Morgunblaðið - 16.06.2012, Side 41

Morgunblaðið - 16.06.2012, Side 41
einnig starfað í hinum ýmsu nefndum og ráðum á vegum klúbbsins. Hann hefur ætíð verið til taks til að veita þeim málum lið sem unnið hefur verið að hverju sinni. Guðmann var ætíð hrókur alls fagnaðar á gleði- stundum. Hafði góða söngrödd og gaf gjarnan tónhæðina þegar þess þurfti með á fundum. Á skemmtiferðum með klúbbfélög- um var hann nauðsynlegur gleði- gjafi, ætíð í góðu skapi og hélt uppi söng þar sem það átti við. Félagar í Lionsklúbbi Sauðár- króks þakka Guðmanni sam- starfið í 38 ár og votta fjölskyldu hans, eiginkonunni, Marsibil Þórðardóttur, og dætrunum tveim, þeim Guðbjörgu og Krist- ínu og fjölskyldum þeirra, inni- lega samúð. Megi góður Guð blessa þeim minninguna um góð- an eiginmann, föður og afa. Sá er þetta ritar þakkar órofa vináttu og velvild alla tíð. Magnús H. Sigurjónsson. Vaskur maður hefur að velli hnigið fyrir vágestinum, sem engu eyrir, krabbameininu. Guð- mann Tobíasson frá Geldinga- holti lést að kvöldi 4. júní síðast- liðins eftir tiltölulega stutta legu á Heilbrigðisstofnuninni á Sauð- árkróki. Guðmann ólst upp með for- eldrum sínum, þeim Kristínu Gunnlaugsdóttur og Tobíasi Sig- urjónssyni á menningarheimilinu Geldingaholti í Seyluhreppi hér í Skagafirði. Tobías, faðir Guð- manns, var einn af áhrifamestu og merkustu félagsmálamönnum Skagfirðinga á sinni tíð og ólst Guðmann því upp við að þátttaka í félagsmálum samtímans væri bæði eðlileg og sjálfsögð. Hann átti líka eftir að koma víða við á sinni ævi sem þátttakandi í fé- lagslífi héraðsins með ýmsum hætti. Guðmann var söngmaður góður, hafði kraftmikla og bjarta tenórrödd og söng lengi með Karlakórnum Heimi í fyrsta ten- ór. Guðmann sinnti ýmsum störf- um framan af ævi, vann mörg sumur að ræktunarstörfum, bæði á eigin tækjum og annarra, en lengst verður hans minnst fyrir störf sín að verslun og þjón- ustu. Hann hóf störf hjá Kaup- félagi Skagfirðinga snemma á sjöunda áratugnum og þegar fé- lagið opnaði þjónustumiðstöð sína að Varmahlíð árið 1968 var hann ráðinn til að veita henni for- stöðu og hann stóð vaktina þar í rúman aldarfjórðung. Sinnti hann því starfi af trúmennsku og röskleika og var einstaklega reglusamur og vandaður í öllum sínum störfum. Það kom eðlilega í hans hlut að móta umfang og umgjörð þeirrar þjónustu, sem veitt var og er á þessum vinsæla viðkomustað við hringveginn. Tókst þar mjög vel til, ekki síst fyrir alúð og rækt forstöðu- mannsins. Með honum í öllu þessu starfaði kona hans, Marsi- bil Þórðardóttir frá Akranesi, og þau hafa alla tíð til hinstu stund- ar samvista verið einstaklega samhent við allt, sem þau hafa tekið sér fyrir hendur. Rekstur- inn í Varmahlíð varð síður en svo áfallalaus, því aðfaranótt laugar- dagsins 13. september 1980 varð eldur laus í versluninni og brann nánast allt sem brunnið gat, m.a. mestallt innbú þeirra hjónanna, en þau bjuggu í íbúð tengdri versluninni. Ekki misstu menn þó kjarkinn þótt á móti blési og var þegar tekið til hendi við byggja upp aftur, nánast um leið og slökkviliðið lauk störfum. Tókst að opna aftur eftir endur- byggingu og endurbætur fyrir jól sama ár og má það nánast teljast kraftaverk. Guðmann tók virkan þátt í endurbyggingunni og hafði mikinn metnað til þess að sem best tækist til í því efni. Þar lögðu auðvitað margir hönd á plóg en víst er að hlutur hans og þeirra hjónanna var ekki sístur. Guðmann og Marsibil eignuð- ust tvær dætur, sem eru báðar