Monitor

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Monitor - 10.05.2012, Qupperneq 18

Monitor - 10.05.2012, Qupperneq 18
18 MONITOR FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2012 stíllinn Þórhildur Þorkelsdóttir thorhildur@monitor.is Stíllinn tók saman helstu samstörfin í gegnum tíðina gestahönnuðirnir Anna Dello Russo, ritstjóri japanska Vogue, verður næsti gestahönnuður H&M, en um skartgripalínu er að ræða. Þó að Anna hafi ekki verið þekkt fyrir hönnun fyrr er hún ein helsta tískufyrirmynd heimsins í dag og veit svo sannarlega hvað hún syngur í þeim efnum. Síðan 2004 hefur verslunarkeðjan H&M unnið náið með nokkrum af þekktustu hönnuðum heims. Samvinna þessi hefur átt mikilli velgengni að fagna. Venjan er að fólk bíði klukkutímum og jafnvel dög- um saman fyrir utan verslanirnar og línurnar seljast undantekningarlaust upp. Það er ekki skrítið, enda er þetta góð leið fyrir meðalmanneskju til að eignast flíkur eða fylgihluti frá sínum uppáhaldshönnuði án þess að greiða handlegg fyrir. Nóvember 2004: Karl Lagerfeld Nóvember 2005: Stella McCartney Nóvember 2006: Viktor & Rolf Mars 2007: Madonna Nóvember 2007: Roberto Cavalli Haust 2008: Comme des Garçons Apríl 2008: Matthew Williamson Nóvember 2009: Jimmy Choo Desember 2009: Sonia Rykiel Nóvember 2010: Lanvin Febrúar 2011: Elin Kling Nóvember 2011: Versace Mars 2012: Marni Haust 2012: Anna Dello Russo KALLI ER ALLTAF HRESS. HANN LÉT ÚT ÚR SÉR AÐ HANN HAFI ALLTAF VERIÐ HRIFINN AF H&M EN MÖRGUM FANNST HANN EKKI LEGGJA NÓGU MIKINN METNAÐ Í LÍNUNA. STJÖRNURNAR GANGA LÍKA Í H&M. NATALIE PORTMAN SÉST HÉR Í LANVIN FYRIR H&M-KJÓL Á RAUÐA DREGLINUM. ÞAÐ ÆTLAÐI ALLT UM KOLL AÐ KEYRA ÞEGAR JIMMY CHOO GAF ÚT SKÓ- OG FYLGIHLUTALÍNU FYRIR VERSLUNARKEÐJUNA. COMME DES GARÇONS-LÍNAN VAR KOMIN Á EBAY 20 MÍNÚTUM EFTIR AÐ HÚN KOM Í BÚÐIR. GERI AÐRIR BETUR! LÍNU DONATELLU VERSACE FYRIR H&M VAR BEÐIÐ MEÐ EFTIRVÆNTINGU OG SELDIST UPP Á AÐEINS EINUM DEGI. LÍNAN SEM HÖNNUNARDÚÓIÐ VIKTOR & ROLF SENDU FRÁ SÉR ER Í MIKLU UPPÁHALDI HJÁ MÖRGUM TÍSKUSPEKÚLÖNTUM. ANNA DELLO RUSSO MEÐ SKARTGRIPI ÚR LÍNUNNI SEM ER VÆNTANLEG Í HAUST. Hvað ert þú að bralla þessa dagana? Ég er að vinna sem hönnuður hjá 66° norður og hef verið að gera það síðustu fjóra mánuði. Við erum nýbúin að vera með stóra tískusýningu í Bláa lóninu í samstarfi við Hönnunarmars sem var mjög skemmtileg. Núna erum við að vinna að vetrarlínu 2013. Svo er ég að njóta þess að mega segja frá því að ég hafi unnið keppnina og sé starfandi hjá 66° norður, það hefur verið mikið leyndarmál síðustu 6 mánuði vegna þess að þættirnir fóru ekki strax í sýningu. Er þetta draumavinnan þín? Já. Þetta er alveg klárlega með bestu stöðum á Íslandi fyrir fatahönnuð til að vera starfandi á. Þar er líka ótrúlega ljúft og skemmtilegt fólk, og góður starfsandi. Hvert sækir þú innblástur þegar þú hannar fyrir 66° norður? Ég hef alltaf fylgst mikið með fólkinu í kringum mig. Þessi vinna snýst mikið um smáatriði, svo ég skoða þau mjög mikið, hvernig sem flíkin er. Svo er alltaf hægt að sækja innblástur í íslenska náttúru, sérstaklega þegar um litasamsetningar er að ræða. Mér finnst líka allt tengt sjónum og höfninni fallegt. Það er rosalega gaman að labba niður á höfn og skoða litina. Allt frá hafinu sjálfu til gamalla ryðgaðra skipa er áhugavert. Er einhver sérstakur þáttur af Hannað fyrir Ísland í uppá- haldi? Já, lokaþátturinn auðvitað. Síðasta verkefnið okkar var götutíska, og þar var ég algjörlega í essinu mínu. Það var líka auðveldast að leysa það vegna þess að við vorum komin með tæknilegu hliðina og gátum bara einbeitt okkur að því að hanna. Svo var líka gaman þegar við fórum upp á Sólheima- jökul, það var ansi hressandi. Í einum þættinum fóruð þið með bát út á sjó. Hver var til- gangurinn með því? Við áttum að sjá hvernig alvöru aðstæður eru hjá sjómönnum og hvernig sjógallar henta við þær. En veðrið var hræðilegt og við vorum öll rennandi blaut og okkur ískalt. Við köstuðum öll upp nema Þórhallur, en hann hafði verið á sjó einu sinni. Ætlaðir þú þér alltaf að vinna þessa keppni? Já, maður fer ekkert í keppni nema ætla sér að vinna hana. Nú eruð þið Laufey sem endaði í þriðja sæti mjög góðar vinkonur. Reyndi samkeppnin ekkert á vinskapinn? Nei, alls ekki. Við vorum saman í bekk í Listaháskólanum þar sem er alltaf mikil samkeppni. Við erum líka svo ólíkir hönnuðir og erum að gera allt öðruvísi hluti. Svo erum við bara svo góðar vinkonur að þetta var aldrei neitt mál. Okkur fannst eiginlega bara skemmtilegra að taka þátt í þessu saman og gaman að við komumst báðar svona langt. Við studdum hvor aðra mjög mikið. Ert þú með einhver plön fyrir framtíðina? Já, hugurinn leitar alltaf eitthvað út. Kannski í meira nám eða finna mér einhverja góða vinnu þegar mér finnst ég vera nógu reynd til að geta sótt um. Ég er að fá ómetanlega reynslu hjá 66 og hef lært ótrúlega margt á þessum stutta tíma sem ég er búin að vera þar. Hvað ætlar þú að gera í sumar? Vinna eins og brjálæðingur. Síðan langar mig að fara til New York og Los Angeles í smá frí. Ég ætla líka að vera dugleg að skella mér til mömmu og pabba í sveitasæluna á Hvolsvelli og jafnvel skella mér í nokkrar fjallgöngur. Birta Ísólfsdóttir bar sigur úr býtum í keppninni Hannað fyrir Ísland á dögunum. Hún út- skrifaðist sem fatahönnuður frá Listaháskóla Íslands árið 2010 og starfar nú hjá 66° norður. Ætlaði sér alltaf að vinna BIRTA, BÍDD’EFTIR MÉR M yn d/ Ó m ar BIRTA Fyrstu sex: 120788. Heimabær: Hvolsvöllur. Uppáhalds- fatahönnuður: Martin Margiela.

x

Monitor

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.