Morgunblaðið - 27.10.2012, Síða 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2012
ÍSHOKKÍ
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Bandaríkjamaðurinn David MacIsaac
var á dögunum ráðinn landsliðsþjálf-
ari karla í íshokkí. MacIsaac kom til
Íslands fyrir rúmu ári og tók þá við
þjálfun Bjarnarins. Liðið landaði sín-
um fyrsta Íslandsmeistaratitli undir
hans stjórn síðasta vetur. Í framhald-
inu var hann hluti af þjálfarateymi Ís-
lands í A-riðli 2. deildar heimsmeist-
aramótsins sem fram fór hér á Íslandi.
Landsliðsþjálfarinn er spenntur
fyrir verkefninu. „Ég varð strax mjög
spenntur fyrir þessu enda er þetta
gott tækifæri fyrir mig sem þjálfara.
Ég er fullur tilhlökkunar,“ sagði Mac-
Isaac þegar Morgunblaðið spjallaði
við hann.
Starfaði fyrir Flyers
MacIsaac kemur frá Boston í
Massachusetts og var aðdáandi Bost-
on Bruins í NHL-deildinni. Hann var
öflugur leikmaður á sínum tíma og lék
sem atvinnumaður um langa hríð bæði
vestan hafs en einnig í Evrópu.
„Ég ólst upp í Boston og gekk í há-
skóla í Maine og við urðum há-
skólameistarar. Að náminu loknu
gerði ég NHL-samning en fór í The
American Hockey League og spilaði
þar í átta ár. Ég starfaði hjá Phila-
delphia Flyers fyrir nokkrum árum og
á ennþá hús í Philadelphia. Ég hef því
orðið meiri Flyers-aðdáandi með ár-
unum,“ sagði MacIsaac en AHL-
deildin er eins konar 2. deild í Am-
eríku. Hjá Flyers stjórnaði hann þró-
un yngri flokka starfsins hjá félaginu.
Bandaríkjamaðurinn fór einnig til
Evrópu og spilaði sem atvinnumaður á
Ítalíu, í Rússlandi og í Danmörku.
Hann segir það hafa verið mesta upp-
lifun að spila í Rússlandi enda deildin
þar afar sterk og hefðin mikil.
„Þar spilaði ég á móti leikmönnum
eins og Alex Ovechkin og það var klár-
lega mikil reynsla. Rússneska deildin
er mjög sterk og nú er hún að nálgast
NH-deildina á ný eftir að verkbannið
skall á í NHL. Ég er ekkert viss um að
rússnesku leikmennirnir muni snúa
aftur í NHL-deildina þegar verkbann-
inu lýkur,“ útskýrði MacIsaac sem
þekkir orðið ágætlega til á Íslandi eft-
ir eins árs dvöl og hann þekkir lands-
liðið frá því á HM í vor.
Björninn kom á óvart
„Lið Bjarnarins kom mér á óvart
síðasta vetur en ég vissi svo sem ekki
við hverju ég átti að búast. Þetta er
frábrugðið því sem gerist víða annars
staðar en strákarnir eru fróðleiks-
fúsir. Ég tel að við höfum bætt okkur
mikið á síðasta tímabili og á meðan við
erum með leikmenn sem eru í framför
þá getum við bætt okkur. Hvað lands-
liðið varðar þá þekki ég það og þekki
einnig vel alla þá leikmenn sem spila
hérlendis.“
Ísland er í sterkari riðlinum í 2.
deild á HM sem fram fer á hverju ári í
íshokkí og er því deildaskipt. Ísland
vann tvo leiki í apríl og tapaði þremur
en liðið hefur bætt sig jafnt og þétt á
þeim stutta tíma sem íslenska lands-
liðið hefur verið gert út.
