Morgunblaðið - 20.10.2012, Síða 1
LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2012
ÍÞRÓTTIR
Úkraína Kvennalandsliðið í fótbolta mætir Úkraínu í Sevastopol í dag í fyrri umspilsleiknum um sæti á EM í
Svíþjóð. Ætla ekki að treysta á heimaleikinn heldur ná góðum úrslitum við góðar aðstæður í dag. 4
Íþróttir
mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Góð Þorgerður Anna Atladóttir lék vel með Val í gær og skoraði 8 mörk.
HANDBOLTI
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
„Þetta var bara frábær sigur liðs-
heildarinnar en við verðum að halda
okkur niðri á jörðinni. Það er hálf-
leikur í einvíginu en við ætlum okk-
ur svo sannarlega að komast
áfram,“ sagði Þorgerður Anna Atla-
dóttir, stórskytta Íslands- og bik-
armeistara Vals í handknattleik, eft-
ir sigur á Valencia, 27:22, í fyrri
viðureign liðanna í 2. umferð EHF-
keppninnar í Valencia á Spáni í gær.
Liðin mætast aftur í dag á sama
stað.
Þjöppuðum okkur saman
„Við vissum í rauninni ekkert
hvað við vorum að fara út í en við
þjöppuðum okkur vel saman og hitt-
um á góðan leik. Við urðum fyrir
áfalli í fyrri hálfleik þegar Hrafn-
hildur meiddist á ökkla og gat ekk-
ert spilað meira. Það urðu því aðrir
leikmenn að stíga upp og ég myndi
segja að við hefðum haft þetta á frá-
bærri liðsheild og samstöðu,“ sagði
Þorgerður Anna, sem var marka-
hæst í Valsliðinu með 8 mörk.
Óvíst er hvort Hrafnhildur Skúla-
dóttir getur tekið þátt í leiknum í
dag en allt verður gert til að reyna
að koma henni í leikhæft stand enda
Hrafnhildur mikilvægur hlekkur í
frábæru liði Vals.
Að sögn Þorgerðar byrjaði Val-
encia betur en smátt og smátt náði
Valur tökum á leiknum. Liðin komst
yfir eftir 10 mínútna leik og hafði
yfir eftir fyrri hálfleikinn, 13:11. Í
seinni hálfleik hélt Valur undirtök-
unum í leiknum og vann að lokum
með fimm marka mun.
„Við gerum okkur alveg grein
fyrir því að við erum ekki búnar að
vinna þetta einvígi. Þetta er svolítið
snúin staða en verðum að vera
áfram á tánum og berjast eins og
ljón. Það er hugur í okkur og ég veit
að hver einasti leikmaður mun gefa
allt sem hann á í seinni leiknum,“
sagði Þorgerður Anna.
Þjálfarinn fékk góða
afmælisgjöf
Segja má að Þorgerður og stöllur
hennar hafi gefið þjálfara sínum,
Stefáni Arnarsyni, góða afmælisgjöf
en gamli fótboltamarkvörðurinn
fagnaði 49 ára afmælisdegi sínum í
gær.
„Við gáfum Stebba góða afmæl-
isgjöf en stóra gjöfin kemur á morg-
un (í dag). Þá ætlum við að gera út
um einvígið,“ sagði Þorgerður.
Takist Valskonum að slá spænska
liðið út bíða þeirra leikir við rúm-
enska liðið H.C. Zalau í 3. umferð-
inni.
Mörk Vals: Þorgerður Anna Atla-
dóttir 8, Karólína Lárusdóttir 6,
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 4, Re-
bekka Skúladóttir 3, Ragnhildur
Rósa Guðmundsdóttir 2, Hrafnhild-
ur Skúladóttir 2, Aðalheiður
Hreinsdóttir 1, Íris Ásta Péturs-
dóttir 1.
Sigur liðsheildarinnar
Valskonur lögðu Valencia í fyrri viðureigninni í EHF-keppninni með fimm
marka mun Hrafnhildur meiddist og óvíst með þátttöku hennar í dag
Landsliðsmarkverðirnir Þóra B.
Helgadóttir og Guðbjörg Gunn-
arsdóttir eru tilnefndar sem tveir
af fjórum bestu markvörðum
sænsku úrvalsdeildarinnar fyrir
lokahóf sænska knattspyrnu-
sambandsins í næsta mánuði.
Þóra, sem ver mark meistaranna
í Malmö, og Guðbjörg, sem er fyr-
irliði og markvörður Djurgården,
keppa þar við sænsku landsliðs-
markverðina Hedvig Lindahl hjá
Kristianstad og Kristin Hamm-
arström hjá Gautaborg en ein af
þessum fjórum verður heiðruð sem
markvörður ársins í Svíþjóð.
Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari
Kristianstad, er ein af þeim fjórum
þjálfurum í deildinni sem tilnefndir
eru sem þjálfari ársins. Þar keppir
hún við fjóra karlmenn um titilinn
en það eru Peter Moberg hjá
Malmö, Thomas Märtensson og Ulf
Palmquist sem stýra liði Vittsjö í
sameiningu, og Torbjörn Nilsson,
gamla landsliðshetju Svía, sem
þjálfar lið Gautaborgar. vs@mbl.is
Guðbjörg,
Þóra og
Elísabet
tilnefndar
Þóra B.
Helgadóttir
Guðbjörg
Gunnarsdóttir
Skautafélag Reykjavikur og
Jötnar áttust við á íslands-
mótinu i íshokkíi á skauta-
svellinu í Laugardalnum í
gær. Leiknum lauk með sigri
Jötna, 6:4, en þeir skoruðu
tvö síðustu mörk leiksins eftir
að SR hafði komist í 3:2. Þetta
var þriðji sigurleikur Jötna í
fjórum leikjum á tímabilinu
en SR-ingar hafa tvö stig eftir
fimm leiki. Efstir eru hins-
vegar Bjarnarmenn sem hafa
fjórtán stig að loknum fimm
leikjum. Jóhann Leifsson var
markahæstur í liði Jötnanna
með þrjú mörk.
gummih@mbl.is
Jötnar sterkari í Laugardalnum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Barátta Hart barist um pökkinn í leik SR og Jötna í gærkvöld.
Selfyssingar gerðu góða ferð í
Víkina þegar þeir mættu Vík-
ingum í 1. deild karla í hand-
knattleik. Víkingar sem voru
búnir að vinna alla þrjá leiki
sína máttu sætta sig við tap,
25:23, og þar með komst Sel-
foss upp að hlið Víkinga á
stigatöflunni. Liðin hafa bæði
6 stig en Stjarnan trónir á
toppnum með 7 stig. Hlynur
Matthíasson var markahæst-
ur í liði Víkinga með 5 mörk
en hjá Selfyssingum, sem
unnu sanngjarnan sigur, var
Hörður Gunnar Bjarnason at-
kvæðamestur með 9 mörk.
gummih@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Selfyssingar stöðvuðu Víkinga
Átök Arnar Theodórsson reynir að komast framhjá Ómari V. Helgasyni.