Morgunblaðið - 01.08.2012, Qupperneq 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2012
Pepsi-deild kvenna
Úrvalsdeildin, 12. umferð:
Valur – Þór/KA ................................... 2:2
Johanna Rasmussen 42., Sjálfsmark 55. –
Katrín Ásbjörnsdóttir 72.(víti), Lillý Rut
Hlynsdóttir 80.
Breiðablik – ÍBV.................................. 1:2
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir 58. – Shaneka
Gordon 2., 90.
KR – Stjarnan ...................................... 0:3
Ashley Bares 70., 90., Soffía Arnþrúður
Gunnarsdóttir 40.
Fylkir – Afturelding............................ 1:2
Ruth Þórðardóttir 84. – Hafdís Rún Ein-
arsdóttir 26., Vendula Strnadova 90.
Rautt spjald: Eygló Harðardóttir (Fylki)
90.
FH – Selfoss ......................................... 1:3
Bryndís Jóhannesdóttir 12. – Sjálfsmark
26., Eva Lind Elíasdóttir 38., Katrín
Rúnarsdóttir 90.
Staðan:
Þór/KA 12 9 2 1 32:13 29
Stjarnan 12 8 2 2 33:14 26
Breiðablik 12 7 2 3 30:12 23
ÍBV 12 7 1 4 28:18 22
Valur 12 6 2 4 29:16 20
FH 12 4 2 6 19:26 14
Fylkir 12 3 2 7 14:25 11
Afturelding 12 3 2 7 11:26 11
Selfoss 12 3 2 7 21:51 11
KR 12 0 3 9 10:26 3
1. deild kvenna B
HK/Víkingur – Grindavík .................... 6:1
Staðan:
Fram 11 10 0 1 47:11 30
HK/Víkingur 11 7 2 2 34:12 23
BÍ/Bolungarvík 11 6 1 4 21:16 19
Grindavík 11 4 1 6 19:33 13
Tindastóll 11 4 0 7 10:32 12
Keflavík 10 2 5 3 10:13 11
Völsungur 10 3 1 6 17:27 10
Álftanes 9 1 0 8 5:19 3
KNATTSPYRNA
Jakob Jóhann Sveinsson úr Ægi hafnaði í 31. sæti af 34
keppendum í 200 metra bringusundi á Ólympíuleikunum í
London í gær. Hann var langt frá sínu besta og synti á
2:16,72 mínútum en síðasti maður inn í undanúrslitin synti á
2:11,66 mínútum.
Jakob komst inn á leikana með því að synda á 2:13,84
mínútum en Íslandsmet hans frá árinu 2009 er 2:12,39 mín-
útur.
Jakob keppti í 100 metra bringusundi um helgina og varð
þá í 36. sæti á 1:02,65 mínútum, rúmlega 1,3 sekúndum frá
Íslandsmeti sínu.
Jakob sagði m.a. á Facebook-síðu sinni eftir sundið að ár-
angurinn á hans fjórðu Ólympíuleikum hefði verið langt undir pari. „Árið mitt
var ekki upp á marga fiska, ég lenti í meiðslum, var lengi að jafna mig milli æf-
inga og missti góðan vin, en svona er lífið og ég veit að ég mun læra mikið af
þessu og líklegast mun ég horfa til baka seinna og segja að ég hafi lært einna
mest af árinu 2012,“ sagði Jakob Jóhann. vs@mbl.is
„Árið ekki upp á marga fiska“
Jakob Jóhann
Sveinsson
Kristján Jónsson í London
kris@mbl.is
Í dag fær Hrafnhildur Lúthersdóttir úr Sundfélagi Hafn-
arfjarðar tækifæri til að stinga sér til sunds í keppni í Ólympíu-
lauginni í London. Hún keppir í 200 metra bringusundi og ætti
að byrja um klukkan 9:45 að íslenskum tíma.
