Morgunblaðið - 13.09.2012, Blaðsíða 13
13. september 2012 finnur.is 13
Eigulegir hlutir
Kolsvart og lauflétt
um hálsinn
Það gildir víst í dag að ef á að
gera einhvern hlut betri þá dug-
ar að bæta við koltrefjum. Því
meira af koltrefjum, því betra, er
mottó framleiðenda
sportbíla, armbands-
úra, reiðhjóla, skart-
gripa og húsmuna.
Breska tískumerk-
ið Alfred Dunhill er
enginn eftirbátur
annarra í þessum
efnum og hefur nú
sent frá sér þessi
kraga-stífelsi úr kolt-
refjum. Yfirleitt eru
þessi stykki gerð úr
ódýru plasti en fínni týp-
ur úr málmi þekkjast
einnig og þá iðulega húð-
aðar með silfri eða gulli.
Koltrefjarnar ná að blanda
saman kostum beggja efna:
þær eru léttar og nettar en
um leið „hipp og kúl“ og
hæfilega dýrar fyrir þá sem
finnst þeir ekki eyða nógu
miklum peningum.
Parið kostar 70 dollara í net-
versluninni Dunhill.com, og á þá
eftir að bæta við sending-
arkostnaði og gjöldum.
ai@mbl.is
Óskaiðjan?
Ég er svo brjálæðislega
heppinn að vinna við það
sem mig langar til að vinna
við. Óskin væri því að vera
mestmegnis að gera bara
skemmtileg verkefni. „So
far so good …“
Óskamaturinn?
Mér finnst svakalega
gaman að elda og geri tölu-
vert af því. En besti mat-
urinn er yfirleitt það sem
aðrir elda og maturinn hjá
ömmu vermir flest efstu
sætin. Gamli góði heim-
ilismaturinn klikkar aldrei.
Kjötsúpa, slátur, sviða-
kjammar, læri og fleira í þeim dúr.
Draumabíllinn?
Við eigum 7 ára gamlan VW Golf
sem við erum búin að vera á leiðinni
að selja í 2-3 ár. En við finnum aldrei
bíl sem við værum ánægðari með en
hann. Svo ætli bíllinn minn sé ekki
bara draumabíllinn? Kannski
nýrri árgerð ef eitt-
hvað er.
Draumaverk-
efnið?
Áður en ég byrj-
aði að vinna við
grafíska hönnun
átti ég mér þrjú
draumaverkefni:
Hanna Verlzó-blaðið, gera grafík á flugvél og
útlit fyrir Rocky Horror-sýningu. Ég var svo
heppinn að hanna V71-blaðið með góðum vin-
um fyrir nokkrum árum, en hin verkefnin bíða
enn. Spurning að leggja til nýja
hugmynd á WOW-flugvél-
arnar í vinnunni? Og
bíða eftir næstu RH-
uppfærslu.
Hvað vantar helst
á heimilið?
Draumastól-
inn minn. Vil ekki
tilgreina hvaða
stóll það er
samt … það er
svo fyrirsjáanlega
klisjulegt val.
Hvaða ofur-
hetjumátt vildirðu
helst hafa?
Að hafa endalaust flæði
af frábærustu hugmyndum
sem til eru. Ótrúlega
spennandi ofurhetja
það.
Hvað er best
heima?
Fólkið sem býr
þar. Allt hitt skiptir
voða litlu máli þeg-
ar upp er staðið.
jonagnar@mbl.is
Óskalistinn Hörður Lárusson
Ömmumatur í
efstu sætunum
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Hörður Lárusson, grafískur hönnuður og formaður FÍT (Félags íslenskra
teiknara), hefur getið sér gott orð fyrir margvísleg verkefni og þá ekki síst
bækur sínar um þjóðfána lýðveldisins og fánalögin í framhaldinu. Nýverið
réð hann sig til auglýsingastofunnar Brandenburg og verður þess vafa-
laust ekki langt að bíða áður en hann lætur þar að sér kveða með afger-
andi grafískum hætti. Það er því ekki úr vegi að inna þetta óskabarn þjóð-
arinnar úr röðum grafískra hönnuða eftir hans eigin óskalista. Hann er
sem hér segir:
Rauðagerði 25 108 Reykjavík Sími 440 1800 kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þéri i
Verð kr. 99.900
Vita Mix kanna fylgir með
meðan birgðir endast
Blandarinn sem
allir vilja!