Morgunblaðið - 12.11.2012, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2012
Tjald yfir palli.
Loftkæling. CD spilari. Stokkur milli sæta ofl.
Hægt að breyta í station.
Frábært verð: 6.490.000 kr.
Nýr Land Rover Defender
Crew Cab S 5 manna.
Fiskislóð 16
Sími: 577 3344
Opið 12 til 18 virka daga
Bíllinn
úr nýju
007 m
yndinn
i Skyf
all
fæst h
já Spa
ribíl á
ca. 3,5
milljón
a afslæ
tti
Fiskislóð 16
Sími: 577 3344
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Fimmta píanókeppni Íslandsdeildar Evrópusambands pí-
anókennara var haldin í Salnum dagana 7.-11. nóvember.
Keppnin er fyrir unga og efnilega píanónemendur, 25 ára og
yngri, og er markmiðið með henni að gefa nemendunum
tækifæri til að spreyta sig við krefjandi aðstæður. Keppt er í
þremur aldursflokkum, 14 ára og yngri, 18 ára og yngri og
25 ára og yngri, en jafnframt eru veitt verðlaun fyrir besta
flutning á íslensku píanóverki, sem er sérstaklega samið fyr-
ir keppnina.
Anna Rún Atladóttir, formaður Íslandsdeildar EPTA,
segir keppnina mikla prófraun fyrir ungmennin, sem þurfi
að skila inn umsókn og verkaskrá í júní og æfi sig í marga
mánuði fyrir keppnina. „Þau þjálfa með sér sjálfsaga, ein-
beitingu og færni til að skila sem bestum flutningi undir
álagi og svo er þetta voða gaman, að koma og hlusta á aðra
og vera í umhverfi þar sem margir eru að spila,“ segir Anna.
Alls skráðu 45 ungmenni sig til keppni í ár og er það
metþátttaka. Það var Alexander Smári Kristjánsson Edel-
stein sem sigraði í flokki 14 ára og yngri, Lilja Cardew sem
sigraði í flokki 18 ára og yngri og Jane Ade Sutarjo sem
sigraði í flokknum 25 ára og yngri. Jane hlaut einnig verð-
laun fyrir besta flutning á píanóverkinu frumsamda en það
var Daníel Bjarnason sem samdi verkið að þessu sinni.
holmfridur@mbl.is
Ögrandi tækifæri fyrir
efnilega píanónemendur
Metþátttaka í píanókeppni EPTA Æfa í marga mánuði
Morgunblaðið/Kristinn
Píanó Jane Ade Sutarjo bar sigur úr býtum í flokknum 25 ára og yngri en hún fékk einnig verðlaun fyrir besta
flutning á frumsömdu verki Daníels Bjarnasonar. Víkingur Heiðar Ólafsson vann fyrstu keppnina árið 2000.
Músík Anna segir EPTA-keppnina góðan undirbúning
fyrir nemendurna fyrir þátttöku í öðrum keppnum.
Grindavíkurbær mun lækka út-
svarið á næsta ári úr 14,48% í
14,38%. Ráðast á í fjárfestingar fyrir
um 600 milljónir árið 2013 og meiri
framkvæmdir fylgja síðar.
„Undanfarin tvö ár höfum við
unnið eftir áætlun um að ná jafn-
vægi í rekstri 2013 og það gengur
betur en við áttum von á,“ sagði Ró-
bert Ragnarsson bæjarstjóri. Geng-
ið var í það árið 2011 að borga upp
nánast öll lán. Á næsta ári verða af-
borganir af lánum tæpar 15 millj-
ónir. Mikið hefur verið hagrætt og
gjaldskrár hækkaðar en þær eru þó
heldur lægri en gengur og gerist í
nágrenninu, að sögn Róberts.
„Stóri viðsnúningurinn er vöxtur í
útsvarsstofninum og tekjur okkar
hafa vaxið hratt. Hér hefur verið
minna atvinnuleysi en annars staðar
á svæðinu. Laun sjómanna hafa
hækkað og það hafa verið góðir
tímar í ferðaþjónustu,“ sagði Ró-
bert.
Hann sagði að útsvarslækkunin
yrði tekin í smáum skrefum. Til-
gangurinn er að skila einhverju til
íbúanna og eins að laða aðkomusjó-
menn til að setjast að í Grindavík.
