Morgunblaðið - 01.08.2012, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.08.2012, Blaðsíða 4
FÓTBOLTI Sindri Sverrisson sindris@mbl.is „Þetta var virkilega góður sigur. Við höfðum misst síðustu tvo leiki niður í jafntefli en náðum núna í þrjú góð stig og erum í baráttunni um Evr- ópusæti. Svo er ekkert langt í eitt- hvað ennþá meira eins og þetta er að spilast. Þetta getur verið fljótt að breytast,“ sagði Andri Rafn Yeoman, leikmaður Breiðabliks og leikmaður 13. umferðar hjá Morgunblaðinu, en Andri lék mjög vel í mikilvægum 1:0- sigri á ÍBV. Þar með eru Blikar að- eins þremur stigum frá Evrópusæti og átta stigum frá toppnum. „Vissulega viljum við vera mun of- ar í deildinni og það eru vissulega vonbrigði að hafa ekki náð í fleiri stig, en það er stutt í betra sæti,“ sagði Andri. Vandamál Blika hefur verið að skora mörk en þeir hafa nú fengið sóknarmennina Ben Everson og Nichlas Rohde en sá danski skor- aði sigurmarkið gegn ÍBV. „Þeir hafa verið að koma mjög sprækir inn á æfingarnar hjá okkur. Þeir koma með meiri hraða og eru beinskeyttari en okkar fremstu menn hafa verið og eiga klárlega eft- ir að nýtast okkur vel það sem eftir er af deildinni,“ sagði Andri sem myndi sjálfur hafa viljað skorað en hann gerði tvö mörk fyrir Blika í fyrra og einnig 2010. Hvatning að sjá strákana úti „Ég er ekki búinn að skora mark núna og vildi auðvitað vera búinn að bæta úr því en maður er að spila að- eins aftar á vellinum en áður. Auðvit- að vill maður samt ná inn einhverjum mörkum og vonandi fara þau að koma,“ sagði þessi tvítugi flinki miðjumaður sem kann vel þá list að skjótast um völlinn með boltann límdan við lappirnar. Hann ætlar sér að feta í fótspor manna á borð við Kristin Steindórsson, Guðmund Kristjánsson, Alfreð Finnbogason og fleiri sem farið hafa frá Blikum í at- vinnumennsku á síðustu árum. „Það er mikil hvatning að sjá stráka sem maður hefur verið að æfa með á hverju ári fara út og standa sig virkilega vel þar í stærri deildum. Það sýnir manni að það er ekkert sérlega langt í að maður geti gert það sjálfur. Markmiðið hjá mér er bara að hjálpa liðinu að standa sig vel enda er ekkert tekið eftir manni nema liðið sé að gera góða hluti. Við erum með flottan mannskap á hverju ári og það er enginn svakaleg- ur munur á liðinu milli ára þó að við missum sterka leikmenn,“ sagði Andri sem er uppalinn Bliki og hefur alltaf æft með liðinu. Þrátt fyrir að hafa spilað með meistaraflokki í þrjú ár er Andri svo ungur að hann þekkir varla annað en að geta æft í knatt- spyrnuhöll á veturna. „Maður man varla eftir fyrstu æf- ingunni í Fífunni þótt ég hafi eitthvað æft úti á gervigrasinu sem var þarna. Ætli maður hafi ekki verið átta eða níu ára þegar hún kom. Það eru mikil forréttindi að hafa alltaf getað æft inni allan veturinn,“ sagði Andri. Glöggir lesendur hafa kannski tekið eftir að Andri ber ættarnafn en hann á bandarískan afa. Sjálfur ber Andri þó litlar taugar til Bandaríkjanna. Ætlar ekki að bæta met Ásdísar „Það er einhver voðalega löng saga á bak við þetta nafn sem ég kann ekki, en stutta skýringin er sú að föðurafi minn er bandarískur. Hann flutti með ömmu og pabba hingað þegar pabbi var smábarn.