Monitor

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Monitor - 02.08.2012, Qupperneq 10

Monitor - 02.08.2012, Qupperneq 10
10 MONITOR FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2012 Hvað er annars á döfi nni hjá StopWaitGo? Við erum að vinna með Friðriki Dór að nýrri plötu hans, svo viljum við koma lögum á næstu plötu hjá Páli Óskari og erum mikið að vinna með auglýsingastofum. Það er mjög margt á leiðinni sem við höfum verið með puttana í og svo erum við mikið að senda lög út til um- boðsmannsins. Það virkar þannig að við fáum lista af listamönnum sem eru að leita sér að lögum og lýsingu á því sem þeir vilja. Svo reynum við eftir bestu getu að svara þeim kröfum, sem er erfi tt að svara frá Íslandi, og vonum að okkar lag nái inn hjá einhverju stóru nafni. Umboðsmaðurinn okkar segir sjálfur að hann nenni ekki að vera að vesenast í einhverjum smálöxum og á listanum eru alveg mjög stór nöfn sem okkur fi nnst oft yfi rþyrmandi. Um leið og múrinn er rofi nn öðlast maður traust í bransanum en þangað til erum við með nokkur minni verkefni á okkar könnu. Lifi r þú alfarið á tónlist eins og staðan er í dag? Já, það mætti segja það. Þetta er ekkert auðvelt og við fórum út til Los Angeles í fyrra til að þreifa fyrir okkur, sjá hvaða möguleika við hefðum. Þar kynntumst við umboðsmanni sem hafði mikinn áhuga á okkur og er að sjá um pródúsera á borð við Jukebox sem gerði Whip My Hair með Willow Smith. Okkur fannst samt mjög ótrúlegt að vera boðinn samningur eftir að hafa verið úti í þrjár vikur. Nú erum við búnir að vera að vinna fyrir hann í heilt ár við að koma okkur á framfæri og á meðan taka að okkur íslensk verkefni til að safna pening fyrir útlandaferðinni. Maður harkar bara í þessu. Hefur þig lengi dreymt um að starfa við tónlist á erlendum vettvangi? Tækifærið virðist vera núna ef við viljum gera eitthvað úr þessu og við verðum að taka þessa áhættu. Við erum náttúrlega að missa af öllum félögunum sem eru í skóla og að gera eitthvað sem ber öruggan árangur. Það sem hvetur mann áfram er að vita að maður á alveg sjens miðað við ýmislegt af sorpi sem er í gangi í útvarpinu. Það sem er svo skemmtilegt við Íslendinga er að núna segja allir að maður sé að fara til Los Ang- eles að meika það. Þessi frasi er svo fyndinn. Við erum að fara út til að vinna og munum aldrei vera neitt í sviðsljósinu. Við erum gaurarnir á bak við tjöldin. Auðvitað viljum við vinna okkur upp metorðastigann, Siggi gjaldkeri vill alltaf kom- ast í þjónustufulltrúann á endanum. Hvað fi nnst þér um hina íslensku tónlistarsenu? Hún hefur verið að sækja í sig veðrið upp á síðkastið. Svona þegar fólk fór að uppgötva kraftana sem búa í tónlistarforritum. Sérstaklega er mikill uppgangur í hip hop-senunni með listamönnum á borð við Gabríel, Emmsjé Gauta og Úlfi Úlfi og pródúserum eins og Basic B og Redd Lights. Það er mjög gaman að sjá þessa þróun og ég vil meina að Friðrik Dór eigi að stórum hluta heið- urinn að þessu. Hann opnaði dyrnar og gerði Íslendinga móttækilegri fyrir þessari tónlistartegund. Ísland hefur alltaf verið svo „artí“- og „indie“- sinnað land. Nýlega settir þú mynd af blóðugum höndum þínum á Instagram og sagðist hafa verið krossfestur. Hvað gerðist eiginlega? Þetta var eig- inlega mjög asnalegt at- vik. Ég var að hjóla, lenti í sandi og fl aug af hjólinu. Þetta lúkkaði svolítið eins og ég væri krossfestur eða sárin það er að segja. Vinir þínir segja þig latan að eðlisfari. Hafa þeir eitthvað til síns máls? Já, kannski á einhvern hátt. Ég er latur þegar kemur að einhverju sem ég hef ekki áhuga á. Ég hef mikinn metnað fyrir því sem skiptir mig máli en lagði til dæmis ekki mikið í námið í Verzló. Í kjölfarið var ég einmitt rekinn úr dagskólanum sem var mjög erfi tt fyrir mig af því að mér fannst ég ekki eiga það skilið. Á þessum tíma hafði ég líka verið í smá-persónulegri krísu og ekki alveg tilbúinn í svona dæmi. Síðan bráðlega eftir þetta kom Steindalagið út og satt best að segja hafði það mjög mikla þýðingu fyrir mig akkúrat á þessum tímapunkti. Kannski væri ég bara ræsisrotta í dag ef Steindi hefði ekki komið til mín. Hvar sérðu sjálfan þig eftir fi mm ár? Ég vil vera kominn með meiri festu í lífi nu og því sem ég er að gera í dag. Vonandi verð ég að semja tónlist og framfl eyta mér á því, hvort sem það er í Bandaríkjunum eða annars staðar. Maður vill bara gera eins og allir aðrir, afl a sér tekna og lifa lífi nu. Kæmi til greina að starfa við eitthvað annað en tónlist? Já, algjörlega. Ég sé bara til hvernig þetta gengur og ef allt fer til fjandans þá fer ég bara í skóla eða reyni að komast inn í þáttagerð eða eitthvað slíkt. Við bræðurnir reyndum nú að blanda þessu saman í fyrra þegar við unnum hjá FM957 í Villta Vestrinu en það reyndist vera alltof mikil vinna. Heimildir Monitors herma að þú sért fær teiknari og hafi r jafnvel áhuga á arkitektúr. Er eitthvað til í því? Já, það gæti reyndar alveg gerst. Fjölskyldan mín er mikið á listræna sviðinu svo það er kannski eðli- legt að ég hafi leiðst út í þann geira líka. Systir mín er fatahönnuður, móðursystir mín er ljósmyndarinn Anna Pálma og starfar í New York og bróðir ömmu minnar er einmitt arkítekt sem hefur teiknað fjöldann all- an af húsum, meðal annars einhver glæsihús á Arnar- nesinu. Skyldmenn- in og velgengni þeirra gefa manni hvatningu. Ef þú ættir að teikna mynd núna, hvað myndir þú teikna? Kannski þennan lunda bara? (Tekur upp Lunda Pysjuson, fyrrverandi forsíðufyrirsætu Monitor) ÁSGEIR Á 30 SEKÚNDUM Fyrstu sex: 100490. Uppáhaldsmatur: Jólamaturinn sem er einhver mömmuuppskrift að svínakjöti í sinnepssósu. Uppáhaldsstaður í heiminum: Verður maður ekki að segja stúdíóið? Uppáhaldstónlistarmaður: Þeir eru margir en ef ég þarf að velja einn þá er það Kanye West þar sem hann er bæði góður fl ytjandi og pródúser. Lag í uppáhaldi þessa dagana: Spectrum-remixið sem Calvin Harris gerði fyrir Florence & The Machine. Æskufyrirmynd: Ég held ég verði að segja Slipknot. Auðvitað viljum við vinna okkur upp metorðastigann, Siggi gjaldkeri vill alltaf komast í þjónustu fulltrúann á endanu m Kannski væri ég bara ræsisrotta í dag ef Steindi hefði ekki komið til mín.

x

Monitor

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.