Morgunblaðið - 11.10.2012, Síða 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2012
REIKNAÐU DÆMIÐ TIL ENDA
FÍB AÐILD MARGBORGAR SIG!
Félag íslenskra bifreiðaeigenda Skúlagötu 19 101 Reykjavík s. 414 9999 fib@fib.is fib.is
FÍB félagi fær - 8 kr. af eldsneyti
- 8 kr
FÍB dælulyklar veita 8 krónu afslátt á valdri Atlantsolíustöð og 6 krónu
afslátt á öðrum stöðvum. Sparnaðurinn jafngildir 11.500 krónum
miðað við 120 lítra á mánuði í eitt ár.
FÍB Aðstoð
Opin allan sólarhringinn.
- Start aðstoð - Eldsneyti
- Dekkjaskipti - Dráttarbíll
Lögfræðiráðgjöf
Tækniráðgjöf
Allt þetta innfalið og meira til! Ársaðild FÍB er aðeins kr. 6.180.-
Gerast FÍB félagi í dag? Síminn er 414-9999 eða fib.is
Skoðunarstöðvar, smurstöðvar, verkstæði, hjólbarðaverkstæði,
veitingastaðir, 150.000 staðir innanlands sem og erlendis.
Afslættir
Albaníu. Þar mætir Íslands heima-
mönnum í þriðja leik í undankeppni
HM 2014 á morgun klukkan 17.00.
Íslenska liðið þarf sárlega á góð-
um úrslitum að halda eftir svekkels-
ið á Kýpur í síðasta mánuði sem kom
í kjölfar frábær sigurs á Norð-
mönnum hér heima. Íslensku strák-
arnir komu flestir saman á mánu-
daginn í Albaníu en sumir sem áttu
leiki með sínum félagsliðum í byrjun
vikunnar komu til móts við liðið á
þriðjudaginn.
Reyna að dreifa huganum
„Þetta er ekkert frábært land til
að vera eitthvað að ráfa um í þannig
við erum bara inná hótelinu og tök-
um því rólega. Þetta er fínt samt.
Það er ekki yfir neinu að kvarta
hérna. Við erum bara einbeittir að
standa okkur á föstudaginn því það
er það eina sem skiptir máli,“ segir
Aron Einar sem viðurkennir þó að
erfitt sé að vera innilokaður á hóteli í
heila viku.
„Menn verða alveg þreyttir á
þessu en við gerum það besta úr
þessu. Það er bíó hérna á hótelinu og
svona. Við reyndum bara að dreifa
huganum. Við tæklum þetta bara
eins og hvert annað verkefni,“ segir
Aron.
Öðruvísi leikur
Fyrirliðinn segir þá sem mættir
eru til Albaníu vera í góðu standi og
alla klára í leikinn mikilvæga á föstu-
daginn. „Það eru allir heilir og engin
meiðsli í gangi. Það eru einhverjar
bólgur hér og þar eins og gerist og
gengur en annars allir í fínu standi.“
Albanir eru með fínt lið og hafa
jafnan náð góðum úrslitum á heima-
velli. Þeir unnu Kýpverja, 3:1,
nokkrum dögum áður en Kýpur
vann sanngjarnan sigur á okkar
mönnum.
„Það er enginn að segja að þeir
séu með slappt lið. Þeir eru svipaðir
og Kýpverjarnir. Þeir eru flinkir
með boltann en eru líka að henda sér
í jörðina. Þetta verður öðruvísi leik-
ur en við erum vanir en við erum að
læra inná að spila þessa leiki og för-
um rólega í það,“ segir Aron.
Staðráðnir í að gera betur
Leikurinn gegn Kýpur situr ekki í
mönnum, segir Akureyringurinn.
Menn ætla einfaldlega að gera betur
gegn Albaníu.
„Við megum ekki og erum ekki að
hugsa um leikinn gegn Kýpur
ennþá. Það jákvæða við það tap var
hversu stutt var í næsta leik. Við
fáum núna tækifæri til að gera betur
og vonandi nýtum við okkur það.
Það er samt klárt að við þurfum að
spila betur á föstudaginn en við
gerðum gegn Kýpur ætlum við að ná
góðum úrslitum. Menn eru einfald-
lega staðráðnir í að gera betur. Þetta
verður samt erfiður leikur og eflaust
svolítið spes stemning sem við erum
ekki vanir. Við ætlum samt að sýna
úr hverju við erum gerðir,“ segir Ar-
on Einar.
Ætlum að sýna úr
hverju við erum gerðir
Íslenska landsliðið æfir í Tirana fyrir leikinn gegn Albaníu
Hótellífið erfitt Þurfa að spila betur en gegn Kýpur
Ljósmynd/Sakis Savvides
Undankeppnin Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði Íslands, með boltann í leiknum á Kýpur í síðasta mánuði.
