Morgunblaðið - 27.10.2012, Side 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2012
KÖRFUBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Jón Ólafur Jónsson var í miklu stuði
þegar Snæfell valtaði yfir KR í
DHL-höllinni í Frostaskjóli á
fimmtudagskvöldið. Nonni Mæju
eins og hann er kallaður í Stykk-
ishólmi hefur verið drjúgur í fyrstu
leikjunum í Dominos-deildinni. Að
þessu sinni datt hann hins vegar í
feiknarlegt stuð og hitti úr 12 skot-
um af 13 í leiknum.
Á opinberum pappírum er Jón
Ólafur þó með 100% skotnýtingu en
að hans sögn virðist hafa gleymst að
setja á leikskýrsluna eitt erfitt
þriggja stiga skot sem hann brenndi
af seint í leiknum. „Það væri svolítið
ljótt að eigna sér þetta því ég veit
ekki betur en ég hafi klikkað á einu
þriggja stiga skoti rétt áður en ég
fór út af,“ sagði Jón Ólafur og var
heiðarleikinn uppmálaður þegar
Morgunblaðið tók púlsinn á honum í
gær.
Þó að hann hafi ekki verið með
fullkomna skotnýtingu er engu að
síður um sérstaklega góða frammi-
stöðu að ræða. Í íþróttunum er
stundum talað um að fólk komist
einstaka sinnum í „zone“ eins og
það heitir á lélegri íslensku, þegar
nánast allt gengur upp. Jón líkti
sinni frammistöðu við það fyrirbæri.
Allt opið eftir fyrstu tvö
þriggja stiga skotin
„Ég man ekki eftir því að hitta
svona vel þegar um er að ræða
svona mörg skot. Eftir að fyrstu tvö
þriggja stiga skotin fóru niður voru
hin skotfærin frekar opin. Eftir því
sem leið á leikinn fóru KR-ingar að
gefa svolítið eftir en við héldum
áfram að splundra vörn þeirra. Þá
fékk ég opin færi eins og margir
aðrir í liðinu og við hittum mjög
vel,“ sagði Jón Ólafur sem skoraði
27 stig í leiknum. Hann spilaði eitt
keppnistímabil með KR fyrir sex ár-
um og þekkir sig ágætlega í Vest-
urbænum.
„Væntanlega bjóst enginn við
þessum úrslitum. Við spiluðum
varnarleikinn alvega hrikalega vel
alveg frá byrjun. Við slökuðum ekki
á í byrjun þriðja leikhluta þegar
þeir reyndu að spýta í lófana. Þá
gáfum við ennþá meira í. Þá brotn-
uðu þeir alveg og eftir það varð
þetta frekar auðvelt og þeir gáfu
þetta upp á bátinn í síðasta leikhlut-
anum,“
sagði Jón Ólafur ennfremur við
Morgunblaðið í gær en lokatölur
leiksins urðu 104:63 Snæfelli í hag.
Hittnin ekki 100 prósent
Jón Ólafur Jónsson viðurkennir að hafa ekki átt fullkominn leik gegn KR
Tölfræðin klikkaði Hitti úr 12 skotum af 13 KR-ingar brotnuðu alveg
Morgunblaðið/Golli
Hittinn Jón Ólafur átti frábæran
leik gegn KR en ekki fullkominn.
Sundsvall Dragons, lið íslensku
landsliðsmannanna Hlyns Bærings-
sonar og Jakobs Arnar Sigurð-
arsonar í sænsku úrvalsdeildinni í
körfubolta, er á miklu skriði þessa
dagana og vann sinn fimmta sigur í
sex leikjum í gærkvöldi.
Drekarnir frá Sundsvall höfðu þá
betur gegn LF Basket, 92:77, og átti
Hlynur stórleik. Hann skoraði 26
stig, tók 15 fráköst og gaf sex stoð-
sendingar. Jakob Örn bætti svo við
þrettán stigum auk þess sem hann
tók þrjú fráköst og gaf tvær stoð-
sendingar. Peter Öqvist, landsliðs-
þjálfari Íslands, er einnig þjálfari
Sundsvall og hefur honum tekist að
koma liðinu í gang eftir tap í fyrstu
umferð deildarinnar.
