Morgunblaðið - 05.09.2012, Page 3
Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason
ð.
sýn-
utan
mælisgjöf
aður
nar
r.
gva-
ans í
ttir
g-
með
nnar
r Lár-
m lék
tr-
ón-
anns
á
byrj-
kom
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2012
Tiger Woodsætti að eiga
fyrir salti í graut-
inn en með því
verðlaunafé sem
hann fékk fyrir
að lenda í þriðja
sæti á Deutsche
Bank Cham-
pionship-mótinu í
golfi sem lauk í fyrrakvöld hefur
hann náð að vinna sér inn 100 millj-
ónir dollara í verðlaunafé og er hann
fyrsti kylfingurinn í heiminum sem
nær þeim áfanga.
Evgeny Trefilov, hinn skrautlegiþjálfari rússneska kvenna-
landsliðsins í handknattleik, fékk
reisupassann hjá stjórn rússneska
handknattleikssambandsins. Trefi-
lov hefur stýrt rússneska liðinu und-
anfarin 13 ár og undir hans stjórn
urðu Rússar fjórum sinnum heims-
meistarar, 2001, 2005, 2007 og 2009,
unnu silfurverðlaun á Ólympíu-
leikunum í Peking 2008 og bæði silf-
ur og brons á Evrópumótinu. Trefi-
lov er vægast sagt litríkur karakter
en hann á það til að láta leikmenn
sína fá það óþvegið með því að öskra
á þá og kalla þá öllum illum nöfnum.
Jan Vertonghen, belgíski mið-vörðurinn sem nú er liðsfélagi
Gylfa Þórs Sigurðssonar hjá Tott-
enham, hefur verið útnefndur besti
leikmaður hollensku úrvalsdeild-
arinnar á síðustu leiktíð. Verton-
ghen var öflugur í vörn Ajax sem
varð hollenskur meistari með Kol-
bein Sigþórsson innanborðs.
FramherjinnMichael
Owen gekk í gær
til liðs við enska
úrvalsdeildarliðið
Stoke og samdi
við liðið til eins
árs. Owen var án
félags en honum
var ekki boðinn
nýr samningur
þegar hann rann út eftir síðustu
leiktíð. Owen er 32 ára gamall og hóf
feril sinn með Liverpool. Hann lék í
átta ár með liðinu áður en hann gekk
í raðir Real Madrid. Owen staldraði
stutt við hjá Madridarliðinu en hann
var aðeins eitt tímabil með því og fór
þaðan til Newcastle sem hann lék
með í fjögur ár áður en hann samdi
við Manchester United.
Fólk folk@mbl.is
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
„Þetta er frábær tilfinning, alveg
ólýsanleg. Sjáðu umgjörðina hér á
Þórsvellinum í kvöld, yfir þúsund
manns að horfa á og meistaraflokkur
karla með flugeldasýningu! Það er
ekki hægt að biðja um það betra. Og
ekki hægt að hafa sigurinn meira
sannfærandi,“ sagði Jóhann Kristinn
Gunnarsson, þjálfari Þórs/KA, sigri
hrósandi í gærkvöldi.
Þjálfarinn sagði umræðu í sumar
um heppni Akureyrarliðsins, og
fregnir af því að leikmenn og þjálf-
arar annarra liðu skildu vart hvernig
norðanstúlkurnar gætu verið efstar,
hafa þjappað hópnum saman. Tíð-
indin hefðu vissulega farið illa í
suma, „en þegar öllu er á botninn
hvolft þá látti þetta mér vinnuna inni
í klefa fyrir leiki. Þetta hvatti liðið og
ég vil nota tækifærið og þakka fjöl-
miðlum kærlega fyrir hjálpina. Gott
ef Morgunblaðið var ekki einna
fremst í flokki í því“! sagði Jóhann og
brosti út að eyrum.
Jóhann Gunnar sagði margar
stúlkur í liðinu hafa þroskast mikið
sem leikmenn í sumar „og ekki síður
sem persónur við mótlæti eins og
þessa umræðu. Hópurinn var
snemma í sumar ákveðinn í því að
fara alla leið; að verða meistarar, og
ég get alveg játað það núna að það
eru margir leikir síðan mér fannst
þetta vera klárt“.
Heilladísir
Þjálfarinn sagði liðið vissulega
hafa verið heppið í sumum leikjum,
enda nefndi hann það sjálfur á sínum
tíma. „En lið sækja sér heppni; það
þarf að vinna fyrir því að hafa eina,
jafnvel eina og hálfa heilladís, með
sér í liði til að ýta boltanum framhjá
stönginni þegar mótherjinn skýtur
eða til að ýta aðeins undir rassinn á
okkur. Þannig er það bara. En stelp-
urnar hafa unnið rosalega vel í sum-
ar og það skilar sér. Það er gríð-
arlega mikil vinna á bak við þennan
árangur. Við vönduðum okkur líka
mjög þegar hugað var að styrkingu á
liðinu; útlendingarnir okkar eru mjög
góðir, bæði sem leikmenn og persón-
ur, og pössuðu frábærlega inn í hóp-
inn. Ungu stelpurnar hafa lært mjög
mikið af þeim í sumar.“
Bandaríski útherjinn Kayle Grims-
ley hefur leikið gríðarlega vel með
Akureyrarliðinu. „Það hefur mikið
verið talað um að við værum heppnar
en þær efasemdaraddir styrktu okk-
ur bara. Og vegna þess er tilfinn-
ingin núna alveg stórkostleg,“ sagði
hún við Morgunblaðið, sigri hrós-
andi.
