Morgunblaðið - 11.05.2012, Síða 8
8 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2012
Á AKRANESI
Skúli Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
Þegar strákar léku sér í fótbolta á
túnum landsins í gamla daga þá
jafngilti það marki að fá þrjár
hornspyrnur í röð. KR-ingar fengu
20 hornspyrnur á Skipaskaga í gær
en ÍA eina og það undir lok leiks.
En hornin gefa ekkert. Það gera
mörkin hins vegar og ÍA gerði þrjú
en meistararnir tvö og nýliðarnir
frá Akranesi eru því með fullt hús
stiga eftir tvær fyrstu umferðirnar.
„Auðvitað er maður sársvekktur.
Við vorum betra liðið en fengum á
okkur klaufalegt mark í lokin sem
kostaði okkur stig,“ sagði Rúnar
Kristinsson, þjálfari KR, vonsvik-
inn eftir leikinn.
Slíkt er eðlilegt því KR réð gangi
leiksins, var miklu meira með bolt-
ann, en það var trúlega það sem
Skagamenn lögðu upp með, að
leyfa meisturunum að hafa boltann
en verjast síðan af krafti. Þeir
gerðu það enda fóru KR-ingar mik-
ið upp kantana og sendu knöttinn
hátt fyrir markið þar sem hinir
stóru og stæðilegu miðverðir ÍA
áttu ekki í vandræðum með að
skalla frá – nú eða í horn.
„Auðvitað er ég ánægður með
byrjunina á mótinu hjá okkur. Sex
stig eftir tvær fyrstu umferðirnar
er mjög gott,“ sagði Þórður Þórð-
arson, þjálfari Skagamanna, bros-
mildur að leik loknum.
„Markið hans Jóa Kalla var al-
veg dásamlegt – alveg gullfallegt
og annað markið okkar var líka
flott, eftir fínan samleik og síðan
kom markið hans Martins í lokin.
Hann átti það skilið því hann var
búinn að vinna rosalega vel fyrir
okkur einn þarna frammi,“ sagði
Þórður.
Hann má alveg vera sáttur við
leik sinna manna því leikskipulagið
hélt og þolinmæðin skilaði liðinu
þremur stigum.
Það var nokkuð rætt um það fyr-
ir mót að Jóhannes Karl, sem var
að koma heim úr ensku 1. deildinni,
gæti lent í vandræðum vegna
harkalegra tæklinga. Miðað við
þennan leik þarf hanan frekar að
passa sig því nokkrum sinnum var
brotið ansi hreint harkalega á hon-
um. En hann er mikill styrkur fyrir
Skagamenn og það sama má reynd-
ar segja um fleiri. Dæmi um það er
Ármann Smári, sterkur í vörninni
og svo gæti hann alveg skellt sér í
framlínuna til að setja nokkur
mörk ef þannig stæði á. Martin er
gríðarlega fljótur og líkamlega
sterkur og miðað við þennan leik
þá telur hann það ekki eftir sér að
hlaupa og hlaupa, því hann var bók-
staflega á fleygiferð allan leikinn.
Besti maður vallarins var hins
vegar Páll Gísli, markvörður Skag-
ans. Hann var öruggur í öllum sín-
um gerðum og varði nokkrum sinn-
um hreint meistaralega þegar
KR-ingar pressuðu hvað mest, en
það gerðu þeir nokkrum sinnum í
leiknum. Í tvígang varði hann
skalla Vesturbæinga alveg út við
stöng og kom í veg fyrir að meist-
ararnir skoruðu. Eins var Andri
sprækur á hægri kantinum í fyrri
hálfleik og þeim vinstri eftir hlé.
Hjá KR-ingum var miðjan sterk
þar sem Bjarni og Baldur fóru fyrir
sínum mönnum. Þorsteinn Már var
spærkur frammi og Haukur átti
fínan leik sem bakvörður. Vörn KR
leikur samt stundum hættulegan
leik því mikið er um þversendingar
hjá henni og ef boltinn tapast við
slíkt þá hafa miðverðirnir ekki
þann hraða sem til þarf til að
bjarga málum. Þá gæti illa farið.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Skaginn Baldur Sigurðsson og Arnar Már Guðjónsson eigast við í fyrsta leiknum í efstu deild á Akranesi í fjögur ár.
KR fékk hornin en ÍA stigin
Nýliðarnir með fullt hús eftir sigur á Íslandsmeisturunum, 3:2 Jóhannes
Karl með glæsimark og Gary Martin tryggði sigurinn Rúnar sársvekktur
Akranesvöllur, Pepsi-deild karla, 2.
umferð, fimmtudag 10. maí 2012.
Skilyrði: Fín, svo til logn og fínt veð-
ur.
Skot: ÍA 8 (7) – KR 23 (12).
Horn: ÍA 1 – KR 20.
