Morgunblaðið - 16.06.2012, Side 53
MENNING 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2012
„Þið hinir vitru menn vitið ekki
hvernig það er að vera foráttu-
heimskur.“ Hér fer lausleg þýðing
greinarhöfundar á niðurlagi Thick As
A Brick, hinni mögnuðu kons-
eptplötu sem eðalsveitin Jethro Tull
gaf út árið 1972. Er hér var komið í
sögu sveitarinnar var hún óstöðv-
andi, búin að gera hverja merkisplöt-
una á fætur annarri og nú var komið
að umfangsmiklu „verki“ sem sló
rækilega í gegn. Tull, leidd af hinum
ofursjarmerandi Ian Anderson gat
bara ekki tekið feilspor á þessum ár-
um.
Snúið
En tildrög verksins voru snúnari
en margan grunaði. Anderson var
pirraður á því að litið var á plötuna
þar á undan, Aqualung, sem heild-
stætt verk og ákvað því að hræra í yf-
irdrifið konseptverk, viljandi. Þetta
var því verknaður sem var „tunga
upp við tönn“ eða „tongue-in-cheek“
eins og enskir orða það. Eins og til að
undirstrika þetta er söguþráður
verksins illskiljanlegt torf, snýst um
ljóð eftir uppdiktað undrabarn, Ger-
ald Bostock eða „Little Milton“. Upp-
runalega platan var í líki dagblaðs og
voru tilvísanir í textann á víð og dreif
þar um. Anderson var þannig að snúa
upp á formið um leið og engu var til
kastað í vinnubrögðum, platan enda
stórkostleg. Þessi tvíræðni verksins
gefur því mögulega þessa töfra og
þennan mikla og góða endingartíma
en útgáfunni verður fagnað í ár með
tónleikum, verkið flutt í heild sinni í
völdum tónleikasölum víða um ver-
öld. Ekki nóg með það, heldur verður
framhaldsverk, Thick As A Brick 2,
flutt einnig en platan sú kom út fyrir
stuttu, eignuð Ian Anderson eða
Jethro Tull’s Ian Anderson. Verkin
verða m.a. flutt hérlendis í næstu
viku, á tvennum tónleikum í Hörpu
þann 21. og 22. júní.
Endurnýjun
Ian Anderson útskýrir upplegg
nýju plötunnar á þá leið að þar sé
verið að skoða mögulega útkomur á
lífi téðs Bostock, sem var tólf ára er
upprunalega platan kom út og því á
sextugsaldri nú. Anderson nýtir per-
sónuna í þessar hugleiðingar sínar og
leyfir skáld- og heimspekijöfrinum
sem hann býr yfir að fara á rækilegt
hlemmiskeið. Enn er unnið með dag-
blaðavinkilinn en hið skáldaða dag-
blað er nú að að sjálfsögðu orðið að
vefsíðu!
Anderson segir að ef einhver hefði
sagt honum fyrir nokkrum árum að
hann væri að fara að gera nýja kons-
eptplötu árið 2012 hefði hann talið
þann sama mann geggjaðan. Gamlir
félagar hans frá útgáfufyrirtækinu
Chrysalis sem fóstraði þónokkrar
Tull-plötur ámálguðu þessa hug-
mynd hins vegar við hann en honum
leist lítt á. Það var hins vegar Derek
Shulman, fyrrverandi söngvari
proggsveitarinnar Gentle Giant, sem
var uppi á blómaskeiði Tull og ekki
langt frá henni hugmyndafræðilega,
sem þrýsti enn frekar á Anderson.
Shulman er útgáfumógúll mikill í dag
og Anderson lét að lokum undan,
segir að Shulman hafi verið sannfær-
andi mjög. Hann hafi svo sjálfur séð
undir rest að þetta væri nú kannski
ekki svo vitlaust enda proggrokkið í
náðinni nú um stundir. Nýjar sveitir
eins og Dream Theater, Porcupine
Tree og jafnvel Opeth halda kyndl-
inum hátt á lofti og þessi stefna, sem
lengi vel mátti ekki nefna vegna
hættunnar á að vera tjargaður og
fiðraður, er nú tekið höndum tveim
bæði af nýjum áheyrendum og þess-
um gömlu sem voru búnir að sverja
hana af sér.
Hvað næst? A Passion Play 2. Ein-
hver?
Foráttuheimskur
fjörutíu árum síðar
»Upprunalega platanvar í líki dagblaðs og
voru tilvísanir í textann
á víð og dreif þar um.
