Morgunblaðið - 05.09.2012, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 05.09.2012, Qupperneq 4
Í LONDON Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Þó að afraksturinn sé þegar kominn fram úr væntingum, hreint út sagt stórglæsilegur, er þátttöku Íslend- inga á Ólympíumóti fatlaðra í London hvergi nærri lokið. Allir fjórir fulltrú- ar okkar eiga eftir að keppa áður en vikan er úti og enn er von um fleiri verðlaun en gullið dýrmæta sem Jón Margeir Sverrisson sótti í skriðsund- inu. Gullið hans gerir það að verkum að afrakstur Íslendinga í London er langsamlega bestur sé miðað við höfðatölu. Í fljótu bragði sýnist mér Fiji-eyjar eina landið með færri en milljón íbúa sem fengið hefur gull, en þar búa þó hátt í þrefalt fleiri en á Ís- landi. En nóg um svona bollaleggingar. Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir tekur upp þráðinn fyrir íslenska hópinn í dag þegar hún keppir í undan- úrslitum í 200 metra hlaupi kl. 9:49. Matthildur náði sem kunnugt er mjög góðum árangri í langstökki á föstu- dag, 8. sæti, en það er hennar besta grein. Í 100 metra hlaupi varð hún í neðsta sæti og í 200 metra hlaupinu er hún einnig með lakasta tímann af 15 keppendum. Það verður því við ramman reip að draga í dag. Besti skráði tími Matthildar er 33,76 sek- úndur en gangi allt að óskum í dag mun hún koma í mark á minna en 32 sekúndum. Það mun þó varla duga til að komast í átta manna úrslitin. Jón Margeir og Kolbrún Alda Stef- ánsdóttir keppa í 100 metra bringu- sundi á morgun og Helgi Sveinsson lýkur veislunni fyrir Ísland með keppni í 100 metra hlaupi og spjót- kasti á föstudag. Þar má gera sér vonir um verðlaun í spjótkastinu. Ljósmynd/Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir Gull Ísland er ein af um 50 þjóðum sem fengið hafa gull í London. Enn getur íslenski hópurinn bætt við glæsilegan árangur FÓTBOLTI Tómas Þór Þórðarson tomas@mbl.is „Það er alltaf gaman þegar maður dettur inn á svona daga þegar allt gengur upp,“ segir Ingvar Jónsson, markvörður Stjörnunnar, sem átti stórleik þegar Garðbæingar unnu Val, 2:0, í 18. umferð Pepsi- deildarinnar síðastliðinn sunnudag. „Það var líka gaman að halda hreinu. Maður er orðinn allt of vanur því að ná í boltann í netið,“ segir Ingvar og hlær við en Stjarnan hef- ur fengið á sig 31 mark í sumar, langflest allra liða í efstu fjórum sætunum. Vörnin öll að koma til Skemmtikraftarnir í Stjörnunni hafa í undanförnum þremur leikjum prófað að verjast almennilega og gert það af myndarskap. Stjörnulið- ið hefur aðeins fengið á sig tvö mörk í síðustu þremur leikjum, halað inn sjö stigum af níu og er jafnlíklegt og KR ef ekki líklegra til að ná öðru sætinu í deildinni. „Svona vörn hefur maður ekki séð í langan tíma. Ég fékk varla færi á mig á móti ÍBV um daginn. Ég veit ekki hvort við erum svona þreyttir eða hvað þannig menn bakki bara. Við höfum kannski lært af fyrri mis- tökum okkar en við erum allavega að spila góða vörn,“ segir Ingvar sem er sammála því að mikill kraftur er í Stjörnumönnum núna. Þeir eru alls ekki að dala eins og þeir hafa átt til undir lok móts undanfarin ár. „Menn ætla sér þetta Evrópusæti. Það er svo einfalt. Mér finnst liðið líka eiga það skilið. Það var hrika- lega svekkjandi í fyrra að missa af Evrópusætinu. Menn tóku því illa og voru svekktir. Það er líka bara mik- ilvægt fyrir klúbbinn að taka næsta skref og komast í Evrópukeppni. Það væri frábært bara til að halda öllum á tánum,“ segir Ingvar. Vildi ekki enda sem varamaður Ingvar var orðinn aðalmarkvörð- ur síns uppeldisfélags, Njarðvíkur, nítján ára gamall. Fljótlega var hann farinn að vekja athygli, var einn albesti markvörður neðri deild- anna á landinu. Þrátt fyrir frábæra frammistöðu var nánast alltaf horft fram hjá hon- um þegar kom að því að velja í U19 og U21 árs landslið Íslands. Hann naut sjaldan sannmælis þrátt fyrir að halda Njarðvík oft á floti og biðu margir eftir því hvenær hann tæki skrefið í efstu deild. Fannst mörgum þrjú ár í Njarðvíkinni vera fullmikið. „Ég vildi ekki taka skrefið of snemma og enda sem varamaður í einhver ár. Ég vandaði val mitt en þegar við féllum úr 1. deildinni 2010 fannst mér ég verða fara eitthvað annað. Ég gaf mér góðan tíma til að hugsa en var aldrei í vafa