Morgunblaðið - 20.10.2012, Blaðsíða 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2012
Það er sannkallaður stórleikur hjá Gylfa Þór
Sigurðssyni og félögum hans í Tottenham í há-
deginu í dag en þá fá þeir topplið Chelsea í
heimsókn á White Hard Lane þar sem liðin
etja kappi í ensku úrvalsdeildinni.
Andre Villas-Boas, knattspyrnustjóri Tott-
enham, býst við sérstöku andrúmslofti en hann
mætir Chelsea nú í fyrsta sinn síðan hann var
rekinn úr starfi hjá félaginu snemma á síðasta
ári.
„Heimavöllur okkar er mjög sérstakur stað-
ur að spila á þegar stuðningsmennirnir standa
með liðinu. Þegar það gerist þá getur það gert
gæfumuninn,“ segir Villas-Boas á vef Totten-
ham. Chelsea er taplaust í deildinni en liðið
hefur unnið sex leiki og gert
eitt jafntefli og hefur fjög-
urra stiga forskot í topp-
sætinu.
„Við búum okkur undir
að mæta liði sem hefur gott
sjálfstraust, er feikilega
sterkt og stöðugt. En okkar
lið hefur verið að bæta sig
og vonandi tekst okkur að
fylgja eftir góðum leik gegn
Aston Villa sem var besta
frammistaða liðsins á tímabilinu,“ sagði Portú-
galinn en Tottenham-liðið er í fimmta sæti,
fimm stigum á eftir Chelsea. gummih@mbl.is
Stórleikur hjá Gylfa og félögum
Gylfi Þór
Sigurðsson
José Mourinho, þjálfari Spánarmeistara Real
Madrid, segir að Barcelona sé ekki lengur
viðmið fyrir önnur lið en lærisveinum Mour-
inho tókst að skáka Börsungum í baráttunni
um Spánarmeistaratitilinn á síðustu leiktíð
og Chelsea hampaði Evrópumeistaratitlinum
sem flestir voru búnir að spá að Barcelona
myndi vinna.
„Ég held að sá tími sé kominn þar sem fólk
talar minna um Barcelona og menn eru ekki
lengur að reyna að líkja eftir því,“ sagði Mo-
urinho í viðtali við franska tímaritið France
Football.
„Af hverju ætti fólk að ræða um Barcelona.
Real Madrid er Spánarmeistari og Chelsea er
Evrópumeistari,“ sagði
Portúgalinn, sem gerði
Chelsea tvívegis að Eng-
landsmeisturum. „Ég elska
það að vinna titla og það
gerir Barcelona líka.
Barcelona hefur unnið
marga titla og mun halda
áfram að gera það en við
vorum áhrifamiklir á síð-
ustu leiktíð og spiluðum
glæsilegan fótbolta.“
Madridarliðið hefur ekki byrjað leiktíðina
vel en liðið er í fimmta sæti, átta stigum á eft-
ir toppliði Barcelona. gummih@mbl.is
Barcelona ekki lengur viðmiðið
José
Mourinho
FÓTBOLTI
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
„Við ætlum okkur ekki að treysta á
heimaleikinn og óvissar aðstæður
sem þá geta beðið okkar. Hér í
Úkraínu eru fínar aðstæður og við
hugsum bara um þennan leik, og að
vinna hann, en leiðum alveg hjá
okkur að við eigum eftir að mæta
þeim aftur á Laugardalsvellinum,“
sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson,
landsliðsþjálfari kvenna í knatt-
spyrnu, við Morgunblaðið í gær.
Íslenska liðið er í Sevastopol,
syðstu borg Úkraínu við Svartahaf-
ið, og leikur þar í dag fyrri umspils-
leik sinn um sæti á Evrópumótinu
sem fram fer í Svíþjóð á næsta ári.
Viðureign liðanna hefst klukkan 13
í dag að íslenskum tíma en seinni
leikurinn, sem Sigurður Ragnar
vill ekki hugsa um eða ræða, er á
Laugardalsvellinum næsta
fimmtudag.
Íslenska liðið hóf lokaundirbún-
inginn í Sevastopol í fyrradag og
Sigurður segir hann hafa gengið
vel. „Já, við höfum æft við mjög góð
skilyrði og í góðu veðri, og allir
leikmenn okkar eru heilir og til-
búnir í slaginn.“
Margrét hefur spilað heila
leiki undanfarið
Ástand Margrétar Láru Viðars-
dóttur kemur yfirleitt fyrst upp í
hugann þegar rætt er um hverjar
séu heilar heilsu í íslenska landslið-
inu, en Sigurður var bjartsýnn á að
hún gæti beitt sér af fullum krafti.