giftar og eiga börn. Að leiðarlok- um vill sá sem þetta ritar þakka þeim samfylgd og vináttu í gegn- um lífið við leik og störf um leið og fjölskyldunni er vottuð inni- leg samúð vegna fráfalls Guð- manns. Megi minning hans lifa. Guðbrandur Þ. Guðbrandsson. Með þessum orðum langar mig að kveðja Guðmann föður- bróður minn. Það er alltaf erfitt að kveðja þá sem manni þykir vænt um en allar þær fjölmörgu góðu minningar sem ég á um þig kæri frændi koma vissulega að góðum notum til að vinna á sorg- inni. Hugurinn reikar ósjálfrátt til baka og minningarnar streyma fram. Fyrir 12 árum var ég í erfidrykkju og þar kom Gummi til mín, klappaði á öxlina á mér og sagði að það hefði verið falleg og vel skrifuð grein sem hann hefði lesið í Morgunblaðinu um morguninn og að hann vildi fá að panta eitt stykki, ég brosti bara og sagði að ég væri nú reyndar ekki með pantanakerfi því að enginn veit hvað framtíðin ber í skauti sér. Ég var ekki gömul þegar ég sótti um vinnu hjá Gumma í KS Varmahlíð og fannst mér alltof langt að bíða alveg þar til grunn- skóla lyki til að ég mætti byrja að vinna þar. Í eitt skipti sagði hann við mig að kannski yrði hann bara hættur að vinna þegar ég næði aldri en ég hélt nú ekki, hann gæti bara ráðið mig og hætt svo. Má segja að hann hafi gert það því fyrsta sumarið mitt í KS Varmahlíð var síðasta sum- arið hans þar. Þetta var skemmtilegt sumar, við vorum alls ekkert alltaf sammála, við vorum t.d. alveg ósammála hvernig ætti að leiðrétta í nýja kassakerfinu en sammála þegar ég kvartaði, trúlega svona 13 ára gömul, undan starfsstúlku sem rukkaði alltaf aukalega 50 kr. (sem var mikið þá) fyrir að fá ábót á íssósuna þegar við vinkon- urnar keyptum ís í vél. Ég vann þarna reyndar nokkur sumur í viðbót en þetta varð ekki ævi- starfið mitt, ég ætlaði sko alltaf að vinna í KS Varmahlíð hjá Gumma frænda þegar ég yrði stór. Alltaf var gaman bæði að fá Gumma og Marsý í heimsókn og einnig að heimsækja þau, sér- staklega í sumarbústaðinn þar sem oft var glatt á hjalla, Holt- stock hátíðarnar þar um versló voru skemmtilegar þó svo að oft gætu þær verið skrautlegar en hvaða útihátíð er það ekki? Þar stjórnaði Gummi söngnum og allir áttu að syngja með og oftast var mikið sungið, spjallað og borðað langt fram eftir nóttu. Elsku Gummi, eftir að þú veiktist dáðist ég að þér hversu sterkur þú varst og hversu hetjulega þú barðist því þú ætl- aðir þér að sigra, sem þú gerðir sannarlega þrátt fyrir að óvin- urinn hefði eins og svo oft betur að lokum. Í febrúar síðastliðnum þegar ég hitti þig og Marsý á sjúkrahótelinu í Rvk. þá hugsaði ég hvað það væri yndislegt hversu fallega þið stæðuð alltaf eins og klettar við bakið hvort á öðru í blíðu og stríðu. Það er svo ómetanlegt að eiga góða að og það eigið þið sannarlega sem sést best á því hversu stolt þið voruð alltaf af dætrum ykkar, tengdasonum og barna- og barnabarnabörnum. Ég er þakk- lát fyrir að hafa náð góðu spjalli við þig rétt undir það síðasta, sú minning geymist. Að lokum þakka ég þér fyrir allar stund- irnar sem við áttum saman og alla þá tryggð og vináttu sem þú gafst mér. Elsku Marsý, Kiddý og fjölskylda, Gugga og fjöl- skylda og aðrir aðstandendur, ykkur sendum við Kristín Björg okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Megi guð vera með ykkur og gefa ykkur styrk. Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir (Lulla). MINNINGAR 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2012 ✝ Guðný BergrósJónasdóttir fæddist í Efri- Kvíhólma í Vestur- Eyjafjallahreppi 21. nóvember 1912. Hún lést að Hjalla- túni í Vík 8. júní 2012. Foreldrar henn- ar voru Jónas Sveinsson bóndi frá Rauðafelli í Austur- Eyjafjallahreppi, f. 4. nóvember 1875, d. 29. nóvember 1946 og kona hans Guðfinna Árnadóttir frá Mið-Mörk í Vestur-Eyja- fjallahreppi, f. 12. september 1874, d. 23. nóvember 1972. Syst- kini Guðnýjar Bergrósar eru Sveinn Jónasson, f. 9. júlí 1902, d. 26. desember 1981, Marta Sigríð- ur Jónasdóttir, f. 14. nóvember 1903, d. 7. júlí 2000, Engilbert Ár- mann Jónasson, f. 28. febrúar 1906, d. 24. apríl 1987, Elín Jón- asdóttir, f. 16. maí 1908, Ásdís Jónasdóttir, f. 30. október 1909, d. 10. maí 2003, Guðrún Jónasdóttir, f. 30. október 1909, d. 25. október 1975, Sigurþór Jónasson, f. 1. júlí dóttir, eiga eina dóttur. Sjöfn Hermannsdóttir, f. 29. ágúst 1944, hjúkrunarfræðingur í Nor- egi. Maður hennar var Egill And- ensen hagfræðingur, þau skildu. Þau eiga einn son og eina dóttur. Jónas Smári Hermannsson, f. 16. desember 1946, bóndi í Norður- Hvammi og síðar í Efri Kví- hólma. Kona 1, ógift slitu sam- vistum, Málmfríður Sigurð- ardóttir. Þau eiga einn son. Kona 2, skildu, Ragnheiður Thorlacius. Þau eiga eina dóttur. Kona 3, Anna Droplaug Erlingsdóttir. Þau eiga eina dóttur og tvo syni. Hreiðar Hermannsson, f. 2. júní 1948, húsasmíðameistari og verktaki í Hafnarfirði. Kona 1, skildu, Margrét Kolbeinsdóttir. Þau eiga eina dóttur og einn son. Kona 2, 22. desember 1992: Ágústa Jóna Jónsdóttir. Þau eiga einn son og tvær dætur. Svanhvít Hermannsdóttir, f. 11. október 1955, afgreiðslustjóri Lands- banka Íslands á Selfossi, síðar bóndi og hótelstjóri á Lamba- stöðum í Flóahreppi. Maður 1, skildu, Sveinn Sigursveinsson. Þau eiga eina dóttur. Maður 2, 5. júní 1999: Almar Sigurðsson prentmyndasmiður, bóndi og leiðsögumaður. Þau eiga tvær dætur. Útför Guðnýjar fer fram frá Selfosskirkju í dag, 16. júní 2012, og hefst athöfnin kl. 11. 1915, d. 27. apríl 2008, Guðfinna Jón- asdóttir, f. 30. októ- ber 1916, d. 18. febr- úar 2002. Uppeldissystir og bróðurdóttir Guð- finna Sveinsdóttir, f. 15. júní 1928. Fyrri maður Guð- nýjar Bergrósar 1. janúar 1938, var Ey- þór Erlendsson frá Helgastöðum í Biskupstungum, f. 31. janúar 1914, d. 23. desember 1990, þau bjuggu í nokkur ár í Hafnarfirði, þau skildu. Dóttir þeirra: Gíslína Erla Eyþórsdóttir, f. 6. mars 1938, félagsliði í Reykja- vík. Maður hennar er Brynjólfur Ámundason múrari. Þau eiga þrjá syni. Seinni maður Guðnýjar Bergrósar 21. maí 1943: Hermann Jónsson bóndi í Norður-Hvammi, síðar verkamaður á Selfossi, f. 10. júní 1909, d. 19. júní 1994. Börn þeirra: Gísli Sævar Hermannsson, f. 10. júlí 1941, línuverkstjóri. Kona hans er Hólmfríður Sigurð- ardóttir. Þau eiga þrjár dætur. Barnsmóðir Gísla: Sesselja Jóns- Látin er í hárri elli móðir mín Bergrós Jónasdóttir. Hún dó inn í vorið, inn í nóttlausa voraldar veröld. Vorið var hennar tími þegar allt vaknaði til lífsins með komu farfuglanna og gróðri jarðar. Móðir mín fæddist á önd- verðri tuttugustu öld inn í sam- félag þar sem konur höfðu fá tækifæri eða val á lífsbrautinni. Ætla má ef hún hefði fæðst eins og hálfri öld seinna að leið henn- ar hefði legið til frekari mennta. En alþýðustúlkum stóð það tæp- ast til boða á fyrri hluta síðustu aldar. Þegar barnæsku sleppti lágu leiðir flestra stúlkna í vinnu- konuhlutverkið, eða þær giftu sig. Mamma las eins og tími gafst til og hún var minnug með