Hrafnhildur þurfti að gefa það frá sér að keppa í 100 metra
bringusundinu síðasta sunnudag vegna olnbogameiðsla sem hún
varð fyrir rétt fyrir leikana. Var það gert að læknisráði. Hún
hefur hins vegar æft síðan og æfði til að mynda á fullu í Ólympíu-
lauginni í gær. Hrafnhildur fékk grænt ljós frá læknum varðandi
sundið í dag og henni er því ekkert að vanbúnaði að þreyta frumraun sína á
Ólympíuleikum. Hrafnhildur á auk þess eftir að keppa í boðsundi á föstudaginn
Hrafnhildur keppir í öðrum riðli í undanrásunum en Íslandsmet hennar er
2:27,11 mínútur en það setti hún á móti í Frakklandi í júní. Hrafnhildur hafnað
sæti í greininni á Evrópumótinu í Ungverjalandi í vor.
Hrafnhildur fékk grænt ljós
Hrafnhildur
Lúthersdóttir
Á HLÍÐARENDA
Tómas Þór Þórðarson
tomas@mbl.is
Topplið Þórs Þór/KA er enn á
toppnum eftir að tólfta umferðin í
Pepsi-deild kvenna var leikin í gær.
Norðankonur gerðu jafntefli gegn
Val, 2:2, í leik þar sem þær hrein-
lega stálu stigi.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
seigla og barátta Þórs/KA skilar lið-
inu stigum í hús en þjálfararnir í
deildinni ásamt leikmönnum og
stuðningsmönnum annarra liða
hreinlega skilja ekki hvernig Þór/
KA getur enn verið á toppnum.
Ekki líklegar
Valur spilaði sinn besta leik í gær
gegn toppliðinu sem hafði fimm
stiga forskot á önnur lið fyrir um-
ferðina. Þær uppskáru mark rétt
fyrir lok fyrri hálfleiks þegar
danska landsliðskonan Johanna
Rasmussen stangaði fyrirgjöf Rak-
elar Logadóttur í netið.
Þegar fyrirliði Þórs/KA, varnar-
jaxlinn Arna Sif Ásgrímsdóttir, varð
fyrir því óláni að skora sjálfsmark
snemma í seinni hálfleik var þetta
aðeins spurning um hversu stór sig-
urinn yrði. Þór/KA leit ekki út eins
og topplið. Norðankonur voru yf-
irspilaðar og ekkert sást til hinnar
mögnuðu Söndru Maríu Jessen sem
var týnd á Hlíðarenda í gær.
En allt í einu fengu gestirnir líf-
línu. Katrín Ásbjörnsdóttir skoraði
úr víti sem var fyrsta markskot
Þórs/KA í seinni hálfleik, 2:1, og á
80. mínútu jafnaði hin 15 ára gamla
Lillý Rut Hlynsdóttir metin, 2:2.
Hún fékk stungusendingu inn fyrir
vörn Vals sem hafði klúðrað mál-
unum hrikalega og skoraði með
góðu skoti. Lillý er dóttir Hlyns
Birgissonar, knattspyrnugoðsagn-
arinnar að norðan sem spilaði lengi
með Þór.
Safna stigum með seiglu
Stuðningsmenn Vals í stúkunni í
gær voru agndofa eftir leikinn í
gær. Þeir sögðust ekki skilja hvern-
ig þetta Þórs/KA-lið væri á toppi
deildarinnar miðað við frammistöð-
una í gær.
Gunnar Rafn Borgþórsson, þjálf-
ari Vals, sagðist ekki skilja hvað
væri í gangi, aðspurður af Morg-
unblaðinu eftir leik hvort seigla
Þórs/KA væri dæmi um meist-
araefni. Þá skaut Þorlákur Árnason,
þjálfari Stjörnunnar, á norðankonur
í samtali við Morgunblaðið eftir bik-
arleikinn í síðustu viku. Hann sagði
það engu máli skipta hvað Þórs/KA-
liðið gerði, þær skoruðu alltaf.
