Morgunblaðið - 01.08.2012, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 01.08.2012, Blaðsíða 3
Copper Box, London, Ólympíuleikar, A- riðill, þriðjudag 31. júlí 2012. Gangur leiksins: 1:1, 6:1, 13:3, 17:5, 19:8, 23:8, 24:14, 28:19, 29:22, 30:22. Mörk Íslands: Aron Pálmarsson 8, Guðjón Valur Sigurðsson 7, Alexander Petersson 5, Ólafur Stefánsson 3/2, Ingimundur Ingimundarson 3, Snorri Steinn Guðjónsson 3/1, Arnór Atlason 1, Róbert Gunnarsson 1, Ásgeir Örn Hallgrímsson 1. Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 8/2, Hreiðar Levý Guðmundsson 6. Utan vallar: 10 mínútur. Mörk Túnis: Amine Bannour 10, Issam Tej 3, Heykel Megannem 3, Oussama Boughanmi 2, Wissem Hmam 2, Jale- leddine Touati 1, Kamel Alouini 1. Varin skot: Marouen Maggaiz 8, Was- sim Helal 1. Utan vallar: 6 mínútur. Dómarar: Al-Nuaimi og Omar frá Sam. arabísku furstadæmunum. Áhorfendur: Um 3.000. Ísland – Túnis 32:22 ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2012 n. i í 5. r Skoski fram-herjinn Steven Lennon missir nær örugglega af þeim níu leikjum sem Framarar eiga eftir í Pepsi- deildinni í fót- bolta. Lennon er þríbrotinn á rist eftir að Jón Ragnar Jónsson, varnarmaður FH, braut á honum undir lok leiks liðanna á Laugardalsvellinum í fyrrakvöld. Þetta er gífurlegt áfall fyrir Fram- ara enda hefur Lennon skorað 10 mörk fyrir þá í deildinni síðan hann kom til Safamýrarliðsins fyrir ári, í júlí 2011.    Árni Þór Hallgrímsson vannfyrsta leik sinn í badminton- keppni Ólympíuleikanna í Barcelona árið 1992. Það var því ekki rétt sem fram kom í Morgunblaðinu og öðr- um fjölmiðlum í gær og fyrrakvöld að Ragna Ingólfsdóttir hefði unnið fyrsta sigur Íslendings í badminton á leiknum þegar hún sigraði litháísk- an andstæðing sinn.    Rebecca Johnson, fyrirliðisænska knattspyrnuliðsins Dalsjöfors, gekk í gær til liðs við Þór/KA og samdi við Akureyrarliðið út þetta tímabil. Hún er 23 ára sókn- artengiliður en stóð uppi án liðs þar sem Dalsjöfors, sem féll úr úrvals- deildinni í fyrra, varð gjaldþrota í sumar.    Jökull I. Elísabetarson, sem hefurleikið á miðjunni hjá Breiðabliki í fótboltanum undanfarin ár, fór í gær sem lánsmaður til Vesturbæj- arliðsins KV og leikur þar út tíma- bilið. KV trónir á toppi 2. deildar og fær þarna góðan liðsauka. Jökull er KR-ingur að upplagi eins og flest- allir leikmenn KV og hann byrjar væntanlega á Kópavogsvellinum, heimavelli sínum undanfarin ár, því KV mætir þar HK í toppslag í deild- inni í kvöld.    Breiðablik lán-aði annan leikmann í gær því sóknarmað- urinn ungi, Árni Vilhjálmsson, mun spila með Haukum í 1. deildinni út tíma- bilið. Árni hefur skorað tvö mörk í 10 leikjum Breiða- bliks í Pepsi-deildinni í sumar og er markahæsti leikmaður liðsins í deildinni ásamt Petar Rnkovic, sem var látinn fara frá Kópavogsliðinu í vikunni. Í stað þeirra eru hins vegar komnir þeir Nichlas Rohde og Ben J. Everson.    Keflvíkingar fengu í gær lánaðanframherjann Hörð Sveinsson frá Val. Hörður fór frá Keflavík til Vals fyrir hálfu öðru ári en hann gerði áður 30 mörk í 100 leikjum með Keflvíkingum í efstu deild. Fólk sport@mbl.is Kristján Jónsson í London kris@mbl.is „Mér fannst fyrri hálfleikurinn bara hrikalega góður. Langt síðan við höf- um náð þessum anda þar sem við ætlum að drepa allt sem hreyfist og stoppa alla sem koma inn fyrir níu metrana. Þetta var ótrúlega skemmtilegt og þá falla einnig ýmsir hlutir með manni. Mér fannst seinni hálfleikurinn ekki vera slakur heldur. Við vissum að þeir myndu á ein- hverjum tímapunkti komast betur inn í leikinn. Ég held að við getum verið mjög sáttir við þessa frammi- stöðu,“ sagði varnarjaxlinn Sverre Jakobsson þegar Morgunblaðið tók hann tali þegar sigurinn á Túnis var í höfn. Sverre benti á að liðið væri nú þegar komið í dauðafæri til að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum. „Nú erum við bara í dauðafæri til að komast í átta liða úrslitin. Það er náttúrlega viss sigur út af fyrir sig. Nú