Morgunblaðið - 12.11.2012, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Ómar
Rannsakendur Hilda Friðfinnsdóttir og Edda Sveinsdóttir starfa á kvennadeild Landspítalans.
sem Hilda segir að þær sjái helst
hjá konum sem séu að eignast sitt
fyrsta barn. Lítill tími sé eftir fyr-
ir konuna sjálfa og makann þegar
öll tilveran snúist um barnið. Kon-
an missi svolítið sjónar á sinni per-
sónu til að byrja með. Þá segir
Sóley mjög athyglisvert hvernig
brjóst konunnar verði nánast eign
barnsins og sumum finnst það
þægilegra að vera í brjóstahaldara
meðan á samförum standi. Brjóst-
in verði í raun ekki hluti af kynlíf-
inu aftur fyrr en að brjóstagjöfinni
lokinni.Hilda bendir þó á að þetta
snúist líka um sjálfsmynd kon-
unnar. Sumum finnist óþægilegt
að leki úr brjóstunum en öðrum sé
alveg sama.
Að hefja kynlíf á ný
Þegar viðtölin fóru fram um
sex mánuðum eftir fæðingu
barnanna voru allar nema ein farn-
ar að stunda kynlíf að nýju en það
hófst hjá hinum á bilinu þremur til
tólf vikum eftir fæðingu. Lítill
munur var á upplifun kvennanna
af kynlífinu eftir því hvort þær
hefðu fætt eðlilega eða farið í keis-
araskurð. Fæstar höfðu end-
urheimt kynlöngunina þegar þær
byrjuðu að stunda kynlíf eftir fæð-
ingu og gerðu það meira fyrir
mennina sína frekar en af eigin
hvötum og til að prófa hvort allt
væri í lagi.
„Mér fannst mjög áhugavert
að þær lýsa því að þegar þær hafa
ekki áhuga eða löngun til að
stunda kynlíf eftir fæðingu þá eru
þær frekar að gera það fyrir
mennina sína og fram kom að
þetta væri þjónusta við þá. Þær
hafi líka viljað koma þessu í gang
og sjá hvort allt virkaði,“ segir
Hilda og Edda bætir við að kon-
urnar hafi allar sagt að makinn
hafi ekki þrýst á þær heldur hafi
þetta frekar verið til að friða eigin
samvisku.
Opna má umræðuna frekar
„Konur bera traust til sinnar
ljósmóður og við veltum fyrir okk-
ur hvort það væri þörf á mæðra-
vernd tveim til þremur mánuðum
eftir fæðingu þar sem konan gæti
rætt sína andlegu og líkamlegu líð-
an eftir fæðinguna. Eins sögðu
konurnar okkur að þær hefðu vilj-
að að ljósmæður í mæðravernd
hefðu haft frumkvæði að því að
ræða kynlíf á meðgöngu og eftir
fæðingu. Það mætti því gjarnan
opna umræðuna meira,“ segir
Edda.
Rannsakendur vonast nú til að
geta útbúið fræðsluefni upp úr rit-
gerðinni fyrir þær ljósmæður sem
sinna meðgönguvernd til að auð-
veldara sé að brydda upp á þessu
málefni og ræða það.
Loks vilja þær Sóley, Edda og
Hilda þakka sérstaklega þeim átta
konum sem tóku þátt í rannsókn-
inni. Þátttaka þeirra í jafn per-
sónulegri rannsókn sem þessari sé
þeim mikils virði og geti um leið
hjálpað öðrum konum.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2012
Rjúpnaveiðar hafa gengiðtreglega nú í haust og erhelsta ástæða þess óhag-stætt veðurfar. Miðað við
reynsluna síðustu tvö ár má áætla að
af níu veiðidögum sé aðeins hægt að
stunda rjúpnaveiðar með góðu móti í
fimm daga. Þetta er of stuttur tími
sem skapar ýmis vandamál. Reynsl-
an sýnir að langflestir veiðimenn
veiða aðeins fyrir sig og sína og
stunda veiðarnar þar til þeir hafa
náð í þær rjúpur sem þeir þurfa. Of
fáir veiðidagar skapa því streitu,
veiðimenn þurfa að leggja mikið á
sig og taka því ekki nægjanlegt tillit
að veðurfars, færðar og annarra
þátta. Talsverð hætta er því á að
margir veiðimenn setji sig í óþarfa
hættu vegna vályndra veðra. Þegar
veður er svo hagstætt til veiða þyrp-
ast menn á veiðislóð og á vinsælum
svæðum var nánast örtröð fyrstu
helgina. Sérfræðingar hafa bent á að
ferðir veiðimanna um rjúpnaslóð
geti skapað streitu hjá rjúpunni sem
gerir hana viðkvæmari og minnki
líkur hennar á að lifa af veturinn.
Þessi kenning er að vísu mjög lang-
sótt og getur varla átt við hér á
landi.
