Monitor - 14.06.2012, Blaðsíða 13
13 FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2012 MONITOR
...horfi r til framtíðar
Hörðustu aðdáendur fyrrver-andi herlögreglumannsins
Jack Reacher, sem hefur limlest
og drepið illmenni í einum
fi mmtán spennusögum eftir Lee
Child, eru margir hverjir enn í
áfallahjálp vegna þess að Tom
Cruise tókst að eigna sér hlutverk
Reachers í fyrstu bíómyndinni
sem gerð er eftir bók um þennan
stálnagla.
Myndin, sem ráðgert er að frumsýna þann 28.
desember, er gerð eftir níundu
bók Childs um Reacher, One Shot,
og hingað til hefur verið unnið út
frá því að bíómyndin myndi bera
sama nafn og bókin. Vitringarnir
hjá Paramount hafa hins vegar
ákveðið að myndin muni einfald-
lega heita Jack Reacher þegar hún
kemur fyrir sjónir almennings.
Kvikmyndaverið hefur ekki gefi ð upp neina ástæðu fyrir
nafnabreytingunni en ætla má
að tilgangurinn sé einfaldlega að
tengja myndina enn betur við hið
gríðarlega vinsæla hugarfóstur
Child, Reacher sjálfan. Og líklega
er ekki vanþörf á þar sem Cruise
er eins ólíkur Reacher og hugsast
getur og Að verður þrautin þyngri
fyrir aðdáendur bóka Childs
að meðtaka stubbinn Cruise í
hlutverki Reachers sem er yfi r
tveir metrar á hæð með vöðva-
byggingu sem minnir á tólf hjóla
trukk.
Jack Reacher hefur verið lýst sem svo að hann sé Clint
Eastwood, Mel Gibson og Bruce
Willis sameinaðir í einum manni
og væri Eastwood um 40 árum
yngri hefði hann sjálfsagt verið
upplagður í hlutverkið eftir að
hafa farið á vænan sterakúr og
verið keyrður áfram í ræktinni
í hálft ár eða svo. Þá á Reacher
ýmislegt sameiginlegt með James
Bond í bókum Ians Fleming. Hann
er þrautþjálfaður í hvers kyns
barsmíðum og meðferð vopna
og sefur hjá í það minnsta einni
nýrri konu í hverri bók. Reacher
er hins vegar stálheiðarlegur,
réttsýnn og ósveigjanlegur í
afstöðu sinni til lífsins og er því
náskyldastur einkaspæjaranum
Philip Marlowe sem studdi
minnimáttar í gegnum rökkvaða
refi lstigu undirheima Los Angeles
upp úr 1940.
Reacher þvælist stefnulaust um Bandaríkin þver og
endilöng. Án farangurs með
ekkert í vösunum nema tann-
bursta og útrunnið vegabréf. Þessi
fullkomni einfari er með öllu
rótlaus og getur hvergi staldrað
lengi við í senn en hefur einstakt
lag á að róta sér í illdeilur við
glæpahyski, hryðjuverkamenn og
skítapakk hvers konar á hverjum
áfangastað.
Í One Shot kemur Reacher leyniskyttu sem hefur verið
handtekinn, grunaður um fi mm
morð, til hjálpar. Vandinn er sá
að Reacher hefur engan áhuga
á því að rétta byssumanninum
hjálparhönd í fyrstu þar sem
hann greip hann glóðvolgan fyrir
morð á herlögregluárum sínum.
Skyttan krefst þess hins vegar að
fá að tala við Reacher og á daginn
kemur að ekki er allt sem sýnist
að þessu sinni og fyrr en varir
er Reacher kominn á bólakaf í
samsæri grjótharðra skrattakolla
sem svífast einskis.
Christopher McQuarrie (The Usual Suspects, The Way of
the Gun) sér um aðlögun sögunn-
ar og leikstýrir myndinni en auk
Cruise eru Rosamund Pike, Robert
Duvall, Richard Jenkins, David
Oyelowo og leikstjórinn Werner
Herzog í helstu hlutverkum.
www.svarthofdi.is
Tom Cruise er
Jack Reacher
Það er sama hvað mað-
ur biður um eða setur
í gang í nýjasta síman-
um frá LG, Optimus 4X
HD, maður er fl jótur að
fá‘ða. Þessi eldsnöggi
sími er keyrður áfram
af NVIDIA Tegra 3
örgjörvanum sem
tryggir gríðarlegan
hraða bæði hvað
varðar vinnslu og
grafík. Þetta skilar sér
sérstaklega vel þegar
maður er að fara á
milli forrita, stækka
og minnka myndir og
myndskeið og einnig
þegar síminn keyrir
upp tölvuleiki. En
örgjörvinn er allt að
tvisvar sinnum hraðari en Dual Core örgjörvarnir í allri vinnslu og munar
þar mikið um. Síminn er með svo fi mmta kjarnann til að bæta rafhlöðuend-
ingu og er hann með 2150 mAh rafhlöðu sem er endingargóð, en LG hefur
unnið hörðum höndum að því að lengja endingu rafhlaðanna og á sama
tíma minnka þær í ummáli.
Hraði örgjörvans býður uppá allskyns æfi ngar og meðal annars er hægt að
tengjast sjónvörpum þráðlaust og keyra þar upp leiki sem vistaðir eru á
símanum. Ekki nóg með það því ef síminn er tengdur við þrívíddarsjónvarp
er hægt að spila á því þrívíddarleiki úr símanum og meira að segja setja
venjulega 2D leiki í þrívídd, þannig að þeir sem hafa haft blauta drauma um
að spila Angry Birds í þrívídd geta nú látið það rætast.
Skjár símans hefur einnig verið tekinn í gegn frá fyrri útgáfum, en LG
Optimus 4X HD skartar 4,7“ skjá sem notar True HD IPS tækni sem tryggir
óviðjafnanleg gæði bæði hvað varðar liti og skýrleika. En þó að skjárinn sé
stór þá er síminn engu að síður meðfærilegur og passar vel í vasann.
Optimus 4X HD síminn keyrir á Android 4.0 Ice Cream Sandwich og er
hann með tvær myndavélar, sú stærri er 8 megapixla og sú sem er framan
á símanum er 1.3 megapixla. Ofan á þetta leggst að síminn er með 16GB í
innra minni sem notendur geta svo stækkað ef þörf á þykir.
En þessi nýi LG sími er ekki bara fallegur og fullkominn að innan, því mikið
hefur verið lagt í að hanna útlit símans, en hann er hannaður nánast eins og
skartgripur enda lúkkar hann vel og endurspeglar útlitið klárlega þann kraft
sem er undir húddinu.
LG Optimus 4X HD er sími fyrir þá sem krefjast hámarks gæða hvað varðar
hraða, skjá, virkni og útlit. En það sem vegur kannski þyngst er verð símans,
en allur þessi pakki mun verða undir 100 þúsund þegar hann lendir hér á
landi í næstu viku og mun hann fást bæði í svörtu og hvítu.
Fljótur að fá‘ða..
TAKE
AWA
Y TIL
BOÐ
56
2
38
38
SUÐURLANDSBRAUT 12 | LAUGAVEGUR 81 BRAGAGATA 38a
16”PIZZ
A
2495
.-
með
tveim
ur ále
ggju
m
&12”MA
RGA
RITA
/
HVÍT
LAUK
SBRA
UÐ
2
16”PIZZ
A
3495
.-af mats
eðli
&16”MA
RGA
RITA
/
HVÍT
LAUK
SBRA
UÐ
3
16”PIZZ
A
1895
.-
með
tveim
ur ále
ggju
m
1