Gærkvöldið var
ekki jafngott hjá
öðrum landsliðs-
manni, Pavel Er-
molinskij. Hann
þurfti að sætta
sig við tap með
liði sínu Norrköp-
ing Dolphins
gegn 08 Stokk-
hólmi, 81:68, á
útivelli. Pavel
skoraði aðeins fjögur stig en var frá-
kastahæstur með tíu fráköst. Hann
fékk aftur á móti dæmdar á sig tvær
tæknivillur og var því rekinn úr hús-
inu eins og gerist þegar menn gera
sig seka um slíkan verknað.
tomas@mbl.is
Hlynur óstöðvandi
í sigri Sundsvall
Hlynur
Bæringsson
Tómas Þór Þórðarson
tomas@mbl.is
Skallagrímsmenn úr Borgarnesi
unnu sinn þriðja sigur í röð í Dom-
inos-deild karla í körfubolta í gær-
kvöldi þegar þeir lögðu ÍR nokkuð
örugglega, 80:71, á heimavelli. Eftir
að hafa tapað fyrsta leik tímabilsins í
nýliðaslag gegn KFÍ í Ísafjarðarbæ
hefur Skallagrímur nú unnið þrjá
leiki í röð og er ásamt Stjörnunni,
Snæfelli, Fjölni og Grindavík með
sex stig á toppi deildarinnar.
Carlos Medlock skoraði 34 stig
fyrir Skallagrímsmenn í gærkvöldi
og áfram heldur Páll Axel Vilbergs-
son að sanna hversu mikill happa-
fengur hann er fyrir nýliðana. Páll
Axel skoraði 18 stig í gærkvöldi og
tók auk þess fjögur fráköst.
ÍR-ingar gerðu heiðarlega tilraun
til að saxa á sextán stiga forskot
Skallagríms í fjórða leikhlutanum í
Borgarnesi í gær og fór Hreggviður
Magnússon fyrir sínum mönnum.
Breiðhyltingar komust ekki nær en
níu stig á endanum en Hreggviður
var stigahæstur í liði gestanna með
25 stig og tók þess utan sex fráköst.
Eric James Palm skoraði 20 stig.
Keflavík vann KFÍ
í þess eigin búningum
Keflavík er ekki vant því að tapa
fyrstu fjórum leikjum tímabilsins en
sú var staðreyndin fyrir gærkvöldið.
Þessi árangur hefur eitthvað komið
flatt upp á menn í Reykjanesbæ því
þeir tóku sig til og gleymdu keppn-
isbúningum sínum heima. Þurftu
gestirnir að spila í útivallarbúningum
KFÍ og því næg auglýsing í boði fyrir
styrktaraðila Ísfirðinganna.
Það fór þó svo að Keflavík innbyrti
sinn fyrsta sigur í deildinni með því
að leggja KFÍ í þess eigin búningum,
79:69. Kevin Glitner átti flottan leik
fyrir gestina og skoraði 24 stig og tók
fimm fráköst. Momcilo Latinovic
skoraði 25 stig fyrir KFÍ.
Þrír sigrar í röð
hjá Skallagrími
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Traustur Páll Axel Vilbergsson hefur spilað vel með nýliðunum.
Keflavík vann í búningum KFÍ
Dominosdeild karla
KFÍ – Keflavík 69:79
Ísafjörður, úrvalsdeild karla, 26. október
2012.
Gangur leiksins: 4:2, 6:14, 13:22, 16:24,
19:26, 23:31, 32:37, 39:43, 44:49, 46:55,
46:62, 49:65, 58:65, 60:67, 63:70, 69:79.
KFÍ: Momcilo Latinovic 25, Bradford
Harry Spencer 15/5 fráköst, Mirko Stefán
Virijevic 11/5 fráköst, Pance Ilievski 8/4
fráköst, Jón Hrafn Baldvinsson 4/7 fráköst,
Óskar Kristjánsson 4, Christopher Miller-
Williams 2/5 fráköst.