Stórt skref gegn Serbíu
„5:3 sigurinn á móti Serbíu var stórt
skref fyrir liðið. Ég held að staða okk-
ar í riðlinum verði svipuð í ár og hún
var í fyrra. Flest þessara liða eru ein-
göngu með atvinnumenn, en við eigum
bara nokkra slíka. Við mætum því
leikmönnum sem fá greitt fyrir að
spila allt árið en erum með marga
stráka sem stunda íþróttina með námi
eða vinnu. Það er mjög gott fyrir
hokkíið á Íslandi að fá að spila alvöru
leiki á móti þetta sterkum þjóðum,“
benti MacIsaac á og hann er með ung-
an efnivið í höndunum því meðalaldur
íslenska A-landsliðsins er óvenju-
lágur.
Góður kjarni í landsliðinu
„Í landsliðshópnum er góður kjarni
af ungum leikmönnum. Auk þess er
fullt af ungum leikmönnum að koma
upp á Íslandi og eiga þeir án vafa eftir
að bæta sig. Við þetta má bæta að
margir lykilleikmenn landsliðsins eru
ekki gamlir og eiga mörg ár eftir,“ út-
skýrði MacIsaac og hann var ánægður
með áherslur forvera síns, Danans
Olaf Eller.
„Ég kunni vel við hans þjálfunar-
aðferðir. Hann er skipulagður og mér
líkaði margt af því sem hann gerði. Ég
mun að sjálfsögðu breyta einhverju en
það verða líklega ekki stórkostlegar
áherslubreytingar. Mér líkar vel
hérna á Íslandi og ég vonast til að geta
gert landsliðið betra og lagt mitt af
mörkum til þess að íþróttin dafni á Ís-
landi,“ sagði landsliðsþjálfarinn David
MacIsaac við Morgunblaðið.
Spilaði á
móti Alex
Ovechkin
Ljósmynd/Eva Björk
Ræður ferðinni David MacIsaac gefur skipanir í leik hjá Birninum.
Nýráðinn landsliðsþjálfari Íslands
kom víða við sem atvinnumaður
David MacIsaac
» Fertugur Bandaríkjamaður
sem er nýráðinn landsliðsþjálf-
ari karla í íshokkí. Hann gerði
lið Bjarnarins að Íslandsmeist-
urum síðasta vetur á sínu
fyrsta ári á Íslandi.
» Er uppalinn í Boston en fór í
háskóla í Maine og varð þar há-
skólameistari í NCAA-deildinni
sem leikmaður.
» Spilaði á móti rússneska
heimsmeistaranum Alex
Ovechkin í rússnesku deildinni
fyrir tæpum áratug en Ovechk-
in hefur á síðustu árum verið
ein stærsta stjarna NHL-
deildarinnar.
Einn af úrslitaleikjunum í ensku úr-
valsdeildinni á þessu tímabili verður
á Stamford Bridge á morgun þegar
topplið Chelsea tekur á móti Man-
chester United. Chelsea hefur byrjað
leiktíðina vel og trónir á toppnum
með 22 stig en United er í öðru sæti,
fjórum stigum á eftir Lundúnaliðinu.
Chelsea verður án reynslubolt-
anna Johns Terry og Franks Lamp-
ards. Terry er í leikbanni og Lamp-
ard er meiddur og er þetta skarð
fyrir skildi hjá Chelsea. United er
sem fyrr án Nemanja Vidic og þá er
Japinn Shinji Kagawa kominn á
sjúkralistann.
Liðin hafa mæst 40 sinnum í úr-
valsdeildinni og hefur Chelsea unnið
13 leiki en United 12. Manchester-
liðinu hefur ekki tekist að fagna sigri
á Brúnni í síðustu 10 leikjum. Í fyrra
skildu liðin jöfn, 3:3, á Stamford
Bridge eftir að Chelsea hafði komist
í 3:0. „Það er engin spurning að þetta
verður erfiður leikur. Chelsea-liðið
er ógnarsterkt og ætlar sér titilinn í
ár en við ætlum
okkur hann líka,“
sagði Sir Alex
Ferguson við
fréttamenn í gær.
