Monitor - 10.05.2012, Blaðsíða 14

Monitor - 10.05.2012, Blaðsíða 14
14 MONITOR FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2012 dálítið af nýju efni á síðustu Airwaves-hátíð og á tónleikum fyrir síðustu jól. Annars er þetta allt bara á vinnslustigi. Við erum að búa til nýtt efni og nóg af því þannig að það sé hægt að velja það besta af því á næstu plötu. Þetta er vinna sem gengur ekki beint hægt heldur má bara ekki fl ýta henni. Þetta mjatlast vel og ánægjulega áfram. Terminal var allt öðruvísi plata heldur en komandi plata. Hún var stór, sinfónísk plata sem var tekin upp með stórri kammersveit og við erum ekki að fara að gera það aftur. Auðvitað er það alltaf þannig að ef fólk kaupir plötu með hljómsveit þá kannski býst það við því að fá eitthvað sem er í svipuðum dúr og eldra efni sveitarinnar en í þetta sinn erum við að vinna með allt öðruvísi hljóðheim og í raun öðruvísi tónlist. Gæðin verða þó svo sannarlega til staðar. Sinfóníutónleikarnir með ykkur Sigurði Guðmunds- syni voru teknir upp í fyrra og komu út á plötu fyrir síðustu jól sem hitti í mark hjá landanum. Hver er lykillinn að þessu vel heppnaða samstarfi hjá ykkur? Við Siggi höfum sungið oft saman í gegnum tíðina og til dæmis haldið saman einhverja tónleika í gríni sem og alvöru og ég hef aðeins unnið með honum uppi í hans vinnu með Memfi smafíunni. Við þekkj- umst þar af leiðandi vel og erum kannski svipuð að mörgu leyti. Við höfum svipaðan bakgrunn, erum fyrst og fremst söngvarar úr einhvers konar popp- hljómsveitum en höfum síðan bæði verið að syngja þessi klassísku dægurlög. Þegar Sinfóníuhljómsveitin bauð okkur að syngja með sér á þessum tónleikum fengum við strax frá upphafi að taka þátt í að velja lögin og það hefur örugglega haft þónokkuð að segja. Tónleikarnir voru haldnir í hinum mikilfenglega Eldborgarsal í Hörpu. Hvernig er tilfi nningin að standa berskjaldaður á þessu sviði fyrir fullum sal af fólki? Húsið er rosalega fl ott og salurinn er æðislegur en helstu viðbrögðin fyrir mér voru þau að vera að syngja með Sinfóníuhljómsveit. Ég er vön því að vera að syngja með kannski þremur eða fjórum undirleikurum eða hljómsveit eins og Hjaltalín. Í þeim tilfellum er það þannig að ef ég fer út af sporinu þá eru þeir frábæru spilarar mjög fl jótir að átta sig og geta gripið inn í. Þegar þú stendur fyrir framan Sinfó og stjórnanda, þá er enginn að fara að elta mig, maður getur gleymt því. Ef ég geri einhverja vitleysu þá er enginn að fara að redda mér út úr því og það verður mjög augljóst. Það fannst mér erfi tt og jafnvel pínu ógnvekjandi. Það er samt ekki svo að skilja að ég sé alltaf að klúðra og fólk þurfi alltaf að redda mér (hlær). Færð þú stresshnút í magann fyrir svona tónleika? Ég verð alveg oft stressuð en það hefur ekkert endilega með stærð salarins eða fjölda gesta að gera. Það er frekar þegar þú ert í aðstæðum sem þú þekkir ekkert rosalega vel, til dæmis ef þú ert að syngja með hljóðfæraleikara sem þú þekkir ekkert sérstaklega vel. Ég var vissulega dálítið stressuð fyrir þessa tónleika með Sinfó. Árið áður hafði Hjaltalín líka spilað með Sinfó og fyrir fyrsta skiptið sem við gerðum það var ég svo stressuð að ég man varla eftir tónleikunum. Mér líður þægilegast að syngja með hljómsveitinni sem ég þekki best en auðvitað get ég líka orðið stressuð við þær aðstæður en þá fer það kannski bara eftir tunglstöðunni eða eitthvað (hlær). Hver eru þín helstu áhugamál utan tónlistarinnar? Ég er rosalega mikil áhugamanneskja um kaffi og þá er ég ekki að tala um að ég pæli í því við hvaða hitastig það er best að rista kaffi baunir, heldur er ég alveg sólgin í kaffi . Á einhverjum augnablikum í lífi mínu þar sem ég get ekki fengið kaffi , þá verður það gjarnan að rosalega stóru vandamáli. Annars reyni ég bara að taka virkan þátt í því samfélagi sem við búum í. Ég fer í leikhús, á tónleika, á barinn og á kaffi hús. Ef maður tekur ekki þátt í því, þá