Monitor - 14.06.2012, Blaðsíða 10

Monitor - 14.06.2012, Blaðsíða 10
10 MONITOR FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2012 Þú talar mikið um frelsið í snjóbrettamennskunni. Ert þú þá ekki með neinn þjálfara? Nei, mér hefur alltaf fundist mikilvægt að stjórna mér sjálfur í sambandi við snjóbrettið svo ég hef aldrei viljað vera með þjálfara. Jafnvel þótt maður sé kominn með einhverja stóra samninga við styrktaraðila og svoleiðis þá hef ég alltaf viljað halda þessu bara í sama fari og þegar ég byrjaði. Þannig komst ég þangað þar sem ég er í dag og af hverju ætti ég að breyta því núna? Ég vil ekki að þetta verði of alvarlegt. Það er orðið mjög algengt að þeir sem eru að keppa á mótum séu með þjálfara og þá fara þeir keppendur alltaf milli stökka til að ræða við þjálfara sína á mjög alvarlegum nótum. Til að gera grín að þeirri stemningu tók ég einu sinni sænskan vin minn með mér á mót þar sem hann var klæddur eins og einhver Matrix-týpa í jakka sem á stóð „Coach Thunder“ (hlær). Hann var sem sagt þarna að hanga í kringum mig með vindil og viskípela, bara að fífl ast. Þetta var bara til að létta andrúmsloftið því mig langar alls ekki að þetta verði of alvarlegt dæmi. Í upphafi árs varst þú í öðru sæti í kjöri á brettamanni ársins hjá ESPN. Þar sem kjörið fór fram á netinu tóku Íslendingar sig saman og hrúguðu atkvæðum á sinn mann. Fannst þú fyrir stuðningnum að heiman? Já, ekkert smá-mikið. Mér fannst það ótrúlega gaman að sjá hversu margir Íslendingar voru til í að hjálpa mér. Mér fannst reyndar allt við að ég skyldi vera svona ofarlega fáránlega óraunverulegt. Maður kemur frá Íslandi þar sem það búa 300.000 manns á meðan hinir sem voru ofarlega voru allir frá Bandaríkjunum, þannig að það ætti að vera aðeins auðveldara fyrir þá að fá stuðning í svona kosningu. Ég bjóst ekki við því að það væri nokkur séns fyrir mig að komast eitthvað áfram í þessari kosningu svo þetta var algjör snilld. Nú eru kannski ekki allir lesendur kunnugir því hvernig snjóbrettaatvinnumennskan gengur fyrir sig. Gætir þú lýst fyrir mér í grófum dráttum í hvernig keppnum þú keppir, hversu mikið þú æfi r, fyrir hvað þú færð borgað og svo framvegis? Þetta virkar í raun bara þannig að á veturna þarf ég að ferðast um til að elta snjóinn og taka upp mynd- bönd og líka ljósmyndir fyrir snjóbrettablöð. Á einum vetri er markmiðið að ná að taka upp nógu mikið af góðu efni til að fylla upp í einn part í mynd, sem er kannski þrjár til fjórar mínútur. Það getur auðvitað tekið mjög langan tíma því hvert atriði er bara nokkrar sekúndur og svo getur það tekið virkilega langan tíma og margar tilraunir að ná hverju trikki. Inn á milli er ég síðan að keppa á mótum en það eru reyndar ekki margir sem bæði keppa og taka upp svona myndir, fl estir eru bara í öðru hvoru. Ég fæ laun borguð mánaðarlega, bara eins og fyrir hverja aðra vinnu. Þau eru greidd af styrktaraðilunum og svo fæ ég líka borgað fyrir myndböndin og ljósmynd- irnar auk þess sem ég fæ sérstaka styrki fyrir ferðalögin, sem fara upp í ferðakostnað og uppihald. Hvað varðar æfi ngar hugsa ég aldrei um þetta þannig að ég sé að æfa mig, ég fer bara að leika mér á snjóbretti og það fer ekki eftir neinni rútínu. Það er samt alls ekki þannig að þetta sé alltaf auðvelt og gaman. Það getur tekið á að ferðast svona mikið, það getur verið skítkalt og erfi tt að þurfa að moka endalaust af snjó og að bera eitt- hvert dót upp í fjall. Þetta er líka mikil þolinmæðis- vinna því fi mm sekúndna bútur í myndbandi getur tekið fi mm klukkutíma í upptökum. Eftir svona upp- tökutörn, þar sem maður er heilan dag í fjallinu dettandi á fullu, mætir maður alltaf heim á kvöldin alveg ónýtur í líkamanum. Þið bróðir þinn rekið nokkur snjóbretta- vörumerki og fenguð meðal annars viður- kenningu fyrir reksturinn nýlega sem kölluð var „Donald Trump Award“, frá tímaritinu Method. Hvernig byrjaði það og að hvaða leyti komið þið að rekstrinum? Við byrjuðum á að framleiða okkar eigin snjóbretti, Lobster Snowboards. Það byrjaði þegar ég hætti hjá fyrirtækinu DC til að byrja hjá Rome Snowboards, sem er fyrirtækið sem Eiríkur var hjá, svo við gætum unnið meira saman. Svo þegar ég var hættur hjá DC þá sögðu Rome mér allt í einu að þeir hefðu ekki tök á að fá mig til sín. Þá fengum við bara þá hugmynd að stofna okkar eigið fyrirtæki. Okkur hafði reyndar verið boðið áður að taka þátt í svipuðu verkefni, en þarna ákváðum við bara að kýla á þetta á svona viku. Til viðbótar við Lobster erum við með Hoppípolla- húfurnar, sem við rekum með