FÓTBOLTI
Tómas Þór Þórðarson
tomas@mbl.is
„Hér er allt voða flott á hótelinu sem
er svakalega fínt. Við erum reyndar
ekkert að ráfa mikið út af því. Það er
bara svona hótellíf í gangi hjá okkur
strákunum,“ segir Aron Einar
Gunnarsson, landsliðsfyrirliði í fót-
bolta, í viðtali við Morgunblaðið en
hann er staddur ásamt landsliðinu í
ist mun fyrr en núna og hún verði
um leið markvissari,“ sagði Aron í
samtali við Morgunblaðið. „Ég sé
fyrir mér að þessi maður muni geta
aðstoðað okkur við að skipuleggja
þetta starf frá grunni og vinnu með
hópi manna hér á landi við að byggja
upp íslenskan markvarðaskóla,“
segir Aron sem bætir við að mark-
verðir hér á landi hafi oft orðið út-
undan. Í alþjóðlegum handknattleik
í dag skiptir markvarslan sífellt
meira máli. „Ef vel er staðið að mál-
um þá eigum við að geta eignast
fleiri góða markverði í framtíðinni,“
segir Aron.
Hittir landsliðsmenn og
Guðmund í Þýskalandi
Auk þess að fara til Danmerkur í
næstu viku heldur hann einnig til
Þýskalands og sér tvo leiki þar á
þriðjudag og miðvikudag. Annars
vegar er um að ræða leik Flensburg
og Lemgo og hins vegar viðureign
Magdeburg og Wetzlar. Um leið
gefst tækifæri til þess að ræða við
landsliðsmennina íslensku sem leika
með Flensburg, Magdeburg og
Wetzlar. Þá hyggst Aron einnig
hitta forvera sinn í starfi landsliðs-
þjálfara, Guðmund Þórð Guðmunds-
son.
Fyrsti landsleikur Íslands undir
stjórn Arons verður í Laugardals-
höllinni miðvikudaginn 31. október.
Þá mætir íslenska landsliðið því hvít-
rússneska í riðlakeppni fyrir Evr-
ópumeistaramótið sem haldið verð-
ur í Danmörku í byrjun árs 2014.
Tekur þjálfun mark-
varða föstum tökum
HANDBOLTI
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari
í handknattleik karla, hefur í hyggju
að koma betra skipulagi á þjálfun
markvarða hér á landi, jafnt hjá fé-
lagsliðum sem yngri landsliðum. Ar-
on segir nauðsynlegt að taka þjálfun
markvarða fastari tökum svo hún
verði markvissari hjá félagsliðum og
hefjist fyrr en nú er. Hann vill
byggja upp ákveðið skipulag í þess-
um málum og hefur í hyggju að fá
Dana til liðs við sig í þeim efnum og
að þeir myndi ásamt hópi manna hér
á landi vinnuhóp í þeim efnum.
Markvarsla hefur lengi verið
Akkilesarhæll í handknattleik hér á
landi, jafn hjá félagsliðum sem
landsliðinu. Aron vill að nú verði
fastar tekið á þessum málum en gert
hefur verið.
Þjálfun markvarða hefjist fyrr
og verði markvissari
Daninn sem Aron ætlar að fá til
samvinnu í þessum efnum við að
byggja upp hinn íslenska mark-
varðaskóla, líkt og Danir og Svíar
hafa, hefur víðtæka reynslu af þjálf-
un markvarða. Hann hefur komið að
svipuðu starfi innan danska hand-
knattleikssambandsins og þjálfað
markverði hjá félagsliðum í heima-
landi sínu. Aron mun m.a. funda með
honum í Danmörku í næstu viku.
„Ég vil að þjálfun markvarða hefj-
Morgunblaðið/Golli
Ferðast Aron Kristjánsson leggur land undir fót á næstu dögum.
Gunnar Guðmundsson var í gær ráð-
inn þjálfari 1. deildar liðs Selfyss-
inga í knattspyrnu og tekur við af
Loga Ólafssyni sem hætti störfum
þar í vikunni til að taka við Stjörn-
unni.
Gunnar, sem er 43 ára Kópa-
vogsbúi, þjálfaði fyrst Leikni á Fá-
skrúðsfirði í 3. deild og síðan Leift-
ur/Dalvík í 1. deild, en tók við HK í 1.
deildinni árið 2004 og stýrði liðinu í
hálft fimmta tímabil. Hann fór með
það uppí úrvalsdeild í fyrsta sinn og
hélt því þar árið 2007 en var síðan
sagt upp á miðju tímabili 2008.
Gunnar hefur ekki þjálfað fé-
lagslið frá þeim tíma en hefur stýrt
U17 ára landsliði Íslands með góð-
um árangri undanfarin ár. Undir
hans stjórn varð það Norður-
landameistari 2011 og lék síðan í
átta liða úrslitum Evrópukeppn-
innar í vor, þar sem litlu munaði að
það kæmist í undanúrslit. vs@mbl.is
Gunnar Guðmundsson tók
við Selfyssingum af Loga