Annar stór-
leikur fer fram á
morgun en á Goo-
dison Park verður
grannaslagur þeg-
ar Everton fær
Liverpool í heim-
sókn. Þetta verður 219. leikur lið-
anna við Mersey-ána en í leikjunum
til þessa hefur Liverpool unnið 87
leiki, Everton 66 og 67 leikjum hefur
lyktað með jafntefli. Marouane Fel-
laini og Steven Pienaar verða fjarri
góðu gamni í liði Everton og þriðja
leikinn í röð gæti Liverpool verið án
markvarðarins Pepe Reina sem hef-
ur átt við meiðsli að stríða. Everton
hefur farið betur af stað en oftast áð-
ur en liðið hefur 15 stig í fjórða sæti
en Liverpool hefur 9 stig og er í 12.
sæti. gummih@mbl.is
Einn af úrslitaleikjum leiktíðarinnar
Sir Alex
Ferguson
Ulrik Wilbek, landsliðsþjálfari Dana í handknattleik, hefur
sett stefnuna á að komast í undanúrslit á heimsmeistara-
mótinu sem haldið verður á Spáni í janúar. Wilbek telur lið
sitt vera það fjórða besta í heiminum.
„Markmið okkar er að komast í undanúrslitin. Við erum
með marga góða leikmenn sem og önnur lið en við sáum það
á Ólympíuleikunum að Frakkar og Króatar voru með betra
lið en við. Spánverjarnir eru líka með hörkulið og þeir verða á
heimavelli,“ sagði Ulrik Wilbek í viðtali við sjónvarpsstöðina
TV2.
Íslendingar leika í riðli með Dönum á heimsmeistara-
mótinu og verður riðillinn spilaður í Sevilla. Önnur lið í riðl-
inum eru Makedónía, Katar, Rússland og Síle.
Besti árangur Dana á heimsmeistaramótinu er annað sætið en þeir hrepptu
silfrið á HM í Svíþjóð í fyrra þar sem þeir töpuðu fyrir Frökkum í framlengdum
leik, 37:35. gummih@mbl.is
Wilbek vill í undanúrslitin
Ulrik
Wilbek
Norska knattspyrnusambandið hefur ákveðið að fram-
lengja ekki samninginn við Eli Landsem, þjálfara
kvennalandsliðsins, en undir hennar stjórn tókst Norð-
mönnum að tryggja sér farseðilinn í úrslitakeppni Evr-
ópumótsins með því að vinna Íslendinga í lokaumferð
riðlakeppninnar á Ullevaal-leikvanginum í Ósló í síðasta
mánuði.
Landsem hefur stýrt landsliðinu frá árinu 2009 en þá
tók hún við starfi Bjarne Berntsens.
Landsem segist gjarnan hafa viljað halda áfram og
vera með liðið á Evrópumótinu í Svíþjóð en hún telur sig
ekki hafa fengið nægilegan stuðning hjá stjórn knatt-
spyrnusambandsins.
Landsem er 50 ára gömul og lék með nokkrum norskum liðum auk þess
að spila 15 landsleiki. Eftir að ferlinum lauk fór hún út í þjálfun og gerði
til að mynda Asker tvívegis að norskum meisturum. gummih@mbl.is
Landsem hættir með Noreg
Eli
Landsem
Noregur
Haugesund – Strömgodset......................2:3
Andrés Már Jóhannesson var ónotaður
varamaður í liði Haugesund.