Hugmyndafræðingur Ian Anderson lætur hugann reika, skipulega þó.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is
Báðir hlutar
Thick as a Brick
fluttir í Hörpu
Gallerí Nútímalist opnar í dag kl. 14
sýningu á nýlegum grafíkverkum
Errós í Brekkugerði 19, húsi sem
teiknað er af Högnu Sigurðardóttur
arkitekt. „Tilefni sýningarinnar er
áttræðisafmæli Errós nú í lok sum-
ars. Til sýnis verða þrjátíu verk sem
eru unnin á árunum 1990-2010.
Verkin koma úr eigu Errós, en Að-
alsteinn Ingólfsson listfræðingur
valdi þau í samráði við Erró,“ segir
Sveinn Þórhallsson, fram-
kvæmdastjóri Gallerís Nútímalistar.
Spurður um sýningarstaðinn tek-
ur Sveinn fram að um einstakan
sýningarstað sé að ræða. „Við höf-
um sl. þrjú ár rekið galleríið á
Skólavörðustígnum, en fórum það-
an um páskana þar sem við erum að
leita okkur að stærra húsnæði í mið-
borginni. Í þessu millibilsástandi
fannst okkur fara vel á því að nota
tækifærið til að kynna saman verk
eftir tvo þekktustu listamenn Ís-
lendinga á franskri grundu. Þau
Erró og Högna eru nánast jafn-
aldrar, hafa þekkst um árabil og
bæði verið búsett í París mestan
hluta ævi sinnar,“ segir Sveinn og
tekur fram að svo skemmtilega vilji
til að í húsinu að Brekkugerði sem
reist var árið 1963 sé gosbrunnur
sem Guðmundur frá Miðdal, faðir
Errós, gerði. „Þarna vill því svo
skemmtilega til að þeir feðgar eru
að hittast í húsinu með sína mynd-
list.“
Þess má að lokum geta að sýn-
ingin stendur til 2. júlí og er opin
daglega milli kl. 12 og 17.
Grafík Errós í húsi Högnu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Veggprýði Þrjátíu verk eftir Erró prýða veggina í Brekkugerði 19.
Salon Islandus og Diddú koma fram
á hátíðartónleikum í Garðabæ á
sunnudagskvöld kl. 20. Tónleikarn-
ir eru haldnir í safnaðarheimilinu
Kirkjuhvoli og aðgangur er ókeypis
í boði Garðabæjar, en tónleikarnir
eru hluti af 17. júní dagskrá í
Garðabæ.
Salon Islandus hefur starfað í
átta ár og kemur reglulega fram á
tónleikum víða um land. Hljóm-
sveitin hefur verið fastagestur í
Garðabæ undanfarin ár.
Á sunnudaginn skipa hljómsveit-
ina fiðluleikararnir Zbigniew Du-
bik og Pálína Árnadóttir, sellóleik-
arinn Margrét Árnadóttir,
Hávarður Tryggvason kontra-
bassaleikari, Martial Nardeau
flautleikari, Sigurður I. Snorrason
klarínettuleikari, Anna Guðný Guð-
mundsdóttir píanóleikari og Pétur
Grétarsson slagverksleikari. Söng-
kona Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú,
verður gestur hljómsveitarinnar á
tónleikunum
Salon Islandus og Diddú í Kirkjuhvoli
Hátíðartónleikar Salon Islandus og Diddú leika í Garðabæ á sunnudagskvöld.
Les Misérables - Vesalingarnir (Stóra sviðið)
Lau 16/6 kl. 19:30 Fim 21/6 kl. 19:30 Lau 23/6 kl. 19:30 Allra
síð.sýn.
Mið 20/6 kl. 19:30
AUKASÝN.
Fös 22/6 kl. 19:30
Níu Grímutilnefningar! Allra síðasta sýning 23. júní.
Dagleiðin langa (Kassinn)
Lau 16/6 kl. 19:30 Allra
síð.sýn.
Eitt magnaðasta fjölskyldudrama 20. aldarinnar. Allra síðasta sýning 16. júní.
Afmælisveislan (Kassinn)
Lau 1/9 kl. 19:30 Sun 2/9 kl. 19:30
Þrenn Grímuverðlaun! Sýningar í september komnar í sölu.
Hringurinn - athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins
(Kassinn)
Fös 22/6 kl. 19:30
Aeðins þessi eina sýning!
Vesalingarnir HHHHH - SÍÐUSTU SÝNINGAR!