Róbert fór í báta á síðustu vetr-
arvertíð og kynnti sjómönnunum
bæinn. Þeir nefndu að það vantaði
atvinnu fyrir maka, leiguhúsnæði og
fjárhagslegan ávinning til þess að
þeir flyttu. Nú er verið að koma til
móts við þessar óskir.
gudni@mbl.is
Útsvarið lækkar
í Grindavík 2013
Viðsnúningur varð í útsvarstekjum
Morgunblaðið/RAX
Grindavík Betri afkoma er nú í sjáv-
arútvegi og ferðaþjónustu en áður.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Almannavarnadeild ríkislögreglu-
stjóra er byrjuð að vinna að aðgerða-
áætlun vegna komu skemmtiferða-
skipa í Faxaflóahafnir, að sögn Gísla
Gíslasonar, hafnarstjóra hjá Faxa-
flóahöfnum sf. Stefnt er að því að
áætlunin verði tilbúin fyrir næsta
vor. Hann sagði þörfina fyrir slíka
áætlun tvímælalaust vera fyrir
hendi. Mögulega gæti áætlunin kom-
ið fleirum til góða enda heimsæktu
skemmtiferðaskip ýmsar íslenskar
hafnir utan Faxaflóans.
Brýnt er að gera viðbragðs- og að-
gerðaáætlun í Reykjavíkurhöfn
vegna mögulegra sjóslysa skemmti-
ferðaskipa, að mati Júlíusar Vífils
Ingvarssonar, borgarfulltrúa og
stjórnarmanns í Faxaflóahöfnum sf.
Hann bendir á að um borð í stærstu
skipum sem hingað koma geti verið
meira fjögur þúsund manns. Tak-
markaður tækja- og björgunarbún-
aður sé til staðar miðað við stærð
þessara skipa. Fulltrúar Sjálfstæð-
isflokks lögðu fram bókun í stjórn
Faxaflóahafna föstudaginn 9. nóv-
ember. Þar kemur fram að greinar-
gerð um öryggi skemmtiferðaskipa
sem Júlíus Vífill og Hanna Birna
Kristjánsdóttir, borgarfulltrúi, ósk-
uðu eftir í stjórn Faxaflóahafna sf.
sýni hve hættan geti verið mikil.
Tvö skip lentu í vandræðum
„Á þessu sumri komu 88.500 far-
þegar til hafnar í Reykjavík með 82
skemmtiferðaskipum á þremur mán-
uðum. Tvö stór farþegaskip lentu í
vandræðum vegna hliðarvinds,“ seg-
ir í bókuninni. Bent er á í bókuninni
að góð viðbragðsáætlun hafi verið
gerð vegna mögulegs ferjuslyss á
Seyðisfirði og eins er til aðgerða-
áætlun vegna hvalaskoðunarbáta og
annarra farþegaskipa á Húsavík.
Stjórn Faxaflóahafna hefur áður
rætt um öryggi skemmtiferðaskipa í
höfnunum. Skrifleg greinargerð
hafnarstjóra og yfirhafnsögumanns
um það efni var lögð fram á stjórn-
arfundi 12. október s.l. Þar kemur
m.a. fram að áhættuþættir við mót-
töku skipa, brottför þeirra og viðlegu
séu nokkrir. Í fyrsta lagi veður, í
öðru lagi ástand og búnaður skips, í
þriðja lagi almenn áhætta varðandi
eldsvoða og loks áhætta vegna mis-
taka.
Einnig er gerð grein fyrir drátt-
arbátum sem Faxaflóahafnir hafa yf-
ir að ráða. Engin höfn á Íslandi ræð-
ur yfir betri dráttarbátum en
Faxaflóahafnir. Sá öflugasti, Magni,
er með 40 tonna togkraft. Til sam-
anburðar er varðskipið Þór með 120
tonna togkraft. Dráttarbátur með
t.d. 80 tonna togkraft er talinn geta
verið góð viðbót við bátaflota hafn-
anna, en slíkur bátur myndi ekki
leysa allan vanda. Dráttarbátur með
80 tonna togkraft sem gæti bæði tog-
að og ýtt með sama krafti (ASD tug)
myndi kosta 1,2-1,3 milljarða.
Viðbúnaður vegna stórskipa
Unnið að aðgerðaáætlun vegna
mögulegra óhappa skemmtiferðaskipa
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Stórskip Caribbean Princess seinkaði brottför frá Reykjavík 30. ágúst sl.
vegna roks. Skipið komst ekki frá bryggju þrátt fyrir aðstoð dráttarbáta.
Stöðug fjölgun farþega
» Um borð í 82 skemmti-
ferðaskipum sem komu til
Reykjavíkur 2012 var pláss fyrir
rúmlega 100.000 farþega, mið-
að við að selt væri í neðri kojur.
» Árið 2011 komu 63.000 far-
þegar með skemmtiferðaskip-
um til Reykjavíkur.
» Miðað við 4% vöxt á ári gætu
komið um 140.000 farþegar til
Reykjavíkur árið 2020 með
skipum. Miðað við meðalaukn-
ingu undanfarin ár gætu þeir
farið yfir 200.000 árið 2020.