Morgunblaðið - 12.11.2012, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2012
Skógarhlíð 18 sími 595 1000 www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
• •
Osló
frá kr. 9.900
Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt verð á völdum
dagsetningum í beinu flugi til eða frá Osló í vetur.
Nú er tækifæri til að bregðast skjótt við og næla sér
sæti á frábærum kjörum!
Verð kr. 9.900.
Netverð. Flugsæti á mann aðra leiðina með sköttum.
Vilborg Arna Gissurardóttir, sem
stefnir að því að ganga á suðurpólinn
fyrst íslenskra kvenna, bíður nú í
Punta Arena í Síle eftir því að geta
flogið á upphafsstað göngu sinnar.
Sökum óhagstæðra lendingarskil-
yrða á jöklinum hefur ekki verið
hægt leggja af stað fyrr. Vonir
standa þó til að skilyrðin á svæðinu
batni næsta sólarhringinn. Miðað við
aðstæður í gærkvöldi reiknar Vil-
borg ekki með að geta hafið gönguna
fyrr en á þriðjudag. Hún þarf enn
fremur að staldra við í tjaldbúðum
ALE (antarctic logistics and expedi-
tions) á suðurskautinu í að minnsta
kosti einn dag áður en ferðin getur
hafist. Leiðangrinum er stjórnað frá
ALE og verður Vilborg í sambandi
við tjaldbúðirnar minnst einu sinni á
sólarhring meðan á ferð hennar um
suðurpólinn stendur og njóta ráð-
gjafar læknis, veðurfræðings og
samskiptafræðings.
Suðurpólsfarinn Vil-
borg Arna föst í Síle
Morgunblaðið/Kristinn
Á pólinn Áætlað er að ferðin taki
um 50 daga með 22 km göngu á dag.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Skipulagsmál eru fyrirferðarmikil á Kirkjuþingi 2012, að
sögn séra Steinunnar Arnþrúðar Björnsdóttur, verkefn-
isstjóra hjá Þjóðkirkjunni. Þar á meðal eru tillögur um
sameiningu prestakalla og prófastsdæma og tillögur sem
lúta að auknum sveigjanleika í innra skipulagi kirkj-
unnar. Þegar hafa nokkur mál verið afgreidd til löggjaf-
arnefndar og annarrar umræðu.
Á laugardag var fyrri umræða um að sameina Pat-
reksfjarðarprestakall og Bíldudals- og Tálknafjarð-
arprestakall. Fram kom á þinginu að mikil andstaða er
við sameininguna heima í héraði.
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, mælti í
gær fyrir tillögu um að fækka prófastsdæmum á höf-
uðborgarsvæðinu úr þremur í tvö. Nýtt Reykjavík-
urprófastsdæmi myndi ná yfir Seltjarnarnes, Reykjavík,
Mosfellsbæ, Kjalarnes og Kjós. Reykjanesprófastsdæmi
næði yfir Kópavog, Garðabæ, Hafnarfjörð og Suðurnes.
Tillagan var gagnrýnd og voru þingmenn ekki á einu
máli um reynsluna af sameiningu prófastsdæma.
Séra Baldur Kristjánsson mælti í gær fyrir tillögu
um skipun kirkjunnar í héraði, meðal annars hvort
minnka eigi prófastsdæmin frá því sem nú er.
Sólveig Lára Guðmundsdóttir, vígslubiskup, mælti í
gær fyrir tillögu um framtíðarskipan sókna, prestakalla
og prófastsdæma á suðvesturhorninu. Í því máli eru
meðal annars fólgin áform um stóraukið samstarf sókna
á svæðinu og breytta skipan prestakalla. Hugmyndin er
að þetta leiði til betri þjónustu kirkjunnar og nýtingar
starfsmanna. Sú gagnrýni kom m.a. fram á Kirkjuþingi í
gær að ekki væri ljóst að nokkur fjárhagslegur ávinn-
ingur væri af slíkri sameiningu.
Kristján Valur Ingólfsson, vígslubiskup, mælti fyrir
tillögu um sameiningu Garðaprestakalls (Akraness) og
Saurbæjarprestakalls í Hvalfirði. Sameiningin er gerð til
að jafna þjónustubyrði presta á svæðinu en í Garða-
prestakalli búa 6.625 íbúar, þar af 5.791 í þjóðkirkjunni,
en í Saurbæjarprestakalli búa 585 íbúar, þar af 486 í
þjóðkirkjunni. Hugmyndin er að hinu sameinaða presta-
kalli verði þjónað af sóknarpresti og presti.
Breyttar starfsreglur um kirkjunnar þjóna
Þá liggja fyrir Kirkjuþingi tillögur um breyttar
starfsreglur við kosningu biskupa, breytingar á starfs-
reglum um val og veitingu prestsembætta og tillaga um
að við sameiningu prestakalla skuli þau lögð niður, nýtt
prestakall stofnað og það auglýst til umsóknar.
