Morgunblaðið - 27.07.2012, Side 21
FRÉTTIR 21Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2012
DAGSKRÁ
Laugardagur 28. júlí
Rokktónleikar á túninu við kirkjuna
frá klukkan 13 – 17.
Fram koma:
Kristjana Stefánsdóttir og Svavar Knútur,
Bubbi Morthens, Helgi Björns og Reiðmenn vindanna.
Kynnir Dóri DNA.
Sunnudagur 29. júlí
Hátíðarmessa kl. 14.00. Biskup Íslands frú Agnes M.
Sigurðardóttir predikar. Séra Önundur S. Björnsson sóknar-
prestur þjónar fyrir altari. Einsöngur Maríanna Másdóttir,
selló Uelle Hahndorf, orgel Guðjón Halldór Óskarsson,
Kirkjukór Breiðabólstaðarsóknar syngur. Að lokinni messu er
boðið í kirkjukaffi í hlöðunni á Breiðabólstað.
Knattspyrnufélag Rangæinga annast veitingasölu á
útihátíðinni.
Aðgangur ókeypis á öll hátíðarhöldin.
Allir hjartanlega velkomnir.
Næg tjaldstæði við Kaffi Langbrók í Fljótshlíð.
Sóknarnefnd Breiðabólstaðarsóknar.
Útitónleikar og hátíðarmessa á
Breiðabólstað í Fljótshlíð
28. og 29. júlí
Aksturstími frá Reykjavík
er ein og hálf klukkustund.
100 ára afmælishátíð Breiðabólstaðarkirkju
Kirkjan & fólkið
Kristjana Stefánsdóttir og Svavar Knútur.Dóri DNA. Bubbi Morthens. Helgi Björns.
Frú Agnes M. Sigurðardóttir. Séra Önundur S. Björnsson.
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Núverandi fyrirkomulag á íbúðalána-
markaði, þar sem opinberir aðilar eru
umsvifamestir, veikir eignasafn ann-
arra lánveitanda á markaði og eykur
ennfremur þann kostnað sem fellur á
ríkið vegna þeirrar áhættu sem stafar
af lágu eiginfjárhlutfalli Íbúðalána-
sjóðs, undanþágu sjóðsins frá flestum
opinberum gjöldum og lágri arðsemi
þess fjár sem er bundið í sjóðnum. Af
þeim sökum er það mat Samtaka fjár-
málafyrirtækja (SFF) að engin rök
standi „til þess að ríkið þurfi að ann-
ast almenn íbúðalán í einu ríkasta
landi heims,“ og benda samtökin
einnig á að eigendaábyrgð ríkisins á
Íbúðalánasjóði sé „verulega íþyngj-
andi fyrir lánshæfismat ríkissjóðs“.
Þetta kemur fram í umsögn sam-
takanna, sem Morgunblaðið hefur
undir höndum, og var nýverið send til
efnahags- og viðskiptaráðuneytisins
vegna skýrslu ráðherra til Alþingis
um framtíðarskipan fjármálakerfis-
ins sem var birt fyrr á þessu ári. Í um-
sögn SFF er vakin athygli á því að út-
lán Íbúðalánasjóðs til heimila nema
um 560 milljörðum króna og lán líf-
eyrissjóða um 170 milljörðum. Sam-
tals nema útlán þessara aðila meira
en 50% af öllum útlánum til heimila.
Það er mat samtakanna að „æskilegt“
sé að dregið verði úr þeirri „skugga-
bankastarfsemi sem felst í beinum
lánveitingum lífeyrissjóða“. Í því
samhengi er vísað til þess að sjóðirnir
eru „ekki háðir reglum sem gilda um
lánastarfsemi fjármálafyrirtækja,
svo sem varðandi eiginfé eða lána-
reglur, og reynslan sýnir að þeir hafa
takmarkaða burði eða aðstöðu til að
glíma við skuldaerfiðleika lántak-
enda“.