fara kannski allir að hætta að hringja í mann (sjá „versta ótta“ í Sigríður á 30 sek.). Hvað fi nnst þér skemmtilegast af því sem er um að vera í íslensku tónlistarlífi í dag? Það er svo margt enda fjölskrúð- ugt tónlistarlíf hérna. Það er hell- ingur af nýjum og skemmtilegum hljómsveitum en svo hefur mér alltaf þótt skemmtilegt hvað það er mikið af fólki sem er svo dug- legt við að vera milli hljómsveita og í alls konar verkefnum. Það er ekkert tiltökumál þótt tónlistarfólk sé að gera alls konar. Þú getur verið að spila á bassa í einhverri heavy metal-hljómsveit en samt líka verið að spila fusion-djass með einhverri annarri hljómsveit. Mér fi nnst það heillandi og fi nnst ég heppin að hafa fengið að kíkja inn í alls konar herbergi í tónlistarsenunni í staðinn fyrir að fólk festi mann bara við einhverja eina ákveðna stefnu. Það styttist óðum í Eurovision. Stefnir þú á að verða Eurovision-fari Íslendinga einhvern tímann í náinni framtíð? Nei, en það er fyrst og fremst vegna þess að ég væri engan veg- inn góður fulltrúi fyrir land og þjóð með sólgler- augu að syngja einhver gömul Eur- ovision-lög á blaðamannafundi. Ég held að íslenska þjóðin myndi ekki vilja það. Það er bara fínt að þeir sem eru góðir í því taki það að sér. Sögur herma að Tom Cruise hyggist fagna fi mm- tugsafmæli sínu hérlendis þann 3. júlí næstkom- andi. Segjum sem svo að þú sért bókuð til að syngja í veislunni, hvaða lög myndir þú syngja og hvers vegna? Ég myndi að sjálfsögðu syngja lagið Take My Breath Away með Berlin sem var aðallagið í myndinni Top Gun. Ég hugsa að ég myndi láta þar við sitja. Ég hef engin persónuleg tengsl við Tom Cruise þannig að mér dettur ekkert annað lag í hug sem við tengjumst í gegnum, fyrir utan það að þetta er mjög gott lag. Nú er sólin farin að láta sjá sig á lofti. Hvað er framundan hjá þér í sumar og það sem eftir lifi r árs? Það er náttúrlega bara að sigla áfram einhvern sjó í hinu og þessu hoppi og híi. Ég á svo sem eftir að skipuleggja sumarið en fyrir mér væri æðisleg staða ef ég gæti verið sem mest úti á landi. Ekkert endilega á neinum sérstökum stað, það er bara svo hrikalega gaman að vera úti í sveit á sumrin. Svo þarf ég bara að vera dugleg við að hjóla um bæinn og drekka kaffi og minna fólk þar með á mig svo það hætti ekki að hringja í mig. Ég er lítið fyrir það að vera með svaka yfi rlýsingar um markmið eða plön næstu ára því þau gætu breyst á morgun og þá þætti mér alltaf leiðinlegt að sjá einhverjar úreltar yfi rlýsingar á prenti. Nei, en það er fyrst og fremst vegna þess að ég væri engan veginn góður fulltrúi fyrir land og þjóð með sólgleraugu að syngja einhver gömul Eurovision-lög á blaða- mannafundi. SíÝasta sem ég... Síðasta borg sem ég heimsótti fyrir utan landsteinana: Svarið mitt er dálítið týpískt, en það er Kaupmannahöfn. Ég fór að heimsækja vinkonu mína sem býr þar. Félagsskapurinn hefði ekki getað verið betri þótt áfangastað- urinn hafi ekki verið sá mest framandi. Síðasti veitingastaÝur sem ég borðaði á: Það var á Snaps, hvorki í fyrsta né síðasta skipti. Þar fékk ég mér fi sk dagsins sem þá var mjög góður silungur. Ég mæli eindregið með þeim stað. Síðasta bíómynd sem ég horfði á: Síðasta mynd sem ég sá í bíó var My Week with Marilyn. Síðan grenjaði ég yfi r sunnudagsmyndinni á RÚV í gær, Hótel Rwanda. Ég fór að sofa með það í huga hvað ég hefði það í raun ofboðslega gott. Síðasti hlutur sem ég keypti: Ég keypti mér kaff ibolla, kókó- mjólk og banana í hádeginu. Síðasta húsverk sem ég innti af hendi: Ég þarf að inna mjög mörg húsverk af hendi heima hjá mér akkúrat núna en það síðasta sem ég gerði var að vaska upp. Maður kemst aldrei hjá því. Síðasta skipti sem ég sagði einhverjum að mér þætti vænt um hann: Ég held að ég hafi síðast sagt það við Hildigunni vinkonu mína í gær. Að svo mæltu fatta ég að maður ætti kannski að vera duglegri við þetta.

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.