eindæmum. Bókmenntir, ljóð- skáld og leikverk voru hennar dálæti. Mamma hafði yndi af tónlist og kunni mikið af söng- lögum. Hún söng í kirkjukór Reyniskirkju í Mýrdal um ára- tuga skeið og hafði af því mikla gleði. Hún setti saman vísur, en eins og venja kvenna var á þess- ari tíð flíkaði hún ekki afrekum sínum á því sviðinu. Eins og áð- ur sagði hafði mamma dálæti á sönglögum. Eitt þeirra, Vor eftir Friðrik Hansen verður sungið við útförina og lýsir vel upplifun og þrá eftir vorinu, … „vorsins englar vængjum blaka, vaknar lífsins heilög þrá. Sumarglaðir svanir kvaka, suðurum heiða- vötnin blá“. Þau eru falleg vorkvöldin undir Fjöllunum, en þar var mamma fædd og uppalin og var þeim tíðrætt um það systrunum þegar þær hittust og rifjuðu upp gamla tíð. Himnesk dýrð og guðaró eins og segir í kvæðinu, svanir á tjörn, sólareldur og fjöllin blá. Í kvæðinu Burnirót eftir Pál J. Árdal biður burnirótin í klettagjánni um að bera sig til blómanna í birtu og yl, en aðeins alfaðir einn gat það gjört. Þá krýpur hljótt við hennar fót frá himnum engill smár. Hann losar hægt um hennar rót. Þá hýrna fölvar brár. „Ó berðu mig til blómanna í birtu og yl“. Eins og burnirótin bað um að vera borin til blómanna í birtu og yl má reikna með að mamma hafi verið fegin heimkomunni eftir tæprar eitthundrað ára göngu hér á jörð. Mamma hafði dvalið á Hjal- latúni, dvalarheimili í Vík í Mýr- dal frá árinu 1993. Öllu starfs- fólki á Hjallatúni sem komið hefur að því fyrr og síðar að létta henni lífið er hér með þakk- að. Hvíl í friði. Svanhvít Hermannsdóttir. Látin er Guðný Bergrós Jón- asdóttir hátt á tíræðisaldri eftir langa dvöl á Vistheimilinu að Hjallatúni, Vík í Mýrdal. Mér hlotnaðist sú gæfa að hafa hana sem tengdamóður í þessari jarð- vist í 52 ár. Hlýtt var hennar fyrsta handtak og hélst það ávallt til síðustu stundar. Það má segja að heilsufar hennar og síðar að- koma ellinnar hafi verið henni að mestu hliðholl um ævina. Þetta var orðinn hár aldur og ellin því nokkuð löng. Um það tímabil æv- innar og þegar henni lýkur kemst síra Jónmundur Halldórs- son svo að orði í ljóði sínu: Á nebótindi ellinnar. Frá auðnar ellitindi oss fagurt viðhorf skín, og unaðsorð vér heyrum, svo allur kvíði dvín. Í elli-þögn oss ómar svo ástrík föður-rödd, svo hlý og sterk og heilög, að hjörtun verða glödd: Ég, þinn Guð, er með þér, óttalaus því ver. Úr hrelling, myrkri og harmi mín hönd í ljós þig ber. Með hægri hendi styrki ég hjálpa þér og styð. Í ást og umsjá minni þú eignast hjartans frið. Þetta ljóð fellur vel að lífsvið- horfi þessarar mætu konu. Það var gott að koma að Norður- Hvammi og síðar í Smáratúnið til Rósu og Hermanns og dveljast þar. Frá fögrum vorkvöldum í Mýrdalnum eru minnisstæðar gönguferðir á fagra staði eins og Hvammsgil, þegar farið var upp að Krákustandi og í Reiphelli þá var hún ekki síðust upp, þótt elst væri, eins má nefna Dyrhólaey, Hjörleifshöfða og Kerlingardal. Þau voru samhent og samtaka í búskapnum Rósa og Hermann í Norður-Hvammi, það var mikil vinna sem unnin var með ánægju, enda barnahópurinn þeirra nokkuð stór. Það á því við um hana eins og margar aðrar mæður það sem kemur fram í ljóði Davíðs Stefánssonar: Þú áttir þrek og hafðir verk að vinna og varst þér sjálfri hlífðarlaus og hörð. Þú vaktir yfir velferð barna þinna, þú vildir rækta þeirra ættarjörð. Frá æsku varstu gædd þeim góða anda, sem gefur þjóðum ást til sinna landa, og eykur þeirra afl og trú, en það er eðli mjúkra