Monitor - 02.08.2012, Page 9
9 FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2012 MONITOR
ð
SíÝasta sem ég...
Síðasta borg sem ég
heimsótti fyrir utan
landsteinana: London sem
ég heimsótti í desember
með góðum vinum mínum
og kærustu.
Síðasti veitinga-staÝur sem ég borðaði
á: Ábyggilega Vegamót
þar sem ég fæ mér oftar
en ekki Louisiana-kjúklinga-
strimlana.
Síðasta bíómynd
sem ég horfði á: Ég
horfði á mynd í gær
sem heitir 30 Days Of Night,
vampírumynd með Josh
Hartnett sem var mjög
spes.
Síðasta húsverk sem
ég innti af hendi: Í gær
hjálpaði ég litlu frænku
minni að bera trjákofa
upp í tré sem var mjög
skemmtilegt enda langaði
mig lengi í svona sjálfur.
Síðasta skipti sem ég sagði einhverjum
að mér þætti vænt um hann: Það
hlýtur að hafa verið við kærustuna
bara mjög nýlega, annars er ég ekki að
standa mig.
nafni sem Eysteinn vinur minn á heiðurinn að, þá
einhvern veginn dró hann sig í hlé og var ekki alveg
eins áhugasamur um þetta og við hinir.
Er ákveðin verkaskipting innan hópsins?
Já, það mætti segja það. Við Pálmi semjum lagið
fyrir viðkomandi listamann, gerum taktinn við það
og pródúserum. Svo látum við Sæja fá afraksturinn
og hann sér um tæknilegu hliðina, að láta þetta
allt saman hljóma vel. Við reynum að vinna þetta
á skrifstofutíma allir saman í stúdíóinu en oft fer
þetta út í einhverja vitleysu og næturvinnu. Stund-
um vinnum við reyndar hver á sínum staðnum og
þá erum við Pálmi kannski heima og Sæi í stúdíóinu.
Þannig komumst við yfi r sem mest efni á skemmst-
um tíma.
Hvenær ákváðuð þið að taka þetta alla leið og
byrja að vinna með öðrum tónlistarmönnum?
Þetta byrjaði með því að Steindi hringdi í mig þegar
hann var að byrja með þættina á Stöð 2. Hann biður
mig að gera lag með sér eftir að hafa séð 12:00-
þættina sem enduðu alltaf á tónlistarmyndbandi.
Steindi vildi gera eitthvað svipað í sínum þáttum,
stela hugmyndinni, og ég féllst á að vera með. (Hlær)
Hann tók skýrt fram að hann vildi nota „autotune“-
popplag og úr varð Geðveikt fínn gaur sem kom vel
út. Vinsældir lagsins komu mér í opna skjöldu því ég
vissi ekkert hversu stórt batterí þetta yrði. En fyrir
það höfðum við verið að vinna eitthvað með Friðriki
Dór og Erp (Keyrumettígang) og Nylon-stelpunum
sem voru komnar með plötusamning í Bandaríkjun-
um, svo það gerðist mjög margt á stuttum tíma og
engin leið að snúa við í rauninni.
Þú hefur samið fjölmörg lög fyrir hann síðan og
ber þar helst að nefna Djamm í kvöld sem sló
rækilega í gegn á síðasta ári. Ert þú einhvers konar
vél þegar kemur að lagasmíðum?
Nei, alls ekki. Það sem gerir mann virkan í þessu
er að setja sig í ákveðinn karakter. Ég ólst upp sem
algjör rokkari en set mig bara í einhvern hip hop-gír
og þreifa mig áfram. Þegar ég er til dæmis að vinna
fyrir Pál Óskar hlusta ég á lögin hans og hugsa
hvernig lög ég myndi semja í þessum stíl. Hvað
virkar fyrir hann? Munurinn á pródúserum og fl ytj-
endum er að við getum sett okkur í hvaða karakter
sem er. Flytjandinn er kannski með ákveðna ímynd
og tónlistarstíl í gangi. Atvinnumöguleikarnir eru
fl eiri hjá pródúserum vegna þessa. Það er oft sagt að
popptónlist sé öll eins en það er einmitt oft vegna
þess að fólk gerir sér kannski ekki alltaf grein fyrir
að stundum eru bara einn eða tveir menn á bak við
öll þessi lög. Menn sem vita hvað virkar og gera þar
af leiðandi alltaf það sama eða svipað.
Hvernig efni hefur þú verið að semja fyrir nýju
þáttaröðina?
Eru fl eiri smellir á leiðinni? Fyrsta myndbandið og
lagið verða vonandi stór. Myndbandið er að
minnsta kosti tryllt og lagið er teknósturl-
un. Ég vil eiginlega ekki gefa upp mikið
meira en það verður forvitnilegt að
sjá hvernig fólk tekur í þetta.
Umboðsmaðurinn
okkar segir sjálfur
að hann nenni ekki að vera
að vesenast í einhverjum
smálöxum.