„Margrét hefur spilað meidd und-
anfarin ár og gerir það áfram en
hún er á fullu hérna og hefur að
undanförnu spilað heila leiki með
sínu liði í Svíþjóð svo ég hef enga
ástæðu til að ætla annað en að hún
sé alveg tilbúin.“
Sigurður hefur grandskoðað
andstæðingana að undanförnu og
segir ljóst að Ísland og Úkraína
séu mjög áþekk að styrkleika.
Tæknilega góðar með afger-
andi einstaklinga
„Ég er búinn að skoða eina 6-7
leiki liðsins af mynddiskum og við
erum búnir að leikgreina það mjög
vel. Þetta er gott lið, sérstaklega
hvað varðar sóknarleikinn, og við
vitum að okkar bíður erfitt verkefni.
Þær úkraínsku eru tæknilega góðar
og vel spilandi, og eru með tvo til
þrjá afgerandi einstaklinga sem við
þurfum að hafa góðar gætur á. Da-
ryana Apanachenko er mjög öflugur
sóknartengiliður sem er að-
almarkaskorari liðsins og Vira Dja-
tel er öflug á hægri kantinum. Hún
getur líka spilað á miðjunni, eins og
hún gerði með Zorkij gegn Stjörn-
unni, og er mjög sterk þar.
Úkraína vann sinn riðil í síðustu
undankeppni HM og fór í umspil um
sæti þar, og Úkraína komst í loka-
keppnina í Finnlandi 2009, alveg
eins og við. Þær hafa unnið Finnana
tvisvar, síðast núna í lok und-
ankeppninnar á útivelli, og við sjáum
á þessu að það er hörkulið sem við
erum að fara að takast á við. En við
horfum á leikinn hérna í Sevastopol
og hugsum ekki lengra í bili,“ sagði
Sigurður Ragnar Eyjólfsson.
Mikill munur á hitastigi
Miðað við veðurspána verður 19
stiga hiti, létt gola og sól í Sevastopol
þegar leikurinn fer fram í dag. Sam-
kvæmt langtímaspá er hinsvegar út-
lit fyrir að hitastig í Reykjavík næsta
fimmtudag, þegar seinni leikurinn
fer fram, verði um frostmark, en
reyndar á að byrja að rigna og hlýna
þá um kvöldið. Leikirnir tveir fara
því fram við allólíkar aðstæður.
Hugsum bara um þennan
Fyrri leikur Úkraínu og Íslands um sæti á EM 2013 fer fram í sumri og sól í
Sevastopol í dag Allar heilar og tilbúnar í slaginn, að sögn Sigurðar Ragnars
Morgunblaðið/Kristinn
Barátta Hallbera Guðný Gísladóttir hefur leikið sem vinstri bakvörður í flestum leikjum ársins.
Umspil fyrir EM
» Ísland og Úkraína urðu í 2.
sæti í sínum riðlum und-
ankeppninnar og þurfa því að
leika heima og heiman um sæti
í lokakeppni EM 2013 sem
fram fer í Svíþjóð næsta sum-
ar.
» Bæði Ísland og Úkraína
þreyttu frumraun sína í síð-
ustu lokakeppni EM sem fram
fór í Finnlandi 2009.
» Ísland er í 16. sæti á heims-
lista FIFA og í 9. sæti í Evrópu.
Úkraína er í 23. sæti hjá FIFA
og í 14. sæti í Evrópu.
Hannes JónJónsson
leikur ekki með
Eisenach í dag
þegar liðið sækir
Hüttenberg heim
í þýsku 2. deild-
inni í handknatt-
leik. Hannes Jón,
sem er marka-
hæsti leikmaður liðsins á keppn-
istímabilinu, veiktist um miðja vikuna
og hefur ekki jafnað sig, eftir því sem
fram kemur á heimasíðu félagsins.
Aðalsteinn Reynir Eyjólfsson er
þjálfari Eisenach sem farið hefur vel
af stað og er í þriðja sæti deildarinnar
með 10 stig að loknum sjö umferðum.
