Morgunblaðið - 11.10.2012, Page 3
Á VARMÁ
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Haukar gerðu skyldu sína á Varmá í
gærkvöldi þegar þeir tryggðu sér tvö
stig úr viðureigninni við Aftureldingu
og tylltu sér um leið einir á topp úrvals-
deildar karla í handknattleik, N1-
deildina. Bikarmeistararnir úr Hafn-
arfirði léku lengst af ágætlega og voru
ævinlega skrefi á undan leikmönnum
Aftureldingar sem sitja sem fyrr á
botni deildarinnar og eru enn án stiga
að loknum fjórum umferðum. Lokatöl-
ur voru 27:22, á Varmá í gær eftir að
gestirnir voru með fjögurra marka for-
ystu að loknum fyrri hálfleik 13:9.
Haukar tóku fljótlega frumkvæðið í
leiknum, jafnt í vörn sem sókn. Skarð
var fyrir skildi hjá Mosfellingum að
Örn Ingi Bjarkason gat ekki leikið með
vegna meiðsla. Aðrir leikmenn urðu
fyrir vikið að taka meiri ábyrgð. Gekk
þeim misjafnlega að standa undir
henni. Til dæmis skoruðu aðeins þrír
Mosfellingar í fyrri hálfleik sem alls
ekki getur talist viðunandi.
Fín vörn og markvarsla
Varnarleikur Hauka var eins og yf-
irleitt áður í leikjum deildarinnar í
haust fínn og markvarslan fín í fyrri
hálfleik. Gierdrius Morkaunas náði sér
hinsvegar ekki á strik í síðari hálfleik
og leysti Aron Rafn Eðvarðsson hann
af síðasta stundarfjórðunginn og varði
vel. Aron hefur fundið til meiðsla í nára
síðustu daga og var því ekki teflt fram
fyrr en liða tók á leikinn.
Haukar voru með tveggja til fjögurra
marka forskot allan fyrri hálfleikinn en
einhvern veginn fannst manni að þeir
gætu gert betur í sóknarleiknum. Hefði
ekki verið fyrir alltof mörg mistök Aft-
ureldingarmanna í sóknarleiknum hefði
leikurinn verið jafnari en raun varð á.
Haukarnir voru ekki nægilega ein-
beittir í byrjun síðari hálfleiks en sem
fyrr voru leikmen Aftureldingar alltof
miklir klaufar til þess að nýta sér það til
þess að jafna metin. Haukar náðu hins-
vegar smátt og smátt áttum þegar á
leið og tryggðu sér nokkuð öruggan
sigur.
Sem fyrr segir var slæmt fyrir Mos-
fellinga að hafa ekki sinn besta leik-
mann. En það afsakar samt ekki alltof
mörg mistök í sóknarleiknum, einföld
mistök eins og slakar og vanhugsaðar
sendingar. Á stundum virðist liðið
reyna að leika af meiri hraða í sókn-
arleiknum en það ræður við. Eflaust
bætir ekki úr skák að sjálfstraust
manna fer þverrandi. En þrátt fyrir allt
var sóknarleikurinn skárri nú en gegn
Val í síðustu umferð.
Eins og áður hefur verið lýst í um-
fjöllun um leik Hauka í haust á liðið
talsvert inni í sóknarleiknum. Hægri
vængurinn er t.d. lítt virkur. Liðið nær
fínum köflum í sóknarleik sínum en
dettur á stundum niður. En það er nóg
eftir af mótum og liðið er efst og ekki
hægt að kvarta yfir því.
Haukarnir voru skrefi
á undan í Mosfellsbæ
Afturelding situr enn á botninum án stiga Alltof mörg mistök í sóknarleiknum
Morgunblaðið/Kristinn
Í sóknarhug Adam Baumruk sækir að Þrándi Gíslasyni Roth, Aftureldingu, en Stefán Rafn Sigurmannsson, Tjörvi
Þorgeirsson og Hilmar Stefánsson fylgjast með framvindu mála og Hilmar virðist hafa allskostar við Tjörva.
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2012
Björn RóbertSigurð-
arson, landsliðs-
maður í íshokkíi,
skoraði tvívegis
fyrir Hvidovre í
næstefstu deild-
inni í Danmörku
um helgina. Hvi-
dovre vann topp-
lið deildarinnar Gentofte Stars 6:2.
