Morgunblaðið - 12.11.2012, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2012
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
2
2
0
2
siminn.is · 8004000@siminn.is
Vertu með símkerfið
í öruggum höndum
hjá Símanum
Fyrirtæki
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
„Ég er gríðarlega stoltur að hafa fengið þetta traust
frá félögum mínum. Það hefðu fáir trúað því að ráð-
herra efnahagsmála og velferðarmála, sem hefur
þurft að takast á við þau verkefni sem ég hef gert
sem ráðherra, bæði hvað varðar atvinnuúrræði og
skuldavanda heimilanna, ætti kost á endurkjöri,“
sagði Árni Páll Árnason á laugardag, þegar ljóst
varð að hann hafði tryggt sér fyrsta sætið í flokks-
vali Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi.
Árni fékk 1.041 atkvæði í 1. sæti, Katrín Júl-
íusdóttir 1.364 atkvæði í 1.-2. sæti, Magnús Orri
Schram 1.250 atkvæði í 1.-3. sæti, Lúðvík Geirsson
1.105 atkvæði í 1.-4. sæti og Margrét Gauja Magn-
úsdóttir 889 atkvæði í 1.-5. sæti. Í 6. sæti á listanum
lenti Margrét Júlía Rafnsdóttir, Amal Tamimi í 7.
sæti, Anna Sigríður Guðnadóttir í 8. sæti, Stefán
Rafn Sigurbjörnsson í 9. sæti og Geir Guðbrands-
son í 10. sæti. Paralistaaðferð var beitt til að tryggja
jafnt hlutfall kynja og því var Margrét Gauja færð
upp í 4. sætið og Lúðvík niður í 5. sætið.
„Við Árni Páll fáum bæði gott endurkjör og fyrir
það er ég afar þakklát,“ sagði Katrín eftir að nið-
urstöðurnar voru tilkynntar. Hún sagði úrslitin
ekki vonbrigði. „Nei, nei, þetta eru engin vonbrigði.
Við fáum endurkjör í sömu sæti og í síðustu kosn-
ingum og það er gott mál,“ sagði Katrín.
Aðspurð í gær hvort hún hefði tekið ákvörðun um
framboð til formanns Samfylkingarinnar sagðist
hún ekki myndu taka ákvörðun fyrr en öllum próf-
kjörum flokksins væri lokið. „Menn eru bara að
klára þetta fyrst og síðan fara menn að spá í þessi
mál. Ég fæ töluverða hvatningu í þetta en ég skoða
þetta vandlega og tek mér tíma í það,“ sagði Katrín
um formannsslaginn.
Alls greiddu 2.129 atkvæði í flokksvalinu í Suð-
vesturkjördæmi en 5.693 voru á kjörskrá. Nokkur
bið varð á því að úrslit yrðu kunngjörð en að sögn
Valgerðar Guðjónsdóttur, yfirmanns kjörstjórnar,
þurfti að fara yfir þau tæplega 150 atkvæði sem
bárust skriflega.
„Fyrst var farið yfir hvort nöfnin sem voru á
pappírnum væru á kjörskrá og svo þurfti að kanna
hvort einhver hefði bæði kosið rafrænt og skriflega.
Það kom upp í einu tilviki. Það var áhugasamur fé-
lagsmaður sem taldi sig hafa gert mistök í rafrænu
kosningunni. Hann mætti á kjörstað og gaf atkvæði
þar líka,“ sagði Valgerður í samtali við mbl.is í gær.
Af þeim sem í framboði voru fékk enginn fleiri at-
kvæði í 1.-6. sæti en Magnús Orri Schram, eða 1.841
atkvæði. „Ég tel að með þessu sé fólk að taka undir
þá framtíðarsýn sem ég hef kynnt að undanförnu.
Þar legg ég áherslu á nútímaatvinnulíf og græna
framtíð. Eins tel ég að hér verði ekki verðmæta-
sköpun nema með almennilegu velferðarkerfi.
Þessi sýn hefur farið vel í kjósendur í Kraganum,“
sagði Magnús Orri á laugardag.
Árni Páll í fyrsta sæti
Úrslitin ekki vonbrigði, segir Katrín Júlíusdóttir Tekur ekki ákvörðun um
formannsframboð fyrr en að prófkjörum loknum Einn greiddi atkvæði tvisvar
Morgunblaðið/Eggert
1. sæti Árni taldi líklegt að hann næði þingsæti en sagðist skilja þá sem vildu að kona leiddi listann.
Niðurstaða í SV-kjördæmi
Árni Páll
Árnason
Katrín
Júlíusdóttir
Magnús Orri
Schram
Margrét Gauja
Magnúsdóttir
Lúðvík
Geirsson
1.041
1.364
1.250
889
1.105
1. sæti
1.-2. sæti
1.-3. sæti
1.-5. sæti
1.-4. sæti
0 200 400 600 800 1.00
0
1.20
0
1.40
0
Kristján L. Möller hreppti fyrsta
sætið í flokksvali Samfylkingarinnar
í Norðausturkjördæmi um helgina.
Hlaut hann 609 atkvæði í 1. sæti,
Erna Indriðadóttir 311 atkvæði í
1.-2. sæti, Jónína Rós Guðmunds-
dóttir 403 atkvæði í 1.-3. sæti, Sig-
mundur Ernir Rúnarsson 471 at-
kvæði í 1.-4. sæti, Helena Þ.
Karlsdóttir 517 atkvæði í 1.-5. sæti
og Örlygur Hnefill Jónsson 561 at-
kvæði í 1.-6. sæti.
„Mér finnst ég finna mikinn byr í
þessu flokksvali og er óskaplega
þakklát þeim sem studdu mig,“ sagði
Erna Indriðadóttir á laugardag.
Hún sagðist vona að Samfylkingin
fengi a.m.k. tvö þingsæti í kjördæm-
inu og helst fleiri.
„Ég stefndi á að verða ekki neðar
en þriðja sætið og vildi helst taka að
mér baráttusætið en fór sæti neðar
og við það mun ég una,“ sagði Sig-
mundur Ernir Rúnarsson í samtali
við mbl.is í gær.
Hann sagði að nú væri markmiðið
einfaldlega að ná inn fjórum þing-
mönnum í kjördæminu en mikilvæg-
ast væri að boðskapur jafnaðar-
mennskunnar héldi áfram að lifa og
dafna.
Kristján
Möller
Erna
Indriðadóttir
Kristján
leiðir í NA-
kjördæmi