Fráköst: 17 í vörn, 13 í sókn.
Keflavík: Kevin Giltner 24/5 fráköst, Mich-
ael Graion 18/17 fráköst, Darrel Keith
Lewis 15/5 fráköst, Magnús Þór Gunnars-
son 9/4 fráköst, Valur Orri Valsson 4/6 frá-
köst, Snorri Hrafnkelsson 4, Ragnar Ger-
ald Albertsson 3, Almar Stefán
Guðbrandsson 2/5 fráköst/3 varin skot.
Fráköst: 31 í vörn, 11 í sókn.
Dómarar: Björgvin Rúnarsson, Rögnvald-
ur Hreiðarsson, Jón Bender.
Áhorfendur: 100
Skallagrímur – ÍR 80:71
Borgarnes, úrvalsdeild karla, 26. október
2012.
Gangur leiksins: 7:5, 10:13, 21:15, 28:19,
33:24, 35:32, 36:32, 39:34, 43:40, 49:44,
57:44, 64:48, 66:53, 66:57, 69:66, 80:71.
Skallagrímur: Carlos Medlock 34, Páll Ax-
el Vilbergsson 18/4 fráköst, Haminn
Quaintance 15/8 fráköst, Davíð Ásgeirsson
5, Trausti Eiríksson 3/6 fráköst, Sigmar
Egilsson 3, Orri Jónsson 1/6 fráköst/8 stoð-
sendingar, Birgir Þór Sverrisson 1.
Fráköst: 25 í vörn, 6 í sókn.
ÍR: Hreggviður Magnússon 25/6 fráköst,
Eric James Palm 20, Nemanja Sovic 13/6
fráköst, D’Andre Jordan Williams 9/5 frá-
köst, Hjalti Friðriksson 2/5 fráköst, Þor-
valdur Hauksson 2/10 fráköst.
Fráköst: 22 í vörn, 10 í sókn.
Dómarar: Jón Guðmundsson, Georg And-
ersen, Davíð Tómas Tómasson.
Staðan:
Skallagrímur 4 3 1 342:310 6
Snæfell 4 3 1 412:344 6
Grindavík 4 3 1 395:355 6
Stjarnan 4 3 1 362:334 6
Fjölnir 4 3 1 333:320 6
Þór Þ 4 2 2 331:336 4
KR 4 2 2 328:349 4
KFÍ 4 2 2 317:351 4
ÍR 4 1 3 322:351 2
Keflavík 4 1 3 325:350 2
Njarðvík 4 1 3 319:348 2
Tindastóll 4 0 4 303:341 0
1. deild karla
Reynir S. – Hamar ................................64:91
FSu – ÍA.................................................82:69
Haukar – Þór Akureyri.......................103:84
Breiðablik – Augnablik.........................77:61
Staðan:
Hamar 3 3 0 264:199 6
Valur 3 3 0 256:202 6
Haukar 3 2 1 276:245 4
Höttur 3 2 1 250:225 4
Breiðablik 3 2 1 258:234 4
Þór A. 3 1 2 243:270 2
Augnablik 3 1 2 215:250 2
FSU 3 1 2 228:244 2
ÍA 3 0 3 222:263 0
Reynir S. 3 0 3 198:278 0
Svíþjóð
LF Basket – Sundsvall .........................77:92
Jakob Örn Sigurðarson skoraði 13 fyrir
Sundsvall og tók þrjú fráköst en Hlynur
Bæringsson skoraði 25 stig, tók 16 fráköst
og gaf sex stoðsendingar.
Stockholm – Norrköping ....................68:81
Pavel Ermolinskij skoraði fjögur fyrir
Norrköping og tók tíu fráköst en var rek-
inn úr húsi með tvær tæknivillur.
KÖRFUBOLTI
Verslunarrými
Brautarholt 26-28 | 105 Reykjavík
Sími 511 1100 | www.rymi.is | www.riverslun.is
Verslunarhillur
Verðmerkilistar
Gínur
Útiskilti
Fataslár