Skiptar skoðanir eru á meðal
aðildarfyrirtækja SFF hvort þörf sé
á aðskilnaði viðskipta- og
fjárfestingarbankastarfsemi. Þau
fyrirtæki sem skilgreina sig sem fjár-
festingarbanka mæla með slíkum að-
skilnaði og benda á að undir núver-
andi fyrirkomulagi njóti
viðskiptabankar forskots umfram
aðra aðila á markaði þar sem fjár-
mögnunarkostnaður þeirra er lægri.
Viðskiptabankarnir telja aftur á móti
óráðlegt að taka slíkt skref þar sem
„fullur aðskilnaður hefði í för með sér
alvarlega fákeppni á sviði fjárfesting-
arbankastarfsemi“.
Vinnur gegn markmiði sínu
Að sama skapi hafa samtökin efa-
semdir um að rétt sé að koma á fót
sérstöku fjármálastöðugleikaráði og
telja ástæðu til að kanna hvort það
kynni að „auka flækjustigið enn frek-
ar og torvelda fremur en hjálpa til við
stórar ákvarðanir þegar hætta steðj-
ar að fjármálakerfinu“. Því telur
SFF, í ljósi þess að eitt meginhlut-
verk slíks ráðs á að vera að tryggja
betri samtöl milli FME og Seðla-
bankans, hvort ekki sé nærtækara að
skoða sameiningu þessara stofnana
til að ná því markmiði.
SFF geldur sömuleiðis varhug við
því að núverandi lagaákvæði um for-
gang innstæðna haldist óbreytt þar
sem slíkur forgangur gerir það að
verkum að nánast ómögulegt verður
fyrir íslenskar innlánsstofnanir að
sækja sér lánsfé til endurfjármögn-
unar með útgáfu hefðbundinna
ótryggðra skuldabréfa. „Þetta
ákvæði mun því að óbreyttu torvelda
erlenda lánsfjármögnun íslenskra út-
flutningsfyrirtækja sem þurfa á slíku
lánsfé að halda. SFF segir líklegt að
viðbrögðin við þessu verði aukin út-
gáfa sérvarinna skuldabréfa – en sjá
má merki slíkrar þróunar nú þegar á
fjármálamarkaði – sem aftur getur
leitt til þess að eignir bankastofnana
verði að stórum hluta fráteknar við
þrot. „Þannig kann forgangur inn-
stæðna að vinna gegn markmiði
sínu,“ segir í umsögn samtakanna.
Ríkið á helming útlána til heimila
Ríkið umsvifamest á íbúðalánamarkaði
Útlán til heimila
Aðrar
innlánastofnanir
Landsbankinn
Íbúðalánasjóður
Ýmis
lánafyrirtæki
LÍN
Lífeyrissjóðir
10%
11%
5%
40%
10%
24%
Heimild: Seðlabankinn, Íbúðalánasjóður og LÍN.
SFF segja engin rök fyrir því að ríkið annist íbúðalán í einu ríkasta landi heims ÍLS íþyngjandi
fyrir lánsmat ríkisins Efast um stofnun fjármálastöðugleikaráðs Frekar að sameina FME og SÍ
Að mati Samtaka fjármálafyrir-
tækja er núverandi stærð og um-
fang FME komið umfram þau mörk
sem eðlilegt getur talist. Í umsögn
samtakanna segir að mikilvægt sé
að „átta sig á því að aldrei verður
komið í veg fyrir fjármálaáföll, þ.e.
þrot einstakra fjármálafyrirtækja,
frekar en annarra fyrirtækja. Starf-
semi fjármálaeftirlits getur ekki
haft slíkt markmið.“
SFF leggst ennfremur gegn því
sem fram kemur í skýrslu fjár-
málaráðherra um að starf FME
„þurfi að vera matskenndara“ og
horfa meira til efnislegra þátta við
mat á áhættu í fjármálakerfinu í
stað formlegra lagaákvæða. „Mats-
kennd afstaða FME til einstakra
mál gerir mjög miklar kröfur til
hæfis starfsmanna. [...] Að fenginni
reynslu er óvíst hvort hægt sé að
manna FME“ þannig að hægt verði
að ná sátt um slíkar aðferðir.
Fjármálaáföll óhjákvæmileg
NÚVERANDI UMFANG FME KOMIÐ UMFRAM EÐLILEG MÖRK