Lið ÍA: (4-5-1) Mark: Páll Gísli Jóns-
son. Vörn: Aron Ýmir Pétursson, Ár-
mann Smári Björnsson, Kári Ársæls-
son, Einar Logi Einarsson. Miðja:
Andri Már Guðjónsson, Jón Vilhelm
Ákason Dean Martin 72), Mark Don-
inger, Jóhannes Karl Guðjónsson,
Andri Adolphsson (Ólafur Valur Valdi-
marsson 61). Sókn: Gary John Mart-
in (Eggert Kári Karlsson 87.).
Lið KR: (4-3-3) Mark: Hannes Þór
Halldórsson. Vörn: Haukur Heiðar
Hauksson, Rhys David Weston, Grét-
ar Sigfinnur Sigurðarson, Gunnar Þór
Gunnarsson (Dofri Snorrason 46).
Miðja: Bjarni Guðjónsson, Baldur
Sigurðsson, Viktor Bjarki Arnarsson
(Emil Atlason 89.). Sókn: Kjartan
Henry Finnbogason, Þorsteinn Már
Ragnarsson, Óskar Örn Hauksson.
Dómari: Þorvaldur Árnason – 7.
Áhorfendur: Um 3.300.
ÍA – KR 3:2
0:1 11. Þorsteinn Már Ragn-arsson fékk boltann frá
Óskari Erni Haukssyni inn í vítateig-
inn vinstra megin, lék á tvo varn-
armenn og skaut neðst í vinstra
hornið.
SLÁ 22. Jóhannes Karl Guð-jónsson tók aukaspyrnu
af um 20 m færi, aðeins til vinstri, og
skaut í þverslá KR-marksins og yfir.
1:1 40. Jóhannes Karl Guð-jónsson tók aukaspyrnu af
um 25 m færi og þrumaði boltanum
beint upp í markvinkilinn hægra
megin. Stórglæsilegt mark.
2:1 50. Eftir fína sendingu fráAndra Adolphssyni náði
Arnar Már Guðjónsson skoti vinstra
megin úr vítateignum, Hannes
markvörður KR hafði hönd á knett-
inum en hann lak yfir línuna.
2:2 74. Óskar Örn Haukssonátti flotta sendingu frá
hægri kanti inn í markteiginn vinstra
megin þar sem Kjartan Henry Finn-
bogason kom, kastaði sér fram og
skallaði í hægra markhornið.
3:2 83. Dean Martin sendiboltann inn að vítateig KR.
Hannes markvörður kom út og ein-
hver vandræðagangur og misskiln-
ingur var milli hans og varnarmanna
og Gary Martin náði að lyfta bolt-
anum yfir markmanninn og í netið.
STÖNG 87. Dean Mart-in átti skot í
stöngina á marki KR, átti kannski að
vera fyrirgjöf.
I Gul spjöld:Baldur (KR) 26. (brot), Vikt-
or Bjarki (KR) 29. (brot), Jóhannes
Karl (ÍA) 90. (leikaraskapur),
I Rauð spjöld: Engin.
MMM
Enginn.
MM
Páll Gísli Jónsson (ÍA).
M
Ármann Smári Björnsson (ÍA)
Jóhannes Karl Guðjónsson (ÍA)
Andri Adolphsson (ÍA)
Gary Martin (ÍA)
Haukur Heiðar Hauksson (KR)
Bjarni Guðjónsson (KR)
Baldur Sigurðsson (KR)
Óskar Örn Hauksson (KR)
Þorsteinn Már Ragnarsson (KR)
Leikmenn
liðanna og
áhorfendur
klöppuðu fyrir
leikinn í eina
mínútu fyrir
Sigursteini
Gíslasyni,
fyrrv. leik-
manni ÍA og
KR, sem lést í
vetur.
Þorsteinn Már Ragnarsson, sem
kom til KR frá Víkingi í Ólafsvík, var
í fyrsta sinn í byrjunarliði í efstu
deild og skoraði strax á 11. mínútu.
Jóhannes Karl Guðjónsson skor-
aði sitt annað mark í deildinni þegar
hann jafnaði 1:1 fyrir ÍA en það
fyrsta gerði hann árið 1998. Þá skor-
aði hann gegn Leiftri eftir sendingu
Heimis Guðjónssonar, núverandi
þjálfara FH.
Þetta gerðist
á Akranesvelli
Þorsteinn Már
Ragnarsson
Vörubílastöðin Þróttur býður fjölbreytta þjónustu og ræður
yfir stórum flota atvinnutækja til margvíslegra verka
ÖFLUGIR Í SAMSTARFI
VIÐ LÓÐAFRAMKVÆMDIR
· Fellum tré og fjarlægum garðarúrgang
· Grjóthleðsla með sérhæfðum kranabílum
· Seljum hellusand og útvegum mold
ÞRÓTTUR TIL ALLRA VERKA
SÆVARHÖFÐA 12 · SÍMI 577 5400 · THROTTUR.IS