norska vini okkar Petter Foshaug, og beltafyrirtæki sem heitir 7-9-13, sem við vinnum með umboðsmanninum okkar og Johannes vini okkar, sem sér líka um bloggsíðuna okkar. Þar að auki vorum við að byrja með Switch-bindingar, sem er ný gerð af bindingum sem eru mjög sniðugar. Allt þetta dót gengur miklu betur en við hefðum nokkurn tímann þorað að vonast eftir. Við eigum sem sagt hlut í öllum fyrirtækjunum og komum að allri hönnuninni og svo eru allar framkvæmdir fyr- irtækjanna bornar undir okkur. Það er fáránlega gaman að vera hluti af svona fyrirtæki, því allt sem maður gerir fyrir það skilar sér aftur til manns, í staðinn fyrir að vera bara að vinna fyrir einhverja gaura sem maður þekkir ekki neitt og þeir græða helling af pening á þér. Þú átt íslenska kærustu. Sumir stuðningsmanna þinna voru ekkert allt of sáttir þegar þú tilkynntir um samband ykkar á Facebook, var það? Við fengum eitthvert hatursbréf sent, en ég held að það hafi verið meira grín en alvara (hlær). Það voru samt ekki allir beint sáttir, til dæmis ekki umboðs- maðurinn minn. Hann segir að það sé svo algengt að kærustur eyðileggi ferilinn hjá snjóbrettamönnum. Ég get þó ekki sagt að ég fi nni neitt fyrir því, sem betur fer. Hefur þú alltaf verið með þessa ljósu lokka? Já, ég byrjaði að safna hári þegar ég var svona níu ára og hef verið með sítt hár síðan. Þegar ég var í 6. bekk náði hárið mitt niður fyrir geirvörtur og þá leit ég út eins og stelpa. Á þeim tíma lenti ég líka án gríns alltaf í því að fólk héldi að ég væri stelpa (hlær). Ég var alveg orðinn mjög þreyttur á því, en aldrei svo þreyttur að ég væri tilbúinn að fara í klippingu. Ég gæti ekki ímyndað mér að verða stutthærður núna, ég held að það myndi engan veginn að passa. Ég er alltaf með húfu og mér fi nnst að hárið verði að koma aðeins niður fyrir hana. Í apríl síðastliðnum gafst þú þér tíma til að mæta á AK Extreme á Akureyri þar sem þú varst þó bara áhorfandi. Hvernig fi nnst þér sá viðburður? Hann er algjör snilld, hann er einn af mínum uppáhaldsviðburðum á hverju ári. Það er svo ótrúlegur „old school“-fílingur í þessari keppni, bara eins og maður færi aftur í tímann. Það er allt mun skítugara og hrárra, sem ég fíla, heldur en í einhverjum keppnum úti þar sem allt þarf að vera tipp topp. Það var auðvitað ömurlegt að þurfa að horfa bara á vegna meiðslanna en það var betra en að sleppa þessu alveg. AK Extreme er ekki bara snjóbrettahátíð en þú skellt- ir þér meðal annars út á lífi ð með Emmsjé Gauta á aðalkvöldinu, ekki satt? Það er alltaf gott djamm á AK Extreme og það klikkaði ekki síðast. Ég fór að skemmta mér með strákunum og á meðal þeirra var Gauti. Í góðu gríni hellti ég heilli mjólkurfernu yfi r hann en hann tók því ekki alveg þannig og svaraði fyrir sig með því að taka einhvern kjúklingarétt og dúndra honum öllum yfi r mig. Við vorum sem sagt þarna, annar allur í mjólk og hinn allur í kjúklingi en það var náttúrlega bara snilld (hlær). Það er samt allt gott á milli okkar Gauta, við erum fínir félagar. Við erum bara frekar slæmir saman á fyndinn hátt og erum alltaf að ögra hvor öðrum upp í eitthvað heimskulegt. Eins og áður sagði hefur þú búið úti undanfarin ár og munt líklega gera það áfram. Sérð þú fram á að búa alltaf erlendis eða heldur þú að þú eigir eftir að snúa heim í sveitina fyrir norðan einn daginn? Ég sé ekki fyrir mér að ég fl ytji heim til Íslands í náinni framtíð en mér fi nnst samt alltaf þægilegast að vera hérna heima – og Ísland verður alltaf „heima“ fyrir mér. Ég sakna Íslands alveg inn á milli, fjölskyldan og æskuvinirnir eru allir hér en ég kann að meta það að vera alltaf að ferðast, sjá nýja staði, kynnast fólki og lenda í skemmtilegum hlutum. Það hentar mér best þessa stund- ina þótt það geti tekið á. Hvað sérð þú gerast hjá þér í snjóbrettamálum á næstu árum? Hver eru markmiðin? Ég er í rauninni ekki með nein markmið önnur en þau að gera það sem ég hef gert áður, reyna alltaf mitt besta og hafa gaman. Mig langar líka að halda áfram að vinna sem mest með fyrirtækin okkar Eika og ég vona að það gangi sem best. Ég mun halda áfram að keppa á X Games og svo gæti verið að ég reyni að taka þátt á næstu Vetraról- ympíuleikum en það á eftir að koma í ljós. Ég fór að skemmta mér með strákunum og á meðal þeirra var Emmsjé Gauti. Í góðu gríni ákvað að ég að hella heilli mjólkurfernu yfi r hann en hann tók því ekki alveg þannig og svaraði fyrir sig með því að taka ein- hvern kjúklingarétt og dúndra honum öllum yfi r mig.

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.