Meira að segja þegar þær ætluðu að
gefa fyrir.
Þegar öllu er á botninn hvolft
gerðist þetta í gær: Þór/KA lenti
undir, 2:0, besti leikmaður sumars-
ins, Sandra María Jessen, sást ekki,
fyrirliðinn sem stýrir vörninni skor-
aði sjálfsmark og liðið var yfirspilað
í 70 mínútur. Niðurstaðan: Eitt stig
í hús hjá Þór/KA. Það er það eina
sem nokkur maður þarf að skilja.
Stjarnan minnkaði muninn
Stjarnan minnkaði muninn á toppi
deildarinnar í þrjú stig í gær með
sigri á KR, 3:0. Breiðablik missti af
góðu tækifæri til að nálgast Þór/KA
og tapaði 1:2 fyrir ÍBV þar sem
Shaneka Gordon skoraði sigur-
markið í uppbótartíma.
Afturelding vann dramatískan sig-
ur á Fylki, 2:1, en sigurmarkið skor-
aði Vendula Strnadova á 94. mínútu.
Í nýliðaslagnum í Kaplakrika
vann svo Selfoss góðan sigur á FH,
3:1, en þar sem Afturelding og Sel-
foss unnu bæði er útlitið svart fyrir
KR sem er á botni deildarinnar,
átta stigum frá öruggu sæti.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Á sprettinum Fyrirliði Þórs/KA, Arna Sif Ásgrímsdóttir, reynir að halda í við Elínu Mettu Jensen á Hlíðarenda í gær.
Þór/KA: Toppliðið
sem enginn skilur
Fimmtán ára dóttir goðsagnar að norðan bjargaði stigi
HANDKNATTLEIKUR KARLA
A-riðill:
Túnis – Ísland ....................................... 22:32
Bretland –Svíþjóð................................. 19:41
Argentína – Frakkland ........................ 20:32
Staðan:
Frakkland 2 2 0 0 76:35 4
Svíþjóð 2 2 0 0 69:40 4
Ísland 2 2 0 0 63:47 4
Túnis 2 0 0 2 43:60 0
Argentína 2 0 0 2 45:63 0
Bretland 2 0 0 2 34:85 0
B-riðill:
Suður-Kórea – Ungverjaland.............. 19:22
Serbía – Króatía ................................... 23:31
Danmörk – Spánn................................. 24:23
Staðan:
Króatía 2 2 0 0 62:44 4
Danmörk 2 2 0 0 51:48 4
Spánn 2 1 0 1 49:45 2
Ungverjaland 2 1 0 1 47:46 2
Serbía 2 0 0 2 44:57 0
Suður-Kórea 2 0 0 2 40:51 0
KNATTSPYRNA KVENNA
E-riðill:
Nýja-Sjáland – Kamerún ........................ 3:1
Bretland – Brasilía ................................... 1:0
Lokastaðan: Bretland 9, Brasilía 6, Nýja-
Sjáland 3, Kamerún 0.
F-riðill:
Japan – Suður-Afríka............................... 0:0
Kanada – Svíþjóð...................................... 2:2
Lokastaðan: Svíþjóð 5, Japan 5, Kanada
4, Suður-Afríka 1.
G-riðill:
Bandaríkin – Norður-Kórea.................... 1:0
Frakkland – Kólumbía............................. 1:0
Lokastaðan: Bandaríkin 9, Frakkland 6,
Norður-Kórea 3, Kólumbía 0.
KÖRFUBOLTI KARLA
A-riðill:
Litháen – Nígería ................................. 72:53
Frakkland – Argentína ........................ 71:64
Túnis – Bandaríkin............................. 63:110
Bandaríkin 4, Litháen 3, Nígería 3,
Frakkland 3, Argentína 3, Túnis 2.