Kirkjuþing 2012 var sett á laugardaginn var og er
reiknað með að því ljúki á fimmtudaginn kemur. Þingið
er að þessu sinni haldið í Grensáskirkju í Reykjavík.
Nánar er hægt að lesa um mál sem fyrir þinginu liggja á
vef Kirkjuþings (www.kirkjuthing.is).
Skipulagsmál kirkj-
unnar fyrirferðarmikil
Kirkjuþing 2012 fjallar m.a. um sameiningu prestakalla
Ljósmynd/kirkjuthing.is
Kirkjuþing 2012 Þingið er haldið í Grensáskirkju í Reykjavík. Reiknað er með að það standi fram á fimmtudag.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Mats Persson, forstöðumaður hug-
veitunnar Open Europe í Lund-
únum, er staddur hér á landi og mun
í dag flytja fyrirlestur í hádeginu um
samrunaþróunina innan Evrópu-
sambandsins og hvernig sú þróun
getur torveldað samkeppnishæfni
Evrópu.
Minni umsvif og opnara ESB
„Open Europe er hugveita. Við er-
um með skrifstofur í Lundúnum og
Brussel og systurhugveitu í Berlín,“
segir Mats Persson og bendir á að
sýn þeirra sem að hugveitunni
standa sé Evrópusamband sem sé
minna um sig og opnara en nú er.
„Evrópusambandið myndi þá ein-
beita sér meira að verslun og við-
skiptum en einnig horfum við mikið
til evruvandans og gagnrýnum t.a.m.
sumar af þeim björgunaraðgerðum
[vegna skuldsettra evruríkja] sem
farið hefur verið í,“ segir Persson.
Í fyrirlestrinum verða m.a. færð
rök fyrir því að frekari samruna-
þróun innan Evrópusambandsins sé
vart æskileg. „Þótt vissulega séu til
rök fyrir auknu samstarfi Evrópu-
ríkja eru einnig ýmsar hættur sem
leynast í því að taka stór skref í átt
til frekari samruna,“ segir Persson
en hætturnar segir hann t.a.m. geta
leynst á sviðum efnahags- og stjórn-
mála.
Persson segir að á árum áður hafi
samruni innan Evrópusambandsins
einkum tekið til stofnana og reglu-
gerða en með tilkomu evruvandans í
seinni tíð sé öldin hins vegar önnur.
„Nú snýst aukinn samruni um
skattlagningu og ákvarðanir tengd-
ar ríkisútgjöldum, þannig að ég tel
að margir kjósendur líti svo á að
ákveðinn kostnaður haldist í hendur
við aukinn samruna,“ segir Persson.
Bendir hann t.a.m. á að ríki Evr-
ópusambandsins, óháð stöðu sinni
gagnvart þeim vanda sem nú ríkir á
evrusvæðinu, glími við ákveðið lýð-
ræðisvandamál.
Í því samhengi nefnir Persson
annars vegar að kjósendur í þeim
ríkjum sem teljast mikið skuldsett
standi frammi fyrir því að þurfa að
sætta sig við það að stjórnmálamenn
í öðrum ríkjum innan evrusvæðisins
taki mikilvægar ákvarðanir í
tengslum við efnahagsmál þeirra
lands. Stjórnmálamenn sem þeir
geti ekki rekið í kosningum.
Á hinn bóginn segir Persson að
skattgreiðendur þeirra evruríkja
sem hafa hæstu lánshæfismats-
einkunnina standi frammi fyrir því
að þurfa að sætta sig við að stutt sé
við ríkisstjórnir í skuldsettu ríkj-
unum sem þeir geti heldur ekki látið
taka pokann sinn í kosningum. „Ég
tel þetta vera mjög erfiða pólitíska
stöðu og það er mjög erfitt að láta
hana koma heim og saman við lýð-
ræðishugmyndir þjóðríkja,“ segir
hann að lokum en fyrirlestur Mats
Perssons fer fram í stofu 201 í Odda,
félagsvísindahúsi Háskóla Íslands.
Samkeppnishæfni Evrópu torvelduð
Mats Persson segir að ríki ESB glími
við ákveðið lýðræðisvandamál
Morgunblaðið/Kristinn
Hádegisfyrirlestur Mats Persson, forstöðumaður Open Europe, flytur í dag
fyrirlestur í Háskóla Íslands um samrunaþróunina innan ESB.
Tveir rúmlega tvítugir karlmenn voru
handteknir rétt fyrir klukkan átta í
gærmorgun eftir að sextán ára stúlka
leitaði á neyðarmóttöku Landspítal-
ans fyrir þolendur kynferðisofbeldis.
Í tilkynningu frá lögreglunni á höf-
uðborgarsvæðinu segir að stúlkan
muni hafa verið gestkomandi í húsi
skammt frá miðborginni um nóttina
en ekki hafa fengist nánari upplýsing-
ar um málsatvik.
Tveir menn handteknir
Lögregla Handtók tvo í gærmorgun.