Hinsvegar eru sterkar líkur á að
mikið veiðiálag á afmörkuðu svæði
hafi slæm áhrif á rjúpuna. Það er
þekkt að streita getur haft skaðleg
áhrif á hænsfugla, til dæmis fasana.
Ef fuglarnir verða fyrir mikilli
streitu fara þeir að leka, halda illa
þvagi og saur. Af þeim verður þá
sterk lykt sem gerir það að verkum
að rándýr eiga auðveldara með að
finna þá og þær veikjast frekar og
drepast. Rjúpnaveiðar landsmanna
skapa varla streitu hjá rjúpum,
helsta ástæða streitu í íslenska
rjúpnastofninum er fjölgun refs.
Refurinn ónáðar rjúpuna á nóttunni
þegar hún hvílist, rekur hana upp og
truflar á margvíslegan annan hátt.
Mikil fjölgun refs á undanförnum ár-
um á því talsverðan þátt í því að ís-
lenski rjúpnastofninn nær ekki að
rétta úr kútnum. Núverandi skipu-
lag rjúpnaveiða gengur ekki upp, er
slæmt fyrir veiðimenn og rjúpuna.
Hinsvegar er það staðreynd að ís-
lenski rjúpnastofninn er í niður-
sveiflu og þá hefur stofninn dregist
saman á undanförnum áratugum og
þolir því ekki mikið veiðiálag. Þess
vegna voru hagsmunaaðilar, veiði-
menn og stjórnvöld sammála um að
grípa til ýmissa varnaraðgerða,
banna sölu á rjúpum og fækka veru-
lega veiðidögum. Þessi aðferðafræði
er rétt og um hana almenn sátt.
Ekkert kerfi er þó svo fullkomið að
ekki megi bæta það. Núverandi kerfi
skapar streitu hjá rjúpum og veiði-
mönnum. Á næsta ári þarf að ákveða
veiðidaga fyrir næstu þrjú árin,
veiðidagarnir þurfa að vera 12. Það
þýðir í raun sjö til níu virka veiði-
daga. Veiða ætti tvær helgar í októ-
ber, þrjár helgar í nóvember og eina
helgi í desember. Með þessu fyr-
irkomulagi væri því marki náð að
nýting rjúpnastofnsins yrði skyn-
samlegri, veiðarnar yrðu fjölbreytt-
ari og ánægjulegri og um þær yrði
meiri sátt en nú er.
Morgunblaðið/Ómar
Rjúpa Íslenski rjúpnastofninn er í niðursveiflu, þessi er spök á þaki.
Vá á veiðum
Nýting og náttúra
Sigmar B. Hauksson
Rannsóknin er
eigindleg
langtímarann-
sókn sem
byggist á við-
tölum við átta
konur; annars
vegar sex
mánuðum eft-
ir fæðingu og
síðan aftur
tólf mánuðum eftir fæðingu.
Konurnar voru valdar af handa-
hófi en höfðu allar fætt barn á
árinu 2011. Þær voru á aldrinum
24-43 ára og voru allar í föstu
sambandi, sambúð eða giftar.
Konurnar bjuggu allar á
höfuðborgarsvæðinu. Rann-
sóknin er á vegum Sóleyjar S.
Bender við hjúkrunar-
fræðideildar Háskóla Íslands og
styrkt af Landspítalanum og Fé-
lagi íslenskra hjúkrunarfræð-
inga. Fengin voru öll tilskilin
leyfi fyrir rannsókninni. Þá skal
þess getið að þær niðurstöður
sem fjallað er um í greininni
eiga eingöngu við um viðtölin
sem tekin voru sex mánuðum
eftir fæðingu.
Valdar af
handahófi
EIGINLEG RANNSÓKN
Sóley S.
Bender
www.volkswagen.is
A
uk
ab
ún
að
ur
á
m
yn
d:
16
“
ál
fle
gu
r,
þo
ku
ljó
s
Volkswagen Polo
Meðaleyðsla aðeins
3,8 lítrar á hverja 100 km*
Þarfir okkar eru misjafnar og við leitum leiða til
þess að uppfylla þær. Volkswagen Polo er öruggur,
hagkvæmur og þægilegur bíll sem mætir þínum
þörfum fullkomlega.
Komdu og reynsluaktu nýjum Volkswagen Polo í dag.
Polo Trendline 1.2 bensín, 70 hestafla,
beinskiptur
Polo kostar aðeins frá
2.350.000kr.
* Miðað við blandaðan akstur á beinskiptum Volkswagen Polo Trendline 1.2 TDI
Við fjármögnum þín bílakaupmiðað við Volkswagen Polo Trendline 1,2 TDI beinskiptan og
óverðtryggðan bílasamning með gullvildarkjörum frá Ergo til 84
mánaða og 25% útborgun. Hlutfallstala kostnaðar 11,25%.
29.898 kr.
á mánuði