Morgunblaðið - 12.11.2012, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2012
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
R
annsókninni Kynlíf á
meðgöngu og eftir
fæðingu er ætlað að
varpa nokkru ljósi á
það hvernig konur
upplifa kynlíf á þessu tímabili.
Rannsóknin er lokaverkefni Eddu
Sveinsdóttur og Hildu Friðfinns-
dóttur til kandidatsprófs í ljósmóð-
urfræði. Þær hafa starfað sem
hjúkrunarfræðingar um árabil við
Kvenlækningadeild Landspítalans
en leiðbeinandi þeirra var Sóley S.
Bender, prófessor og for-
stöðumaður fræðasviðs um kyn-
heilbrigði.
Þreytan skín í gegn
Yfir heildina litið segir Edda
það skína í gegnum ferlið að
þreytan sem mæður finni fyrir hafi
mikil áhrif á kynlífið. Á meðgöng-
unni,einkum í byrjun hennar, er
þreytan sérstaklega áberandi og
segjast konurnar oft vera mjög
orkulausar. Þetta hefur áhrif á
kynlöngun þeirra. Þá bíði sjálfs-
myndin gjarnan hnekki á síðustu
metrum meðgöngunnar og voru
konurnar í rannsókninni gjarnar á
að lýsa líkama sínum á þeim tíma
á neikvæðan hátt, t.a.m. með því
að líkja sjálfum sér við hval.
Hér skipti máli fyrir konuna
að fá einlægt hrós frá manni sín-
um. Varðandi líkamsímynd sýndi
það sig einnig að ef hún var góð
fyrir meðgöngu voru konurnar
sáttari við líkama sinn eftir fæð-
ingu og þá varð kynlífið um leið
betra. Hvað varðar kynlíf á með-
göngu segir Hilda að sumum
finnst ekki viðeigandi að stunda
samfarir og finnist það óþægilegt.
Mikilvægt sé að pör geti rætt
þessa hluti sín á milli enda ekkert
því til fyrirstöðu að kynlíf sé
stundað líði konunni vel og allt sé
eðlilegt. Þær eru sammála því að
nokkuð vanti upp á fræðslu hvað
þetta varðar og konur segist ekki
treysta á netið heldur vilji þær
heyra frá sínum ljósmæðrum hvað
óhætt sé að gera.
Aukin þörf fyrir nánd
Sóley bendir á mikilvægi þess
að brjóta upp hugsanagang okkar
um kynlíf. Það sé miklu meira en
bara samfarirnar sjálfar og á
þessu tímabili sé sérstaklega mik-
ilvægt að stuðla að nánd milli para
með kossum, faðmlögum og snert-
ingu. Konurnar sem rætt var við í
rannsókninni nefndu þetta og
sögðu flestar að þær hefðu meiri
þörf fyrir nánd heldur en að hafa
samfarir. Þær aðskilja þannig kyn-
ferðislega nánd og samfarir. Þó
nefnir Edda að athyglisvert sé að
sumar konurnar virðast forðast að
láta slíkar þarfir í ljós þar sem
þær vilji ekki samfarirnar sem
karlmennirnir telja oft að fylgi
slíkum atlotum.
Hlutverkatogstreita
Margir þættir geta haft áhrif
á kynlífið fyrstu mánuðina eftir að
nýr einstaklingur kemur í heiminn.
Einn þeirra er hlutverkatogstreita
Kynlíf á meðgöngu
og eftir fæðingu
Meðganga og fæðing hefur áhrif á kynlíf og er þreytan áberandi áhrifaþáttur.
Á þessu tímabili er mikilvægt að hafa í huga að kynlíf getur innifalið margt
annað en samfarir og skiptir snerting og nánd einna mestu máli fyrir verðandi
og nýbakaðar mæður.
Nánd Atlot og snerting skiptir miklu máli í kynlífi pars á meðgöngu.