einbeitum við okkur að Svíunum næst og ef við vinnum þá erum við komnir áfram. Látum þetta bara ger- ast skref fyrir skref og svo sjáum við til hversu langt við náum. Ferðalagið heldur alla vega áfram og það er skemmtilegt,“ sagði Sverre við Morgunblaðið. Ferðalagið heldur allavega áfram Sterkur Sverre Jakobsson í slag við línumann Túnis. Morgunblaðið/Golli Þetta var líklega það heimskuleg- asta sem Hmam gat gert á upphafs- mínútum leiksins því þetta atvik gerði íslensku leikmennina ennþá grimm- ari. Það hefur sjaldnast verið ferð til fjár að beita íslensku landsliðsmenn- ina í handbolta bolabrögðum. Þeir hafa haft tilhneigingu til að eflast við slíkt mótlæti. Þarf nokkuð að rifja upp leikinn á móti Vestur-Þjóðverjum í Frakklandi árið 1989 þegar Alfreð Gíslason og Kristján Arason fuku báð- ir út af með rautt spjald? Nei, ég hélt ekki. Frábærir í vörninni Sverre Jakobsson og Ingimundur Ingimundarson fá mest hrós fyrir frammistöðuna í gær því þeir bera jú höfuðábyrgð á varnarleiknum sem var stórkostlegur. Þar spilaði Alexander Petersson einnig frábærlega og stöðv- aði ófáar sóknirnar. Hann er einnig búinn að finna markið og skoraði 5 mörk en hann var með slaka skotnýt- ingu í fyrsta leiknum. Þá stimplaði Björgvin Páll Gústavsson sig vel inn í mótið og varði meðal annars tvö vítaköst. Hvað sóknina varðar þá má ekki gleyma Aroni Pálmarssyni sem skor- aði átta mörk í níu tilraunum að ég held. Það er einfaldlega unun að horfa á hann spila þegar hann er í þessu stuði. Íþróttin leikur í höndunum á honum. m eftir brot Hmam mir íslenskir landsliðsmenn létu Afríkubúana finna fyrir sér  Tíu marka stórsigur marka forystu í hálfleik  Fjögur stig eftir tvo leiki  Svíarnir næstir annað kvöld Morgunblaðið/Golli Fljótur Ingimundur Ingimundarson skorar eitt þriggja hraðaupphlaupsmarka sinna án þess að Túnisbúinn Wael Jallouz nái að stöðva hann. fórna sér fyrir liðið og þjóðina og gefa allt í þetta sama á hvaða tíma sólarhringsins það er,“ sagði Björg- vin léttur en vörnin fyrir framan hann var stórkostleg í fyrri hálfleik. Mikið stríð í byrjun „Þetta var mikið stríð í byrjun. Við vissum hvernig þeir myndu spila og svöruðum þeim bara með því að berja almennilega á þeim. Þá komu nokkrir boltar sem ég þurfti bara að stýra aftur fyrir endalínuna því vörnin var búin að vinna for- vinnuna fyrir mig. Auk þess ver maður nokkra bolta aukalega af því að maður er í stuði og það er stemning í liðinu. Það var frábært að sjá liðið í heild sinni og stemn- ingin var geggjuð,“ sagði Björgvin og er ánægður með byrjun liðsins á leikunum í London. Upphaf að einhverju góðu? „Þetta byrjar vel og gæti verið byrjunin á einhverju góðu. Vonandi byggjum við ofan á þetta. Þetta eru bara fyrstu tveir leikirnir og við viljum ekki toppa núna. Við þurfum að gefa í og bæta hluti sem þarf að laga. Mikilvægt er að halda sér á tánum en þetta er vissulega frábær byrjun og gaman að byrja á góðum nótum. Andinn er mjög góður og höllin er með okkur. Við þurfum að nýta okkur það,“ sagði markvörð- urinn Björgvin Páll Gústavsson ennfremur í samtali við Morgunblaðið. eð nokkra bilaða sem fórna sér“ Morgunblaðið/Golli Ver Björgvin Páll Gústavsson fagnar í leiknum gegn Túnisbúum í gær. KNATTSPYRNA Borgunarbikar karla, undanúrslit: Samsungvöllur: Stjarnan – Þróttur R 19.15 1. deild karla: Sauðárkr.: Tindastóll – BÍ/Bolung .......... 18 Vilhjálmsvöllur: Höttur – Víkingur Ó ..... 18 Fjölnisvöllur: Fjölnir – ÍR........................ 19 Víkingsvöllur: Víkingur R. – KA.............. 19 2. deild karla: Grýluvöllur: Hamar – Afturelding........... 19 Ólafsfjörður: KF – Reynir S..................... 19 Njarðtaksvöllur: Njarðvík – Dalv/Rey.... 19 Eskifjörður: Fjarðabyggð – KFR ........... 19 Gróttuvöllur: Grótta – Völsungur ............ 20 Kópavogsvöllur: HK – KV........................ 20 Íslendingar á ÓL í dag 09.45 Hrafnhildur Lúthersdóttir í 200 m bringusundi. Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.