móðurhanda að miðla gjöfum eins og þú. Hún Bergrós unni Mýrdalnum og með klökkva yfirgaf hún hann, en hún átti eftir að koma aftur er þau hjón gerðust vistmenn í Hjallatúni. Þar átti hún eftir að dveljast mörg ár og þar líkaði henni vel. Þegar hún fluttist þangað setti hún á blað: Vel ég uni í Hjallatúni, þar valinn er maður í hverju rúmi, hef ekki undan neinu að kvarta, en sé fyr- ir mér framtíð bjarta. Hafi allir þeir sem önnuðust þau í Hjallatúni hugheilar þakkir fyrir. Hægt væri að rita miklu meira um þessi elskulegu hjón, en hér skal staðar numið. Fyrir nokkrum vikum fórum við hjónin að heimsækja Bergrós í Hjalla- tún. Hún var þá nokkuð hress að sjá, hafði farið með aðstoð fram í matsal til að borða. Hún kvaddi með brosi þegar við fórum. Það ætti því að fara nokkuð vel á því þegar henni er þakkað fyrir allt á lífsleiðinni að þessi verði síð- ustu kveðjuorðin: Ó, þú brostir svo blítt og ég brosti með þér. Eitthvað himneskt og hlýtt kom við hjartað í mér. (Stefán frá Hvítadal) Þinn tengdasonur, Brynjólfur Ámundason. Látin er í hárri elli amma mín, Guðný Bergrós Jónasdóttir. Lít- ið veit ég um ævi ömmu minnar Rósu eins og hún var kölluð dag- lega áður en ég gerðist snún- ingastrákur að Norður-Hvammi í Mýrdal. Þar bjuggu Rósa amma og Hermann afi og var ég hjá þeim í sveit á sumrin árin 1962-70. Það er margt að minn- ast frá þeim tíma, hann var góð- ur fyrir mig. Í sveitinni var ég í skjóli frá öllu áreiti og það voru amma og afi sem mótuðu mig, orð eins og nægjusemi og ekki gefast upp þótt á móti blási koma upp í huga minn þegar ég skrifa þessa grein. Reyndar var ekkert annað í boði en að bjarga sér á þessum tíma. En ef ég rifja upp veru mína hjá ömmu á sumr- in þá kemur fyrst upp í huga minn ilmurinn af hafragrautnum sem amma bjó til á hverjum morgni eftir mjaltir, skipti þá engu hvaða dagur var. Amma var falleg kona, snyrti- leg og vinur allra. Hún var nátt- úrubarn, auk þess að vera frá- bær húsmóðir tók hún þátt í öllu sem gerðist í búskapnum, hún og hrífan áttu mörg handtökin við heyskapinn í Hvammi. Amma stóð fyrir því að farið var í berja- mó á hverju sumri og frá þeim ferðum á ég góðar minningar. Hún var söngelsk og raulaði oft sálma enda söng hún í kirkjukór í mörg ár. Dagbók hélt amma í áratugi og ekki var bókin stór, en þar var hægt að lesa hvaða tún var slegið og hvenær árin áð- ur ásamt ógleymdu veðrinu sem allt snérist um til að búskapur- inn héldi velli. Elsku amma mín, þú hefðir náð 100 ára aldri í haust og það hefði verið gaman að samgleðjast þér. En ég er feginn að þú hefur fengið hvíldina og held að þú haf- ir beðið eftir henni. Ég kveð þig í dag amma mín, megi sólin verma þig vegna þess að í mínum huga bíður þín annar heimur að hand- an. Starfsfólki Hjalltúns á meðan amma dvaldi þar færi ég mínar bestu þakkir fyrir góða umönn- un. Það var gott að koma í heim- sókn til ömmu í Hjallatún, allt svo snyrtilegt og allir velkomnir. Eyþór Brynjólfsson. Guðný Bergrós Jónasdóttir Sendum frítt hvert á land sem er Helluhrauni 12 • Hafnarfjörður • 544 5100 • www.granithusid.is ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, DÓRA KETILSDÓTTIR frá Ísafirði, lést á Hjúkrunarheimilinu Holtsbúð að Vífilsstöðum föstudaginn 8. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum starfsfólki Holtsbúðar einstaka alúð og hlýhug. Þórir Lárusson, Magnea Ragnarsdóttir, Birna Lárusdóttir, Hallgrímur Kjartansson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.