Staðan:
Rosenborg 26 14 10 2 48:20 52
Strömsgodset 27 15 7 5 56:36 52
Molde 26 16 4 6 45:30 52
Tromsö 25 13 6 6 41:24 45
Brann 26 13 3 10 54:41 42
Viking 26 11 7 8 36:33 40
Vålerenga 26 11 5 10 39:39 38
Haugasund 27 10 7 10 43:38 37
Aalesund 26 8 9 9 34:34 33
Hönefoss 26 7 11 8 28:32 32
Odd Grenland 26 8 7 11 30:39 31
Lilleström 26 6 11 9 35:44 29
Sogndal 26 6 9 11 24:34 27
Fredrikstad 26 7 3 16 36:50 24
Sandnes Ulf 25 5 7 13 30:49 22
Stabæk 26 4 2 20 22:58 14
Danmörk
Nordsjælland – Aalborg ...........................1:0
Staðan:
København 13 8 5 0 30:13 29
AaB 14 8 2 4 29:14 26
Nordsjælland 14 7 4 3 27:13 25
AGF 13 6 4 3 24:15 22
Randers 13 6 2 5 16:22 20
OB 13 5 4 4 16:18 19
Horsens 13 3 7 3 15:20 16
SønderjyskE 13 4 2 7 18:25 14
Midtjylland 13 3 4 6 18:24 13
Esbjerg 13 2 5 6 12:15 11
Silkeborg 13 3 2 8 11:29 11
Brøndby 13 1 5 7 12:20 8
Svíþjóð
Malmö – Djurgården ................................3:1
Staðan:
Malmö 28 16 7 5 48:30 55
Häcken 27 16 5 6 63:32 53
Elfsborg 27 16 4 7 42:26 52
AIK 27 14 8 5 37:25 50
Helsingborg 27 11 10 6 45:30 43
Norrköping 27 12 7 8 42:42 43
Djurgården 28 8 12 8 36:38 36
IFK Gautaborg 27 8 12 7 35:38 36
Åtvidaberg 27 9 7 11 45:45 34
Kalmar 27 9 7 11 34:39 34
Mjällby 27 8 9 10 30:34 33
Gefle 27 8 8 11 21:31 32
Syrianska 27 8 5 14 30:43 29
Sundsvall 27 6 10 11 32:38 28
Örebro 27 3 8 16 26:45 17
GAIS 27 1 9 17 21:51 12
Þýskaland
Augsburg – Hamburg...............................0:2
Staðan:
Bayern M. 8 8 0 0 26:2 24
E.Frankfurt 8 6 1 1 19:11 19
Schalke 8 5 2 1 17:8 17
Hamburger 9 4 1 4 11:11 13
Dortmund 8 3 3 2 18:11 12
Leverkusen 8 3 3 2 13:11 12
Hannover 8 3 2 3 16:13 11
Freiburg 8 3 2 3 13:10 11
Mainz 8 3 2 3 9:10 11
W.Bremen 8 3 1 4 14:13 10
F.Düsseldorf 8 2 4 2 6:8 10
Stuttgart 8 2 3 3 8:14 9
M’gladbach 8 2 3 3 9:16 9
Hoffenheim 8 2 2 4 13:17 8
Nürnberg 8 2 2 4 7:14 8
Augsburg 9 1 3 5 5:13 6
Greuther F. 8 1 2 5 5:14 5
Wolfsburg 8 1 2 5 2:15 5
Belgía
Standard Liege – Cercle Brugge ...........2:1
Eiður Smári Guðjohnsen skoraði mark
Cercle en hann og Arnar Þór Viðarsson
léku allan leikinn fyrir Cercle Brugge.
KNATTSPYRNA
1. deild karla
Selfoss – Fjölnir ....................................27:21
Grótta – Þróttur ....................................23:18
Fylkir – ÍBV ..........................................26:34
Staðan:
Stjarnan 5 3 2 0 143:117 8
Selfoss 5 4 0 1 129:108 8
Víkingur 5 3 1 1 131:116 7
ÍBV 5 3 1 1 156:112 7
Grótta 5 2 0 3 127:125 4
Þróttur 5 2 0 3 113:145 4
Fjölnir 5 0 1 4 119:154 1
Fylkir 5 0 1 4 111:152 1
Þýskaland
Grosswallstadt – Minden.....................35:22
Sverre Jakobsson skoraði ekki mark fyr-
ir Grosswallstadt.
Vignir Svavarsson skoraði 2 mörk fyrir
Minden
Staða efstu liða:
RN Löwen 8 8 0 0 234:199 16
Füchse Berlin 9 7 2 0 266:233 16
Kiel 8 7 1 0 278:207 15
Hamburg 8 5 2 1 236:212 12
Wetzlar 9 5 1 3 256:250 11
N-Lübbecke 9 5 0 4 259:249 10
Flensburg 7 4 2 1 224:175 10
Magdeburg 9 5 0 4 271:253 10
HANDBOLTI