Björn gekk til liðs við Hvidovre frá
Skautafélagi Reykjavíkur í sumar en
hann er einnig gjaldgengur í U-20 ára
lið félagsins sem er öflugt. Hvidovre
er í 6. sæti deildarinnar en Íslend-
ingaliðið Amager er í 5. sæti.
Björninn vann mjög öruggan sigurá SR Fálkum, 12:2, á Íslands-
móti karla í íshokkí í fyrrakvöld.
Daniel Kolar skoraði 3 mörk og þeir
Ólafur Hrafn Björnsson, Falur Birk-
ir Guðnason og Brynjar Bergmann 2
mörk hver. Björninn hefur unnið
fyrstu fjóra leiki sína í deildinni.
Gestur Jónsson, leikmaður Vík-ings, var úrskurðaður í eins
leiks bann á fundi aganefndar HSÍ í
fyrradag vegna brots á síðustu and-
artökum viðureignar Víkings og ÍBV
í 1. deild karla í handknattleik í síð-
ustu viku. Gestur tekur út leikbannið
þegar Víkingur sækir Gróttu heim
annað kvöld.
Ingvar Jóns-son, mark-
vörður knatt-
spyrnuliðs
Stjörnunnar,
flaug utan til
Kristiansund í
Noregi í fyrradag
þar sem hann
mun skoða að-
stæður og æfa með liðinu næstu
daga. „Þetta kom upp fyrir svona
viku. Mér var boðið að koma og æfa,“
sagði Ingvar í samtali við mbl.is í gær
en áhugi er hjá liðinu á því að semja
við markvörðinn unga. „Þeir virka
áhugasamir um mig og liðið virðist
vera stórhuga. Það er á leiðinni upp í
B-deildina. Þetta lítur mjög vel út, er
svona notalegur fjölskylduklúbbur,“
sagði Ingvar.
Víkingar frá Ólafsvík, sem leika íefstu deild karla í fótboltanum í
fyrsta skipti á næsta ári, hafa samið
við pólska varnarmanninn Tomasz
Luba um að leika með þeim áfram.
Luba er 26 ára gamall og hefur leikið
með Ólafsvíkingum í þrjú ár. Í ár lék
hann 21 af 22 leikjum liðsins í 1. deild-
inni. Luba lék áður eitt tímabil með
Reyni í Sandgerði í 2. deild.
Danski knattspyrnumaðurinn Al-exander Scholz sem lék með
Stjörnunni í Pepsi-deildinni í sumar
flaug til Belgíu í gær þar sem hann
mun æfa næstu vikuna með Lokeren.
Scholz, sem er tvítugur og hefur leik-
ið með yngri landsliðum Dana, spilaði
21 leik í Pepsi-deildinni í sumar og
var lykilmaður í Stjörnuliðinu sem
komst í bikarúrslitaleikinn í fyrsta
skipti í sögu félagsins. Hann hafði
tekið sér frí frá knattspyrnuiðkun áð-
ur en hann samdi við Stjörnuna fyrir
sumarið.
Örn IngiBjarkason
lék ekki með Aft-
ureldingu gegn
Haukum í gær-
kvöld í úrvalsdeild
karla í handknatt-
leik, N1-deildinni.
Hann meiddist á
vinstri ökkla á æf-
ingu í fyrrakvöld en tók þátt í upp-
hitun fyrir leikinn við Hauka. Þá kom
betur í ljós að hann var ekki leikfær
að þessu sinni. Ekki er þó talið að
meiðslin séu alvarleg eða að Örn Ingi
verði lengi frá keppni.
Fólk sport@mbl.is
Nú styttist í að þeir Birgir Leifur
Hafþórsson úr GKG og Ólafur
Björn Loftsson úr Nesklúbbnum
reyni fyrir sér á 1. stigi úrtökumót-
anna fyrir PGA-mótaröðina í golfi í
Bandaríkjunum. Fyrsta stigið er
leikið á fimmtán völlum víðsvegar
um Bandaríkin. Kylfingarnir sækja
um hvaða völl þeir vilja helst spila
og raða þeim niður á óskalista.
