (úr láni) Ingunn Dögg Eiríksdóttir í ÍA Íris Dóra Snorradóttir í Fylki (úr láni) Marcia Rosa Silva til Svíþjóðar Vaila Barsley til Bandaríkjanna KR Þjálfari: Jón Þór Brandsson. KOMNAR: Anna Garðarsdóttir frá Aftureldingu Emma Higgins frá Grindavík FARNAR: Arna Ómarsdóttir í Breiðablik (úr láni) Dagmar Mýrdal í Stjörnuna Íris Dögg Gunnarsdóttir í Fylki Kathleen Smith til Frakklands Katrín Ásbjörnsdóttir í Þór/KA Petra Lind Sigurðard. í Fjarðabyggð (úr lá Fjóla Dröfn Friðriksdóttir í Þrótt R. Laufey Björnsdóttir í Val Lidija Stojkanovic til Serbíu Signý Rún Pétursdóttir í ÍR (lán) Stefanía Ósk Þórisdóttir í Hauka (lán) BREIÐABLIK Þjálfari: Hlynur Svan Eiríksson. KOMNAR: Arna Ómarsdóttir frá KR (úr láni) Björk Gunnarsdóttir frá Val Fjolla Shala frá Fylki Guðrún Arnardóttir frá Selfossi Hekla Pálmadóttir frá Aftureldingu (úr láni) Mist Elíasdóttir frá KR Rakel Hönnudóttir frá Þór/KA Rósa Hugosdóttir frá Fram FARNAR: Andrea Ýr Gústavsdóttir í ÍBV Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir í ÍBV Edda Mjöll Karlsdóttir í Stjörnuna Greta Mjöll Samúelsdóttir í Aztec AFTURELDING Þjálfari: John Henry Andrews. KOMNAR: Kayle Grimsley frá Bandaríkjunum Tahnai Annis frá Bandaríkjunum Þórhildur Ólafsdóttir frá ÍBV FARNAR: Berglind Magnúsdóttir til Danmerkur Diane Caldwell til Noregs Elva Friðjónsdóttir í Stjörnuna Eva Hafdís Ásgrímsd. í Aftureldingu (lán) Manya Makoski til Finnlands Marie Perez til Spánar Marisha Schumacher-Hodge til Bandarík. Mateja Zver til Slóveníu Rakel Hinriksdóttir í Tindastól Rakel Hönnudóttir í Breiðablik FYLKIR Þjálfari: Jón Páll Pálmason. KOMNAR: Alexandra Tóth frá MTK Búdapest Erla Karítas Pétursdóttir frá ÍA Íris Dóra Snorradóttir frá Aftureld. (úr láni) Íris Dögg Gunnarsdóttir frá KR Valdís Rut Jónsdóttir frá Grindavík FARNAR: Björk Björnsdóttir í Avaldsnes Fjolla Shala í Breiðablik Hólmfríður Magnúsdóttir í Avaldsnes Laufey Ólafsdóttir, hætt Kristín Ýr Bjarnadóttir í Avaldsnes Málfríður E. Sigurðardóttir, barneignafrí ÍBV Þjálfari: Jón Óli Daníelsson. KOMNAR: Andrea Ýr Gústafsdóttir frá Breiðabliki Anna Þ. Guðmundsdóttir frá Grindavík Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir frá Breiðabliki Elísabet Ósk Gunnþórsdóttir frá Grindavík Shaneka Gordon frá Grindavík FARNAR: Birna Berg Haraldsdóttir í FH (úr láni) Þórhildur Ólafsdóttir í Þór/KA ÞÓR/KA Þjálfari: Jóhann Kristinn Gunnarsson. KOMNAR: Chantel Jones frá Bandaríkjunum Elva Marý Baldursd. frá Völsungi (úr láni) Hafrún Olgeirsdóttir frá Völsungi Helena Rós Þórólfsdóttir frá Völsungi Íunn Eir Gunnarsdóttir frá Völsungi (úr láni) Katrín Ásbjörnsdóttir frá KR Breytingar á liðunum tíu í Pepsi-deild kvenna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.