Jónatan Þór Magnússon hefurjafnað sig af meiðslum í mjöðm
og leikur með Kristiansund á morgun
þegar liðið fær Kristiansand í heim-
sókn í norsku B-deildinni í hand-
knattleik. Jónatan hefur ekki getað
spilað með Kristiansund í tveimur
undangengnum leikjum.
Ný stjórn hef-ur verið
skipuð hjá knatt-
spyrnudeild
Fram en fráfar-
andi stjórn sagði
öll af sér á dög-
unum vegna
ágreinings við að-
alstjórn félagsins.
Hrannar Hall-
kelsson er nýr formaður knatt-
spyrnudeildar Fram en aðrir stjórn-
armenn eru: Brynjar Jóhannesson,
Elín Þóra Böðvarsdóttir, Júlíus Guð-
mundsson, Lúðvík Þorgeirsson,
Sverrir Einarsson og Þórður Krist-
leifsson.
Jack Wilshereverður í leik-
mannahópi Ars-
enal sem mætir
Norwich í dag í
ensku úrvals-
deildinni en hann
hefur ekki leikið
með aðalliði fé-
lagsins í 14 mán-
uði. Arsene Wenger knatt-
spyrnustjóri ætlar þó að fara farlega
með kappann. „Jack hefur lagt hart
að sér og gengur vel en við skulum
ekki fara fram úr okkur. Það er
tvennt í þessu. Í fyrsta lagi er það
spurningin um að menn séu tilbúnir
að fara í tæklingar eftir að hafa verið
svona mikið í meiðslum. Að því leyti
er hann 100%. Við verðum jafnvel að
halda aftur af honum. Hann fer í
hverja tæklingu án þess að hugsa sig
um,“ sagði Wenger.
Stuðningsmenn rússneska knatt-spyrnuliðsins Dynamo Moskva
eru allt annað en sáttir við gengi liðs-
ins en byrjun þess á tímabilinu er sú
Versta í sögu félagsins. Í gær létu
stuðningsmennirnir óánægju sína
bitna á leikmönnum liðsins með því
að skjóta til þeirra út litabyssum þeg-
ar þeir voru á æfingu. Þetta vakti litla
hrifningu hjá leikmönnunum liðsins.
Fólk sport@mbl.is
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
„Ég tel okkar möguleika góða í
þessu einvígi við Úkraínu,“ sagði
Hólmfríður Magnúsdóttir, lands-
liðskona í knattspyrnu, við Morg-
unblaðið í gær en hún var þá ný-
komin af æfingu liðsins á
keppnisvellinum í Sevastopol þar
sem þjóðirnar mætast í dag klukk-
an 13.
„Við höfum farið yfir leik úkra-
ínska liðsins af
myndböndum og
vitum talsvert
um hvernig þær
spila. Þar sáum
við hvar þeirra
veikleikar eru og
þá verðum við að
nýta okkur,“
sagði Hólmfríður
sem er komin í
hóp þeirra leik-
reyndustu í liðinu með 74 landsleiki
og 29 mörk, en hún er næst-
markahæst frá upphafi.
Liðið hefur dvalið í góðu yfirlæti
við Svartahafið undanfarna tvo
daga. „Aðstaðan er frábær, hótelið
flott, maturinn góður, keppnisvöll-
urinn fínn og veðrið líka. Núna er
þetta bara undir okkur sjálfum
komið, við erum allar klárar í slag-
inn og það er góð stemning í hópn-
um. Það eina sem kemur til greina í
okkar huga er að vinna leikinn, við
ætlum ekki að hugsa um að spila
uppá einhver mögulega hagstæð
úrslit,“ sagði Hólmfríður.
Leikurinn í dag, sá fyrri í um-
spilinu um sæti í úrslitakeppni Evr-
ópumótsins, er fimmta viðureign
kvennaliða Íslands og Úkraínu en
liðin hafa þó ekki mæst í 12 ár. Þau
voru tvisvar í röð saman í riðli í
undankeppni stórmóta. Ísland vann
einn leik, 3:2 á heimavelli, Úkraína
vann 1:0 á heimavelli og 3:2 í Laug-
ardalnum, og þá gerðu liðin jafn-
tefli, 2:2, í Úkraínu.
Verðum að nýta okkur veikleikana
Allt undir okkur sjálfum komið, segir Hólmfríður Fimmta viðureign þjóðanna
Hólmfríður
Magnúsdóttir