Arna Sif Ásgrímsdóttir fyrirliði er
aðeins tvítug. Hún hefur aldrei leikið
í vörn fyrr en í sumar en vart stigið
feilspor. „Mér gekk ótrúlega vel og
það að fá að vera fyrirliði í svona frá-
bæru liði gaf mér aukið sjálfstraust.“
Arna Sif setti sér fjögur markmið
fyrir sumarið. „Að við myndum lenda
í einum af þremur efstu sætunum og
að ég myndi skora að minnsta kosti
fjögur mörk. Hin tvö markmiðin eru
mín leyndarmál. Ég segi því ekki
meira – nema bara að þau rættust
líka.“
Sjá má myndbandsviðtöl á
mbl.is við Örnu Sif Ásgrímsdóttur
fyrirliða, Söndru Maríu Jessen og
Katrínu Ásbjörnsdóttur.
Neikvæð umræða
létti mér vinnuna
Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason
Fögnuður Akureyringar trylltust úr fögnuði þegar Þór/KA varð Íslandsmeistari á 150 ára afmæli kaupstaðarins.
Þjálfari Þórs/KA segir tal um heppni hafa komið sér mjög vel
KR er fallið úr efstu deild kvenna í
knattspyrnu í fyrsta skipti í sögu fé-
lagsins. KR sendi fyrst lið til keppni á
Íslandsmótinu árið 1981 og hefur
verið í efstu deild 32 keppnistímabil í
röð. Þar til á næsta tímabili en þá
leikur KR í 1. deild þar sem liðið
hafnar í neðsta sæti Pepsídeild-
arinnar 2012. Á næsta ári verður
Valur eina liðið sem ávallt hefur leik-
ið í efstu deild.
KR tapaði 4:0 fyrir Aftureldingu á
heimavelli í Frostaskjólinu í gær-
kvöldi en með sigrinum náði Aftur-
elding að styrkja stöðu sína verulega
í fallbaráttunni. FH sigraði Fylki 3:1
á sama tíma og Fylkir er í næst-
neðsta sæti með 12 stig, þremur stig-
um á eftir Aftureldingu. Fylkir fær
nýkrýnda Íslandsmeistara í Þór/KA í
heimsókn í lokaumferðinni. Aftur-
elding tekur þá á móti Val í Mosfells-
bænum.
„Ég vona að við séum komnar
langleiðina með að bjarga okkur en
til að vera alveg öruggar með þetta
þurfum við bara að taka Val í annað
skiptið á laugardaginn,“ sagði
Sandra Dögg Björgvinsdóttir, fyr-
irliði Aftureldingar, í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi. Hún sagði
það ekki hafa verið erfitt að ná upp
stemningu í leikmannahópnum fyrir
fallslaginn. „Ég held að helming-
urinn hafi ekki sofið um helgina út af
þessum leik og við töluðum allar um
að við værum að deyja úr stressi. Allt
var gert til að koma sér í gírinn fyrir
leikinn. Stemningin var gífurleg inni
í búningsklefa fyrir leikinn og ég hef
sjaldan séð annað eins. Ég veit ekki
af hverju þessi stemning hefur ekki
verið til staðar í allt sumar. Þá hefð-
um við getað gert góða hluti,“ sagði
Sandra við Morgunblaðið.
ÍBV komst upp að hlið Stjörn-
unnar í 2.-3. sæti deildarinnar með
3:1-sigri í Garðabænum. ÍBV á
heimaleik gegn KR í síðustu umferð
og Stjarnan útileik á Selfossi. Breiða-
blik vann stórsigur á Val á Hlíð-
arenda, 4:0, en sá leikur hafði litla
þýðingu þar sem liðin eru í 4. og 5.
sæti deildarinnar. kris@mbl.is
KR-konur féllu í fyrsta skipti
Fyrirliði Sandra Dögg sagðist aldrei
hafa séð aðra eins stemningu.
KA-menn, undir
stjórn Skaga-
mannsins Gunn-
laugs Jónssonar,
halda enn í von-
ina um að komast
upp í deild þeirra
bestu í knatt-
spyrnu karla, eft-
ir góðan sigur
gegn Haukum á
gervigrasinu á
Ásvöllum í Hafnarfirði í gærkvöld.
Hallgrímur Mar Steingrímsson og
Jóhann Helgason skoruðu mörk KA-
manna á síðustu 25 mínútum leiks-
ins.
KA komst með sigrinum upp í 3.
sæti deildarinnar. Liðið hefur 321
stig, Víkingur Ólafsvík er með 35 og
Þór hefur 41 stig og er þegar búið að
tryggja sér sæti í deild þeirra bestu.
Vonir Haukanna, undir stjórn
Ólafs Jóhannessonar, um að komast
upp eru nánast úr sögunni en liðið
hefur 30 stig og á tvo leiki eftir með-
an liðin fyrir ofan, að undanskildum
KA-mönnum, eiga þrjá leiki eftir.
gummih@mbl.is
KA-menn
halda enn
í vonina
Jóhann
Helgason