Nú þegar kuldinn leggst að okkur
Frónbúum eins og vera ber á þessum
árstíma er ekki úr vegi að skipuleggja
ævintýraferðir út í hinn framandi
heim. Á vefsíðu ferðaskrifstofunnar
Kilroy (sem er á Skólavörðustíg) er
gaman að vafra og láta sig dreyma,
nú eða fá hugmyndir að nýju ferða-
lagi og hefja skipulagið. Kilroy ferða-
skrifstofan sérhæfir sig í ferðum fyrir
ungt fólk og námsmenn. Þeir sem
vilja kynnast heiminum og lenda í
ævintýrum í gegnum nám eða ferða-
lög ættu sannarlega að tékka á þess-
ari síðu. Hvort sem fólk vill fara á
framandi slóðir í Asíu eða Afríku, svo
fátt eitt sé nefnt, eða skreppa í nám
til Nýja-Sjálands eða einhvers annars
lands, kafa undir yfirborð sjávar á
nýjum slóðum, fara í margra daga
gönguferð, nú eða fara í hjálparstarf
og láta gott af sér leiða þar sem þess
er þörf, þá er Kilroy góð byrjun á því
öllu saman. Starfsmenn skrifstof-
unnar hafa sjálfir víðtæka reynslu af
því að ferðast um heiminn svo fólk
ætti ekki að koma að tómum kof-
unum. Nú er lag að láta drauma ræt-
ast!
Vefsíðan www.kilroy.is
AFP
Ferðalög Kilroy ferðaskrifstofan sérhæfir sig í ferðum fyrir ungt fólk.
Í nám eða á flakk út í heim
Mary Poppins er engin venjuleg barn-
fóstra rétt eins og aðdáendur hennar
vita en bókin um Mary Poppins eftir
P.L. Travers hefur nú verið endur-
útgefin hjá bókaforlaginu Sölku
vegna mikillar eftirspurnar.
Mary Poppins hefur lag á því að
gera heiminn okkar skemmtilegri og
hristir hún rækilega upp í heimilislíf-
inu í Kirsuberjagötu þegar hún gerist
barnfóstra hjá Banks-fjölskyldunni.
Bókin um Mary Poppins er löngu
orðin sígild bók sem bæði fullorðnir
og börn hafa gaman af en íslensk
þýðing er í höndum Halls Her-
mannssonar.
Endilega…
…gleymið ekki
Mary Poppins
Barnfóstra Mary Poppins er engum lík.
Samtök lífrænna neytenda bjóða til
kvikmyndasýningar á heimildar-
myndinni Food Matters þriðjudaginn
13. nóvember nk. kl. 20:00 í Norræna
húsinu.
Myndin rannsakar hvernig mat-
urinn sem við borðum getur ann-
aðhvort hjálpað okkur eða unnið
gegn okkur.
Í myndinni ræða ýmsir úr heilsu-
geiranum ræða um núverandi stöðu
matvæla og lyfjageirans. Næringar-
fræðingar, læknar, náttúrulæknar og
blaðamenn fara yfir málefni eins og
lífrænan mat, matvælaöryggi, hrá-
fæði og þerapíur sem grundvallast á
næringu. Myndin er frá árinu 2008
og er athyglisverð fyrir alla þá sem er
umhugað um mat og hvaðan mat-
urinn okkar kemur. Aðgangur er
ókeypis á sýninguna og öllum opinn
meðan húsrúm leyfir.
Heimildarmynd í Norræna húsinu
Mynd fyrir alla sem borða
Morgunblaðið/Valdís Thor
Matur Samtök lífrænna neytenda bjóða á kvikmyndasýningu um lífrænan mat.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Veitingastaður / verslun
Nethylur 2 • 110 Reykjavík • Sími: 587 2882 • galleryfiskur.is
Það er mánudagur!
Fiskur í matinn?
Bjóðum upp á glæsilegt úrval úr fiskborðinu okkar.
Frábæru fiskibollurnar á aðeins 849 kr/kg.
Kíktu við í dag, opið til 18:15