“ Andri starfar hjá SA lyfja- skömmtun og það er engin tilviljun því hann ætlar að hefja nám í lyfja- fræði í haust. Blaðamaður spurði Andra hvort hann hefði í hyggju að bæta met Ásdísar Hjálmsdóttur spjótkastara, sem útskrifaðist í vet- ur með hæstu einkunn sem gefin hefur verið í meistaranámi í lyfja- fræði. „Það er ólíklegt. Ætli ég leyfi henni ekki bara að eiga það met,“ sagði Andri léttur. Morgunblaðið/Golli Góður Andri Rafn, hér í baráttu við Fylkismanninn David Elebert, lék mjög vel gegn ÍBV í síðustu umferð þegar Breiðablik vann afar dýrmætan sigur. Skammtar fólki lyf og skýst svo um völlinn  Andri Rafn Yeoman kann bara stuttu söguna á bak við bandaríska ættarnafnið Lið 13. umferðar í Pepsi-deild karla 2012 3-5-2 Ingvar Þór Kale Breiðabliki Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 2 Jóhann Laxdal Stjörnunni Haraldur Freyr Guðmundsson Keflavík Davíð Þór Ásbjörnsson Fylki Arnór Ingvi Traustason Keflavík Andri Rafn Yeoman Breiðabliki Rúnar Már Sigurjónsson Val Bjarni Guðjónsson KR Bjarki Gunnlaugsson FH Matthías Guðmundsson Val Gary Martin KR 2 3 2 2 3 4 4 4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2012 Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Hvernig sem undanúrslitaleikur Stjörnunnar og Þróttar úr Reykja- vík í bikarkeppninni í fótbolta endar í kvöld er ljóst að úrslitin verða söguleg. Það er nefnilega gulltryggt að nýtt lið spilar til úrslita um bik- arinn í ár, hvort sem það verða Stjörnumenn, undir stjórn Bjarna Jóhannssonar, eða Þróttarar, með Pál Einarsson við stjórnvölinn, sem hrósa sigri í Garðabænum. Að sjálfsögðu eru Garðbæingarnir mun sigurstranglegri aðilinn í þess- ari viðureign. Þeir eru í toppbaráttu úrvalsdeildarinnar og hafa aðeins tapað einu sinni í fyrstu 13 leikjum sínum á Íslandsmótinu. Á meðan hafa andstæðingar þeirra í Þrótti verið í bölvuðu basli í 1. deildinni en hafa þó rétt hlut sinn talsvert að undanförnu og hafa aðeins tapað einum af síðustu sex leikjum sínum. Auk þess sem þeir hafa slegið Val og Fylki út úr bikarnum. Sex töp Þróttar í undanúrslitum En þegar kemur að sögunni eru það Þróttarar sem hafa gert meiri rósir í bikarnum en mótherjar þeirra. Þetta er í sjöunda sinn sem þeir komast í undanúrslit bikar- keppninnar. Síðast gerðist það 2006 þegar þeir fóru líka þangað sem fyrstudeildarlið og töpuðu naum- lega, 0:1, fyrir KR í framlengdum leik. Það var þeirra sjötta tap í jafn- mörgum leikjum í undanúrslitum frá upphafi. Stjarnan hefur hins vegar aðeins einu sinni áður komist í undanúrslit og það eru heil 18 ár síðan. Þá féllu Garðbæingar fyrir Grindvíkingum í vítaspyrnukeppni eftir að liðin skildu jöfn, 3:3. Stjarnan var þá í efstu deild en Grindavík á leið upp í hana í fyrsta sinn. Grindavík er ein- mitt líka í undanúrslitum núna og tekur á móti KR annað kvöld. Sögulegt hvernig sem fer í kvöld  Nýtt lið kemst í úrslitaleik bikarsins Bjarni Jóhannsson Páll Einarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.