Hvorugur Íslendinganna fékk
það sem hann helst vildi. Ólafur
sóttist eftir því að spila í Charlotte í
Norður-Karólínu en mun spila í
Florence í Suður-Karólínu. Ólafur
mun hefja leik hinn 24. október.
Ólafur vann sér þátttökurétt á 1.
stiginu með því að komast í gegnum
forkeppni í Dallas í Texas á dög-
unum.
Styttra er í að Birgir Leifur muni
stíga á svið en hann mun leika í Ma-
dison í Mississippi. Birgir mun
hefja leik hinn 16. október. Birgir
komst beint inn á 1. stigið þar sem
hann komst á 2. stig úrtökumót-
anna fyrir PGA í fyrra.
Þeir eru einu Íslendingarnir sem
reyndu við tvær mótaraðir í ár og er
Birgir kominn á 2. stigið fyrir Evr-
ópumótaröðina en Ólafur er úr leik.
Komast þarf í gegnum þrjú stig
hvort sem um er að ræða PGA- eða
Evrópumótaröðina. kris@mbl.is
Birgir í Mississippi og Ólafur í S-Karólínu
Morgunblaðið/Ómar
16 Birgir Leifur byrjar 16. október.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
24 Ólafur Björn Loftsson byrjar 24. október.
„Ég átti von á miklu erfiðari leik en
þetta hérna á Ísafirði. En okkur
tókst að skilja þá eftir tiltölulega
snemma, vörnin small hjá okkur við
fengum mikið af hraðaupphlaupum
og auðveldum körfum, og það gerði
útslagið,“ sagði Hjalti Þór Vilhjálms-
son, þjálfari Fjölnis, við Morg-
unblaðið eftir stórsigur Grafarvogsl-
iðsins á nýliðum KFÍ, 95:67, í
úrvalsdeild karla í körfubolta á Ísa-
firði í gærkvöld.
Hjalti tók við þjálfun liðsins í sum-
ar og það er nú með 4 stig eftir fyrstu
tvo leikina. „Ég er að sjálfsögðu
mjög sáttur við þessa byrjun, það er
ekki hægt að gera betur en þetta.
Strákarnir koma allir mjög frískir til
leiks, þeir lögðu mikið á sig í sumar
og við erum bjartsýnir á veturinn.
Miðherjinn okkar var bara að koma
og á eftir að falla betur inn í þetta.
Við ætlum allavega að gera betur en
að enda í 10. sæti,“ sagði Hjalti og
vitnaði með því í spána sem gerð var
áður en Íslandsmótið hófst.
Árni Ragnarsson var í fararbroddi
hjá frískum Fjölnisstrákum með 22
stig og 12 fráköst og lék þó nær ekk-
ert í fjórða leikhluta. Lið KFÍ stóð
Fjölni langt að baki og virðist eiga
erfiðan vetur í vændum. vs@mbl.is
„Ekki hægt að gera betur en þetta“
Varmá, Mosfellsbæ, úrvalsdeild
karla, N1 deildin, miðvikudaginn 10.
október 2012.
Gangur leiksins: 1:0, 1:2, 2:4, 5:7,
6:10, 7:12, 9:13, 10:16, 15:19, 17:23.
21:25, 22:27.
Mörk Aftureldingar: Sverrir Her-
mannsson 6, Hilmar Stefánsson 5/2,
Jóhann Jóhannsson 4, Böðvar Páll
Ásgeirsson 3, Fannar Helgi Rún-
arsson 3, Þrándur Gíslason 1.
Varin skot: Davíð Svansson 13 (þar
af 4 til móthera).
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Hauka: Stefán Rafn Sig-
urmannsson 10/2, Tjörvi Þorgeirs-
son 5, Elías Már Halldórsson 3, Freyr
Brynjarsson 3, Jón Þorbjörn Jónsson
3, Gylfi Gylfason 2, Árni Steinn
Steinþórsson 1.
Varin skot: Giedrius Morkunas 10
(þar af 4 til mótherja). Aron Rafn Eð-
varðsson 7 (þar af 2 til mótherja).
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Ómar Ingi Sverrisson og
Magnús Kári Jónsson, góðir.
Áhorfendur: 337, jafnmargir og á
síðasta heimaleik Aftureldingar.
Afturelding – Haukar 22:27