Monitor - 10.05.2012, Qupperneq 21
21 FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2012 MONITOR
David Cronenberg er fl inkur kvikmyndagerðarmaður sem
hefur oft tekið góða spretti, ekki
síst í hryllingsmyndum sem bera
sterk höfundareinkenni hans.
Hann hefur hins vegar yfi rleitt
verið hálfgert jaðarfyrirbæri og
ekki alltaf átt greiðan aðgang
að áhorfendum. Dead Ringers
reyndi til dæmis á þolrif margra,
að maður tali ekki um sýruna
Naked Lunch, Crash og eXistenZ-
þvæluna.
A History of Violence er því býsna jarðbundin miðað við
það sem við eigum að venjast frá
Cronenberg. Myndin byggir á sam-
nefndri myndasögu sem fjallar
um dagfarsprúðan kaffi húsaeig-
anda og fjölskyldumann sem sýn-
ir á sér óvænta hlið þegar hann
drepur tvo morðóða ræningja án
þess að depla auga. Hann verður
hetja í litla heimabænum sínum
og kastljós fjölmiðlanna verður til
þess að mafíósar úr stórborginni
gefa honum gaum. Þeir mæta
til leiks og telja sig þekkja okkar
mann frá fornu fari og
eiga ýmislegt óuppgert
við hann.
Viggo Mortensen leikur hetjuna okkar
á sinn yfi rvegaða hátt og
ræður vel við tvöfalt eðli
persónunnar, sem var
áður ruddalegur ofbeld-
isfauti og á ótrúlega auðvelt með
að rifja upp gamla takta þegar í
harðbakkann slær.
Það er ekki hægt að segja annað en að það fari Cronenberg vel
að vera með fæturna á jörðinni
enda er þetta vinsælasta mynd
hans til margra ára og kom
sterklega til greina í kapphlaupinu
um Gullpálmann í Cannes á
sínum tíma. Það leynir sér þó
aldrei hver er við stjórnvölinn og
þótt myndin sé að mörgu leyti
áhorfendavæn ristir hún djúpt og
reynir á áhorfandann.
Frásögnin fer rólega af stað og yfi r myndinni hvílir þægileg
smábæjarró en inni á
milli blossar ofsafengið
ofbeldið upp og það er
óhætt að segja að það
sé meistaralega stílfært.
Mannlegi þátturinn er þó
alltaf í forgrunni og áhrif
ofbeldisverkanna á líf
friðsamrar fjölskyldu eru
átakanleg og erfi ð.
Viggo Mortensen skilar sínu verki vel en Ed Harris stelur
senunni sem forn fjandi aðalpers-
ónunnar. Þá setur William Hurt
skemmtilegan svip á myndina
og það gustar af Mariu Bello í
hlutverki eiginkonu Mortensens.
A History of Violence er virki-lega vönduð mynd, vel leikin
og skemmtilega stílfærð. Myndin
er ein besta mynd Cronenbergs
um langt árabil. Hann hélt sig á
sömu slóðum í Eastern Promises
en er öllu mildari og ekki næstum
jafn áhugaverður í A Dangerous
Method sem gengur í bíó um
þessar mundir. www.svarthofdi.is
A History of Violence
...gagrýnir úr bunkanum
ÉG MYNDI EKKI FOKKA
Í ÞESSUM GAURUM
Þessi þrælskemmtilega hasarmynd segir frá
hópi sérsveitarmanna sem hyggst ráðast
til atlögu að háhýsi í fátækrahverfi Jakarta í
Indónesíu. Tilgangurinn með áhlaupinu er
að knésetja eiturlyfjabarón sem hefur tögl
og haldir á fíkniefnamarkaði borgarinnar, en
hann heldur sig til á efstu hæð í fyrrnefndu
háhýsi. Áhlaupið, sem á að vera tiltölulega
átakalaust, breytist fl jótlega í martröð þegar
hópurinn festist á sjöttu hæð hússins
og virðist engin undankomuleið vera
í sjónmáli. Allir íbúarnir virðast
hliðhollir eiturlyfjabaróninum,
eru gráir fyrir járnum og ætla
ekki að leyfa neinum sérsveit-
armanni að sleppa lifandi út.
Upphefst þá ein sú mesta
adrenalínferð sem ég
hef orðið vitni að í
kvikmyndahúsi.
Klink á Hollywood-kvarða
Þó svo að söguþráðurinn sé ekki sá frumleg-
asti kemur það ekki að sök því hann er í raun
í aukahlutverki. Rauði þráður myndarinnar er
hasar- og bardagaatriðin og tókst aðstandend-
um myndarinnar ótrúlega vel til á því sviði. Þó
svo að myndin hafi kostað klink á Hollywood-
mælikvarða (rúmlega eina milljón dollara)
tókst að kreista út ótrúlegar senur úr hverri krónu.
Fyrir þá sem hafa gaman af myndum af þessu tagi er
það hrein unun að horfa á aðalleikara myndarinnar
smyrja hverja hnúasamlokuna á fætur annarri og í
sumum atriðum skalf ég hreinlega í sætinu mínu af
spenningi. Aðalleikarar myndarinnar standa sig með
prýði og ber þar helst að nefna Ray Sahetapy sem
setur sig óhugnanlega vel í hlutverk hins siðblinda
eiturlyfjabaróns.
Að mínu mati hafa bestu hasarmyndirnar frá asíska
markaðnum komið frá Suður–Kóreu en það leynist
augljóslega mikið af hæfi leikaríku kvikmyndagerð-
arfólki í Indónesíu. Það verður því gaman að fylgjast
með þeim í framtíðinni og getur maður lítið annað
en vonað að þetta sé forsmekkurinn af því sem
koma skal.
Indónesía stimplar sig inn!
K V I K M Y N D
THE RAID: REDEMPTION
A HISTORY OF
VIOLENCE
HJÁLMAR
KARLSSON
GEGGJAÐIR
AUKAVINNINGAR!
TÖLVULEIKIR - DVD - GOS O.FL.
VILTU
VINNA
EINTAK?
9. HVER
VINNUR!
FJÖLDI
AUKAVINNINGA
VINNINGAR AFHENTIR Í ELKO LINDUM.
199 KR/SKEYTIÐ. MEÐ ÞVÍ AÐ
TAKA ÞÁTT ERTU KOMINN Í SMS KLÚBB.
WWW.SENA.IS/MAXPAYNE3
Lendir
18.
maí
SENDU EST MPV Í NÚMERIÐ 1900.
ÞÚ FÆRÐ SPURNINGU OG SVARAR
MEÐ ÞVÍ AÐ SENDA SMS SKEYTIÐ
EST A, B EÐA C Á NÚMERIÐ 1900
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
Tryggið
ykkur
eintak í
forsölu
á elko.is