B-riðill:
Kína – Rússland.................................... 54:73
Ástralía – Spánn ................................... 70:82
Bretland – Brasilía ............................... 62:67
Rússland 4, Spánn 4, Brasilía 4, Ástralía
2, Kína 2, Bretland 2.
SUND
200 m skriðsund kvenna:
Allison Schmitt, Bandaríkjunum ..... 1:53,61
Camille Muffat, Frakklandi ............. 1:55,58
Bronte Barratt, Ástralíu................... 1:55,81
200 m flugsund karla:
Chad Le Clos, Suður-Afríku ............ 1:52,96
Michael Phelps, Bandaríkjunum ..... 1:53,01
Takeshi Matsuda, Japan................... 1:53,21
200 m fjórsund kvenna:
Shiwen Ye, Kína ................................ 2:07,57
Alicia Coutts, Ástralíu....................... 2:08,15
Caitlin Leverenz, Bandaríkjunum... 2:08,95
4x200 m skriðsund karla:
Bandaríkin ......................................... 6:59,70
Frakkland .......................................... 7:02,77
Kína .................................................... 7:06,30
LONDON 2012
Í LONDON
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Íslenska landsliðið fór hamförum á
fjölum handboltahallarinnar á Ólymp-
íuleikunum í gærmorgun þegar liðið
vann stórsigur á Túnis 32:22. Sér-
staklega var fyrri hálfleikurinn magn-
aður og Afríkubúarnir áttu ekki
möguleika. Túnis var 10:12 undir í
hálfleik á móti Svíum tveimur dögum
áður, en í gær þurftu þeir að horfast í
augu við að vera 8:19 undir í hálfleik.
Ég hef sjaldan séð íslenska liðið
spila jafn fast á upphafsmínútum leiks
og það gerði í gær. Það er svo sem
skiljanlegt þar sem nokkrir mjög lík-
amlega sterkir leikmenn eru í liði
Túnis. Ekki er hlaupið að því að vinna
návígin gegn þeim en íslensku strák-
arnir voru í miklum ham. Neistinn var
til staðar og ávinningurinn lét ekki á
sér standa því liðið byrjaði frábærlega
og komst í 6:1.
Neistinn varð að báli
Neistinn varð að báli þegar hin
þekkta stórskytta Túnis, Wissem
Hmam, braut fólskulega á Guðjóni
Vali Sigurðssyni sem var í hraðaupp-
hlaupi. Ekki er hægt að hlaupa þann
kappa uppi þegar hann er kominn á
ferðina og þá freistast menn stundum
til þess að brjóta á honum. Hmam
gekk hins vegar langt út fyrir eðlileg
mörk og setti olnbogann í kviðinn á
Guðjóni að því mér sýndist.
Allt látbragð Guðjóns í loftinu gaf
til kynna að hann hefði fengið talsvert
högg og hann lá eftir á vellinum. Dóm-
ararnir gáfu Hmam tveggja mínútna
brottvísun og dæmdu vítakast. Fyrst
þeir sáu brotið er hneyksli að hann
hafi ekki fengið rauða spjaldið. Guð-
jón Valur varð vægast sagt brjálaður
þegar hann hafði jafnað sig á högginu
og ég hef aldrei séð hann skipta skapi
með slíkum hætti áður. Það segir
manni nokkuð um hversu ruddalegt
brotið hlýtur að hafa verið því Guðjón
er sannur íþróttamaður.
Í ham
Gríðarlega grimm
á Túnis eftir ellefu m
Kristján Jónsson í London
kris@mbl.is
Björgvin Páll Gústavsson náði sér
vel á strik á móti Túnis í gær og var
kampakátur að leik loknum eins og
hann orðaði það. „Ég er kampakát-
ur með úrslitin og spilamennskuna.
Það er ekki sjálfgefið að geta spilað
svona geðsýkisvörn klukkan hálf tíu
á morgnana. Það eru ekki mörg lið
sem ráða við það. En við erum með
nokkra bilaða sem eru tilbúnir að
„Erum me