um hvert ég ætlaði þegar Stjarnan talaði við mig. Ég hefði alveg getað farið fyrr í efstu deild en mér fannst það ekki gáfulegt. Það er mikilvægt fyrir unga markverði að spila,“ segir Ingvar sem mælir með því fyrir unga markverði að fá reynslu í neðri deildum. Hann ætti að þekkja það. „Það er allt annað að spila meist- araflokksfótbolta en 2. flokk. Þetta er ekki sami hluturinn. Svo þurfa menn líka að finna fyrir ábyrgðinni að vera númer eitt en ekki einhver varamaður. Maður getur æft eins og hestur en þegar maður fer að spila reglulega bætirðu þig á allt annan og betri hátt,“ segir Ingvar. Langar í landsliðið Ingvar fékk smjörþefinn af lands- liðinu fyrr í sumar þegar hann var tekinn inn í hópinn fyrir æfingaleik- inn gegn Færeyjum. Það er eitthvað sem hann langar að upplifa aftur. „Það hefur alltaf verið draum- urinn að spila fyrir Ísland. Sér- staklega núna þegar við erum með svona spennandi lið. Það var gaman að fá tækifæri að kynnast þessu og sjá að þetta er ekkert svo fjarlægur draumur ef maður stendur sig,“ seg- ir Ingvar Jónsson. Landsliðið er draumurinn  Ingvar Jónsson er leikmaður 18. umferðar hjá Morgunblaðinu  Skellti í lás gegn Valsmönnum  Tók skrefið í efstu deild á réttum tíma  Landsliðið ekki fjarlægur draumur  Stjarnan í Evrópu 4-5-1 Ingvar Jónsson Stjörnunni Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 2 Leikmenn Atli Guðnason, FH 17 Guðjón Árni Antoníusson, FH 16 Rúnar Már Sigurjónsson, Val 16 Gary Martin, KR/ÍA 15 Jóhann B. Guðmundsson, Keflavík 14 Ármann Smári Björnsson, ÍA 13 Christian Olsen, ÍBV 13 Kristinn Jónsson, Breiðabliki 13 Kennie Chopart, Stjörnunni 12 Kristinn Ingi Halldórsson, Fram 11 Óskar Örn Hauksson, KR 11 Jón Daði Böðvarsson, Selfossi 11 Bjarki Gunnlaugsson, FH 11 Brynjar Gauti Guðjónsson, ÍBV 11 Jóhannes Karl Guðjónsson, ÍA 11 Arnór Ingvi Traustason, Keflavík 10 George Baldock, ÍBV 10 Björn Daníel Sverrisson, FH 10 David Elebert, Fylki 10 Ingimundur N. Óskarsson, Fylki 10 Samuel Hewson, Fram 10 Lið: FH 110 ÍBV 98 Keflavík 85 KR 84 Selfoss 84 Breiðablik 83 ÍA 82 Fram 82 Stjarnan 81 Valur 78 Fylkir 73 Grindavík 66 Kristinn Ingi Halldórsson, Fram 10 Atli Guðnason, FH 10 Kjartan Henry Finnbogason, KR 8 Björn Daníel Sverrisson, FH 8 Garðar B. Gunnlaugsson, ÍA 7 Ingimundur N. Óskarsson, Fylki 7 Kolbeinn Kárason, Val 7 Christian Olsen, ÍBV 7 Guðmundur Steinarsson, Keflavík 7 Jón Daði Böðvarsson, Selfossi 7 Rúnar Már Sigurjónsson, Val 7 Pape Mamadou Faye, Grindavík 6 Jóhann B. Guðmundsson, Keflavík 6 Guðjón Árni Antoníusson, FH 6 FH (9) 14.457 1.606 KR (9) 14.431 1.603 ÍA (9) 12.523 1.391 Valur (9) 12.173 1.353 Breiðablik (9) 9.860 1.096 Fylkir (9) 9.202 1.022 Fram (9) 8.839 982 Keflavík (9) 7.840 871 Selfoss (9) 7.624 847 Stjarnan (9) 7.323 814 Grindavík (9) 6.177 686 ÍBV (9) 6.103 678 Samtals: 116.552 Meðaltal: 1.079 18. umferð í Pepsi-deild karla 2012 Lið umferðarinnarEinkunnagjöfin Þessir erumeð flest M í einkunnagjöf Morgunblaðsins. Gefið er eitt M fyrir góðan leik, tvöM fyrir mjög góðan leik og þrjú M fyrir frábæran leik. Spjöldin Markskotin Aðsóknin Markahæstir Fjöldi heimaleikja í svigum. Fremri talan er heildarfjöldi áhorfenda á heimaleikjum viðkomandi liðs en aftari talan ermeðaltal á hvern heimaleik. ÍBV 249 (143) 28 FH 218 (120) 43 KR 211 (118) 32 Stjarnan 207 (99) 37 Fram 196 (108) 27 Keflavík 185 (92) 27 Breiðablik 185 (88) 22 Valur 184 (94) 28 Selfoss 180 (91) 25 ÍA 173 (87) 28 Fylkir 161 (88) 22 Grindavík 147 (72) 25 Fremst eru heildar markskot liðanna, skot sem hitta ámarkið eru í sviga og aftast eru skoruðmörk: ÍA 30 0 30 KR 33 1 37 Fram 38 0 38 Breiðablik 34 2 42 ÍBV 38 1 42 Stjarnan 31 3 43 Grindavík 35 2 43 FH 36 2 44 Valur 43 1 47 Selfoss 46 2 54 Fylkir 43 3 55 Keflavík 42 5 62 Gul Rauð Stig Brynjar Gauti Guðjónsson ÍBV Kristinn Jónsson BreiðablikiFreyrBjarnason FH Daníel Laxdal Stjörnunni Kristinn Ingi Halldórsson Fram Jón Daði Böðvarsson Selfossi Babacar Sarr Selfossi Viktor Örn Guðmundsson FH Samuel Tillen Fram Rafn Andri Haraldsson Breiðabliki 2 3 2 4 2 43 5 Morgunblaðið/Árni Sæberg Góður Ingvar Jónsson í baráttu við Fylkismanninn Jóhann Þórhallsson. 4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2012

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.